Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987 69 Kvenna- athvarf - Karlaathvarf Til Velvakanda. Kvennaathvarf er vafalaust þörf stofnun. Hún leysir þó ekki allan vanda. Til eru kvensköss, sem ógna og jafnvel misþyrma mönnum sínum. Þannig er mér kunnugt um konu, sem reiddist manni sínum, þegar hún fann vínlykt af honum við heimkomuna. Sló hún hann í andlitið með þeim afleiðingum, að tönn brotnaði og blóð rann í nefi. Féll maðurinn við, og þá sparkaði konan í hann liggjandi á gólfinu, svo að stórsá á honum. Síðan hljóp hún sjálf út, niður í Kvennaathvarf og ákærði mann sinn fyrir ofbeldi. Sama kona var þekkt að því að lemja bam sitt undir lögaldri, og þurfti maðurinn stundum að skerast í leik- inn. Þetta sýnir okkur, að kerfínu er ábótavant. Ekki á að gleypa við öllu sem athvarfskonur segja, heldur kanna mál hverrar og einnar, sem til félagsmálastofnunar leitar, frá báðum hliðum — af sérstökum rann- sóknarmanni eða dómara. Vemda á þann sem verður fyrir ofbeldi en refsa hinum sem það fremur. L.E. Frábært kosninga- sjónvarp hjá Stöð 2 Kæri Velvakandi. Erindið er að biðja þig að koma á framfæri þakklæti mínu til Stöðv- ar tvö fyrir frábært kosningasjón- varp um síðustu helgi. Að baki slíku kosningasjónvarpi hlýtur að liggja gífurleg vinna fyölda manns, bæði hvað varðar undirbúning og fram- kvæmd. Dagskráin fannst mér í alla staði vel unnin og bráð- skemmtileg. Það ber að þakka, sem vel er gert. Þessir hringdu . . . Um hvað var kosið? Kjósandi hringdi: „Um hvað var raunverulega kosið hin 25. apríl. Hinum almenna kjósanda virtist ekki neinn sérstakur munur á stefnumálum flokkana. Allir flokk- ar vom t.d. sammála um að halda verðbólgu í skefjun. í skoðanakönn- unum var fyrst og fremst grennsl- ast fyrir um hversu margir kæmust á þing frá hveijum flokki en ekki spurt um stefnumál. Mér fínnst að nota ætti skoðanakannanir til þess að fá fram skoðanir fólks á málefn- um og stjómmálaflokkamir gætu svo hagnýtt sér niðurstöðumar. Nú virðist t.d. almennur áhugi á tveggja flokka kerfí og fækkun þingmanna." Óviðkunnanleg gluggabréf J.V.hringdi: „Konan mín lést fyr- ir skömmu en þó streyma hingað stöðugt gluggabréf með happa- drættismiðum á hennar nafn. Mér fínnst þetta dálítið óviðkunnanlegt. Væri ekki hægt að fá þá sem standa fyrir þessum sendingum til að líta betur í skrámar? Málvillur Þórun Guðmundsdóttir hringdi: Ég sendi Sigurði Helga- syni kveðju, og bendi honum á vegna orðalags hans í grein um nýju flugstöðina fyrir nokkm, að það heitir á íslensku að kaupa og selja vömr en ekki að versla þær. Versla er ekki áhrifsorð. Einnig sendi ég Jóni Baldvin Hanibalssyni kveðjur. Hann talaði um tvö lög í sjónvarpsræðu. Þar sem hann var ekki að tal um sönglög heldur lög frá Alþingi heita það tvenn lög. Sama regla gildir ef til dæmis Jón og kona hans og Þorsteinn fjár- málaráðherra og kona hans væm á göngu saman, þá fæm þar tvenn hjón en ekki tvö hjón.“ Foreldrar. Nú fer sá tími í hönd þegar reiðhjólin em tekin fram. Yfirfarið hjól- in með bömum ykkar og sjáið um að allur öryggisbúnaður sé í lagi. Biýnum fyrir bömum okkar að gæta varúðar og leiðbeinum þeim hvar ömggast er að hjóla. Þrotabú Stemmu hf. Til sölu eru allar eignir þrotabús Stemmu hf., Höfn, Hornafirði. Helstu eignir (Drotabúsins eru: 1. Fasteignin Álaugareyjarvegur 6-8, ásamt tækjum, lausa- fé og búnaði, til alhliða fiskverkunar og síldarsöltunar. 2. Fasteignin Álaugareyjarvegur 19, sem er fiskverkunar- og geymsluhúsnæði. 3. Fasteignin Hafnarbraut 10, sem er verbúð. 4. Geymsluhúsnæði að Fiskhól 5, hl. 5. Lóð að Álaugareyjarvegi 17. 6. Skreiðarhjallar. 7. Hlutabréf í hf. Fiskréttir og hf. Verbúðir. 8. Ýmsilegt lausafé, vélar og tæki. Eignirnar verða sýndar áhugasömum kaupendum skv. nánara samkomulagi við undirritaðan. Bæði kemur til álita að selja eignirnar allar í einu lagi og eins einstakar eignir sér. Tilboðum skal skila til undirritaðs fyrir 15. maí nk., sem jafnframt veitir allar nánari upplýsingar. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er og til að hafna öllum. Jafnframt er áskilinn réttur til að ganga til nánari samninga við hvaða tilboðsgjafa sem er. F.h. þrotabús Stemmu hf. Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., skiptastjórí, Borgartúni 24, Reykjavík, sími 27611. KONAN KOMVM GERIST FÉLAGAR Takið þátt í að stofna áningarstað og stuðla að endurbata kvenna eftir vímuefnameðferð. Gíróreikningur nr. 2626 í Verzlunarbanka, Breiðholtsútibúi. X:--------------------- Nafn: ..................................... Heimilisfang: .............................. Póstnr: ...............Sími: ................ Sendist til: KONAN P.O. box 791, 121 Reykjavík, og þú færð send um hæl öll gögn fólagsins. Tónleikar og töfrabrögð Rússneska þjóðlagatríóið „Bylina", söngkonan Galina Borisova og Arútjan Akopjan, einn frægasti sjónhverf- ingamaður Sovétríkjanna, skemmta á vegum MÍR næstu daga sem hér segir: HLÉGARÐI föstudaginn 1. maí kl. 21.00. HÓTEL SELFOSSI laugardaginn 2. maí kl. 16.00. ÍSLENSKU ÓPERUNNI (Gamla Bíói) sunnudaginn 3. maí kl. 15.00. Miðasala við innganginn í Hlégarði og á Selfossi, en miðar að skemmtuninni í íslensku óperunni verða seldir í félagsheimili MÍR, Vatnsstíg 10, kl. 13.30-18.00 hinn 1. maí og kl. 14.00-18.00 laugardaginn 2. maí - við innganginn í Gamla bíói. Missið ekki af sérstæðri skemmtun frábærra lista- mama■ MÍR 1547-3142
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.