Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 46

Morgunblaðið - 26.04.1988, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1988 Dagvistarstofnanir Selfoss: Foreldrakaffi og myndlist- arsýning í tilefni afmælis Selfossi. STARFSFÓLK á dagvistarstofn- unum Selfoss og börnin sem þar dvelja héldu nýlega á 20 ára af- mæli stofnananna þessa dagana. Sett var upp sýning með vinnu barnanna og leikskólar og dag- heimili höfð til sýnis. Myndlistarsýning bamanna var í sýningarsal safnanna á Selfossi þar sem voru myndir og ýmis fönd- urverkefni sem unnin hafa verið. Miðvikudaginn 13. apríl var fjöl- skyldukaffí þar sem foreldrar mættu og þágu góðgerðir. Fjöldi fólks lagði leið sína á sýningu bam- anna og fylgdist með öðmm liðum dagskrárinnar sem gengist var fyr- ir í tilefni 20 ára aftnælisins. - Sig. Jóns. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Margrét Guðbjörg, Málfríður Erna, Árni Grétar og Kristín Hrefna frá leikskólanum á Asheimum komu inn á sýninguna beint af lei- kvellinum. TILKYNNING FRA VERZLUNARMANNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR Þeir sem mega vinna í verkfalli V.R. í apríl 1988. Einkafyrirtæki: Þeir sem mega vinna eru: Eigandi, maki og börn sem eru undir 16 ára aldri. Þó má maki ekki vinna ef hann hefur sannan- lega ekki framfærslu af fyrirtækinu, t.d. ef eiginkona rekur verslun, en eigin- maðurinn er í fullu starfi annarstaðar eða vinnuveitandi. Starfsmenn á skrifstofum: Þeir sem mega vinna eru: Framkvæmda- stjórar, starfsmannastjórar og skrifstofu- stjórar, ef þeireru ekki félagsmenn ÍV.R. Sameignarfélög: í sameignarfélögum gilda sömu reglur og í einkafyrirtækjum, en eigendur geta verið fleiri. Hlutafélög: Hluthöfum er óheimilt að vinna í verkfalli, nema arðgreiðslur til þeirra nemi hærri upphæð en launagreiðslur frá hlutafélag- inu til þeirra. Verslunarstjórar: Verslunarstjórum í stærstu verslunum er heimilt að framkvæma eftirlit og/eða gæslu, að fenginni undanþágu hjá verk- fallsstjórn. Ráðstefna um nýjar og betri leiðir í málefnum aldraðra: Málefni aldraðra í brennidepli Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið boð- forstöðumaður Hlífar á ísafirði, Páll Gíslason, aði nýlega til ráðstefnu um nýjar og betri leiðir yfirlæknir og borgarfulltrúi og Steinunn Sig- í málefnum aldraðra á Islandi, með auknum urðardóttir, hjúkrunarfræðingur. Einnig voru sjálfsákvörðunarrétti og nýjum, hagkvæmum almennar umræður og pallborðsumræður. Ráð- ráðstöfunum i byggingamáium eldri borgara. stefnuna sótti á annað hundrað manna víðs Framsöguerindi fluttu Asgeir Jóhannesson, vegar af landinu. Hér að neðan er drepið á formaður Sunnuhlíðar í Kópavogi, Jón Adolf nokkur þeirra mála sem þar bar á góma. Guðjónsson, bankastjóri, Halldór Guðmundsson, Morgunblaðið/Sverrir Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra ræðir við tvo þátttakendur í ráðstefn- unni, séra Sigurð H. Guðmundsson og Hrafn Pálsson deildarstjóra. Nýta þarf betur fé og eignii' sem til eru Dregið úr áherslu á dvalarheimili, segir Guðmundur Bjarnason heilbrigðisráðherra „VIÐ erum að velta því fyrir okkur hvernig er hægt að nýta þá fjármuni og þær eignir sem til eru í þjóðfélaginu,“ sagði Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, aðspurður um hvers hann vænti af ráðstefnunni um nýjar leið- ir í húsnæðismálum aldraðra. „Fjöldi aldraðra býr í húsnæði sem hentar ekki lengur þörfum þeirra og hentaði betur yngra' fólki. Þá er spurningin hvemig getum við komið á þessari nauðsynlegu breytingu." „Ég hefði talið fulla ástæðu til að stjómvöld gæfu betri gaum nýstárlegum leiðum Sunnuhlíðar- samtakana í Kópavogi. Þar hefur bankakerfið komið inn í sem virk- ur þátttakandi, sem er mjög mikil- vægt. Með þessu er ég ekki að segja að hlutverki hins opinbera sé lokið, síður en svo, það eru mörg verk í gangi víðs vegar um land sem hið opinbera verður að halda áfram að stuðla að. Dregið úr áherslu á dvalarheimili Ef til vill varð mesta breytingin í þessum málum þegar fram- kvæmdasjóður aldraðra var stofn- aður árið 1981. Siðan var hann felldur inn í málefni aldraðra 1982. Nú er verið að vinna að endurskoð- un laga um málefni aldraðra sem falla úr gildi í lok þessa árs. Þau drög sem fyrir liggja eru að mestu byggð á eldri lögum en þó er þar að fínna nokkrar breyttar áhersl- ur. Þær eru á þann veg að við viljum, leggja aukna áherslu á heimaþjónustu, bæði hvað varðar heimilishjálp og heimahjúkrun, til að aldraðir geti sem lengst búið í eigin íbúð, við sínar eðlilegu að- stæður í heimabyggð og sem virk- ir þátttakendur í þjóðfélaginu. Breytingin er sú að það er fremur en hitt dregið úr áherslu á dvalar- heimilin en við teljum að hlutverk hins opinbera sé fremur að leggja áherálu á hjúkrunarþjónustuna þegar heimaþjónustan dugar ekki lengur. Markaþarf Framkvæmdasjóði aldraðra tekjur í drögunum er auk þess gert ráð fyrir að halda Framkvæmda- sjóði aldraðra gangandi og marka honum tekjur. Um síðustu áramót féll niður nefskattur sem runnið hafði til sjóðsins með gildistöku staðgreiðslukerfísins. Þar sem svo mörg verkefni á vegum sjóðsins eru enn í gangi eða óunnin tel ég nauðsynlegt að marka honum tekj- ur um það þarf að ná samstöðu á næstunni. Þar hef ég í huga fund- in verði viðmiðun, sem framlög hins opinbera til sjóðsins verði reiknuð út frá. Þar mætti ef til vill miða við fjölda aldraðra á hverjum tíma. Við sjáum fram á að öldruðum mun fjölga, lífaldur er að lengjast og heilsufar að batna þannig að aldraðir geta æ lengur dvaldið á heimilum sínum við eðlilegar aðstæður. Því kann að draga úr kostnaðarauka sem fylgir breyttu greiðslufyrirkomu- lagi þar sem ef til vill væri unnt að draga úr þeirri áherslu sem lögð hefur verið á dvalarheimilin. Breyta þarf greiðslufyrirkomulagi Einnig er mjög mikilvægt að breyta um áherslur í svokölluðu vistunarmati. Þetta þarf að gera í góðu samkomulagi við félaga- samtök og einstaklinga sem mest hafa lagt á sig í þessu sambandi. En það er mjög mikilvægt að opin- bert fé nýtist fyrst og fremst þeim sem mesta Jiörf hafa fyrir þessa þjónustu. Ég hef hreyft hug- mynduym um að við breytum því fyrirkomulagi sem nú er varðandi greiðslur einstaklinga fyrir dvöl á stofnunum. í dag er það svo að tryggingakerfið greiðir fyrir dvöl á dvalarheimili og hjúkrunarstofn- un en dugi sú greiðsla ekki til og einstaklingurinn hafí lífeyristekj- ur, þá ganga þær tekjur að hluta til greiðslu fyrir dvöl á dvalar- heimili. Þama skapast mikið mis- ræmi, því að þegar og ef þessir einstaklingar lenda inni á sjúkra- húsi þá tekur ríkið við og greiðir allan kostnað vegna þeirra. Þá, þegar þeir eru orðnir langlegu- sjúklingar á hjúkrunarheimili, fara þeir að safna sínum lífeyrissjóðs- tekjum án þess að geta nýtt sér þær. Mér fínnst ástæða til að breyta þessu og hef lagt til að tryggingakerfið taki að sér þessar greiðslur alfarið. Hér verður að vera breyting á, hvort sem sam- staða næst svo um að skipa málum á þennan veg eða einhvem ann- an,“ sagði Guðmundur Bjamason heilbrigðis- og tryggingamálaráð- herra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.