Tíminn - 29.09.1965, Side 2
imim
MIÐVIKUDAGUR 29. september 1965
■l
f
Þriðjudag'ur, 28. sept.
NTB-Saigon. — Miklir bar-
dagar geisuðu í kvöld milli
Vietcong og Suður-Víetnam-
manna á svæðinu við Phu Cu
um 480 km norðaustur af
Saigon. Er talið, að Vietcong,
sem venjulega gerir árásir í
100—200 manna hópum, hafi
um 1000 manns í þessum bar-
dögum. Flugvélar Suður-Víet-
nam hafa verið sendar til bar-
dagasvæðisins til þess að gera
loftárásir á stöðvar Víetcong.
NTB-París. — í dag hófust
viðræður milli Frakklands og
Kínverska Alþýðulýðveldisins
um menningarleg, vísindaleg
og tæknileg tengsl ríkjanna.
NTB-Leopoldville. — Flugvél
ar úr her Kongóstjórnar gerðu
í dag árásir á þann hluta Bar-
aka við Tanganyika-vatnið, sem
uppreisnarmenn ráð yfir.
Kveiktu flugvélarnar í mörg-
um byggingum. Jafnframt voru
bermenn stjómarinnar óvænt
settir á land í gær í Bara’ka og
komu Þeir upp herstöð þar.
Vinnur herinn nú að því að
útrýma uppreisnarmönnum í
Kongó.
NTB-Washingtoh- — Brezki
fjármálaráðherrann, James
Callaghan, sagði í ræðu í Wash
ington í dag, að Bretland hefði
unnið baráttuna gegn hallanum
á greiðslujöfnuði sínum, og
sýnt heiminum að gengi punds
ins yrði ekki fellt. Hann sagði,
að þetta væri þó ekki hið sama
og að segja, að efnahagsvand
ræði landsins hefðu verið leyst.
HL YÐNAST EKKIFYRIRSKIPUN
ÖR YGGISRÁÐSINS UM VOPNAHLÍ
NTB------New York Rawalpindi og
New Delhi, þriðjudag.
Bæði Indland og Pakistan til-
kynntu í dag um nýja liðsflutn-
irega og bardaga á vopnahléslín-
unni. Virðist hvorugur aðilinn
hafa í hyggju að hlýða fyrirskip-
u.n Öryggisráðsins, sem samþykkt
var í nótt, um að hörfa með lið
sitt til þeirra’stöðva, sem það var
á, áður en bardagarnir hófust.
Pakistanar fullyrtu í dag, að
indverskar flugvélar hefðu gert
árásir í Sunbhra í Sind-svæðinu
í Rajastan. Indland neitar þessu,
og segir, að tilkynningin sé hrein
lygi.
Indversk yfirvöld tilkynntu í
Sfðasta tilraania til vín-
lausra unglingaskemmtana
JHM-Reykjavík, þriðjudag.
Annað kvöld, miðvikudag, verð-
ur haldin hljómleikaskemmturi í
Háskólabíói á vegum forráða-
manna skemmtistaðarins Lídó, og
koma þar fram m. a. bandarískir
skemmtikraftar, sem kalla sig „the
Dave Bunker Show“. Þessi liópur
sem í er m. a. móðir og þrjár ung-
ar og fjölhæfar dætur, mun einn
ig koma fram nokkur kvöld í
Lídó.
Á hljómleikunum koma einnig
fram Savanna-tríóið með ný lög,
Hermann Ragnars mun sýna nýj-
ustu dansana, og Dátarnir munu
leika nýjustu bítlalögin. Forráða-
menn Lídós, þeir Hilmar Helga-
son og Róbert A. Kristjónsson, boð
uðu blaðamenn á sinn fund í til-
efni af þessum hljómleikum, og
einnig til að ræða við þ‘á úm fr'árn-
tíð hirina vínlausú skériimtana,
sem haldnar eru í Lídó fyrir ungl-
inga.
Hilmar og Róbert tjáðu blaða-
mönnum að þetta yrði sennilega
síðasta tilraunin af þeirra hálfu
til að halda uppi rekstrinum þar
og byggja hann eingöngu á ungl-
ingum. Komið hefur í ljós, að
skilningsleysi hins opinbera varð-
andi aldurstakmörk unglinga er
nú að sliga allan reksturinn, og
þó einkum afstaða lögregluyfirvald
anna. Kváðust forráðamenn ekki
sjá fram á annað en lokun, ef ekki
fengist leiðrétting. Undanfarin
misseri hefur Lídó verið rekið
eingöngu fyrir unglinga, áfengis-
laust, og aldrei borizt kvartanir
um drykkjuskap gesta þar. Lög-
reglusamþykktin mælir svo fyrir,
að 12—14 ára unglingar fái að
vera úti á kvöldin til klukkan 10
á vetrum en til kl. 11 á sumrum.
Um fimmtán ára unglinga er ekki
rætt, og er því, að því bezt virð-
ist, gatan þeirra eina athvarf, en
ekki vínlausir skemmtistaðir eins
og þessi. Hefur Lidó margsinnis
léitað eftir undariþágú frá þéssari
reglu varðandi fimmtán ára ungl-
iriga, en árangurslaust. Lögðu þeir
Hilmar og Róbert enn áherzlu á,
að allar skemmtanir á vegum
Lídós væru undir strangasta eft-
irliti.
Þeir sögðu að mikið bæri á því,
að unglingar undir aldurstakmark-
•hiMíu
Vetrarstarfsemi
áhugaljósmynd-
ara að hefjast
Félag áhugaljósmyndara hefur
vetrarstarfsemi sína næstkomandi
miðvikudagskvöld, með fundi í
Breiðfirðingabúð uppi kl. 20.30.
Á fundum félagsins í vetur
verða að venju sýndar kvikmynd
ir og litgeislamyndir, og auk þess
verður reynt að fá menn til að
flytja erindi um ýmis efni, sem
að einhverju leyti snerta áhuga-
ljósmyndara.
Myndasamkeppni með verð-
launaveitingum hefur verið fast
ur liður í starfsemi félagsins, og
mun svo verða áfram. f vetur
geta félagsmenn unnið mörg verð
laun, því að myndasamkeppnin
verður í fimm liðum. Þar verður
keppt um frjálst verkefnaval (tvö
keppnistímabil), um landslags-
myndir og andlitsmyndir. Þetta
eiga að vera svart-hvítar myndir,
og verðlaun eru silfurbikarar og
bækur, Meðal þessara verðlauna
eru tveir stórir og fallegir bikarar
úr silfri, sem nú verður keppt
um í fyrsta skipti. Afga-umboðið
gefur annan þeirra, en Haukar hf-
hafa gefið hinn. Ennfremur verð
ur keppni um litgeislamyndir.
Skulu það vera landkynningar-
myndir. Verðlaun í þessari keppni
gefur Flugfélag íslands, og eru
það flugferðir, bæði innanlands-
flug og utanferð.
Nýtt heimili fyrir van-
gefna tekur til starfa
GE—Reykjavík, þriðjudag.
Frétta- og blaðamönnum var í
dag boðið að sjá nýtt heimili fyrir
vangefin börn, sem er að taka til
starfa um þessar mundir að
Tjaldamesi í Mosfellsdal. Heimilið
er vistlegt og rúmgott og getur
tekið á móti tíu börnum í einu,
þar eru fimm svefnherbergi, setu
stofa, eldhús, borðsalur o>g hrein-
'ætisherbergi auk skrifstofu,
kennsíustofu og hcrbergja fyrir
starfsliðið. Heimilið er sjálfseign-
arstofnun og var formlega skrá-
sett í júní s.l.
Félag það, sem stendur að þess-
ari stofnun, var stofnað fyrir rúm
um tveim árum, og var formaður
félagsins Friðfinnur Ólafsson, for
stjóri. Félagið keypti þriggja hekt
ara land af Mosfellskirkju í því
skyni að reisa þar heimili fyrir
vangefin börn.
Markmið þeirra félagsmanna var
að láta heimilið minna sem
minnst á hæli, heldur hafa það
sem .smæst í sniðum og láta það
vera sem líkast venjulegu, stóru
heimili, eins og Friðfinnur Ólafs
son opnaði það. Tilraunir með slík
heimili hafa verið gerðar víða um
lönd og víðast hvar þótt gefa góða
raun. /
Yfirlæknir Kópavogshælis úr-
.skurðar sjúklingana á heimilið og
] hefur yfirumsjón með því, enn-
; fremur er heimilið undir umsjón
5 landlæknis og heilbrigðisyfirvalda
i og Sigurjón Björnsson, sálfræð-
' ingur fylgist með andlegri heilsu
! sjúklinganna. Ef heimilið hættir
! störfum af einhverjum sökum,
munu allar eignir þess renna til
ríkisins.
Friðfinnur gat þess, að heimil
inu hefði áskotnazt ýmsar stórgjaf
ir frá fjölmörgum félögum og
j einstaklingum. Meðal annars hefði
I Styrktarfélag vangefinna lagt
i fram 1.8 milljón króna, Reykjavík
! urborg 100 þús. krónur, og svo
hefðu tveir Lionsklúbbar, Þór og
Njörður og kvenfélag Styrktarfé-
lags vangefinna gefið stórfé til
heimilisins. Báðu forráðamenn
heimilisins um, að þessum mönn
um yrðu fluttar kærar þakkir fyr
ir framlögin, og sögðust vona, að
stjórnarvöld mundu sýna málefn
um vangefinna meiri áhuga hér
eftir en þau hefðu gert hingað til.
Forstöðumaður heimilisins er
Alan Stenning en hann hefur starf
að mjög að málefnum vangefinna
og er sérmenntaður á því sviði.
Eins og áður er getið, getur heim
ilið veitt tíu börnum viðtöku, og
nú þegar eru þar sex drengir, en
heimili þetta miðast eingöngu við
drengi.
inu væru nú með fölsuð skírteini,
eða með lánuð frá eldri systkinum
eða vinum. Þar til í ágústmánuði
s. 1. þá var ekki svo gott að fylgj-
ast með aldursmörkunum, en um
leið og skírteinin komu til sög-
unnar minnkaði aðsóknin að
Lídó, í fyrsta lagi vegna eftirlits-
ins við innganginn og margur ungl
ingurinn vill ekki ganga með þessi
skírteini. Þeir sögðust vita til
þess að unglingar þeir, sem vísað
hefði verið frá hefðu farið á aðra
staði, þar sem eftirlitið er minna,
bæði hér í borginni og fyrir utan
hana. Eitt kvöldið komust inn í
Lídó 80—90 unglingar af um 400
—500, sem voru fyrir utan.
Þeir hafa gert ýmsar tilraunir
til að breyta þessu, og m. a. boðið
ÆJskulýðsráði að reka staðinn í
sarrivinriu við þá, bæði fyrir dans-
skemmtanir - og tómstundagaman.
Þeir sögðu að lokum, að ef
þessi tilraun með að fá erlenda
skemmtikrafta til að auka aðsókn-
ina mistækist, þá yrðu þeir að
breyta staðnum yfir í vínveitinga-
hús. Þetta þýddi það, að ekkert
athvarf væri fyrir hina ungu borg
ara, sem gaman hafa af að dansa
j og hlusta á hljómlist, en slíkt yrði
Imjög bagalegt ástand fyrir alla
! aðila hér í Reykjavik.
j ÍÞRÖTTIR
ig hinum sanna tilgangi iþróttanna
náð.
Reynir vill á þessum tímamót j
i um þakka öllum þeim, sem greitt:
: hafa götu félagsins. Félagar Reyn !
| ir vita, að þeir hafa ekki bolmagn ■
j til að lyfta Grettistaki á afreks-;
I sviði íþrótta, en Þeir eru ákveðnir j
| að láta merkið ekki niður falla j
heldur vera með í lífi og starfi !
íslenzkra íþrótta, gleðjast yfir i
sigri og taka ósigri með jafnaðar ;
geði og reyna betur næst.
Þess má að lokum geta, að nú-
verandi formaður Knattspyrnu-
félagsins Reynis er Gottskálk
Ólafsson-“
iÞROTTIR
fyrsta skipti, sem ísl- kvennalið j
tilkynnir þátttöku í Evrópubikar;
keppni í hand'knattleik. Áður hafa j
karialið tekið þátt í Evrópubikar j
keppni með ágætum árangri en ]
það var Fram, sem var með 1962
og á síðasta ári. Og nú hafa ís-
landsmeistararnir frá síðasta ári,
FH, tilkynnt þátttöku í keppninni
í fyrsta sinn. H-ingar þúrfa ekki
að lei'ka í fyrstu umferð keppn
innar, en ekki er vitað hverjum
Þeir mæta í annarri umferðinni,
en lið í hana verða dregin saman
17. nóvember n. k.
Sem sé; keppnistímabil hand-
knattleiksmanna sem framundan er
verður að öllum líkindum viðburð
arríkt — landsleikir hjá kvenna-
og karlalandsliðunum og keppni
karla- og kvennaliða i Evrópubik
arkeppninni.
dag, að herlið þeirra hefði útrýmt
pakistanskri herdeild á svæðinu
um 45 km. fyrir suðaustan Gadra
í Rajastan, og að þeir hefðu náð
á sitt vald þorpinu Sachu 125
km norðaustur af Bikaner, sem
Pakistanar hefðu náð á sitt vald
eftir að vopnahléð hófst, að því
er Indverjar segja.
Pakistanska útvarpið tilkynnti
í dag, að Indverjar hefðu rofið
vopnahléð á svæðinu fyrir austan
Lahore og við Chamb í Kasmír.
Kasmír-málið var rætt á fundi
allsherjarþings Sameinuðu þjóð-
anna í dag. Bhutto, utanríkisráð-
herra Pakistans, lagði til, að bæði
indverskt og pakistanskt herlið
yrði kallað út úr Kashmír og Sþ-
herlið sent þangað til þess að
koma á þjóðaratkvæðagreiðslu í
landinu. Gagnrýndi hann mjög að
gerðarleysi Sameinuðu þjóðanna
í málinu síðustu 18 árin.
SLYS
Framhald af bls. 1.
þar af varð eitt banaslys. Flest
slysin á hjólreiðarmönnum urðu
í júlí eða 10, í maí 8, 5 í apríl og
júní, 4 í ágúst, 3 í marz, 2 í janú-
ar og eitt í febrúar. Innifalin í
þessum slysatölum eru slys á
„skellinöðrunum" svonefndu, þ. e.
reiðhjólum með hjálparmótor, en
í þeim hafa 8 manns slasazt.
Af þessum 269, s^m ^lasazt hafa
eru a.m.k. 65 börn en enn er ekki
lokið við að gariga frá skýrslum
um aldursskiptingu farþega í bif
reiðum, og hafa börnin ‘65 flest
slasazt þannig, að þau hafa orðið
gangandi fyrir bíl en einnig hafa
nokkur slasazt á reiðhjólum.
í fyrra höfðu nokkuð færri slas-
azt í umferðarslysum í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur, a.m.k. í
þeim slysum, sem götulögreglunni
var tilkynnt um, í lok ágústmánað
ar, eða 239. Hins vegar hafa nú
orðið helmingi færri banaslys en
þá, því að þá höfðu 6 manns beð
ið bana í umferðarslysum hér í
borg.
í janúar í fyrra slösuðust 45,
en 27 í ár. í febrúar ‘64 slösuðust
26, en 16 í ár. í marz ‘64 24, en
42 í ár, í apríl í fyrra 38, en 34 í
ár í maí ‘64 35, en 41 ‘65, í júní
í fyrra 15, en 34 í ár, í júlí ‘64
34 en 33 í ár, og í ágúst í fyrra 22
en 42 í ár.
Banaslysin í ár skiptast þannig
að tvö þeirra urðu í janúar, þá
beið kona á áttræðisaldri bana,
er hún varð fyrir bíl, og barn á
reiðhjóli hlaut bana, er það varð
fyrir bíl. Þriðja banaslysið varð
svo í marz, en þá varð kona um
sjötugt fyrir bíl.
Þótt banaslysin séu sem betur
fer helmingi færri það, sem af er
árinu ber einnig á það að líta, að
tala slasaðs fólks er hærri, og að
enn er hættulegasti tími ársins
eftir. Er því nauðsynlegt fyrir alla
löggæzlumenn og borgara að vera
vel vakandi á verðinum. Rétt er
að benda á það, að einmitt núna
stendur yfir mikil herferð lög-
reglunnar í Reykjavík í umferð-
armálunum. Lögegluþjónar heim
sækja alla skóla og upplýsa börn
in, bæði með fyririestrum og
með því að útbýta bæklingum um
umferðarmál, og lögregluþjónar
leggja mikla áherzlu á að leið-
beina gangandi fólki, sem því
miður er ekjji vanþörf á. Er von
andi, að allir leggist á eitt um
að þetta ár verði ekki eins mikið
slysaár í umferðinni í heild sinni
hér í Reykjavík og árið 1964.