Morgunblaðið - 17.04.1988, Síða 9

Morgunblaðið - 17.04.1988, Síða 9
8 9 88Gr ,i!íha .vt JiuoAamwug .cna'AjavíuoHOM MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1988 HUGVEKJA Trúeða vantrú eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON 2. sd. eftir páska Jóh. 10; 11.-16. Fyrir nokkru kom ungur maður að máli við mig sem ég fermdi fýrir um 18 árum og sagði eitt- hvað á þessa leið: Mikið vildi ég að ég ætti þessa sömu trú og ég átti þegar ég fermdist. Núna finnst mér þetta allt svo óraun- verulegt. Hvemig getur Jesús sem var maður verið Guð og hvernig getur Heilagur andi verið Guð? Hvemig getur nokkur fullorðinn maður trúað þessu, sem þú varst að útskýra fyrir okkur fermingar- börnunum á sínum tíma? Ég þagði. Hann hélt áfram og sagði: Ég sé ekkert réttlæti í þessu þjóð- félagi, sá sem svíkur mest nýtur lífsins, sá sem reynir að vera heið- arlegur verður undir. Ef það er eitthvað til yfir okkur, einhver Guð, þá er svo auðséð að hann skiptir sér ekkert af okkur. Trúin er aðeins sefjun, sem hjálpar ef til vill stundum, en fyrir okkur flest, sem erum ekkert að hugsa um þessi atriði og höfum ekki beðið bænir frá því við fermd- umst, er trúin næstum hlægileg. Ég þagði. Þetta var á skemmt- un og ef til vill höfðu eitt eða tvö vínglös dmkkin af þeim sem tal- aði, breytt hugsun hans. Þó efa ég það. Því leyfi ég mér að tala í þessari hugvekju til hans og annarra sem líkt hugsa. Ungi maður. Getur þú sagt til um það í dag á miðjum aldri hver trú þín sé eða hver hún muni verða. Gættu að. Hvað sagðir þú á námsámm þínum? Fannst þér ekki margt fánýtt sem þú varst beðinn um að læra og gazt jafn- vel fullyrt við kennara þína að þetta námsefni myndi aldrei koma þér að notum í lífinu. Fá ár liðu og lífbaráttan tók við, sem kallaði á þekkingu þína, hvernig þú hafð- ir stundað námið, kallað á upp- gjörsstund gagnvart því sem þú hafðir lært eða sleppt að læra. Það em margir sem iðrast þess, hversu illa þeir notuðu námsárin, — tækifærið leið hjá og það kem- ur ekki aftur með sama hætti. Að námsámm loknum tekur við sérstæður tími, hafir þú ekki stofnað til hjúskapar eða sambúð- ar. Það virðist fyrst og fremst tími þess að gleðja sjálfan sig. Sjá sér farborða fyrir líkamlegum þörfum í orðsins fyllstu merkingu. Og þegar sá tími er að baki iðrast margur alls þess sem eytt var, alls þess, sem skildi enga varan- lega eign eftir, aðeins keypt stundargaman, sem maður vill svo oft gleyma eða neita með öðmm hætti að horfast í augu við. Allt undir himinhvolfinu lýtur sínu lögmáli. Lífið heldur áfram og við emm ekki spurð um hvað okkur finnst eða hveiju við trúum. Lífið á sér svo miklu æðri rök og himinninn með alla sína óendan- legu fjarlægð og óskiljanlegu lög- máli er, hvað svo sem við álykt- um. Lífið kennir okkur á hverjum einasta degi eitthvað nýtt, það kennir með lögmálum sínum, með gangi himintungla, með sólskini og regni, sáningu og uppskem, árstíðum og aidursskeiðum okkar mannanna. Það kennir með hug- hrifum okkar, ástinni, sem við verðum háð, kærleikanum sem við vöxum með og ræktum af innri löngun, það kennir einnig með skapbrigðum okkar, sem við verð- um að læra að hemja, það kennir með vonbrigðum sem við verðum fyrir og öllum þeim innri átökum sem tengjast veikindum, hrömun og eftirsjá. Lífið heldur áfram, hveiju svo sem við trúum eða trú- um ekki, reiknum út, mælum og vegum. Ævi Jesú Krists er með þeim hætti, að við getum ekki gengið að sjónvarpsmynd eða seg- - ulbandi, við getum ekki komið á rannsóknarrétti um hinar marg- víslegu spumingar sem í huga okkar eru, við getum engan spurt hvort Jesús hafi verið Guð eða hvort hann hafi verið maður eða hvað Heilagur andi sé. Hann er. Það er svar trúarinn- ar sern engin mælieining getur mælt. í Jóhannesarguðspjalli er komið til móts við þann einstakl- ing sem leitar trúar með orðum Jesú Krists, þegar hann segir aft- ur og aftur: Eg er. í 10. kafla guðspjallsins segir Jesús: Ég er dymar — Ég er góði hirðirinn — Ég er Guðs sonur. „Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölumar. . . Fyrir því elskar faðirinn mig, að ég legg líf mitt í sölurnar, til þess að taka það aftur. Enginn tekur það frá mér, heldur legg ég það sjálfvilj- uglega í sölumar. Ég hefi vald til að leggja það í sölumar, og ég hef vald til að taka það aftur. Þetta boðorð hefi ég fengið frá föður rnínurn." í þriðja kafla annarrar Móse- bókar segir frá því þegar Guð kallaði Móse til þess hlutverks að leiða þjóðina burt frá Egyptalandi og Móse reyndi að færast undan þeirri köllun. „Og Móse sagði við Guð: En þegar ég kem til Israels- manna og segi við þá: Guð feðra yðar sendi mig til yðar, og þeir- segja við mig: Hvert er nafn hans? Hveiju skal ég þá svara þeim? Þá sagði Guð við Móse: Ég er sá sem ég er.“ Guð er sá sem hann er. Jesús Kristur er einnig sá sem hann er. Það kennir lífið okkur, hvort sem við segjumst trúa eða ekki. Á ævikvöldi emm við kölluð inn um dyrnar hans í húsið með herbergj- unum mörgu, þar sem hann gegn- ir hirðishlutverki. Það er mín trú. — Það er meira. Það er mín sann- færing. LIFANDIPENINGAMARKAÐUR í KRINCLUNNI Margrét Hinriksdottir Brynhildur Sverrisdóttir Hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni erlifandi peningamarkaður og persónuleg þjónusta. Sigrún Ólafsdóttir Stefán Jóhannsson FJARFESTINGARFEIAGIÐ Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Opið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18 og laugardaga kl. 10 — 14 Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 15. apríl 1988: Kjarabréf 2,760 - Tekjubréf 1,363 - Markbréf 1,436 - Fjölþjóðabréf 1,268

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.