Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBER1985 \ f> m r- mnmn JLI2LL „ Pabbiy m\g vontar tíu rau&a, 09 er\gar spumingar. ást er ... 118 ... að segja stund- um ekkert. Þ*A er luegt aó reaje bundinn af þeasu. Láttu hann fi bita af dinkin- um þínum, góóa. HÖGNI HREKKVlSI „ 0/PPU PANGAP TIL þAU KAUPA HÚSIP1.... f>Á GBTUfZÐV FENGIP LÁNAÐAN KATTAMAT .' " Hvað ætla yfirvöld Umferðin á helztu akstursleið- um inn í höfuðborgina frá út- hverfum og helztu nágranna- byggðum er komin í algert öng- þveiti á þeim tímum dagsins, þegar umferðin er mest. Sem dæmi skal tekin umferðin úr Kópavogi til Reykjavíkur rétt fyrir kl. 8 á morgnana. Þar háttar svo til, að umferðin úr austurbæ Kópavogs kemur eftir Nýbýlavegi og eftir hliðarbraut inn á Kringlumýrarbraut. Eftir Nýbýlavegi koma ekki aðeins bílar út austurbæ Kópavogs, heldur einnig töluverð umferð úr Breið- holti, en þeir ökumenn telja þá akstursleið líklega þrátt fyrir allt skárri en aðrar. Þar til fyrir nokkrum vikum gat umferðin úr vesturbæ Kópavogs farið eftir gömlum malarvegi, sem lá yfir Fossvogslæk skammt frá Nesti, og upp á gamla Hafnar- fjarðarveginn og þar áfram til Reykjavíkur um Suðurhlíð og Skógarhlíð. Nú hefur þessum gamla malarvegi verið lokað þann- ig að umferðin úr vesturbæ Kópa- vogs fer inn á sömu hliðarbraut inn á Kringlumýrarbraut og um- ferðin af Nýbýlaveginum. Þar er aðeins ein akrein og þarna verður fyrsti umferðarhnúturinn á þess- arileið. Þegar menn komast loks inn á Kringlumýrarbraut er um 3—4 leiðir að velja inn í höfuðborgina. { fyrsta lagi er hægt að beygja til vinstri inn á gamla Hafnarfjarðar- veginn sem nú heitir Suðurhlíð. Það dugar ekki lengi vegna þess, að um leið og komið er i beygjurnar við Fossvogskirkjugarð er komið umferðaröngþveiti vegna þess, að þessir bílar þurfa að komast inn á Bústaðaveginn, sem liggur nú orðið fram hjá veðurstofubygging- unni, en þaðan kemur einnig umferð úr annarri átt og raunar tveimur þannig að bílar komast ekki greiðlega þar yfir. { öðru lagi er hægt að beygja inn á Hamrahlíð af Kringlumýrar- braut en margir ökumenn á þess- ari leið hafa nú gert sér grein fyrir því. Þess vegna verður umferðar- öngþveiti þarna, fyrst þegar kom- ast þarf yfir aðra akrein Kringlu- mýrarbrautar og síðan þegar komast þarf inn á Miklatorg með því að aka eftir gömlum vegi, sem þar liggur frá Eskihlíð upp á gamla Hafnarfjarðarveginn, sem nú heit- ir Skógarhlíð á þessum slóðum. Það er ekki auðvelt að komast inn á hana vegna þess að mikil umferð kemur eftir henni frá Suðurhlíð og Bústaðavegi. Sumir reyna frek- ar að fara inn á Skógarhlíð hjá Þóroddsstöðum, en að er ekkert auðveldara. Aðrir aka reyndar út af vegarspottanum milli Eskihlíð- ar og Skógarhlíðar til þess að komast inn á Skógarhlíð. Þar er raunar bráðfyndið að fylgjast með þessum æfingum öllum. { þriðja lagi er hægt að taka beygju til vinstri inn á Miklubraut á ljósunum á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar. Sá hængur er á því, að ljósið, sem hleypir mönnum til vinstri inn á Miklubraut, sér til þess, að einungis 4 og í mesta lagi 5 bílar komast í einu, þannig að þar er alltaf röð 10—20 bíla á þessum tíma dagsins. Sumir þeir, sem fara Skógarhlíð beygja til vinstri áður en komið er að Miklatorgi og keyra eftir Vatnsmýrarvegi fram hjá Um- Víkveiji skrifar Um fátt er meira rætt 1 bænum þessa dagana en sýningu Þjóðleikhússins á Grímudansleik Verdis. Nánast ómögulegt er að fá miða á sýningarnar, enda seljast þeir upp á fyrsta hálftímanum, sem aðgöngumiðasalan er opin. Þessar miklu vinsældir Grímu- dansleiksins stafa ekki af því, að svo margar fallegar aríur séu í þessari óperu. Ástæðan er sú, að Þjóðleikhúsinu hefur tekizt að safna saman í þessa sýningu flest- um beztu ópersöngvurum okkar íslendinga. Þarna eru þau Krist- ján Jóhannsson, Sigríður Ella Magnúsdóttir og Kristinn Sig- mundsson. Að auki tvær upprenn- andi söngkonur Elísabet Eiríks- dóttir, sem vekur verulega athygli og Katrín Sigurðardóttir. Hið eina, sem á vantar til þess, að sýn- ingin sé fullskipuð beztu söngvur- um okkar af nýrri kynslóð er að þar syngi einnig hin stórglæsilega söngkona Ólöf Kolbrún Harðar- dóttir, sem ekki tekur þátt í þess- ari sýningu. Ef Þjóðleikhúsinu eða fslensku óperunni tækist að setja upp óperu með þessum sex söngv- urum yrði það menningarviðburð- ur, sem lengi yrði í minnum hafð- ur. Ekki fer á milli mála, að Krist- ján Jóhannsson nýtur gífurlegra vinsælda meðal áhorfenda. Hið sama má segja um Sigríði EUu Magnúsdóttur, sem lengi hefur verið í hávegum höfð. Af umtali áhorfenda í hléum og milli atriða má ráða, að það er stórsöngvarinn frá Akureyri, sem dregur að sér athyglina. Þjóðin gerir sér ber- sýnilega vonir um heimsfrægð. XXX Heimsfrægð er teygjanlegt hugtak. Í okkar huga á það sjálfsagt við um hinn vestræna heim þ.e. Evrópu og N-Ameríku. Tæpast verður talið, að nokkur Is- lendingur hafi náð því marki að verða heimsfrægur. Halldór Lax- ness varð þekktur víða um lönd, ekki sízt eftir að hann fékk Nób- elsverðlaunin fyrir 30 árum. En bækur hans hafa aldrei selzt í þeim risaupplögum erlendis, sem fylgir „heimsfrægð" rithöfundar. Óg raunar á það við um marga Nóbelshöfunda. Gunnar Gunnars- son varð mjög þekktur rithöfund- ur á Norðurlöndum og í Þýzka- landi fyrir stríð. Kristmann Guð- mundsson varð einn vinsælasti höfur í Noregi um skeið. Pétur Jónsson náði langt sem óperu- söngvari í Evrópu á fyrri hluta aldarinnar. María Markan var ráðin til Metropolitan óperunnar í New York og söng þar um skeið. Það er meiri háttar afrek að ná svo langt. Erró hefur náð langt. En sennilega er Helgi Tómasson sá Islendingur, sem á síðari tím- um hefur náð einna lengst i list- grein sinni á alþjóða vettvangi. Hann hazlaði sér völl í New York, þar sem samkeppnin er hörðust. Og þegar upp var staðið hlaut hann þann dóm hjá Önnu Kisselg- ofu, balletgagnrýnanda New York Times, að hann væri einn af fimm beztu karlbailetdönsurum heims. Kristján Jóhannsson er ekki orðinn „heimsfrægur". En honum hefur tekizt að hazla sér völl í óperuhúsum beggja vegna Atl- antshafsins. Það er mikill árang- ur. Þegar honum verður boðið að syngja meiriháttar hlutverk í Scalaóperunni í Mílanó og Metro- politan óperunni í New York get- um við í alvöru farið að tala um heimssöngvara. XXX að er að verða óþolandi að fylgjast með því, hvernig viss hópur kaupsýslumanna vinnur að að gera? ferðarmiðstöðinni og inn á Hring- braut á ljósunum þar. Það tekur ekki styttri tíma einfaldlega vegna þess að svo margir bílar bíða við þau ljós. Sá möguleiki er til að losna við umferðarhnútinn á gatnamótum Suðurhlíðar og Bú- staðavegar keyra eftir gömlum malarvegi kringum hálfa öskju- hlíð eftir svonefndum Hlíðarfæti fram hjá Loftleiðahótelinu og inn á Vatnsmýrarveg en þá enda menn á sömu ljósum og áður var lýst. Ein leynileið er til, sem verður það að sjálfsögðu ekki héðan í ffa, sem er sú, að beygja yfir á hina akrein Kringlumýrarbrautar, þegar kom- ið er fram hjá brúnni og aka þar upp á Bústaðaveg og þá er tiltölu- lega greið leið að Miklatorgi þar sem alltaf var umferðarteppa. Þegar brúin yfir Kringlumýrar- braut verður opnuð er þessi leið að sjálfsögðu úr sögunni, sem greiðfær akstursleið. Þetta ástand er orðið óþolandi með öllu. Hvað ætla viðkomandi bæjaryfirvöld að gera. Ástandið núna er verra en í fyrra. í fyrra var ástandið verra en í hitteðfyrra o.s.frv. Það verða ekki mörg ár þangað til, að það tekur ekki styttri tíma að komast til vinnu úr Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Breiðholti en úr Hveragerði. Svar óskast um fyrirætlanir yfir- valda í þeim bæjarfélögum sem hér eiga hlut að máli. Og þá hefur ekki verið minnzt á þau ósköp, þegar byrjar að snjóa og Kringlu- mýrarbrautin, sem augljóslega er ranglega hönnuð, verður að stór- fljóti yfir að fara og hver bíllinn á fætur öðrum stöðvast, þ.e. þeir sem ekki komast til þess að aka eftir þeim. Ká. því að eyðileggja íslenskt mál. Hvarvetna blasa við erlend fyrir- tækjaheiti: Western fried chicken, Southern fried, Kentucky fried, Broadway o.s.frv. Við þessi er- lendu heiti á fyrirtækjum bætist nú, að þeir eru farnir að setja upp heljarstór auglýsingaskilti við hraðbrautir með þessum ósóma, eins og t.d. má sjá, þegar ekið er um Mosfellssveit, þar sem skilti með nafninu: „Western fried chicken" blasir við augum, þegar ekið er úr höfuðborginni vestur og norður. það á að banna erlendu fyrirtækjaheitin með lögum og það á að banna þessi auglýs- ingaskilti. Fyrr en varir verða þau orðin að alvarlegri umhverfis- mengun, eins og þau hafa alls staðar orðið. xxx Eftir því, sem hraðbrautir með varanlegu slitlagi verða lengri eykst þörfin fyrir lýsingu við þess- ar brautir. Aksturshraði er meiri á þeim en á malarvegum og því mikil hætta á ferðum í misjöfnum veðrum og slæmu skyggni. Alveg sérstaklega er nauðsynlegt að koma strax á götulýsingu á hraðbrautinni milli Reykjavíkur og Mosfellssveitar, þar sem um- ferðin er orðin gífurlega mikil. XXX Nokkurra áratuga hlé hefur orðið á dálkum Víkverja í Morgunblaðinu. Þeir hefja nú göngu sína á ný og munu birtast við og við eftir atvikum. Vanga- veltur um höfund þeirra eru óþarfar. Þeir verða margir. En þar sem þetta er nafnlaus dálkur munu þeir að sjálfsögðu skrifa á ábyrgð ritstjóra eins og í gamla daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.