Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 01.05.1987, Blaðsíða 29
£ c: P'Xr O *-q 3 I- MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MAÍ 1987 29 i I i | < \ i I 1 l í í £ í r li s fc h S s V J í s* h Enn er unnt að bæta kjörin og draga um leið úr verðbólgu! Það viljum við gera með þínum stuðningi. Vöruverð á ÍSLANDI er á stundum borið saman við verð í GLASGOW. Enda þótt aldrei verði nákvæmlega sama verð á öllum vörutegundum hér og þar er unnt að gera verðlag á ÍSLANDI hliðstætt verðlagi í GLASGOW, ef vilji er nægur. Sá vilji þarf að vera fyrir hendi hjá öllum aðilum. Hann þarf að vera hjá okkur, fagmönnunum í innflutn- ingi, hann þarf að vera hjá stjórn- völdum, hann þarf að vera hjá þeim sem veita versluninni þjónustu og hann þarf líka að vera hjá þér. Hin nýfengna frjálsa verðmyndun hefur þegar stuðlað mjög að betri innkaupum, hvatt til aukinnar hag- ræðingar í rekstri og hefur komið fram í lægra vöruverði. En betur má ef duga skal. • Við þörfnumst nýrra tollskrár- laga, sem kveða á um jafna og hóf- lega tolla og taka mið af breyttum neysluvenjum í þjóðfélaginu hverju sinni. Það myndi auka verslun innanlands og lækka vöru- verð. • Veitaþarfinnflytjendumaðgang að lánsfé þar sem það er hag- kvæmast á heimsmarkaðnum hverju sinni, svo draga megi úr fjár- magnskostnaði. Það lækkar iíka vöruverð. • Afnema þarf sérsköttun á verslun. Það myndi einnig lækka vöruverð. • Lækka þarf flutningskostnað til landsins og nýta iiagræðingu til þess að draga úr mismun milli vöruflokka. Þýðingarmiklar neyslu vörur myndu lækka í verði. • Aðflutningsgjöld verði reiknuð af innkaupsverði, en ekki einnig af flutningskostnaði og tryggingum. Það myndi líka stuðla að lækkun vöruverðs. • Skattaráfjarskiptatækiogönnur framleiðslutæki verslunar verði afnumdir. Það myndi efla markaðs- leit og innri hagræðingu, sem kæmi fram í lægra verði. Q • Jafna þarf tolla á vörur frá helstu viðskiptalöndum okkar, svo unnt sé að hagnýta bestu kjör á hverjum tíma. Ljóst dæmi nú er hin mikla lækkun bandaríkjadoUars, sem ekki hagnýtist íslenskum neyt- endum nema að hluta, vegna hærri tolla á bandarískar vörur en evrópskar. Jafnvel þetta eina atriði gæti lækkað vöruverð hérlendis niður fyrir það sem Glasgow-búar eiga kost á. • Og þá kemur að þínu hlutverki! ÞÚ þarft að fylgjast stöðugt með verðlagi og gæta þess að bera sam- bærilegar vörur saman, svo versl- unin fái sanngjarnt aðhald í störfum sínum. Ef öll þessi atriði næðu fram að ganga myndi það líklega þýða meiri kjarabætur en aðilar vinnumarkaðarins hafa nokkru sinni samið um í einu lagi. Það myndi draga úr verðbólgu, kaupmáttur aukast og tekjur ríkisins þyrftu ekki að skerðast. Um leið og við sendum þér bestu kveðjur á þessum hátíðisdegi leitum við eftir stuðningi þínum við að hrinda þessu sameiginlega baráttumáli okkar í framkvæmd. Félag íslenskra stórkaupmanna Fagfélag um innflutning, útflutning og vörudreifingu. Kynningarþjónustan/SÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.