Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987 Karlakór Reykjavíkur Tónlist Jón Asgeirsson Vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur voru að þessu sinni haldnir í Langholtskirkju undir stjóm Páls P. Pálssonar og aðstoðar- manns hans, Odds Bjömssonar. Undirleikari var Guðrún A. Kristins- dóttir en hún, ásamt Oddi, raddæfði kórinn. Tónleikamir hófust á lagi eftir Pál ísólfsson, er heitir Söng- bræður góðir. Líklega er þessu lagi ætlað að vera félagasöngur kórsins sem hér er aðeins sett fram sem til- gáta. Lagið er vel samið og var fallega sungið. Næstu þtjú lögin eru eftir Skúla Halldórsson og öll við ljóð eftir Jón Thoroddsen. Lögin eru látlaus og áferðarfalleg og söng kórinn með nokkmm þokka miðlag- ið, sem var við Hlíðin mín fríða. Reiðvísa, sem var þriðja lagið, miss- ir kraftinn um miðbikið, þar sem textinn er „Skreiðfráu jóamir skunda um mel_ úr skeifunum eldur- inn blossar". Á eftir lögum Skúla var ein raddsetning eftir Emil Thor- oddsen, á laginu Sé ég eftir sauðun- um. Þar mátti heyra að raddimar í kómum em fremur ójafnar og tenór- inn ekki eins góður og oft fyrmm. Þrjú lög eftir Lille Bror Söder- lundh flutti kórinn undir stjóm Odds Bjömssonar. Lögin vom fallega | mótuð og mjög líklega hefur Karla- j kór Reykjavíkur fundið eftirmann Páls, því Oddur er vel menntaður tónlistarmaður og eftir því sem dæmt verður af þessum þremur lög- um, smekkvís í besta lagi. Næstu tvö lög vom rússnesk þjóð- lög en mjög líklega í raddsetningum eftir þýska tónlistarmenn. Það er nú svo þegar raddsetja á þjóðlög,' að mikil líkindi em á því að þau fái óviðeigandi umgerð og misskiljist, þegar erlendir tónlistarmenn búa þeim búning. Það er því miður mjög algengt að menn telja sig mega gera hvað sem er við þjóðlög og fá þau oft að þola alls konar meðferð. Þýska gerðin af rússnesku þjóðlögunum var þokkaleg en ákaflega órússnesk og jafnvel hljóðfallslega afbökuð, miðað við það sem undirritaður þekkir til laganna. Nægir að nefna það fyrra, sem er sama lag og allir þekkja við textann „Áfram veginn í vagninum ek ég“. Eftir hlé söng þrefaldur kvartett gamla kunningja eins og Sveinar kátir syngið og Nú máttu hægt. Það er töluverður þokki yfir söng félaganna. Þrjú Norðurlandalög vom næst á efnisskránni, fyrst Hjártans sáng, eftir Sibelíus, sem tenórinn átti ekki sem auðveldast með, einkum þar sem tónboginn rís og syngja á veikt. Það sama má segja um Sæfarann við kolgröfina eftir Palmgren, sem ásamt lagi Síbelíusar er sérlega fíngert og fallega ofíð saman við textann. Þessi texti er til í afburða fallegri þýðingu Þorsteins Valdi- marssonar, er fellur ótrúlega vel að lagi Palmgrens. í þessum lögum vantaði tenórinn þá þýðu hljóman og þéttleika í veikum söng, sem kalla þarf eftir í þessum viðkvæmu og fallegu tónsmíðum. Þriðja Norð- urlandalagið var Ack Vármeland du sköna, í raddsetningu sem mjög minnir á bandarískar „Sing-a-1- ong“-raddsetningar, þó kórinn syngi lagið annars fallega. Nýtt lag eftir Pál P. Pálsson var frumflutt að þessu sinni og er það við enskan texta frá 14. öld í þýð- ingu Magnúsar Ásgeirssonar. Lagið er fallega unnið fyrir kórinn en sam- leikur á flautu og handtrommur var ekki alls kostar samvirkt laginu. Þessi sérkennilega hljóðfæraskipan átti hins vegar vel við í þremur lög- um, sem neftiast Litli trumbuslagar- inn og sögð eru vera eftir Franz Biebl, þó síðasta lagið sé í raun frakkneskt þjóðlag. Síðustu lögin voru nokkur þýsk alþýðulög, sem einnig hafa verið mikið sungin á íslandi, síðan Iöngu fyrir aldamótin síðustu og þykja enn góð. Þetta eru lög eins og Nú yfír heiði háa, Lóre- lei, Af stað, Góða tungl og Sjá brostin klakabönd. Þessum lögum skilaði kórinn fallega og kunnu áheyrendur vel að meta þessa gömlu húsganga. fi ■ tw* I i f m fö Við sýnum þessi hjólhýsi ásamt tjaldvögnum og kerrum í Laugardalshöil þessa dagana. Gísll Jónsson 09 GO« Kf« Sundaborg 11, sími 686644. 1. Sérstaklega sterkur undirvagn. Galvanis- eraður. 2. 6 fet milli hjóla, radial dekk, sjálfstæð sneril- fjöður, mjög þýð. 3. Sérstaklega hönnuð til aðtaka lítinn vind á sig. Mjög stöðug. 4. Stórt hólf fyrirgas, vatn o.fl. 5. Gólf og veggirein- angraðir með 20 mm Poly urafhane. 6. Þakeinnigvelein- angrað. 7. Tvöfaltlitaðglerírúð- um. 8. Velbúiðeldhúsmeð Electroulux ísskáp. 9. GóðurCarverhitaofn. 10. Smekklega innréttað úr Ijósum við, falleg áklæði. 11. Ótrúlega hagstætt verð. 12. Frábærgreiðslukjör. '&r XTc&AT nplvum • LÆGSTU VERÐ AISLANDI • Frítt flugfar til London • Veitingar • Vidgerðaþjónusta sérfræðinga | JNYTT 15) • Tölvurnar eru settar saman í USA • Aðstoð og kennsla • Tölvunet, prentarar, fáanleg V 1MÁNAÐA ÁBYRGÐ hugbúnaður, aukabúnaður 1 mOQHUS HF. SÖLUAÐILIFYRIR: Fountain, Toshiba, Novell, Microsoft, Lotus, dBase. ’Oa T % LÁGMÚLI 5 • SÍMI 689420 IBM® skrásett vörumerki Tilboð endar 15. maí 1987
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.