Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 C 23 NORRÆNI KVIKMYNDASJOÐURINN I BIO Eins og alltaf skiptir það bíóin í Reykjavík miklu máli hver hreppir Óskarinn fyrir bestu myndina í Bandaríkjun- um nú í lok mánaðarins. Laugarásbíó treystir á að Ekið með Daisy og Fædd- ur 4. júlí raði á sig stytt- um, Bíóhöllin/Bíóborgin hlýtur að veðja á „Field of Dreams“ með Kevin Costner og Bekkjarfélag- ið („Dead Poets Soei- ety“), sem þegar er búið að sýna, og Háskólabíó veðjar á „My Left Foot“. Tvær þessara mynda hafa þegar verið sýndar á íslandi en það er Ekið með Daisy í Laugarásbíói um gömlu suðurríkjakon- una og bíistjórann hennar í 25 ár og Bekkjarfélagið. „Daisy“ var útnefnd til flestra verðlaunanna, alls níu, en reynslan hefur kennt að það segir ekkert til um endanlega útkomu. Sumar myndir fá allar stytturnar sem þær eru útnefndar fyrir (Síðasti keisarinn), aðrar fá ekki eina einustu jafnvel þótt tilnefningarnar séu svo margar sem 11 (Purpura- liturinn). En það verður spenn- andi að vita hvaða bíó hlýtur Óskarinn í ár. Hilmar hyggst kvikmynda Kaldaljós HILMAR ODDSSON kvikmyndagerðarmaður hefur í hyggju að gera bíómynd eftir skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur, Kaldaljós, og hefur fengið 600 þúsund krónur frá Kvikmyndasjóði til að vinna handrit úr bókinni. komast eins langt, og hann gæti með handritið á þessu ári en ef allt fer eftir bestu óskum og hann fær fram- leiðslustyrk að ári býst hann við að geta hafið kvikmynd- un veturinn 1991, en fyrri hlutinn er vetrarmynd, og lokið upptökum þá um sumarið. Þannig gæti myndin verið tilbúin 1992. En alit er breytingum háð. Á núverandi verðlagi ætlar Hilmar að myndin komi ti! nieð að kosta á bilinu 60 til 70 milljónir króna. „Einhverntímann sagði Astæðan er einkum og sérílagi sú að ég las bókina fijótlega eftir að hún kom út og ég var ekki búinn að lesa nema einn kafla þegar ég vissi að ég yrði að gera mynd eftir henni og það breyttist ekkert við nánari lestur,“ sagði Hilmar í stuttu símaspjalli aðspurð- ur um tildrög þess að hann réðist í gerð handrits eftir sögunni. „Þetta er bók sem gagntók mig tilfinningalega frá fyrstu stundu. Ég fann í henni sterkan samhljóm, því í henni eru hlutir sem mig hefur lengi langað til að fást við og segja í mynd- formi. Ég fann strax að sagan hentaði mér og mér fannst hún á einhvern hátt skyld mér,“ Hilmar hafði fljótlega samband við Vigdfsi „sem tók mér ákaflega vel og gaf mér strax leyfi til að krukka í söguna. Hún vildi sjálf að þetta yrði mitt mál og ég mun sjálfur vinna handritið a.m.k. til að byrja með.“ Sagan, sem fjallar um drenginn Grím frá æsku úti á landi til fullorðinsára í Reykjavík, verður að teljast nokkuð erfið til kvikmynd- unar en Hilmar talaði um að frásagnarstíll hennar kallaði á ýmis vandamál sem skemmtilegt væri að fást við. „Helsta vandamál- ið,“ sagði hann „er að fínna Hilmar Oddsson „Sagan gagntók mig tilfinninga- lega.“ henni stað í -tíma og rúmi. Hún er mjög ó(jós á þeim sviðum; að hluta gæti hún gerst við lok síðustu aldar og að hluta allt að því í samtímanum. Ég hef hugs- að mér að láta fyrri hlutann gerast um 1960 og seinni hlutann í dag en kannski er fullsnemmt að fara nánar útí það. Sagan er ekki mjög epísk í frásögn heldur full af dulúðugum stemmning- um og lýrík. sem höfðaði ekki hvað síst til rnín. Það verðúr gaman að reyna að ná því andrúmslofti, tónlist- inni í sögunni, sem mér finnst svo fatleg.“ Hilmar kvaðst reyna að Vígdís Grímsdóttir Gaf leyfí til að krukka í söguna. ég nýkominn úr námi að það síðasta sem hvarflaði að mér að gera væri að kvikmynda skáldsögur og talaði um að hlutverk bíómynda væri að segja eigin sögu með mynd- um en ekki myndskreyta sögur. Það er auðvitað ekk- ert hægt að alhæfa svona. Það er í sögunni einlægni og tilfínning sem ég skil og tek mjög persónulega. Ég held að það sé eðli kvik- myndagerðarmanna að allt sem þeir lesa setja þeir ósjálfrátt á svið og mér fannst að þama væri komið mitt mál,“ sagði Hilmar að lokum. Pelli sigursæli Norrænt samstarf sem hefur heppnast. 400 milljónir á ári BÚIST er við að hægt verði að taka á móti fyrstu umsóknum til Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins í júní í sumar en reiknað er með að Norðurlandaþjóðirn- ar leggi til hans minnst rúmar 400 milljón krón- ur á ári fyrstu fimm starfsárin, þ.e.a.s. til 1. janúar1995. Þetta kom fram á kynn- ingarfundi um sjóðinn fyrir íslenska kvikmynda- gerðarmenn sem haldinn var í Norræna húsinu á meðan á þingi Norðurland- aráðs stóð í Reykjavík. Þar kom einnig fram að hug- myndin sé að til sjóðsins renni hluti af tekjum mynd- anna sem hann styrkir og að hann taki ekki þátt í verkefnum nema tryggt sé fé_ frá öðrum aðilum líka. Þa má ætla að tíu prósent af sjóðnum verði notuð í undirbúningsstyrki. Einnig hefur það verið rætt að ef sjóðurinn á að styrkja gerð bíómyndar fyr- ir kvikmyndahús verður að vera búið að tryggja dreif- ingu hennar í kvikmynda- hús í tveimur Norðurland- anna og því landi sem hún er gerð í. Ólafur Ragnarsson bóka- útgefandi er fulltrúi íslands í stjórn sjóðsins. ■ NÝJASTA mynd Percy Adlons og sú fyrsta eftir „Bagdad Cafe“ heitir Rosalie fer í búðir eða „Rosalie Goes Shopping“ og er með stjörn- unni úr „Bagdad“, Marianne Sagebrecht, í aðalhlutverki. Hún leikurþýska húsmóður í Arkansas í Bandaríkjunum sem er harðákveðin í því að versla sig til dauða í drauma- landi neyslunnar. Með henni leika Brad Davis úr Miðnæt- urhraðlestinni og grínleikar- inn Judge Rheinhold. ■ BANDARÍSKA myndin „Music Box“ eftir Costa- Gavras með Jessicu Lange hlaut Gullbjörninn á fertug- ustu kvikmyndahátíðinni í Berlín um daginn ásamt tékkneskri mynd eftir Jiri Menzel sem bönnuð var í Tékkóslóvakíu í 20 ár. Hátíð- in var í fyrsta sinn haldin í bæði Austur- og Vestur- Berlín. KVIKMYNDAKLUBBUR ISLANDS Konan á ströndinni 3 skuggamyndir KVIKMYNDAKLÚBBUR ÍSLANDS tekur upp á þeirri nýbreytni að sýna samdægurs þrjár myndir í röð 14. mars nk. sem allar eru bandarískar og flokk- ast undir fílm /loir-stefnuna eða skuggamyndir. Þetta eru ólíkar myndir aðalhlutverki bíræfins eftir ólíka leikstjóra blaðamanns og loks Konan en klúbburinn hefur þegar á ströndinni („The Woman sýnt þær hveija fyrir sig. On the Beach“) eftir Jean Þær eru: Byssuóð („Gun Renoirfrá 1947, semseinni Crazy") eftir Joseph H. tíma menn hafa sagt að Lewis frá 1949 um banka- geti vel verið athyglisverð- ræningjapar á flótta undan löggunni emhún er ein sú asta og óvenjulegasta bandaríska mynd leikstjór- þekktasta af B-myndunum ans. að vestan; Tromp í bak- Er ljóst að 14. mars höndinni („Ace in the gæti auðveldlega þróast í Hole“) eftir Billy Wilder frá skuggalega kvikmynda- 1951 með Kirk Douglas í veislu. KVIKMYNDIR Hvemiggetur íslensk bíómynd kostað lítið? Smávegisum smáræðið EINFÖLDUSTU GAMANMYNDIR í Holly wood eru farnar að kosta einn og hálfan milljarð íslenskra króna. í Evrópu eru svipaðar myndir gerðar fyrir brot af þeim peningum, á íslandi eru þær að sjálfsögðu gerð- ar fyrir brotabrot eða minna. Jón Tryggvason Átta milljóna bíómynd. Alkunna er að gæði mynda fer sjaldnast eftir verði þeirra. Það er alltaf hægt að gera rándýr- ar myndir en þær geta verið lélegastar allra. Vandinn' liggur i því að gera bíómynd úr næstum algeru peninga- leysi sem slær svo í gegn. Dæmi um velheppnaða mynd af því tæi er Kynlíf, lygar og myndband eftir Steven Sod- eltir Amald Indtiðason erbergh, sem farið hefur sigurför um heiminn. Talað hefur verið um að íslensk meðalmynd úr sam- tímanum kosti ekki undir 40 milljónum króna (t.d. næsta mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Börn náttúr- unnar). Ef sögusviðið nær nokkur ár aftur í tímann eða myndin krefst sérstakra at- riða er verðið komið upp í 70 til 100 milljónir, sem ógerlegt er að afla hér á landi. Svo er auðvitað hægt að gera myndir fyrir hundr- uð milljóna ef peningar fást og gaman væri að sjá einu sinni á ævinni íslenska bíó- mynd sem kostað hefur einn og hálfan milljarð. En það er líka hægt að fara neðar. Óskar Jónasson gerði „Sérsveitina“ fyrir tvær milljónir en hún var reyndar aðeins rúmur hálftími og launagreiðslur voru ekki innifaldar. Jón Tryggvason leikstjóri Fox- trott segist geta komið bíó- myndaverðinu — miðað við leikna mynd í fullri lengd — niður í átta milljónir króna að gefnum ákveðnum for- sendum og er raunar með eina slíka á teikniborðinu sem ber vinnuheitið Sigga svarta. Forsendurnar fyrir svo ódýrri mynd eru þær, segir hann, að hún gerist í samtímanum, leikarar séu fáir, skotin aðeins um 40 fyrir alla myndina svo senur verða fáar en langar, upp- tökur færu fram á raun- verulegum tökustöðum með engum smíðuðum leikmynd- um, upptökustaðir yrðu fáir, myndin tekin á mjög stutt- um tíma og eftirvinnslan skjót svo aðeins liðu sjö vik- ur frá því upptökur hæfust og þar til myndin yrði tilbú- in til sýninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.