Morgunblaðið - 17.04.1988, Síða 29

Morgunblaðið - 17.04.1988, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. APRÍL 1988 einmitt nýlega ályktun um mikil- vægi kristnifræðikennslu í skólum og hvetur söfnuðina til að styðja skólana eftir mætti. Þörf aukinna upplýsinga Sigurður og Ingólfur segja kenn- ara yfírleitt hafa tekið þessari út- gáfu nokkuð vel. En er þörf á aukn- um upplýsingum til foreldra á öllum sviðum? — Við teljum að svo sé. Fyrir utan námseftii eins og stærðfræði og samfélagsgreinar sem hefur tek- ið miklum breytingum getum við til dæmis nefnt fíknivamir og samlífsfræðslu. Á því sviði verða skólar og heimili að sameinast um uppfræðslu og einmitt á þessum sviðum lífsviðhorfa og lífemis er þörf á svona efni. Út frá þessu hverfum við út í aðra sálma sem þó em tengdir þessu efni en það er um uppeldis- rétt og uppeldisskyldu. Sigurður Pálsson hefur tekið saman rit um það efni og við spyrjum um tilgang þess: — Með þessu riti, sem gefíð er út af Rannsóknastofnun uppeldis- mála, er ég að vekja athygli á nokkrum atriðum varðandi uppeld- ismál. Þar fjalla ég um rétt foreldra til forsjár og uppeldis bama sinna. Einkum fjalla ég um það sem ég kalla uppeldisrétt, en það er réttur- inn til að ráða eða hafa áhrif á uppeldismótun bama og ungmenna bæði varðandi almenna menntun þeirra og mótun lífsskoðunar. í nútímaþjóðfélaginu er lögð vax- andi áhersla á hlutdeild aðila utan heimilisins í uppeldi bama og ung- menna og um leið er rætt um áhrif foreldra á störf þessara stofnana. Og þar sem allt uppeldi og öll kennsla á mótunarárum bamanna hefur áhrif á lífsskoðanir þeirra þá tel ég að allir foreldrar verði að vera vel upplýstir um það hver rétt- ur þeirra er til áhrifa og afskipta ef ágreiningur kemur upp. í bæklingnum ræðir Sigurður um uppeldisréttinn og að fmmrétturinn sé á hendi foreldra og hvemig lög tryggja með ýmsum hætti réttindi þeirra og skyldur en jafnframt rétt- indi og skyldur hins opinbera. Til- greinir hann einnig alþjóðasam- þykktir í þessum efnum sem ísland er aðili að. Geta foreldrar haft bein afskipti af því uppeldi sem skólinn veitir nemendum? Valkostir nauðsynlegir — Þessum uppeldisrétti foreldr- anna em gerð takmörkuð skil í lög- um og reglugerðum en með vax- andi áhuga foreldra á því að hafa hönd í bagga með skólastarfinu um leið og skólinn tekur að sér meira uppeldishlutverk hlýtur þörfín fyrir skýrari línur að aukast. Bein af- skipti foreldra geta auðvitað verið nokkur en séu foreldrar ekki ánægðir með starf skólans og vilji úrbætur hafa þeir ekki um svo margt að velja. Hér þarf hið opinbera að geta boðið valkosti. Það er nauðsynlegt að fyrir hendi séu ákvæði í lögum og reglugerðum er tryggja frelsi og sjálfstæði þeirra sem vegna trú- ar sinnar, lífsskoðunar og siðgæðis- viðhorfa telja sig þurfa undanþágur fyrir böm sín varðandi sókn í opin- beran skóla eða þátttöku í einstök- um námsgreinum eða óska þess að eiga annarra kosta völ. Vissulega kostar það sitt en er engu að síður nauðsynlegt til að fullnægja þessum gmndvallarréttindum. Niðurstaðan er því sú að þótt fátítt sé að hér á landi komi fram óskir um undanþágur vegna trúar- og lífsskoðana og deilur um hug- myndafræðilegan gmndvöll skólans séu nær óþekkt fyrirbæri sé nauð- synlegt að tryggja betur í lögum uppeldisrétt foreldra í þessum efn- um þannig að samræmist þeim al- þjóðasamþykktun sem íslenska ríkið er aðili að. GLASGOW 3xíviku FLUGLEIDIR -fyrír þig- Sængurfatnaður í úrvali einnig í barnastærðum. Ódýru sængurnar og koddarnir komið aftur. Tilvalið í sumar- bústaðinn. Póstsendum. Smáfólk/Fídó Hallaveigarstíg 1 (Iðnaðarhúsinu), símar 21780 og 26010. Sértilboð: Helgarverð frá kr. 21,147,- Vikuverð frá lí. 34.116,- Innifalið í verði: Flug, gisting og morgunverður. Hótelmöguleikar: Y-HOTEL, BAILEYS, GRAFTON, KENILWORTH, METROPOL, CLIFTON FORD, GLOUCESTER OG MÖRG FLEIRI. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. * Gildistími til 15. maí 1988. ** Gildistími til 31. október 1988. Bæði verðin miðast við einstakling í tveggja manna herbergi á Y-Hótelinu P.S. LONDON er allt sem þér dettur í hug! FLUGLEIÐIR -fyrírþíg- Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og í Kringlunni. Upplýsingasími 25 100. AUK/SlA k110d3-148

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.