Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.10.1985, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR15. OKTÓBBR1985 33 Flugferðir — Sólarflug: „Fyrirhyggjuafsláttur“ á Kanaríeyjaferðum FERÐASKRIFSTOFAN Flugferðir, Sólarflug hefur tekið upp þá nýjung, að þeir sem panta fyrstir í Kanaríeyjaferðir hjá fyrirtækinu fá ódýrustu ferðirnar. í fréttatilkynningu frá ferða- skrifstofunni segir m.a.: „Oft hefur það tíðkast að fyrirhyggjufólkið, sem pantar snemma í sólarlanda- ferðir, borgar hæsta verðið, og fær ekki notið þeirra afsláttar, og út- sölukjara, sem stundum hefur tíðkast varðandi „síðustu sætin". Margir hafa líka misst af óskaferð- inni og hvergi fengið pláss, vegna þeirrar áhættu, sem tekin var með því að bíða eftir útsölusætum, sem svo oft urðu engin. Með þessu nýja fyrirkomulagi verður sú breyting á, að þeir sem hafa fyrirhyggju og panta fyrstir fá einmitt „útsöluafsláttinn" í sól- arlandaferðina, og getur hann í þessum tilvikum numið allt að kr. 10.000, tíu þúsund krónum á fer, eða samtals kr. 40.000, fjörutíu þúsund krónum fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Með því að fólk panti snemma er raunverulega hægt að lækka ferðakostnaðinn svona mikið, því þá gefst tækifæri til þess að njóta allra bestu kjara með gistingu og flugkostnað, og skipuleggja nýt- inguna betur. Þetta fyrirkomulag færir þenn- an hagnað til hins forsjálna ferða- langs og gerir mönnum kleift að ferðast, sem annars ættu þess varla kost. „Fyrirhyggjuafslátturinn" gild- ir fyrir takmarkaðan sætafjölda í öllum ferðum Flugfeða, Sólarflugs til Kanaríeyja, Tenerífe, nema á jólum og páskum." Danska uppboðshúsið: Gott skinnaverð á „septemberuppboðinu“ SVOKALLAÐ septemberuppboð á loðskinnum sem haldið var í upp- boðshúsi danska loðdýraræktarsam- bandsins í Kaupmannahöfn fyrir skömmu gekk vel, að sögn Jóns Ragnars Björnssonar framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra loðdýra- ræktenda. Á uppboðinu er selt það sem eftir er af framleiðslu síðasta árs, m.a. mikið af skinnum í lélegri skinnaflokkunum. Sagði Jón Ragnar að verðið hefði verið sambærilegt við verðið sem fékkst á uppboðunum i vor. Á uppboðið fóru 930 þúsund minka- skinn og tæplega 8 þúsund refa- skinn auk annarra teguna. Öll skinnin seldust upp. Jón Ragnar sagði að útlitið væri nokkuð bjart fyrir komandi sölu- tímabil. Sagði hann að menn spáðu vel fyrir blárefnum, en hins vegar ættu menn frekar von á verðlækk- un á minkaskinnum. Uppboðshús danska loðdýraræktarsambands- ins er orðið eitt af þeim allra- stærstu í heiminum. í vetur verða seld þar um 10 milljón minkaskinn og 200 þúsund refaskinn auk ann- arra tegunda og er söluverðmætið áætlað 12-14 milljónir ísl. krónur. Ekki er vitað hvað mikið af ís- lenskum skinnum fer til sölumeð- ferðar þar, því íslensku skinnin fara einnig til sölu hjá Hudson’s bay uppboðshúsinu í London. Jón Ragnar sagði áætlað að héðan færu samtals um 44 þúsund refa- skinn og 22 þúsund minkaskinn. Gestir Fredda sitja við leiktæki, en þarna er boðið upp á nýjung, sem víða tíðkast erlendis, að gestir geti setið við tækin. Freddi flytur í Tryggvagötu 1. OTKTÓBER sl. flutti leiktækja- salurinn Freddi sig um set í mið- bænum, úr Fjalakettinum, Aðal- stræti 8, í Tryggvagötu 32, sem er við hliðina á ESSO á horni Tryggva- götu og Kalkofnsvegar. Hið nýja er sérhannað fyrir rekstur leiktækjastofu og allt hið glæsilegasta. Á staðnum eru um 30 tæki og í næstu viku er von á nýjum leiktækjum erlendis frá. Leiktækjasalurinn Freddi er op- inn daglega frá klukkan 10 til 23.30. í halanum en ekki á MISRITUN varð í fyrirsögn á grein eftir Garðar Cortes í föstu- dagsblaði Morgunblaðsins. Fyrir- sögnin átti að vera: „Oft dregur lofið háðið í halanum.“ Ég kalla mig ekki aflakló64 55 ÞORSTEINN VILHELMSSON skipstjóri á frystitogaranum Akureyrinni EA 10 í viðtali viðÓlafH.T orfason. Annað fólk í 9. tbl. 1985: HANNES PÉTURSSON skrifar um „Draug í Austur- dal“ og galdrahringi, STEINDÓR STEINDÓRSSON frá Hlöðum um nýjustu árásir á Darwinismann, ÞOR- BJÖRN KRISTINSSON um unglingaástir og BJARNI FRÍMANNSSON frá Efrimýrum um fyrstu búskapar- árin. GUNNAR SVERRISSON, GUÐJÓN SVEINS- SON og ÓSKAR ÞÓRÐARSON frá Haga yrkja um haustið. BIRGITTA HALLDÓRSDÓTTIR á Leifs- stöðum birtir smásöguna „Bananar og brennivín“. MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR leikstjóri og ÞÓRA HJALTADÓTTIR forseti Alþýðusambands Norður- lands etja kappi í spurningagetrauninni. Frumbirting á ,,Fjármannsrímu“ HÖSKULDAR EINARSSONAR frá V atnshorni um Sigurð J ónsson frá Brún. Heimaerbezt © 96-22500 (EKKI SELT Á BLAÐSÖLUSTÖÐUM) _________Fyrirtaki sem nota IBM System/36_________ Hagræðing fyrir skrifstofufólk! Meö stööugri þróun og markvissum rannsóknum á sviöi hugbúnað- ar hefur IBM endurbætt stýrikerfið fyrir System/36. Nýja stýrikerfiö felur í sér möguleika sem auka til muna notagildi tölvunnar. Því fylgja fullkomin, samvirkandi kerfi, einkar gagnleg fyrir skrif- stofufólk, sem getur nú án aðstoðar kerfisfræðinga leyst fjölbreyti- legustu verkefni varðandi ritvinnslu, gagnasöfnun og fleiri skrifstofustörf. Stjórnunarfélag íslands gengst fyrir námskeiðum í notkun þessara kerfa. Á þrem fyrstu námskeiðunum verða tekin fyrir: DisplayWrite/36 Displaywrite ritvinnslutölvan er fyrirmynd þess öfluga kerfis sem auk hefðbundinna ritvinnslu- aðgerða býður upp á ýmsa tengingarmöguleika, m.a. við kerfi varðandi útsendingu dreifibréfa, innanhússpóst og leiðréttingar texta. Query/36 Með þessu nýja fyrirspurnamáli, geta notendur útbúið hvers konar fyrirspurnir og tölvulista út frá skrám á diskum, bætt við gagnaskrár og leiðrétt. IDDU Með IDDU eru settar upp nýjar gagnaskrár og Query kerfið tengt við þær skrár sem fyrir eru í tölvunni. Námskeiðin byggjast að mestu leyti á verklegum æfingum og mark- miðið er að þátttakendur öðlist sjálfstæði í notkun kerfanna. Stjórnunarfélag Islands Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.