Morgunblaðið - 10.01.1986, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
Meta þarf aðstæður
gaumgæfilega áður
en afstaða er tekin
— segir Þorsteinn Pálsson fjármála-
ráðherra um samningsréttarkröfu
Kennarasambands íslands
Á FUNDI Kennarasambands ís-
lands og fjármálaráðuneytisins
sl. þriðjudag var fjallað um
samningamál Kennarasam-
bandsins. Fjármálaráðuneytið
£ tók sér frest til að svara kröfum
þeirra um samningsrétt.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra sagði í samtali við Morgun-
blaðið að meta þyrfti aðstæður mjög
gaumgæfílega áður en tekin væri
endanleg afstaða, en jafnframt hafi
verið lýst yfir á fundinum að fjár-
málaráðuneytið vildi fyrir sitt leyti
hraða niðurstöðum því hvorki væri
gott fyrir ráðuneytið né Kennara-
sambandið að málið væri of lengi
í lausu lofti.
Eftir fundinn var ákveðið að fé-
lögum í Kennarasambandi íslands,
sem starfa hjá ríkinu, verði greidd
laun samkvæmt síðasta gildandi
aðalkjarasamningi við BSRB meðan
almennt er greitt samkvæmt þeim
samningi svo og sérkjarasamningi
við KÍ.
Ef Kennarasambandið óskar þess
mun fjármálaráðuneytið sjá um
innheimtu á félagsgjöldum kennara
um næstu mánaðamót eins og verið
hefur, enda leggi KÍ fram nýja fé-
lagaskrá. Einnig var ákveðið að fé
sem ella hefði verið greitt í orlofs-
heimilasjóð BSRB og starfsmennt-
unarsjóð BSRB vegna kennara
verði lagt inn á sérstakan biðreikn-
ing.
^Ábyrgð á fjármálum
og fjárhagsáætlun LÍN
VEGNA umræðna og fréttaflutn-
ings um málefni Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna (LÍN) teljum
við undirritaðir óhjákvæmilegt,
að eftirfarandi komi fram af
okkar hálfu:
1. það er ótvírætt, að það er
stjóm Lánasjóðsins en ekki fram-
kvæmdastjórinn, sem ber ábyrgð á
5 fjármálum og fjárhagsáætlunum
LÍN.
Dr. Ragnar Amarson, aðalfulltrúi
í stjóm LIN.
Dr. Einar Valur Ingimundarson,
varafulltrúi í stjóm LÍN.
Þeir Ragnar og Einar Valur voru
skipaðir í störf sín á vegum LÍN
af Ragnari Amalds, fjármálaráð-
herra Alþýðubandalagsins, fyrir
stjómarskipti 1988
Nemendur sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Akraness á haustönn 1985 ásamt skólameistara,
Þóri Ólafssyni.
Tólf stúdentar út-
skrifaðir á Akranesi
Akranesi. 8. janúar.
SKÓLASLIT Fjölbrautaskólans á Akranesi á haustönn 1985 fóru
fram föstudaginn 20. desember. Þá voru brautskráðir 25 nemend-
ur fráskólanum.
12 nemendur luku stúdentsprófi, 9 nemendur brautskráðust
af tæknisviði, þar af voru 6 nemendur er luku prófum frá verk-
námsdeildum skólans. Einn nemandi brautskráðist af fiskvinnslu-
braut og 3 af tveggja ára bóknámsbrautum.
í ræðu Þóris Ólafssonar skóla-
meistara kom fram að liðlega 700
nemendur hófu nám við skólann
í haust í dagskóla og öldungadeild
framhaldsskólans og í '9. bekk
grunnskóla sem er til húsa í fjöl-
brautaskólanum þrátt fyrir mikil
þrengsli í skólanum. Alls störfuðu
48 kennarar við skólann á haust-
önn. Aðsókn utanbæjamemenda
að skólanum var mikil í haust og
voru 3 umsóknir um hvert pláss
sem skólinn hefur á heimavistum.
Fjölmargir nemendur búa í leigu-
húsnæði í bænum meðan þeir
dvelja á Akranesi við nám. Dag-
legur akstur til skólans er fyrir
nemendur sem búsettir eru í
Borgamesi.
Mikil þörf er fyrir aukið hús-
rými við skólann og er unnið að
frágangi við heimavistarbyggingu
en framkvæmdin hefur tafist
mjög vegna fjárskorts til mikils
óhagræðis fyrir þá fjölmörgu
aðkomunemendur er til skólans
leita á hvetju ári.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi
fékk í haust leyfi menntamála-
ráðuneytisins til að starfrækja
námsbraut í rafeindavirkjun og
mun kennsla í þeirri iðn hefjast
við skólann á haustönn 1986.
J.G.
Um þetta eru skýlaus ákvæði í
lögum um námslán og námsstyrki
(1. nr. 72/1982). í 5. gr. þeirra
laga stendur eftirfamdi:
„Hlutverk stjómar sjóðsins er:
„ . . .“3. Að annast íjármál sjóðsins
oggerð fjárhagsáætlana."
Verksvið framkvæmdastjóra er
hins vegar skýrgreint í 9. gr. reglu-
gerðar um námslán og námsstyrki
með eftirfarandi hætti:
„Hann (þ.e. framkvæmdastjórinn
(innsk. undirritaðir) hefur yfirum-
sjón með öllum rekstri sjóðsins í
umboði stjómar og ráðherra."
Þessi ákvæði sýna svo ekki verð-
ur um villst, að hvað meinta van-
rækslu í áætlanagerð LÍN snertir,
er einungis við stjóm LÍN að sakast.
2. Framkvæmdastjóri Lánasjóðs-
ins hefur, að okkar mati, rækt starf
sitt á undanfömum árum af trú-
mennsku og alúð við afar erfíðar
aðstæður. Okkur er ókunnugt um
nokkuð það, sem réttlætt getur
brottvikningu hans úr starfi.
3. Við höfum á hinn bóginn mikla
fyrirvara vegna þátts meirihluta
stjómar LÍN, ekki síst starfandi
formanns hennar, í þessu máli.
Munum við taka þá hlið málsins
upp á viðeigandi vettvangi.
7. janúar, 1986.
Slökkvistöðin í Reykjavík:
Aldrei fleiri útköll en 1985
— sjúkrafliitningum fækkaði lítilsháttar
ALDREI hafa verið fleiri útköll á einu ári hjá slökkvistöðinni í
Reykjavík en á árinu 1985. Flest voru þau áður 534 árið 1965. Árið
1985 var fjöldi útkalla 581 talsins og árið 1984 voru útköll 447 tals-
ins. Fjölgun útkalla þessarra tveggja ára stafar m.a. af viðvörunar-
kerfum sem stöðugt verða fleiri í notkun.
Hjá Slökkviliðinu í Reykjavík
voru staðnar 530 öryggisvaktir á
árinu víðsvegar um borgina. Bruna-
verðir fóru 29 kynnisferðir í stofn-
anir og fyrirtæki á eldvamarsvæði
Slökkvistöðvarinnar. 1005 börn
komu í heimsókn þar sem þeim
Þá hafa einnig verið talin til út-
kalla öll aðstoð slökkviliðs þar sem
ekki var um eldsvoða að ræða, svo
sem efnaleki, vatnsleki, losun úr
bílflökum o.s.frv. Fjölgun útkalla
þar sem slökkva þurfti eld var frá
246 árið 1984 í 377 árið 1985, þar
af vom 30 sinueldar á gamlársdag.
Fækkun varð á sjúkraflutningum
í 10.096, vom 10.698 árið 1984.
Annars hefur fyöldi sjúkraflutninga
haldist svo til óbreyttur allt frá ár-
inu 1973 eða rúmlega 10.000 á ári.
Þijú meiriháttar bmnatjón urðu
á árinu 1985: á Skemmuvegi 8,
Smiðjuvegi 1 og bamaheimilinu
Sólbrekku Seltjamamesi. Enginn
fórst í eldsvoða árið 1985 fremur
en 1984.
vom kynnt gmndvallaratriði í eid-
vömum og níu unglingar komu á
Slökkvistöðina í sambandi við
starfskynningu skólanna. Haldin
vom 15 námskeið fyrir starfsmenn
stöðvarinnar og aðra aðila á árinu.
Eldvamarskoðanir eldvamaeftir-
lits vom 3.250 á árinu. Auk þess
vom haldnar 107 kennslu- og
slökkviæfíngar með 1.609 starfs-
mönnum stofnana og fyrirtækja á
eldvamasvæði Slökkvistöðvar
Reykjavíkur.
Mímir, félag stúdenta í íslenzkum fræðum:
Mótmælir veitingu lektors-
stöðu í íslenzkum bókmenntum
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohljóðandi ályktun frá Mími,
félagi stúdenta í íslenskum fræð-
Prófkjör í Mosfells-
sveit í byrjun febrúar
PRÓFKJÖR um val frambjóð-
enda Sjálfstæðisflokksins í Mos-
fellssveit við næstu sveitarstjórn-
arkosningar fer fram 8. febrúar.
„Fundurum
vímuefni
LAUGARDAGINN 11. janúar
halda samtökin „Ár heilbrigðis og
bindindis" almennan fund um vímu-
efni í Tónabæ. Fmmmælendur
verða Ólafur Ólafsson, landlæknir,
séra Jón Bjarman og Guðsteinn
Þengilsson, læknir. Fundurinn hefst
kl. 14.
Framboðum á að skila til for-
manns kjörnefndar Þórarins
Jónssonar fyrir fimmtudaginn
16. janúar.
FVambjóðendur þurfa að vera
flokksbundnir og þarf að liggja fyrir
skriflegt samþykki þeirra um að
þeir gefi kost á sér til prófkjörs.
Frambjóðendur þurfa að vera kjör-
gengir í næstu sveitarstjómarkosn-
ingum. Að hveiju framboði þurfa
að standa tuttugu flokksbundnir
sjálfstæðismenn, búsettir í Mos-
fellssveit, en enginn flokksmaður
getur þó staðið að fleiri framboðum
en §ómm. Framboðum á að skila
til formanns kjömefndar Þórarins
Jónssonar ekki síðar en fyrir hádegi
fimmtudaginn 16. janúar.
„Stjóm Mímis, félags stúdenta í
íslenskum fræðum, mótmælir harð-
lega vinnubrögðum menntamála-
ráðherra við veitingu stöðu lektors
í íslenskum bókmenntum við Heim-
spekideild Háskóla íslands.
Það er ekki einasta að ákvörðun
ráðherra gangi á skjön við álit dóm-
nefndar heldur gengur hún og þvert
á vilja deildarinnar, og er móðgun
og vanvirðing við Heimspekideild
og sjálfstæði Háskóla íslands.
Benda má á að sérsvið Helgu
Kress, kvennabókmenntir, hefur
verið mjög vanrækt í kennslu og
rannsóknum við íslenskudeild Há-
skólans og því gafst kærkomið
tækifæri til að ráða bót þar á.
Stjóm Mímis vefengir ekki vald
ráðherra en telur hann ekki hafa
sett fram gild rök fyrir þeirri
ákvörðun sinni að hundsa vilja
þeirra sem fyallað hafa um málið á
faglegum grundvelli. Við efum að
það sé íslenskum fræðum eða Há-
skóla íslands til ffamdráttar að
skerða sjálfstæði hans á þennan
hátt.“
Félag stúdenta í heimspekideild:
LIN sé tryggt fjármagn
MORGUNBLAÐINU barst í gær
svohljóðandi fréttatilkynning frá
Félagi stúdenta í heimspekideild
Háskóla íslands.
„Stjóm og trúnaðarmenn Félags
stúdenta í heimspekideild lýsa sig
andvíg öllum hugmyndum um nið-
urskurð á námslánum og þar með
afnám þess jafnréttis sem Lána-
sjóður íslenskra námsmanna er
ætlað að stuðla að. Þess er krafist
að menntamálaráðherra tryggi LÍN
það fé sem nauðsynlegt er til þess
að sjóðurinn geti staðið við skuld-
bindingar sínar gagnvart náms-
mönnum."
Kolbrún Lóa Björg
Berglind Gestsdóttir
Grétarsdóttir
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu i frétt Morgun-
blaðsins 24. desember siðastlið-
inn um fjölskyldutónleika ís-
lenzku hljómsveitarinnar um
áramót, að nöfn undir myndum
tveggja ungra einleikara víxluð-
ust. Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum um
leið og það leiðréttir þau.
Einleikararnir ungu, sem hér um
ræðir eru Lóa Björg Gestsdóttir og
Kolbrún Berglind Grétarsdóttir.
Morgunblaðið birtir því að nýju
myndir af stúlkunum tveimur með
réttum nöfnum. Þriðji ungi einleik-
arinn með hljómsveitinni var Þór-
oddur Bjarnason, en rétt nafn fylgdi
myndinni af honum.
ÁTVR á Akureyri:
Breytingar
fyrirhugaðar
Akureyri, 8. janúar.
ÁFENGIS- og tóbaksverslun ríkis-
ins hefur sótt um leyfi til að byggja
við hús fyrirtækisins við Hólabraut
á Akureyri. Fyrirhugað er að
stækka vöruhurð á vesturhlið,
bijóta niður úr glugga nyrst á
vesturhlið og setja í vöruhurð, loka
tveimur gluggum á fyrstu hæð
austurhliðar og breyta fyrirkomu-
lagi verslunar og vörugeymslu. Þó
er ekki ráðgert að taka upp svokall-
aða „sjálfsafgreiðslu". Forráða-
menn ÁTVR vilja fá að byggja við
suðurhlið hússins, stækka verslun-
ina sem nemur skoti á hlið hússins.