Tíminn - 29.09.1965, Blaðsíða 5
MIDVIKUDAGUIt 29. september 1965
Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur i Eddu-
húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur, Bankastræti 7 Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingaslmi 19523 Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 90.00 á mán. innanlands. — í
lausasölw kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
. —-
Hví var Helgi valinn?
Allmikið umtal hefur orðið um kaup ríkisins á húsi
Guðmundar í. Guðmundssonar og það ekki að ástæðu-
lausu, því að verðið er ótrúlega hátt. Bæði í Þjóðviljanum
og Mbl. hefur verið reynt að kenna Hermanni Jónassyni
um, því að kaupin voru ákveðin í dómsmálaráðherratíð
hans, þótt þau væru ekki framkvæmd fyrr en nú. Rétt
þykir því að rekja það, að það er á engan hátt sök Her-
manns, hve fjarri lagi kaupverðið er.
Samkvæmt gildandi lögum frá 1947 skal ríkið láta
byggja eða kaupa bústaði fyrir héraðsdómara eða hæsta-
réttardómara. í samræmi við þau hefur ríkið nú eignazt
bústaði fyrir alla héraðsdómara, nema þrjá. í flestum
tilfellum hefur þetta verið framkvæmt þannig, að keypt
ir hafa verið bústaðir af fráfarandi héraðsdómurum. Ekki
var óeðlilegt^ að Guðmundur í. Guðmundsson nyti hér
sama réttar og aðrir hliðstæðir embættismenn.
í þessu máli er því vart rétt að deila á þá ákvörðun,
að hús Guðmundar í. Guðmundssonar skyldi keypt, held-
ur hitt hvernig kaupin voru framkvæmd.
Samkvæmt bréfi Hermanns Jónassonar, þar sem kaup-
in voru ákveðin, skyldi verð hússins ákveðið þannig, að
seljandi (þ. e. Guðmundur) tilnefndi matsmann af sinni^
hálfu, og kaupandinn (þ. e- ríkið) annan. Ef þessir tveir
matsmenn yrðu ekki sammála um verðið, skyldi Hæsti-
réttur tilnefna hlutlausan matsmann til að ákveða verð
ið. Samkvæmt þessu átti ríkið að hafa í hendi sér, að
verðið yrði sanngjarnt, þar sem matsmaður þess þurfti
ekki að ganga að neinu, sem var óeðlilegt, heldur gat
1 sambandi við ráðherra skotið málinu til hlutlauss yfir-
mats.
Af hálfu núv. ríkisstjórnar, er þetta framkvæmt
þannig, að hún velur sem matsmann sinn Helga Eyjólfs
son, sem lengi hefur verið og er undirmaður Guðmundar
í. þegar matið fer fram. Það er með öllu óeðlilegt, að
undirmaður sé þannig látinn meta hjá yfirmanni sínum.
Það verður þó að teljast ótrúlegt, að Helgi Eyjólfsson hafi
gengið að hinu háa kaupverði án þess að láta viðkomandi
ráðuneyti vita og gefa því þannig kost á að skjóta mál-
inu tíl yfirmats.
Erlendis myndi það þykja mikið hneykslismál, ef
undirmaður væri látinn meta éign yfirmanns síns í slíku
tilfelli, og undirmaðurinn ákvæði kaupverðið, án vitund-
ar viðkomandi ráðuneytis. Ótrúlegt er, að íslendingar séu
á lægra siðferðisstigi í þessum efnum en aðrar þjóðir.
Þessvegna hlýtur þáð að vera krafa, að eftirfarandi fáist
upplýst: Hvers vegna var Helgi Eyjólfsson valinn sem
matsmaður og ákvað hann húsverðið án allrar vitundar
viðkomandi ráðuneytis?
Stríð við sjúklinga
í seinasta sunnudagsblaði Tímans var skýrt frá því,
að vegna deilu við lækna, hefði Tryggingastofnun ríkis.
ins ákveðið, að sjúkrasamlögin mættu ekki greiða einka-
sjúkrahúsunum, nema visst daggjald, sem er mun lægra,
en húsin þurfa að fá. Afleiðingin er sú, .að sjúklingar
verða sjálfir að taka á sig miklu meiri greiðslur en ella.
Hér er vissulega rangt farið að. Sjúklingar eiga ekki
að gjalda þess, þótt læknar og Tryggingastofnunin deili.
Landlæknir og heilbrigðismálaráðherra verða tafar-
laust að hlutast til um, að þessari deilu við læknana
sé ekki snúið í stríð gegn sjúklingum, eins og nú á sér
raunverulega stað.
TÍMINN
ERLENT YFIRLIT
Nýr forsætisráöherra Noregs
Hann hefur breytt íhaldssömum bændaflokki í frjálslyndan miðflokk
EG VAR staddur í Osló dag-
inn eftir að kunnugt varð um
úrslitin í norsku kosningunum.
Eg spurði nokkra óbreytta
borgara, sem ég hitti um dag
inn, einkum bílstjóra og skrif
stofufólk, hver myndi verða
næsti forsætisráðherra Noregs.
Þeir, sem ég spurði, voru yfir
leitt annaðhvorf Alþýðuflokks
menn eða hægri menn. Svar
hægri manna var, að þeir
kysu helzt John Lyng, en
sennilega fengju þeir ekki for-
sætisráðherrann, og þá væri
Per Borten bezta forsætisráð
herraefnið. Svar Alþýðuflokks
manna var undantekningarlít-
ið að Per Borten væri bezta
forsætisráðherraefni borgara-
legu flokkanna. Hann væri
frjálslyndur, traustur og gæt
inn og myndi ekki rasa um
ráð fram. Um Röiseland voru
skoðanir meira skiptar. Dag-
inn eftir fluttu blöðin yfirleitt
þær fréttir, að Röiseland
myndi verða fyrir valinu. Sagt
var, að Vmstri fl. styddi
hann eindregið og einn af
leiðtogum Kristilega flokksins
hafði lýst stuðningi við hann,
enda hefur Röiseland tekið þátt
í félagsskap heimatrúboðs-
manna. Vitað var líka, að Per
Borten myndi ekki sækjast eft
ir embætti forsætisráðherrans.
Niðurstaðan hefur samt orð
ið sú, að Per Borten varð fyrir
valinu. Mér er ekki fjarri lagi
að halda, að það stafi af því,
að forustumenn borgaralegu-
flokkanna, hafi komizt að raun
um, að meðal hinna óbreyttu
borgara landsins nyti hann
mests trausts, næst á eftir
Gerhardsen. John Lyng er
einnig í miklu áliti, en geldur
þess að vera hægri maður. Eg
hefi fáa menn heyrt tala, sem
vekja öllu meiri tiltrú en hann.
Röiseland þykir annars snjall
astur og skemmtilegastur ræðu
maður þeirra aUra. Samt var
mér sagt, að af þeim þremenn
ingum hafi Borten þótt standa
sig bezt í útvarps- og sjónvarps
umræðunum fyrir kosningar.
Hann hélf sér bezt við aðal-
atriðin og virtist hafa mestan
áhuga, en var þó rólegur og
íhugandi, að vanda. Honum
tókst að vekja mesta tiltrú.
PER BORTEN er 52 ára gam
all, fæddur og uppalinn í
Þrændalögum, lauk ungur bú-
fræðiprófi frá búnaðarháskól-
anum í Ási og gerðist síðan
héraðsráðunautur í heima-
byggð sinni. Hann hóf strax
afskipti af stjórnmálum að
sfríðinu loknu og hlaut fljótt
ýmsar trúnaðarstöður sem full
trúi Bændaflokksins í sveita og
héraðsstjórunum. Árið 1950 var
hann kosinn á þing og hefur
átt þar sæti síðan. Árið 1956
var hann kosinn formaður
þingflokks Bændaflokksins en
formannsskipti höfðu þá verið
tíð í flokknum um skeið. Per
Borten hafði fram að þeim
tíma ekki haft sig mikið í
frammi, því að hann er rólynd
ur og hlédrægur að uppiagi.
Margir töldu þá, að það væri
hálfgert neyðarúrræði að gera
hann að flokksformanni en
reynslan hefur sýnt hið gagn
stæða.
FLOKKURINN, þar sem Per
Borten tók við forustu fyrir
níu árum, var fremur hægri
sinnaður bændaflokkur. Hann
hét þá líka Bændaflokkur.
Þótt Per Borten væri sjálfur
bóndi, var honum ljóst, að
flokkurinn ætti sér ekki mikla
framtíð, ef hann starfaði ein-
göngu sem bændaflokkur, þar
sem fólki í sveitum fækkar
stöðugt. Hann hóf undirbúning
að því að flokkurinn breytti
nokkuð um stefnu og einnig um
nafn. Hann fór samt ekki að
þessu með neinum asa, held
ur undirbjó málið í kyrrþey.
Niðurstaðan varð sú, að flokk
urinn hlaut nafnið Miðflokkur-
inn. Jafnframt setti hann
sér frjálslynda og al-
hliða stefnuskrá, þar sem
landbúnaðarmálin skipta
ekkert æðra rúm en aðrir
málaflokkar. Félagsmál og
menningarmál eru sett í önd
vegi og þó umfram allt það
mál, sem Borten nefnir jafn-
ræði og jafnrétti. „Jafnræðið
er einskonar lykilorð í stefnu
og starfi Miðflokksins",
segir Borten í grein
um Miðflokkinn, sem hann
skrifaði rétt fyrir kosningarn
ar. í grein þessari vitnar hann
jafnframt til þeirra orða í upp
haflegri stefnu Bændaflokks-
ins, að eins ákveðið og fJokk
urinn beiti sér gegn sósíalisma,
eins ákveðið muni hann líka
styðja íhlutun ríkisins til að
afstýra tjóni af völdum skefja
lausrar samkeppni. í baráttu
flokksins fyrir jafnræði og
jafnrétti, hefur einna mest
borið á því atriði í seinni tíð,
að eflt verði jafnvægi í byggð
landsins og valdinu dreift, en
þó hefur þessi barátta verið
reldn án allra öfga, eins og
sést bezt á því, að þingmenn
flokksins studdu á seinasta
þingi, að Osló og nágrannakjör
dæmi hennar, Akurshus, fengi
fleiri þingmenn.
Jafnframt því sem flokkur
inn hefur breytt um nafn og
endurskoðað stefnu sína undir
forustu Bortens hefur allt
flokksstarfið verið stórlega
eflt. Árangurinn kom í Ijós nú
í kosningunum 13. sept., þegar
flokkurinn jók stórlega fylgi
sitt, og þó einkum í kauptúnun
um og þéttbýlli héruðunum.
En þessi sókn á að halda á-
fram, því að strax eftir kosn
ingarnar settu æskulýðssamtök
flokksins sér það mark að
fjölga félagsmönnum sínum
um 50%. Borten fylgist ekki
sízt með starfi æskulýðssam-
takanna. Eg sá hann snemma
morguns daginn eftir kosning
ar á flokksslcrifstofunni um-
kringdan hópi ungra manna,
sem voru auðsjáanlega í góðu
skapi, en Borten virtist jafn
rólegur og óhagganlegur og
endranær.
ÞAÐ ER stundum cagt um
Per Borten að menn vití ekki
alltaf hvað hann ætlast fyrir.
Hann hugsar ráð sitt vel og
hraðar sér ekki að taka ákvarð
anir. En þegar stefnan hefux
verið mótuð, er henni fylgt
eftir, en þó fullt tillit tekið
til aðstæðna. Borten hefur
reynzt góður samningamaður
í flokki sínum og hefur hlotið
þar góðan undirbúning undir
það starf, sem hann hefur nú
tekið að sér. Val hans sem
forsætisráðherra mælist því
ekki aðeins vel fyrir meðal
samherja hans, heldur einnig
meðal andstæðinga hans. En
starf hans sem forsætisráð-
herra í fjögurra flokka stjórn
mun reynast allt annað en
vandalaust. Þar mun hann oft
þurfa að halda á hinni skörpu
og köldu íhygli sinni og þeim
sérstæða hæfileika sínum að
láta fátt raska ró sinni og
jafnvægi. Þ. Þ.