Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.03.1990, Qupperneq 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990 UIVIHVERFISIVIÁLÆrz/fuglar hlunnindi og náttúruaublind? Um endurskoðun hugtaka og verðmætamats í 8. RITI Landverndar sem kom út árið 1982 segir í grein eftir Árna Waag Hjálmarsson: „Hlunnindi og náttúruauðlindir. Hvað er það? Við metum þær í því sem gefur beinan fjárhagslegan arð og góða afkomu þjóðarbúsins. Við sem nú erum uppi á tækni- og tölvuöld þurfum meira en hagstæða fjárhagsaíkomu. I hinum tæknivædda heimi þar sem maðurinn er í sívaxandi mæli að fjarlægjast uppruna sinn er honum nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því að til eru aðrar lífverur en hann sjálfúr. Hér á landi eins og víða annars staðar í heiminum hefur fólk fjarlægst svo uppruna sinn að það veit varla hvað líf er. Það skoðar aðrar lílVerur sem með okkur eru á þessari plánetu sem eins konar furðuhluti. Stundum er gaman að horfa á þær og stundum eru þær taldar til gagns. Stundum eru þær í sam- keppni við manninn og þá eru þær taldar voðalegar og réttdræpar hvar og hvenær sem er.“ Fuglar geta vissulega talist „furðuhlutir" og í okkar augum eru þeir hreint undursamlegt fyrir- bæri þegar við gefum okkur tíma til að skoða þá - sama hvar á þá er litið - öll gerð og líkamsbygging fullkomin „hönn- un“ eftir staðhátt- um og lífsstíl. Ferli þeirra lýtur ein- hverjum lögmálum sem við skiljum ekki fyllilega með okkar skilningar- vitum. Hvernig komast t.d. þessi litlu kríli heimshornanna á milli á hveiju ári sum hver? Hvernig eru þessar ferðir skipulagðar? Hvaða tækni og hvaða brellur eru með í spilinu? Hvernig tekst öðnjm jafn ósjálfbjarga (að því er virðist) fugls- krílum að lifa veturinn hjá okkur í stormi og byl til fjalla og úti við sjó? Hvílík aðlögunarhæfni. Okkur nægir ekki þróunarkenning Darw- ins til skýringar. Að baki liggur eitthvað miklu dularfyllra um lífið og lífsneistann. En gefum við fuglunum okkar nægilegan gaum? Þeir eru í mjög fáliðuðum flokki villtra dýrateg- unda sem hefur kosið sér ísland til búsetu, ýmist árið um kring eða sumarið. Ættum við ekki öll að falla í stafi af hrifningu og aðdáun? Þessar hugleiðingar spruttu eftir lestur greinar í Evrópuútgáfu „Wall Street Journal", þar sem segir að fuglum fari nú ört fækkandi um alla Evrópu af ýmsum orsökum, svo sem vegna mengunar, vegna skerð- ingar á friðuðum fuglasvæðum og varpstöðvum og vegna ofveiði í net og gildrur. Sums staðar í löndum Mið-Evrópu eru þrestir, lævirkjar og aðrir spörfuglar eftirsóttur máls- verður. Þeir eru veiddir í gildrur svo milljónum skiptir (50 milljónir eru nefndar í greininni) þótt veiði sé stranglega bönnuð. Þeir eru mat- reiddir á dýrum veitingastöðum og bruddir í einum munnbita - með beinum og öllu. „Og þjónninn, sem ber lostætið fram brosir í kampinn eins og kötturinn sem gleypti kan- aríufuglinn," segir blaðamaður „Wall Street Journal". Náttúruverndarmenn reyna að hamla gegn þessum lögbrotum en segja málið erfitt viðfangs. Þeir klifra um fjöll og firnindi - rífa niður net og gildrur, reyna að ná tangarhaldi á lögbrjótunum - en nokkrum dögum síðar er allt komið í sama horf. Fuglategundir á jörðinni eru tald- ar alls um 8600 en aðeins 5% þeirra eru í Evrópu. Telji einhver fugla- fánu okkar hér fjölbreytta, skal það leiðrétt. Á Islandi verpa um 70 teg- undir fugla og þar af eru aðeins 17% spörfuglar. Aðrir aðalhópar fugla á Islandi eru andfuglar, vaðfuglar og sjófuglar. Tegundafæðin er hér mikil og því ættum við að gera okkur sérstakt far um að vernda þær tegundir sem fyrir eru. Til dæmis sjá þeim fyrir öruggu varp- svæði í okkar strjálbýla, víðáttu- mikla landi og sjá um að náttúruleg fæðuöflun þeirra fari ekki úrskeiðis af rnannavöldum. í inngangi fuglabókar Land- verndar segir Arnþór Garðarsson fuglafræðingur: „Fuglavernd bygg- ist ekki nema að nokkru leyti á beinni friðun eða takmörkun veiða, þótt slíkt komi vissulega oft að gagni. Miklu oftar er vernd heim- kynna það sem öllu máli skiptir." Og síðar í sama kafla: „Einkum er framræsla mýra mikið vandamál hér á landi og allt of lítið gert af því að taka frá svæði á láglendi og vernda fyrir framræslu." Þetta ' verðum við að hafa í huga. Og ekki má gleyma fjörunum. Þær verða að vera ómengaðar svo líf varðveitist þar. Leiríjörur eru t.d. hin eiginlegu forðabúr fjölda fuglategunda, sem leggja á sig flug heimshorna á milli til að komast í sína leirfjöru á Islandi. Stundum heyrist fólk sem orðið hefur firringu nútímans að bráð segja: „Oj, bara, ógeðsleg þessi leðja og ólyktin sem af henni legg- ur! Svo er hún víst full af pöddum." " En ódaunn af leirfjörum er frá illa frágengnum skolprörum sem liggja ekki nógu langt í sjó fram. Við ættum heldur að setja stolt okkar í að varðveita slíkan griða- stað fugla, sem sumir eru komnir langt að til að eyða sumrinu hjá okkur. Um fuglana okkar mætti skrifa langar lofræður og oft hafa þeir verið skáidum okkar kærkomið yrk- isefni. Enginn vill í raun skerða ijöl- breytileika fuglaiífsins. Ollum er annt um þessa fiðruðu dýrategund, sem getur ferðast um loftin fyrir undraverðan mátt sköpunarverks- ins. Og með tímabærri endurskoðun á merkingu hugtakanna „hlunnindi og náttúruauðlindir" er hægt með sanni að segja: „Já, fugl^j- eru verð- mæt náttúruauðlind og hlunnindi sem auðga mannlífið og okkur ber að umgangast þá af virðingu og með þakklæti." ettir Huldu Valtýsdóttur Sól og gróöur allt árið í EINANGRUÐUM ELITE-SÓLSTOFUM Framleiddar í stærðum: 9,1-15,4 og 24,3 ferm. Möguleikar á öðrum stærðum samkv. sérpöntun. Auðveldar í uppsetningu - Hagstætt verð. HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR NÁNARI UPPLÝSINGUM sindraAstálhf Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222 • • _ LOGFRÆÐlÆrz/ vegimir harafyrir bíla? Bufé og bifreiðar UNDANFARIÐ hefúr verið fjallað um bótaábyrgð vegna lausagöngu búfjár á vegum úti. Hefúr land- búnaðar- og samgönguráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, meðal annars látið hafa eftir sér í sjón- varpsviðtali að hann telji tíma- bært að endurskoða núgildandi reglur með það í huga að bæta réttarstöðu bifreiðaeigenda í slíkum málum. Inúgildandi rétti eru fáar settar lagareglur sem fjalla um skaða- bótaábyrgð af völdum dýra. Helst ber að nefna ákvæði búfjárræktar- laga nr. 31/1973, en þar er mælt fyrir um bóta- ábyrgð vegna tjóns af völdum nauta og stóðhesta. í 13. gr. kemur m.a. fram að sleppi naut úr vörslu og valdi tjóni, skuli sá bóta- skyldur sem sjá Björgvinsson ^ áttj um vörslu nautsins. Ákvæði 33. gr. um stóð- hesta er svipaðs efnis. Fleiri ákvæði er að fínna í íslenskum lögum, en þau eru mjög sérstaks eðlis og skipta í reynd litlu máli. Engin lagaákvæði fjalla sérstaklega um lausagöngu búfjár og tjón vegna þess á vegum úti. Þetta merkir einfaldlega að sá sem hefur beðið tjón verður að byggja bótakröfu sína á almennum skaðabótareglum og sanna að tjónið sé að rekja til ásetnings eða gáleys- is þess sem gæta átti dýranna. Dómaframkvæmd hér á landi sýn- ir að oftast eru það bifreiðaeigendur eða ökumenn sem eiga undir högg að sækja þegar ekið er á búfé á vegum úti, ekki síst þegar þeir freista þess að sækja bætur vegna hugsanlegra skemmda á bifreiðinni. Byg;gist þetta á því að bifreiðaeig- andi beri svokallaða hlutlæga bóta- ábyrgð á tjóni sem verður vegna notkunar bifreiðarinnar. Þetta merk- ir að sá sem hefur orðið fyrir tjóni af völdum bifreiðar þarf ekki að sanna að ökumaðurinn hafi valdið því á saknæman hátt, þ.e. með ásetningi eða gáleysi. Lækkun eða niðurfelling bóta kemur því aðeins til greina að tjónþoli hafi sjálfur átt sök á óhappinu. Þessa ríku ábyrgð eigenda bifreiða hafa menn m.a. rökstutt með því að vísa til þeirrar hættu sem stafar af notkun bifreiða. Það sé staðreynd að af notkun bif- reiða stafi ákveðin hætta eins og dæmin sýni og því talið rétt að þeir sem kjósa að nota slík tæki beri þá áhættu sem af þeim óhjákvæmilega stafar. Ennfremur má benda á að í lögum og öðrum opinberum fyrir- mælum eru litlar skorður reistar við fijálsum ferðum búfjár á vegum úti. Þetta virðist því einfaldlega vera eitt af því sem menn verða að gera ráð fyrir á vegum úti og hegða sér í samræmi við. Þegar í hlut eiga skynlausar skepnur verða þessar röksemdir að sjálfsögðu enn áleitn- ari. Þeir dómar sem til eru hér á landi um álitaefni af þessu tagi eru flestir I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.