Morgunblaðið - 10.01.1986, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
„Erfingjar Hitlers“
sljórna Suður—Afríku
— segir Oliver Tambo, forseti ANC
Jóhannesarborgf, 9. janúar. AP.
ÞINGNEFND frá Bandaríkjunum hitti í dag að máli hinn hógværa
leiðtoga Zulu-ættbálksins, Gatsha Buthelezi, en hélt síðan i skoðunar-
ferð um fátækrahverfin í Höfðaborg í fylgd með harðsnúnum and-
stæðingi kynþáttstefnunnar, prestinum Alan Boesak. Aframhaldandi
óeirðir voru i landinu i dag og nefnir lögreglan tíu slík tilvik. Einn
maður lét lífið í óeirðunum.
Buthelezi er leiðtogi sex milljóna
Zulu-manna, en þeir eru íjölmenn-
astir blakkra manna í landinu, sem
samtals eru 24 milljónir. Hann er
andvígur vopnuðum átökum við
hvíta minnihlutann, sem öllu ræður
í landinu og segir að það myndi leiða
af sér dauða svartra manna í þús-
unda tali. Hann er einnig andvígur
efnahagsþvingunum gegn Suður-
Afríku og er mikið gagnrýndur fyrir
það, sem og afstöðu sína til ofbeldis,
af róttækara hugpandi fólki.
Buthelezi sagði amerísku þing-
mönnunum að styðja ekki þær að-
gerðir í Suður-Afríku, sem þeir
myndu ekki styðja í sínu eigin landi
og vísaði þar til þess að veröldin
Metsala hjá Harrods
Lundúnum, 9. janúar. AP.
METINNKOMA varð hjá verslun-
inni Harrods í gær á fyrsta degi
vetrarútsölu verslunarinnar. Fólk
alls staðar að úr heiminum þyrpt-
ist til að versla og mikill handa-
gangur var í öskjunum. Salan nam
samtals 6 milljónum punda og
hefur aldrei áður verið jafn mikil
á einum degi.
Til samanburðar var salan fyrstu
tvo daga vetrarútsölunnar í fyrra
samtals 8,7 milljónir punda, enda
auglýsti Harrods viðburðinn mikið,
meðal annars í Ameríku, svo hann
færi ekki framhjá neinum sem gæti
hugsað sér að fá góða hluti ódýrt.
„Ég held án alls efa að Harrods sé
besta verslun í heimi," sagði Leon
Fem frá Philadelphia, sem gerði sér
sérstaka ferð til Lundúna til þess
að versla í Harrods. Sagði hann
ennfremur að það hefði engin áhrif
á hann að 20% minna er hægt að
fá fyrir bandaríska dalinn enn í fyrra
vegna lækkunar dalsins gagnvart
breska pundinu.
hefur tilhneigingu til þess að líta á
vopnaða baráttu Afríska þjóðarráðs-
ins (ANC) sem táknræna fyrir bar-
áttuna gegn hvíta minnihlutanum.
„Það hefur ekkki fengið næga viður-
kenningu erlendis að ástandið í
Suður-Afríku er að breytast og við
erum fullfærir um að þrýsta á um
frekari breytingar," sagði Buthelezi.
Buthelezi er eindregið á móti
kynþáttaaðskilnaðarstefnunni og
hefur ekki viljað ganga til samninga
við hvíta menn fyrr en ljóst sé hvað
þeir ætlist fyrir með slíkum samn-
ingum. Amerísku þingmennimir
hafa látið í ljósi þá skoðun sína að
Botha, forsætisráðherra sé þröng-
sýnn hvað breytingar á kynþátta-
stefnunni varðar og sagst vera
vondaufir um að hann sé tilbúinn
að slaka á svo nokkm nemi.
Oliver Tambo, forseti Afríska
þjóðarráðsins, kallaði ríkisstjóm
Suður-Afríku „erfingja Hitlers" og
hét því að standa yfír höfuðsvörðum
hennar, hversu mörg mannslíf sem
það myndi kosta. „Jafr.vel þijóskasti
kynþáttahatari hlýtur að sjá að við
emm ekki lengur tilbúnir til þess
að lifa sem þrælar og emm staðráðn-
ir í því að beijast fyrir frelsinu,
hversu mörg mannslíf sem það kann
að kosta," sagði hann á frétta-
mannafundi í Zambíu.
Ai'/Mmamynd
Dýrgripur endurheimtur
Harry Sakin, leynilögreglumaður I New York, sést hér halda á
gullskál að verðmæti um 3,5 millj. dollara (yfir 140 miilj. ísl.
kr.), sem náðist aftur, eftir að henni hafði verið stoUð. List-
munasali í Manhattan og tveir menn aðrir, sem allir eru taldir
vera meðUmir í alþjóðlegum hring Ustmunaþjófa, voru hand-
teknir á sunnudaginn var, er þeir gerðu tilraun til þess að stela
Ustaverkum og listmunum að verðmæti um 18,5 miUj. dollara.
Var gulIskáUn hér að ofan þar á meðal.
Bók um stórnjósnarann „Farewell“ í Moskvu:
Frakkar fengn leyniskjöl
beint úr aðalstöðvum KGB
EINN fagran vordag ánð 1981 kemur maður nokkur með tvö
bréf til höfuðstöðva frönsku leyniþjónustunnar í Rue des Saussai-
es nr. II í París, eitt frá sjálfum sér og annað, sem „sovéskur
vinur“ hans hafði látið hann fá tveimur mánuðum fyrr .. . Þannig
hefst æsispennandi njósnasaga, sagan um KGB-foringjann, sem
í hálft annað ár lét frönsku leyniþjónustuna fá þúsundir leynilegra
skjala og upplýsingar um iðnaðarnjósnir Sovétmanna á Vesturl-
öndum og um þann gífurlega hagnað, sem þeir telja sig hafa af
þeim, upplýsingar um KGB-foringja um allan heim og mikilvæg-
ustu njósnarana í tíu vestrænum löndum.
Sagan um þennan sovéska
stórnjósnara, sem hafði dulnefnið
„Farewell", er að koma út í París
þessa dagana en hingað til hefur
ekkert lekið út um hana opin-
berlega. Sagt er, að KGB virðist
aldrei hafa grunað neitt þann
tíma, sem „Farewell" vann fyrir
frönsku leyniþjónustuna, en hins
vegar hætti að heyrast frá honum
eftir lát Leonids Brezhnevs, þegar
Yuri Andropov hafði tekið við.
47 Sovétmenn reknir
frá París
Höfundur bókarinnar, blaða-
maðurinn Thierry Wolton, segir,
að það hafí verið vegna upplýs-
inga frá „Farewell", að 47 Sovét-
mönnum, sendimönnum, verslun-
arfulltrúum og blaðamönnum, var
vísað frá París í apríl 1983. Sovét-
menn svöruðu þessum brottvísun-
um ekki í sömu mynt eins og
þeir eru þó vanir og er það ágæt
vísbending um hve góðar sannanir
Frakkar höfðu frá „Farewell".
Mitterrand, Frakklandsforseti,
tók mjög nærri sér þegar hann
fékk að vita um það mikla tjón,
sem sovésku njósnimar höfðu
unnið Frökkum. M.a. kom það
fram, að Sovétmenn höfðu hlerað
skeyta- og telex-sendingar milli
Parísar og sendiráðsins í Moskvu
og lesið jafnóðum allt, sem þar
fór á milli.
Bróðurlega skipt með
Bandaríkjamönnum
Á leiðtogafundinum í Ottawa
árið 1981 var það „Farewell"-
málið, sem braut ísinn milli þeirra
Mitterrands og Reagans, Banda-
ríkjaforseta. Mitterrand hafði
aðeins verið tvo mánuði í embætti
og til hans var litið með nokkurri
tortryggni vegna þess, að í stjóm
hans sátu fjórir kommúnistar.
Þessar efasemdir hurfu þó eins
og dögg fyrir sólu þegar Mitter-
rand skýrði Reagan frá
„Farewell“-málinu og því, að
Frakkar vildu láta Bandaríkja-
mönnum í té allar upplýsingar um
það. Nokkru síðar fór Marcel
Chalet, yfírmaður frönsku leyni-
þjónustunnar, til Washington og
skoðaði þar skjölin um „Farewell"
ásamt George Bush, varaforseta
og fyrrum yfirmanni CIA.
Messerschmitt-málið
í október sl. var Manfred
Rotsch, sextugur verkfræðingur,
handtekinn fyrir njósnir en hann
var yfírmaður áætlanadeildar
Messerschmitt-Bölkow-Bloehm,
stærsta vopnaframleiðanda í
Vestur-Þýskalandi. Er fullyrt, að
það hafi verið vegna upplýsinga
frá „Farewell" en um vorið 1983
vömðu franskir leyniþjónustu-
menn kollega sína í Vestur-Þýska-
landi við og skýrðu frá því, að
hættulegur njósnari væri að verki
hjá Messerschmitt.
Treholt
Ekki er vitað hvort „Farewell"
hefur gefíð upplýsingar um Arne
Treholt, norska njósnarann, en í
bókinni er hins vegar minnst á
Oleg Gordievsky, KGB-manninn,
Fjörtíu og sjö Sovétmönnum var vísað burt úr Frakklandi árið
1983. Hér eru þeir að fara frá París.
sem var um tíma í Kaupmanna-
höfn og hafði þá með Treholt að
gera. Gordievsky flúði í London
haustið 1984 og hefur það komið
fram annars staðar, að hann gaf
mikilvægar upplýsingar um Tre-
holt.
Eftir að franska leyniþjónustan
hafði fengið fyrsta bréfíð frá
„sovéska vininum" í Moskvu, var
maðurinn, sem kom með það,
beðinn um að fara aftur til
Moskvu þótt augljóst væri, að það
gæti verið hin mesta hættuför.
Nokkrum vikum síðar kom hann
aftur til Parísar og með svo mikið
af leynilegum skjölum, að frönsku
leyniþjónustumennimir féllu í
stafí af undrun. Eftir það var
þeirra eigin maður í Moskvu látinn
taka við en upprunalegi bréfber-
inn var sæmdur æðstu orðu Heið-
ursfylkingarinnar.
Var hlýtt til Frakka
Hvers vegna ákvað „Farewell"
að gerast stómjósnari fyrir vest-
rænt ríki? I fyrsta bréfínu segir
hann, að hann hafí áður starfað
í sovéska sendiráðinu í París og
að hann vilji gjama gera frönsku
þjóðinni greiða. í frönskum Ieyni-
þjónustuskjölum segir, að hann
hafí verið í París á sjöunda ára-
tugnum og að það hafí komið fram
þá, að honum þótti vænt um
Frakka og það, sem franskt var.
Hann var hins vegar kallaður til
Moskvu áður en franska gagn-
njósnaþjónustan gat haft sam-
band við hann. Eftir það starfaði
„FareweH" aldrei erlendis en reis
til æ meiri metorða innan KGB.
Þegar „Farewell" byrjaði að
vinna fyrir frönsku leyniþjón-
ustuna starfaði hann í aðalstöðv-
um KGB í Ljubjanka og hafði
aðgang að öllum skjölum í svokall-
aðri T-deild, sem hefur með að
gera iðnaðar- og tækninjósnir.
„Farewell" bað frönsku leyni-
þjónustuna aldrei um neitt annað
en það, að honum yrði séð fyrir
sæmilegum lífeyri ef honum tæk-
ist einhvem tíma að komast frá
Sovétríkjunum.
Hvaö varð um
„Farewell?“
Á Vesturlöndum veit enginn
hvað varð um „Farewell" og hvers
vegna hann hætti allt í einu að
láta heyra frá sér. Eitthvað varð
honum að falli og þeir eru til, sem
halda því fram, að það hafí ekki
verið njósnimar, heldur annað
mál, sem altalað var í Moskvu
síðla árs 1982. Gekk sú saga í
borginni, að KGB-foringi hefði
verið dæmdur fyrir manndráp.
Átti hann að hafa valdið einhveiju
hneyksli, sem lögreglan komst í,
og þegar verið var að yfirheyra
hann nokkrum dögum síðar varð
hann einum lögreglumanninum
að bana. í þessu sambandi hefur
aldrei neitt nafn verið nefnt, en
af einhveijum ástæðum þykjast
frönsku leyniþjónustumennimir
vissir um, að þama hafí verið um
að ræða stómjósnarann „Fare-
well“.
(Þýtt og stytt úr Aftenposten)