Morgunblaðið - 10.01.1986, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
n-z&
*• AP hoerju part ép otf> Spila \A& 6-trájcana.?
Getur&u ekki utvegab mér &\kthi/cui
bdna.fi/rii' tO ooa kr cl dag ?'
Ast er...
^ 7-»
. . . aÖ hlusta meÖ
athygli þegar
hann vill létta á
ser.
TM Reg. U.S. Pat. Oft—all rlghts reserved
• 1Ö78 Los Angeles Tirnes
Með
morgunkaffíjiu
Ég get ekki kvartað.
Konan mín hefur veitt
mér síðasta tækifærið?
Látið mig hafa nokkur
bindi, sem falla vel að
eikarlituðum bóka-
skáp ...
HÖGNI HREKKVÍSI
ER ÞEssy ./ NÆUE> SK.OTTI€>
~A APANN " LO<lE> t' PA6 ! "
Hljómsveitin Duran Duran
Skrúfum niður í þeim sem vilja
skrúfa niður í Wham og Duran Duran
Kæri Velvakandi.
Mig langar til að svara 5270-
7684 sem lét svo um mælt að skrúfa
ætti niður í Duran Duran og Wham.
Kæri herra (eða frú) 5270-7684,
þú verður að sætta þig við að fólk
hefur mismunandi tónlistarsmekk.
Það hafa ekki allir sama tónlistars-
mekk og þú, varla getur þú ætlast
til þess. Skeður eitthvað voðalegt
þó við hlustum á þessa tónlist?
Deyjum við? Förum við frekar út í
eiturlyf eða áfengisneyslu? Eða
verðum við frekar aumingjar fyrir
bragðið? Ég er nú hrædd um ekki.
Hvað í ósköpunum hafa Duran
Duran og Wham að gera með ffarn-
tíð íslands?
Hver kynslóð hefur eins (eða lík-
an) tónlistarsmekk. Þín kynslóð
hefur sjálfsagt átt sína uppáhalds-
tónlist þegar þú varst yngri. Og svo
langar mig til að spyrja — hefurðu
hlustað á öll lög Duran Duran og
Wham? Hefurðu hlustað á Careless
Whisper sem er talið mjög gott lag,
og ekki bara af þeim yngri?
Það er líka margt jákvætt við
popptónlist. Stóðu ekki flestir fræg-
ustu poppsöngvarar heims fyrir
Band Aid og Live Aid (þar á meðal
Duran Duran og Wham) og gerirðu
þér ljóst hversu mikla hjálp var
hægt að veita í Afríku fyrir ágóðann
af þessum hljómleikum? (Allur
ágóði af plötunni „Last Christmas"
fór líka til bágstaddra í Afríku.)
Hversu mörgum mannslífum held-
urðu að hafi verið bjargað? Svo
segir þú að það ætti að skrúfa fyrir
þessa músík. Þú ættir að endur-
skoða afstöðu þína.
SJ
Skrifið eða hringið
til Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 11.30,
mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal
efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir
og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
Víkverji skrifar
Nýlega keypti maður nokkur lít-
ið mælitæki í Bretlandi, sem
kostaði í brezkum pundum 5,80.
Þetta var í nóvembermánuði og þá
var gengi pundsins kr. 59,51, þann-
ig að innkaupsverð tækis þessa var
í íslenzkum krónum 345 krónur.
Burðargjald frá Bretlandi til íslands
í bögglapósti fyrir þetta litla og
ódýra tæki reyndist vera 342 krón-
ur eða nánast hið sama og inn-
kaupsverðið. Vátryggingarkostnað-
ur vegna flutningsins var 7 krónur,
þannig að þegar tæki þetta var
komið til landsins hafði það tvö-
faldazt í verði og kostaði nú 694
krónur. Þá átti eftir að reikna af
því tolla og önnur opinber gjöld og
eru þau lögð á þessa heildarupphæð
eins og þeir kannast við, sem flytja
vörur til landsins. Nú var þessi
innflytjandi svo heppinn, að tæki
hans lenti aðeins í 7% tolli, þannig
að sjálfur tollurinn nam aðeins 49
krónum. Á póstaðflutningsskýrslu
böggladeildarinnar frægu í Ármúla
eru síðan færð tvö gjöld, sem ekki
eru nafngreind og er annað upp á
178 krónur en hitt nemur 50 krón-
um. Síðan er reiknað sölugjald, sem
nemur 27,5% og er það 267 krónur.
Loks kostar þessi tollmeðferð inn-
flytjandann 17 krónur. Samtals
nema gjöldin, sem lögð eru á þetta
mælitæki 561 krónu. Heildarkostn-
aður þessa tækis, sem í Bretlandi
kostaði 345 krónur reyndist því
vera 1255 krónur, þegar það var
endanlega komið í hendur kaupand-
ans á Islandi. Þetta þýðir að kaup-
verðið í Bretlandi hafði nálægt því
fjórfaldast þegar tækið hafði fengið
venjulega meðferð af hálfu stjóm-
valda hér á Islandi og lenti þó í
lágum tolli. Þjóðfélag, sem fer
svona með þegna sína, er auðvitað
ekkert annað en ræningjaþjóðfélag.
Þegar þolandinn sýndi Víkveija
þessa póstaðflutningsskýrslu riijað-
ist upp atvik fyrir allmörgum árum,
þegar litlar leiktölvur fyrir böm
vom að ryðja sér til rúms og kost-
uðu í stórverzlunum í Kaupmanna-
höfn um 200 íslenzkar krónur á
þeirra tíma verði. Nokkmm dögum
síðar mátti sjá sömu tölvu frá sama
framleiðanda á tæplega 1000 krón-
ur í verzlun í Reykjavík. Fyrstu
viðbrögð Víkverja þá vom að sjálf-
sögðu að bölva kaupmanninum en
þá gleymdist sá, sem fer höndum
um svona innflutning áður en hann
kemst í hendur kaupmanna.
Hámenntaður sérfræðingur,
sem kominn er á fertugs aldur
og hefur um skeið dvalið við nám
og rannsóknir erlendis, þar sem
hann hefur fengið mikla viðurkenn-
ingu fyrir störf sín hafði fyrir
nokkm samband við föður sinn á
Islandi og bað hann selja eigur sínar
hér á landi. Hann kvað ástæðuna
þá, að hann gæti ekki til þess
hugsað að flytja hingað og setjast
hér að og láta opinbera aðila fara
ræningjahöndum um tekjur sínar
eins og hann hefði reynslu af vegna
starfa sinna hér fyrr á ámm. Þegar
menn lesa póstaðflutningsskýrslur
af því tagi, sem getið var um hér
að framan, þarf engum að koma
þetta á óvart. Ung kona, sem aflað
hefur sér vemlegrar menntunar,
sem gjaldgeng er víða um heim,
tilkynnti foreldrum sínum fyrir
nokkm að hún hygðist flytjast af
landi brott, þar sem hún gæti ekki
unað því skattaráni, sem hér færi
fram. Vel má vera, að áhyggjur
manna af því, að hámenntað fólk,
sem er gjaldgengt á vinnumarkaði
í hvaða landi hins vestræna heims
sem er, flytji af landi brott vegna
betri kjara annars staðar, séu nú
þegar orðnar að köldum vemleika.
Inýju hefti af tímaritinu Time
er skýrt frá þeirri byltingu, sem
orðið hefur í flugfargjöldum í
Bandaríkjunum. Þar kemur fram
að fargjöld hafa lækkað mjög vem-
lega fyrst og fremst fyrir tilverknað
hins nýja flugfélags, People Ex-
press, sem áður hefur verið gert
að umtalsefni f þessum dálkum.
Sem dæmi má nefna, að nú er
hægt að fljúga milli Boston og
Washington fyrir 19 Bandaríkja-
dali, en Víkveija er kunnugt um
íslenzkan ferðamann, sem varð að
borga 120 dali á þeirri flugleið í
ágústmánuði sl. Þá er hægt að
fljúga milli New York og San Fran-
cisco fyrir 65 Bandaríkjadali, sem
er helmingi lægra verð en gilti á
þessari flugleið lægst fyrir nokkmm
mánuðum. Ennfremur hefur People
Express boðið mönnum að fljúga
fyrir 99 dali frá San Fransisco til
Bmssel, sem er náttúrlega lygilegt
verð. En m.a.o. hvenær hefur þessi
fargjaldabylting innreið sína á ís-
landi?