Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1 MAÍ 1987 ■+ 1. MAI Mbl/Þorkell Rebekka Arnadóttir og Sigrún Kristinsdóttir. Fóstrurnar Rebekka Árnadóttir og Sigrún Kristinsdóttir teknar tali: Flótti úrstéttinni Fóstrur hafa lengi att kappi við iaunagreiðendur sína og því hugs- anlegt að þær leggi meira upp úr gildi 1. maí heldur en gengur og gerist. Til að fræðast um það ræddi Morgunblaðið við þær Rebekku Ámadóttur og Sigrúnu Kristins- dóttur, fóstrur suður í Hafnarfirði. Rebekka er forstöðukonan á bamaheimilinu og hún segir að hún hugsi ekkert sérstaklega um 1. maí. Að vísu hafi hún farið í kröfu- göngur hér áður fyrr, en meira til þess að ieyfa bami sínu að taka þátt í skrúðgöngu. Sigrún tekur undir viðhorfin til dagsins, en lætur þess getið að hún hafi ekki farið í kröfugöngur til þessa. :iftir dálitla umhugsun eru þær stöllur þó sammála um að 1. maí sé þörf áminningum að kjör margra stétta í iandinu séu alls ekki nógu góð. „Við getum tekið fóstrur sem dærni," segir Rebekka, við fengum að vísu nokkra hækkun fyrir skömmu, en það átti bara að heita leiðrétting. Það var í áttina, en langt frá því að vera nóg.“ Sigrún áréttir orð Rebekku með því að bæta við, „sko við vomm orðnar svo langt á eftir öðrum launþega- hópum, að það var kominn bullandi flótti í stéttina. Og það sér ekkert fyrir endann á honum þrátt fyrir þessa hækkun sem við nefndum. Þær Rebekka og Sigrún segja, að eftir hækkunina séu byrjunar- laun fóstru 35.017 krónur, en ófaglærðar aðstoðarstúlkur á bamaheimilum standi enn verr að vígi, þær séu með aðeins 27.295 krónur á mánuði. Sigrún segir: „Ég er búin að vinna sem fóstra í 9 ár og er aðeins um 6.000 krónum yfír byijunartaxtanum, þetta telst því varia launastigi. Svo er annað, fóstrur sitja uppi með sitt kaup. Við eigum enga von á því að geta drýgt tekjumar með yfirvinnu, fáum enga yfirgreiðslu eða uppbót út á það eða neitt." „Við höldum okkur ekki upp á neinu,“ bætir Rebekka við. Bjartsýnar á framtíðina í ljósi kosning-aúrslita? Sigrún verður fyrri til og segir: „Ég veit ekki hvort það er nokkur fótur fyrir bjartsýni, til þess þarf að bæta svo mikið kjörin. Eins og er lifir fóstra ekki af launum sínum ég er gift og þriggja bama móðir. Við hjónin verðum bæði að vinna úti fulla vinnu. Samt leyfir maður sér ekkert, það er ekkert svigrúm því samanlögð launin rétt svo fæða okkur og klæða og varla það. Mað- ur er orðinn hundleiður á því að passa upp á hveija einustu krónu. Kjörin verða að bjóða manni upp á aðeins rýmri ijárhag." Rebekka segir einnig að þrátt fyrir nokkra launabót sé enn langt í iand og ekki frekari bætur í sjónmáli, en um launin segir hún þetta: „Ég verð að segja það að ég lifí af laun- um mínum. Ég er einstæð móðir með eitt bam. Ég lifí af þeim í þeim skilningi að ég hef vanið okk- ur við skortinn. Eg verð að láta peningana endast til brýnustu nauð- synja en samt er af og frá að þeir geri það. Við verðum að neita okk- ur um ijölmargt sem margur telur nauðsyn. Við leyfum okkur ekkert, frekar að við séum sífellt að herða ólamar. Og Sigrún tekur nú aftur til máls. „Á meðan launin eru svo léleg væri fróðlegt að fylgjast með því hversu margar af þéim fóstrum sem útskrifast næst fari í fóstrustörf. Nú þegar er nóg af faglærðum fóstrum í landinu til að fylla öll störf. Samt er skortur. Það segir meira en mörg orð, því það gefur augaleið að þær stúlkur sem mennta sig í þessu hafa áhuga á því að vinna við þetta. En launin fæla þær frá. Þeir sem ákveða laun- in verða að horfast í auga við þetta og gera upp við sig hvort þeir meti ekki meira það uppeldisstarf sem unnið er af fóstrum. Við Rebekka höfum báðar upplifað hugarfars- breytingu meðal almennings gagnvart bamaheimilum. Þegar við vorum að byija voru þau litin hom- augu, en eftir því sem konur fóru að sækja meira út á vinnumarkað- inn fór þörfín vaxandi og hugarfars- breyting fylgdi. Einhverra hluta vegna njótum við samt sem áður enn lítils skilnings hjá launagreið- endum." Rebekka kinkar kolli og tekur þannig undir orð Sigrúnar. - gg ísland er láglaunaland Morgunblaðið/Ámi Sæberg Róbert til vinstrí og Krístbjörn til hægrí í Steinsmiðju S. Helgasonar - segja þeir Krist- björn Daníelsson og Róbert Jóhanns- son hjá Steinsmiðju S. Helgasonar í Kópavogi HÆKKUN launa er númer eitt, tvö og þijú á óskalista þeirra Krístbjöms Daníelssonar og Ró- berts Jóhannssonar starfsmanna Steinsmiðju S. Helgasonar í Kópavogi. Þeir félagar em og sammála um, að ísland sé lág- launaland. Róbert sagði í viðtali við blaðamann, að lægstu laun mættu ekki vera undir 45 þúsund krónum. Krístbjöm kvaðst ekki lifa á 60-70 þúsundum, þó værí hann aðeins með tveggja manna fjölskyldu. Þeir Róbert og Kristbjöm sögð- ust vera á öndverðum meiði í stjómmálum og höfðu auðheyran- lega gaman af að smáhnýta hvor í annan þó með góðlátlegum kímni í fasi. Þeir tengdu því velflest stjóm- málum er rætt var við þá og sagði Kristbjöm m.a., að ef launþegar ættu að hafa það gott yrði Sjálf- stæðisflokkurinn að stjóma. Hann sagði þó, að eins og nú væri komið treysti hann ekki Jóni Baldvini til að fara í stjóm, fremur vildi hann að látið yrði reyna á hvort Kvenna- listinn hefði einhveijar raunhæfar tillögur. Róbert sagðist hreint ekki sjá neinn valkost, eins og staðan væri í dag. Helst væri hann á því að nýju flokkamir ættu að fara í ríkis- stjóm til að sýna hvað þeir gætu. Það kæmi þá í ljós hvað fólk hefði í Kópavogi. verið að kjósa yfír sig. Róbert sagð- ist hafa eitt á hreinu varðandi það, hvað ný ríkisstjóm ætti að gera en það væri að fella alveg niður tekju- skatt launþega. Aðspurðir um óskir til handa launþegum í tilefni dagsins töldu þeir báðir hærri laun efst á blaði. Róbert nefndi einnig húsnæðismál- in. Sagði einhvers konar kaupleiguí- búðir eða „Búseta-form" bráðnauð- synlega kjarabót. Kristbjöm sagði aftur á móti, að hann hefði enga trú á því að verkamenn hefðu efni á að taka tveggja milljón króna lán til íbúðakaupa. Þeir spjölluðu einnig sín á milli um verkalýðshreyfinguna, gildi hennar og árangur í starfí. Róbert sagði m.a., að sér fyndist vanta meiri kraft í starfið, en þar væri ekki aðeins við forustumennina að sakast. Hinn almenni félagsmaður yrði að mæta á fundum og taka virkan þátt, a.m.k. áður en hann bölsótaði forustumönnunum fyrir lélegan árangur. Þama virtust þeir félagar nokkuð sammála, því Krist- bjöm kinkaði kolli. Þess má geta að Róbert er félagi í Verkalýðs- félaginu Dagsbrún í Reykjavík, en Kristbjöm í Verkstjórafélaginu. Við spurðum að lokum, hvemig þeir hygðust veija deginum í dag. Róbert sagðist ætla að taka þátt í skrúðgöngu að venju og öðrum hátíðar- og baráttufundum dagsins. Kristbjöm sagði: „Ætli ég horfi ekki bara á hann Róbert í skrúð- göngunni í sjónvarpinu. Það held ég“, og þeir félagar héldu saman til vinnu sinnar á ný, er við höfðum þakkað þeim fyrir spjallið. - F.P. Morgunblaðið/Ámi Sæberg í lok hádegisverðarhlés, talið frá vinstrí: Una Kristín Jónsdóttir, Sunneva Guðmundsdóttir og Við- ar Ásgeirsson. Lágmarkslaun ættu að vera 40-50þúsund krónur - segja þrjú ungmenni sem vinna hjá Granda LAUNIN eru alltof lág, lág- markslaun ættu að vera á bilinu 40-50 þúsund kr. Þetta voru þau sammála um Una Krístin Jónsdóttir, Sunneva Guð- mundsdóttir og Viðar Ásgeirs- son, sem við hittum að máli fyrir framan matsal fiskiðju- vers Granda I Reykjavík. Þær Una Kristín og Sunneva vinna þar við fiskvinnslu, en Viðar starfar hjá Listsmiðjunni sem er sjálfstæður verktaki þjá Granda. Hann er við nám í vél- virkjun. Þau töldu að laun þeirra allra vaéru svipuð. Viðar væri þó með hærra tímakaup sem bónusinn bætti stelpunum upp. Önnur stelpnanna er enn í heimahúsum og Viðar einnig. Aðspurð um hvemig þau verðu kaupinu sagð- ist Viðar vera að reyna að safna til að kaupa íbúð, kannski fyrst bíl og síðan íbúð, en þannig töldu þau aðferð ungs fólks oftast vera til að koma undir sig fótunum. Þau voru einnig sammála um að ungt fólk, og reyndar velflestir starfsmenn Granda, tæki alla þá eftir- og næturvinnu sem byðist, en 44 tíma vinnuvika væri oftast á launaseðlunum. Stelpumar voru á öndverðum meiði varðandi bónusvinnu. Önnur var á móti henni en hinni fannst hún eiga rétt á sér. Öll vora þau sammála um að lágmargslaun mættu ekki fara niður fyrir 40 þúsund og nefndu þau tölumar 40, 45 og allt að 50 þúsund krón- ur. Einn vinnufélagi þeirra skaut því að sem sinni skoðun, að sér fyndist mikilvægast að verðlag og kauplag héldist í hendur. Að- spurð um hvemig þeim gengi að láta endana ná saman svörðu þau því til að það gengi bara ágætlega með eftirvinnunni og var enga svartsýni að heyra á þeim hvað varða framtíðina. — F.P.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.