Morgunblaðið - 10.01.1986, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
Hitt Leikhúsið:
Morgunblaðið/Bj ami
Leikendurnir sjö í „Rauð-
hóla-Ransí“. Frá vinstri í
efri röð eru: Leifur
Hauksson, Edda Heiðrún
Bachmann og Andri Orn
Clausen. Neðri röð frá
vinstri: Edda Björgvnis-
dóttir, Kolbrún Halldórs-
dóttir, Kristín Kristjáns-
dóttir og Guðjón Peder-
sen.
„Rauðhóla-Ransí“
frumsýnd í næstu viku
HITT leikhúsið hyggst frumsýna leikritið „Rauðhóla-Ransí“
17. janúar nk. í Gamla bíói. Verkið er eftir breskan höfund,
Claire Luckham og nefnist á frummálinu „Trafford Tanzie“.
Hún skrifaði leikinn árið 1976 upprunalega en endurbætti
hann árið 1978 og hefur verkið verið sýnt víðsvegar um heim
á undanförnum árum við góðar undirtektir áhorfenda. A sl.
ári var það sýnt á fjórum stöðum á Norðurlöndunum, marg-
sinnis hefur það verið sett upp í Bretlandi og í Bandaríkjun-
um. M.a. lék söngkonan Debbie Harry aðalhlutverkið í New
York fyrir nokkrum árum.
í kynningu á verkinu segir m.a.
„í Rauðhóla-Ransí er léttUr leikur
fyrir alla fjölskyldumeðlimi. Mikill
dans, söngur og spaug er í leiknum,
en annars gerist hann í glímuhring
þar sem uppvaxtarárum stúlku
einnar er líst. Hún var svo óheppin
að fæðast stúlkubam á sama tíma
og foreldrar hennar höfðu þráð
sveinbam. Stúlkan þarf að takast
á við hinar ýmsu glímur í lífí sínu
— fyrst við móður sína og föður,
þá við vinkonuna, skólasálfræðing-
in, kærastan o.s.frv."
Leikstjóri „Rauðhóla-Ransíar" er
Páll Baldvin Baldvinsson, sem einn-
ig var leikstjóri „Litlu hryllings-
búðarinnar“. Leikendur em sjö tals-
lenskum aðstæðum og elst Ransí,
sú íslenska, upp í sumarbústað við
Rauðhóla. Æfíngar hafa verið
strangar, að sögn leikara, og hefur
verið byrjað á degi hverjum í heilsu-
og líkamsræktarsal þar sem þrek
leikara hefur verið þjálfað og dans-
ar æfðir.
ins. Aðalhlutverkið leikur Edda
Heiðrún Bachmann og aðrir eru:
Edda Björgvinsdóttir, Kristín
Kristjánsdóttir, Guðjón Pedersen,
Andri Öm Clausen, Leifur Hauks-
son og Kolbrún Halldórsdóttir.
Dansarar og sviðshreyfingar eru í
höndum Sóleyjar Jóhannsdóttur og
tónlist útsetti Jakob Magnússon.
Mikil átök fara fram á sviði og
voru tveir Bretar fengnir til að
þjálfa leikarana upp í svokallaðri
fangbragðaglímu (wrestling) en
þeir hafa þá atvinnu að vera stað-
genglar leikara í ýmsum áhættuat-
riðum. Þeir heita Cliff Twemlow
og Brian Wete.
Æfíngar hófust í byijun nóvem-
ber sl. Leikurinn er aðlagaður ís-
Edda Heiðrún og Edda Björgvinsdóttir taka hér sýnishorn af fangbragða-
glimu (wrestling) fyrir ljósmyndara Morgunblaðsins.
Skákmótið í Hastings:
Góður árangur Margeirs
Formanek tapaði fyrstu 8 skákunum
Skák
Bragi Kristjánsson
NÚ líður að lokum skákmótsins
í Hastings, en þijár umferðir
eru ótefldar, þegar þetta er
ritað. Margeir Pétursson hefur
örugga forystu á mótinu með
8 vinninga af 10 mögulegum.
Hann byrjaði rólega, gerði jafn-
tefli í tveim fyrstu skákunum,
en tók síðan 6 Va v. í næstu sjö
skákum. Eftir þann einstæða
árangur eru sterkar likur á
því, að hann nái stórmeistarat-
itli á mótinu, en til þess þarf
hann 9 '/z vinning.
Margeir hefur ekkert teflt síðan
á millisvæðamótinu í Sviss fyrir
sex mánuðum og glæsileg
frammistaða hans kemur því
þægilega á óvart. Hann teflir af
sínum gamla sigurvilja og hörku .
og er vel að árangri sínum kom-
inn. í öðru sæti er ísraelski al-
þjóðameistarinn, Alon Greenfeld.
Hann er skákmeistari ísraels og
binda landar hans miklar vonir
við hann. í þriðja sæti kemur
Watson frá Englandi. Frammi-
staða hans kemur á óvart, en
hann tapaði sinni fyrstu skák í
9. umferð og eftir er að sjá,
hvemig hann bregst við því. I
4.-6. sæti eru Mikhailschisin
(Sovétr.), Conquest (Engl.) og
Braga (Arg.). Sovétmaðurinn
hefur verið friðsamari en búist var
við, en hinir tveir hafa komið á
óvart með góðri taflmennsku. í
7.-8. sæti eru svo Jóhann Hjart-
arson og Balasjov frá Sovétríkjun-
um. Jóhann er í góðum félags-
skap, því Balasjov er einn af
frægari stórmeisturum Sovétríkj-
anna. Arangur þeirra veldur
nokkrum vonbrigðum, en þeir
geta bætt stöðu sína í þrem síð-
ustu umferðunum. Jóhann tapaði
mjög slysaiega á einum afleik
jafnri stöðu gegn Greenfeld og
náði aðeins jafntefli gegn Eng-
lendingunum Watson og Con-
quest. Hann ætti að geta náð sér
á strik í þeim skákum, sem eftir
eru. Balasjov er ekki í miklum
baráttuham, hefur aðeins unnið
eina skák, en gert 8 jafntefli!
Ekki verður svo um þetta mót
fjállað, að ekki sé minnst á ein-
staka byijun Bandaríkjamannsins
Formaneks. Hann sem titilhafí,
setti met, sem seint verður slegið,
með því að tapa átta fyrstu skák-
unum. Gamla metið átti Plaskett,
sett í Vestmannaeyjum í fyrra,
er hann tapaði sjö fyrstu skákun-
um. Plaskett ér einnig meðal
þátttakenda í Hastings og svo
undarlega vildi til að hann og
Formanek tefldu saman í 9.
umferð. Plaskett þakkaði For-
manek fyrir að taka af sér þetta
vafasama met með því að verða
fyrstur til að tapa fyrir honum!
Um önnur úrslit vísast til með-
fylgjandi töflu. Lítum nú á viður-
eign Margeirs og Plasketts í 6.
umferð mótsins.
Hvítt: Margeir Pétursson.
Svart: J. Plaskett (Englandi)
Drottningarindversk
vörn
1. Rf3 - b6, 2. c4 - Rf6, 3. d4
— e6
Eftir óvenjulega leikjaröð kem-
ur nú upp Drottningarindversk
vöm.
4. g3 — Ba6,5. b3 — d5
Önnur leið er hér 5. — Bb4+,
6. Bd2 — Be7 o.s.frv.
6. cxd5 —
í skák Hollendinganna
Langeweg og van der Wiel á
svæðamóti í Montpellier í fyrra
kom upp tvísýn staða eftir 6. Bg2
— dxc4, 7. Re5 — Bb4+, 8. Kfl
— Rfd7, 9. Rxc4 - c6, 10. Bb2
— b5 o.s.frv.
6. - exd5, 7. Bg2 - Bb4+, 8.
Bd2 - Bd6, 9. 0-0 - 0-0, 10.
Rc3 - He8, 11. Hel - Bb7
í skákinni Farago-Plaskett,
Esbjerg 1985, náði hvítur betra
tafli eftir 11. — Rbd7, 12. Rh4,
o.s.frv.
12. Dc2 - Ra6, 13. Hadl -
Re4, 14. Re5 - Rb4, 15. Db2 -
c5, 16. Rxe5 — dxe4, 17. Bxb4
— cxb4, 18. Rc4 - Bc7, 19.
d5!? —
Margeir ákveður að fóma
skiptamun til að hleypa lifí í skák-
ina.
19. - b5, 20. Re3 - Be5, 21.
Dbl — Bc3
Margeir Pétursson
22. Bxe4!? —
Margeir fómar skiptamun, því
hann kemst ekkert áleiðis eftir
22. Hfl — De7 og hvítur má ekki
leika 23. d6 — De6 og peðið á
d6 fellur, en peðið á e4 er vel
valdað af drottingu og biskupi.
Skákmótið í Hastings 1985—86
Titill
22. — Bxel, 23. Hxel — h6, 24.
Bf3 - Df6, 25. Hdl - Hed8,
26. h4 - Hac8, 27. h5 - a5, 28.
Kg2 — De5,29. Rg4 —
Margeir hefur fómað hrók fyrir
biskup og peð, og fengið sterkt
frípeð á d-línunni. Tvípeð svarts
á drottningarvæng er ekki mikils
virði, svo að segja má, að hvítur
standi örlítið betur. Svartur ætti
þó ekki að vera í vandræðum með
að halda jafnvægingu ...
29. — Dc3?
. . . ef hann vanmetur ekki sókn-
araðgerðir hvíts.
30. Df5! -
Svartur gat komið í veg fyrir
þennan leik með 29. — Dg5!
30. - He8, 31. Be4 - Hcd8, 32.
Hd3 - Db2, 33. Dh7+ - Kf8,
34. He3 -
Ekki gengur 34. Hf3 — Hxe4!,
35. Dxe4 — Bxd5 ásamt 36. —
Bxf3+ o.s.frv.
34. - Dd4
Nú strandar 34. — Hxe4 á 35.
- Hxe4 - Bxd5?, 36. Dh8 mát.
35. Kh2 -
Fyrirbyggir frekari vandræði á
skálínunni hl — a8.
35. — Hd6
Báðir keppendur vom í miklu
tímahraki, þegar hér var komið.
36. Bf3 - Hxe3, 37. Rxe3 - g6
Svartur á ekki um margt að
velja. Hvítur hótar 38. Rf5 með
ásetningi á Dd4 og Hd6 og að
Elo-
stig
auki máthótun: 39. Dh8 mát.
38. Dxh6+ - Dg7, 39. Df4 -
Df6,40. hxg6 — Dxf4
í þessari stöðu fór skákin í bið.
Lið er nokkuð jafnt, en tvípeð
svarts á drottningararmi gefur
hvíti betra tafl.
41. gxf4 - Hxg6, 42. f5 - Hd6?
Svartur leikur hrók sínum í
óvirka stöðu og hleypur hvíta
kónginum út á borðið bardaga-
laust. Eina vonin var að leika 42.
— Hg5 til að halda hvíta kóngin-
um á h-línunni eins lengi og unnt
er.
43. kg3 - a4, 44. Kf4 - Ha6,
45. Rc2 —Ha8
Svartur getur enga björg sér
veitt. Betri staða hvíta kóngsins
ræður úrslitum. Ekki gekk 45. —
Ke7, 46. d6+ ásamt 47. Bxb7.
46. Ke5 - Hc8, 47. Be4 - f6+,
48. Kd6 -
Eftir 48. Kxf6 - Bxd5, 49.
Bxd5 — Hxc2 nær svartur mót-
spili.
48. - Hc3, 49. Rd4 - Hcl, 50.
Rc2 — Hbl
Svartur tapar manni, en hann
getur ekki varist til lengdar, t.d.
50. - Ke8, 51. Rxb4 - Hel, 52.
Bd3 og öll svörtu peðin falla.
51. kc7 - Bxd5, 52. Bxd5 -
Hb2, 53. Rxb4 - hxe2, 54. f3 -
He5, 55. Be4 — axb3, 56. axb3.
— ke8, 57. Rd5 og svartur gafst
upp í þessari vonlausu stöðu.
10 11 12 13 14 vinningar röð
1. Rukavina (Júgóslavíu) AM 2510 X */2 0 1/2 0 i 1/2 ■/2 0 1
2. Braga (Argentínu) AM 2455 */2 X 0 1 '/2 1 1/2 1/2 1/2 1
3. Margeir Pétursson AM 2560 1 1 X 1 '/2 1 1 1/2 1/2 1
4. Plaakett (Englandi) SM 2480 >/2 0 0 X 1/2 0 1/2 0 1/2 1
5. Balasjov (Sovétríkjunum) SM 2510 1 */2 1/2 1/2 X 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2
6. Formanek (Bandaríkjunum) AM 2350 0 0 0 1 X 0 0 0 0 0
7. Pia Cramling (Svíþjóð) KvSM 2420 */2 >/2 0 X •/2 0 0 0 0 0
8. Federovicz (Bandaríkjunum) AM 2515 */2 1/2 1/2 X 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2
9. Conquest (Englandi) FM 2345 1 1 1 1/2 X 1/2 0 1 »/2 0
10. Jóhann Hjartareon SM 2505 1/2 1 1 1/2 1/2 X */2 0 1/2 1/2
11. Wataon (Engiandi) AM 2435 !/2 >/2 1 1 1/2 1 1/2 X 0 1
12. Greenfeld (ísrael) AM 2480 '/2 1 '/2 1 1 '/2 0 1 1 X
13. Mikhailschisin (Sovétríkjunum) SM 2505 1/2 '/2 »/2 1/2 1 1 1/2 '/2 1/2 X
14. Bellon(Spáni) SM 2435 0 0 0 0 1/2 ‘/2 1 »/2 0 X
XI. Styrkleikaílokkur FIDE: Stórmeistaraárangun 9 */2 v, árangur alþjóðlegs meistara: 6 */2 v.