Morgunblaðið - 10.01.1986, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR10. JANÚAR1986
Dregið í
Evrópukeppninni
— Barcelona og Juventus mætast
í GÆR var dregið í Evrópukeppn-
inni í knattspyrnu, átta iiða úrslit-
um. Stórleikurinn í keppni meist-
araliða verður viðureign Barcel-
ona og Juventus. Rapid Vin, sem
lék við Fram í keppni bikarhafa,
mœtir Dynamo Kiev frá Sovétríkj-
unum. Nantes, sem lék við Val í
keppni félagsliða, mætir Inter
Milan.
Dregið var í aðalstöðvum Al-
þjóða Knattspyrnusambandsins í
Zurich í Sviss í gær. Fyrri leikirnir
eiga að fara fram 5. mars og seinni
19. mars. Juventus eru núverandi
Evrópumeistarar meistaraliða, er
þeir unnu Liverpool í sögufrægum
leik í Brussel í fyrra, þar sem þrjá-
tíu og níu manns lótu lífið. Everton
er núverandi bikarmeistari, en
enskum liðum var meinuð þátttaka
í Evrópukeppninni vegna ólátanna
í Brussel. Real madrid er núverandi
Evrópumeistari félagsliða.
Lítum þá á dráttinn í hverri
keppnifyrirsig:
UEFA-keppnin:
Köln - Sporting Lissabon
Real Madrid - Xamax
Hajduk Spllt - Waregem
Inter Milan - Nantes
Bikarkeppnin:
Rapid Vin - Dynamo Kiev
Dukla Prag • Benfica
Dynamo Dresden - Bayer Uerdingen
Rauöa Stjarnan - Atletico Madrid
Meistarakeppnin:
Bayern MUnchen - Anderiecht
Steaua Bukareat - Kuusyai Lahti
Aberdeen - IFK Gautaborg
Barcelona - Juventus
•• '
Ljósm. Ingimundur.
• Frá afhendingu viöurkenninga í tilefni kjörs íþróttamanns BorgarfjarÖar 1985. Frá vinstri: Erla Grönfelt sem
tók vió verólaunum dóttur sinnar, írisar, sem útnefnd var fþróttamaóur Borgarfjarðar 1985, Hafsteinn Þórisson,
Sigrún Bjarnadóttir, Jón Valur Jónsson og Anna Bjðrk Bjarnadóttir.
- Spurs áfram
íris Grönfeldt
íþróttamaður UMFB
Frá Bob Hennessy fróttamanni Morgunblaösins á Englandi.
TOTTENHAM Hotspur tryggði
sér rétt til að leika í fjórðu umferð
ensku bikarkeppninnar, er þeir
sigruðu Oxford United, 2-1, á
heimavelli sínum eftir framlengd-
an ieik á miðvikudagskvöld.
Þetta var eini leikurinn sem fram
iflfc fór í ensku bikarkeppninni á mið-
vikudagskvöldið, hinum var öllum
frestað vegna iélegra vallarskil-
yrða.
19.000 áhorfendur sáu John
Aldridge ná forystunni fyrir Oxford
á 32. mínútu. Chris Waddle jafnaði
fyrir heimamenn um miðjan seinni
hálfleik og þannig var staðan eftir
venjulegan leiktíma.
Clive Allen, sem komið hafði
inná sem varamaður fyrir Argent-
ínumanninn Oswaldo Ardiles,
skoraði sigurmarkið á 113. mínútu.
Tottenham mætir Notts County
eða Stoke í 4. umferð á útivelli.
ÍSLANDSMETHAFINN í spjót-
kasti kvenna, íris Grönfeldt úr
Borgarnesi, var fyrir skömmu út-
nefnd íþróttamaður Borgarfjarð-
ar 1985. Hafsteinn Þórisson há-
stökkvari í Borgarnesi varð í 2.
sæti og Sigrún Bjarnadóttir á
Laugalandi, landsliðskona í borð-
tennis, varð í 3. sæti.
Niðurstaða í kjöri íþróttamanns
Borgarfjarðar var hápunktur Upp-
skeruhátíðar Ungmennasam-
Trimmnefnd ÍSÍ:
Námskeið fyrir trimmara
KENT Finanger prófessor í lík-
amsfræðum við Luther College,
Debcorath, lowa í Bandaríkjunum
er staddur hér á landi ásamt konu
sinni Lusy. Þau hjón eru íslend-
ingum að góðu kunn frá fyrri
heimsóknum sínum hingað og
A einnig hafa margir íþróttakennar-
ar sótt námskeið í því sem pró-
fessorinn nefnir íþróttir fyrir alla
(Sport for all).
Trimmnefnd ÍSÍ efnir til stutts
námskeiðs fyrir almenning meðan
á dvöl þeirra hjóna stendur. Þar
mun prófessorinn kynna og kenna
hluta af lengra námskeiði í því sem
flokkast undir íþróttir fyrir alla.
Námskeiðið verður nk. laugardag
11. janúar í hinum nýju húsakynn-
um ÍSÍ Laugardal Reykjavík kl.
13.15-18.00.
-Námsefnið er bæði fræðilegir
fyrirlestrar og verklegt inni og úti,
eftir veðri þennan dag.
Væntanlegir þátttakendur hafi
með sér íþróttaföt fyrir inni og úti-
íþróttir (létt hlífðarföt) og góða
skó til göngu og skokks. Þátttöku-
gjald er kr. 200.
Innritun er á skrifstofu ÍSÍ kl.
9.00—17.00 daglega í síma 83377.
Leiðbeinenda-
námskeið
Dagana 17.—19. janúar munu
svo verða námskeið í örvunarleik-
fimi fyrir vinnustaði á vegum
Trimmnefndarinnar. Það fer fram
í Gistihúsinu við Bláa lónið,
v/Svartsengi og er það 5. í röðinni
sinnar tegundar sem nefndin held-
ur. Dagskrá er fjölbreytt allan tím-
ann, bókleg og verkleg fræðsla
skiptist á, og dvelja þátttakendur
í Gistihúsinu 2 sólarhringa. Nánari
upplýsingar gefnar á skrifstofu ÍSÍ
í síma 83377 á skrifstofutíma.
bands Borgarfjarðar sem haldin
var á dögunum. íris fær glæsilegan
bikar til varðveislu í eitt ár og
annan eignarbikar ásamt þeim
sem urðu í 2.-5. sæti í kjörinu. íris
er við nám og æfingar í Bandaríkj-
unum og tók móðir hennar, Erla
Grönfeldt, við verðlaunum hennar.
Þetta er í sjötta skipti sem
íþróttamaður Borgarfjarðar er
kosinn og hefur fris einu sinni áður
hlotið sæmdarheitið, árið 1982.
Jón Diðriksson hlaupari frá Helga-
vatni hlaut útnefninguna árið
1980, fyrsta árið sem kjörið fór
fram, en Einar Vilhjálmsson, hinn
kunni spjótkastari frá Reykholti,
hefur oftast hlotið sæmdarheitið,
en það var árin 1981, 1983 og
1984. Að sögn forráðamanna
UMSB var Einar ekki hlutgengur
að þessu sinni, samkvæmt reglu-
gerð um kjörið.
Að þessu sinni hlutu 22 íþrótta-
menn stig í kjöri íþróttamanns
Borgarfjarðar og fengu 10 fyrstu
viðurkenningar. íris, Hafsteinn og
Sigrún voru í þremur efstu sætun-
um, eins og áður segir, síðan komu
Jón Valur Jónsson sundmaður í 4.
sæti og Anna Björk Bjarnadóttir
frjálsíþróttakona í 5. sæti.
Uppskeruhátíö UMSB var end-
urvakin nú um áramótin og voru
þar afhent öll sérverðlaun frá mót-
um ársins, auk þess sem ýmislegt
var gert til skemmtunar. Hátíðin
var fjölmenn og vel heppnuð að
sögn þeirra sem fyrir henni stóðu.
Badminton:
Wang Junjie og
Þórdís sigruðu
SUNNUDAGINN 5. janúar sl. fór
fram í TBR-húsinu við Gnoðarvog
opið meistaramót f einliðaleik.
Var keppt í A-, B- og meistara-
flokki karla og A- og meistara-
flokki kvenna og einnig í viðauka-
flokkum þeirra (nema A-flokki
kvenna), hverjum menn kepptu i
eftir að hafa tapað f aðalflokkn-
um.
Var flest okkar besta bad-
mintonfólk á meðal keppenda, þó
ekki Kristín Magnúsdóttir né
Broddi Kristjánsson, sem enn er
fjarri góðu gamni vegna meiðsla
er hann hlaut sl. sumar.
Annars voru úrslit sem hér
segir:
Meistaraflokkur karla, aðalflokk-
ur:
Wang Junjie TBR sigraði Guömund
AdolfssonTBR 14:18,15:5,15:8.
Meistaraflokkur karla, viðauka-
flokkur:
Árni Þór Hallgrímsson TBR sigraði
Sigfús Ægi Árnason TBR 15:3,
15:3.
Meistaraflokkur kvenna, aðal-
flokkur:
Þórdís Edwald TBR sigraði Elísa-
betu Þórðardóttur TBR 11:0, 11:9.
Meistaraflokkur kvenna, viðauka-
ffokkur:
Inga Kjartansdóttir TBR sigraði
Kristínu B. Kristjánsd. TBR 8:11,
11:9, 11:9.
A-flokkur karla aðalflokkur:
Njáll Eysteinsson TBR sigraði Sig-
urð Harðarson ÍA 15:5,15:2.
A-flokkur karla viðaukaflokkur:
Ármann Þorvaldsson TBR sigraði
Gunnar Björgvinsson TBR 15:12,
15; 10.
A-flokkur kvenna aðalflokkur:
Helga Þórisdóttir- TBR sigraði
Birnu Petersen TBR 11:4,11:2.
B-flokkur karla aðalflokkur:
Hörður Benediktsson Val sigraði
Örn Grundfjörð TBR 15:5, 10:15,
15:13.
B-flokkur karla viðaukaflokkur:
Jón Pétur Zimsen TBR sigraði Óla
Björn Zimsen TBR 15:4,15:11.
Bikarmót
FSI
BIKARMÓT Fimleikasambands
íslands verður fyrsta mót þessa
vetrar hjá sambandinu. Mótið fer
fram 25.-26. janúar.
Þátttökutilkynningar þurfa að
berast í síðasta lagi 18. janúar
ásamt mótsgjaldi. Urslit í A-riðli
verða tekin til viðmiðunar við val
á keppendum i landskeppni við
Skota, sem fram fer hér á landi í
febrúar.