Tíminn - 29.09.1965, Blaðsíða 16
220;'fb1. — Miðvikudagur 29. september 1965 — 49. árg
HEYFLUTNINGAR TEFJ-
AST VEGNA RIGNINGA
FB-Reykjavík, þriðjudag.
Heyflutningarnir til
Austur-
lands ganga samkvæmt ölliun von
um, að þvi er Kristján Karlsson
hjá Stéttarsambandi bænda tjáði
blaðinu í dag. í dag var verið
að Iesta tvö skip, sem leggja af
stað austur á morgun, og eru þá
komnir fjórir skipsfarmar til kal-
svæðanna. Ekki er enn orðið
ljóst, hvenær búast má við að hey-
flutningunum verði lokið, en
nokkrar tafir hafa orðið vegna
rigninga.
í dag var verið að lesta Dísar-
fellið í Reykjavík og á morgun fer
það upp í Borgarnes, þar sem lest-
að verður til viðbótar í skipið. Þá
var verið að lesta heyi í Mælifell-
ið í Þorlákshöfn í dag. Bæði skip-
in til samans flytja um 400 lest-
ir af heyi austur en áður höfðu
Selá og Esjan farið með um 200
lestir. Mælifellið fer með sinn
farm til Reyðarfjarðar, en Dísar-
fellið á að flytja heyfarminn til
Norðfjarðar.
Það hefur gengið nokkuð
skrikkjótt að binda heyið til flutn-
Myndin er af jarðarför eins
lögreglumannanna fjögurra, er
myrtir voru á Amager fyrir
utan Kaupmannahöfn fyrir
skömmu. Á myndinni er vcrið
að bera kistu lögreglumanns-
ins. O. Andersens til grafar
og sést ekkja hans ásamt föð
ur sínum og systur á mynd
inni.
1
SÞ-Búðardal, þriðjudag.
f sumar og haust hefur geisað
þrálátúr faraldur í kúm hér í Döl-
um. Hefur hann einkum verið
skæður í Miðdölum, en eitthvað
hefur hann einnig stungið sér nið-
ur í Hörðudal. Þetta er bráðsmit-
andi meltingarsjúkdómur og kýr
verða nytlausar, þótt nýbornar
séu, en ekki munu þær hafa drep-
izt svo nokkru nemi úr sjúkdómn-
um.
Sjúkdómsins varð vart um eða
fyrir mitt sumar. Virtist hann
mjög skæður, þannig að allar kýr
í fjósi veiktust með stuttu milli-
bili. Var í fyrstu óttazt að verið
gæti að sjúkdómurinn stafaði frá
fóðurblöndu eða bærist með um-
búðum hennar. Voru þá gerðar
ýmsar varúðarráðstafanir í sam-
vinnu við dýralækninn hér, Brynj-
VERKBANN
k TRÉSMIÐ!
EJ-Reykjavík, þriðjudag.
Trésmiðafélagi Reykjavíkur
barst í dag tilkynning um verk-
bann, sem' Meistarafélag húsa-
smiða hefur boðað frá 7. október
að telja. Um helgina, þ. e. á sunnu
dag og mánudag, fór fram at-
kvæðagreiðsla í Meistarafélaginu
um verkbannsboðunina, og greiddu
78 félagsmenn atkvæði með verk-
banni, 29 voru á móti, einn scðill
var auður og einn ógildur.
Enginn sáttafundur hafði verið
boðaður, þegar blaðið hafði sam-
band við Jón Snorra Þorleifsson,
formann Trésmiðafélagsins, síð-
degis í dag.
ólf Sandholt, og sala á fóðurblönd
unni stöðvuð um sinn.
í Ijós kom, að fóðurblandan
mun ekki eiga sök á þessum far-
aldri, heldur mun að honum vald-
ur sýkill, sem er ákaflega smit-
andi og berst hann með mönnum
milli bæja og með fatnaði, sem
menn nota í fjósinu. Hafa kýr á
fjölmörgum bæjum í Miðdölum
veikzt og einnig hefur veikin stung
ið sér niður í Hörðudal. Er veikin
enn í kúm hér um slóðir.
Þetta er meltingarsjúkdómur og
kýr verða nytlausar af völdum
hans. Nýbornar kýr, sem voru í
góðri nyt og fengu þennan sjúk-
dóm, þornuðu alveg upp og hor-
uðust niður. Telja menn að þessar
kýr muni ekki ná sér aftur og
ekki komast í neina verulega nyt,
fyrr en eftir næsta burð.
MATU LOÐINA SER A
RÚMLEGA EINA MILLJ.
IGÞ-Reykjavík, þriðjudag.
f kvöld barst Tímanum frétta-1
tilkynning frá dóms- og kirkju-1
málaráðuneytinu, þar sem gerð ■
er grein fyrir kaupum ríkisins á |
húseign Guðmundar f. Guðmunds-
1 sonar, fyrrverandi ráðherra. Kem
ur í Ijós í matsgerðinni, sem fylg-
ir í tilkynningunni, að lóðin er
metin á rúma milljón, en alls var
eignin keypt samkvæmt mati á
4.737.000.00. Lögð er áherzla á það
í tilkynningunni, að bréfið frá
1958 kveði á um það, að fullt til-
lit skuli tekið til kostnaðar við
lóð hússins og húsgrunn, og séu
með því teknar meiri skuldbind-
ingar á ríkissjóð en segir í lögum
um kaup héraðsdómarabústaða.
Þessi samanburður breytir að
sjálfsögðu engu um matið á eign-
inni, enda hvergi tekið fram, að
lóðina skuli meta sér. f lögunum
er sagt, að ríkisstjórnin „skuli
kaupa eignina" ef þess er óskað,
og vitanlega fylgir lóð húsum,
þótt í mati á eign G.Í.G. hafi verið
valin sú sérstæða aðferð að meta
lóðina sér.
Það stertdur eftir sem áður | að firra sig ámæli og eðlilegri
óhaggað, að mátsmaður ríkissjóðs I tortryggni með því að láta hlut-
var undirmaður ráðherra, þegar lausan mann tilnefndan af Hæsta-
matið fór fram, og ráðuneytið I rétti ákveða verðið, eins og tekið
fóllst á hið háa verð í stað þess
Framhald á bls 14
inganna hér sunnanlands a3 «nd-
anfömu vegna sífelldra rigninga,
en þar sem allt heyíð er bnndið
utanhúss, vegna þess að hiððar
eru allar fullar, hefur orðið að
hætta vinnu í hvert skipti sem
rignt hefur. Getur veðráttan næstu
dagana og vikurnar því haft nofck-
ur áhrif á það, hvenær allt hey-
ið verður að lokum komið til
bænda fyrir austan. Endanlegar
tölur liggja nú fyrir um það, hve
mikið þarf að senda austur, og
eru það rúmlega 30.000 hestar,
eða 3000 tonn, eins og kalnefndin
svokallaða hafði gizkað á í upp-
hafi. Að sögn Kristjáns eru enn
að berast gjafatilboð, svo ekki er
útséð um það enn, hve mikið
gjafaheyið verður þegar flutning-
unum er lokið.
Gæsaskyttur
kvarta undan
gæsaleysinu
KJ—Reykjavík, þrjðjudag.
Gæsaskyttur hafa þá sögu
að segja, að áberandi minna
sé af gæs hér sunnanlands
núna í haust en und-
anfarin haust. Sömu sögu
segja bændur, sem iililega
hafa orðið varir við gæsina á
undanförnum haustum.
Þetta á eflaust rætur sínar að
rekja til hins mikla gæsadauða
í Arnarfellsveri, sem gangna-
menn úr Hrunamanna- og Gnúp-
verjahreppi urðu varir við í fyrstu
göngum og sagt var frá hér í blað
inu á sínum tíma. Þá er ekki ólík
legt, að hinn aukni fjöldi gæsa- ‘
skytta hafi sitt að segja, en
bændur sem eru kunnugir þess-
um málum segja, að aldrei hafi
annar eins fjöldi gæsaskytta
leitað austur í sveitir og núna í
haust. T.d. komu átta bílar, sem
í voru gæsaskyttur, að einum
bænum við Þjórsá um helgina.
Þar hafa reyndar gæsaskyttur leg
ið við að undanförnu, og er Tím
anum kunnugt ,um eina skyttu
héðan úr Reykjavík, sem var þar
í þrjá daga og hafði 24 gæsir.
Mikill straumur gæsaskytta
var austur fyrir fjall um síðustu
helgi, en eftirtekja mun víðast
hvar hafa verið lítil, eða ekki nein
og afsakanir skyttanna fyrir lít-
illi veiði voru, að lítið væri af
gæs, og það litla, sem sæist, væri
ljónstyggt.
Askenasí er einleikari
á sinfóníutónleikunum
FB—Reykjavík, þriðjiidag
Fyrstu tónleikar sinfóníu-
hljómsveitarinnar verða haldn
ir á fimmtudaginn í Háskóla-
bíói og hefjast þeir klukkan 21.
Einlcikari með hljómsveitinni
að þessu sinni er Vladiniír
Askenasí. Stjórnandi er Bohd
an Wodiczko.
Af óviðráðanlegum ástæðum
varð að breyta efnisskrá hljóm
leikanna þannig, að i stað
Tokkötu og Fugu eftir Bach
og píanókonsertsins nr. 3. eftir
Prokofíeff verða eingöngu
flutt verk eftir Beethoven, og
mun Askenasí leika píanókon
sert nr. 5 í es-dúr. Auk þess
verður á efnisskránni Egmond
forleikurinn og Sinfónía nr.
þrjú eftir Beethoven.
Vladimír Askenasí er íslend
ingum að góðu kunnur, enda
kvæntur Þórunni Jóhannsd.
píanóleikara, og hefur hann
leikið hér margsinnis. Asken
así er fæddur í Moskvu, og
settist fyrst við hljóðfærið sex
ára gamall, en fékk inngöngu
í Músíkskóla Tónlistarháskól-
ans í Moskvu árið 1945. Lauk
hann prófi frá skólanum árið
1955. Hann hefur ferðast víða
um og haldið tónleika og hlot
ið verðlaun fyrir leik sinn.