Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 20
20£ MEMNIRtGAR^TyftUf!^B?tw IHEFÐINNI Þetta er lengsta bíómynd sem ég hef unnið við og sú langstærsta," segir leikstjórinn og handritshöf- undurinn Robert Benton (Kramer gegn Kramer) um nýjustu mynd sína, „Billy Bathgate“ með Dustin Hoff- man í aðalhlutverki. Það er gangstermynd gerð eftir samnefndri sögu E.L. Doctorows en hún verð- ur frumsýnd í Bandaríkjun- Dustin Hoffman í hlutverki Schultz í mynd Bentons. um 1 sumar. Mótleikarar Hoffr.-'.ans eru Nicole Kidman og nýliðinn Loren Dean, sem leikur sög- umánninn Billy Bathgate, dreng sem flækist í kringum stórgangsterinn Dutch Schultz á öndverðum ijórða áratugnum. Handritið gerir breska leikritaskáldið Tom Stopp- ard. „Hefð hinna frábæru gangster- mynda mun ávallt fylgja okkur,“ segir Benton sem ekki er óvan- ur vélbyssu- hríðinni frá því hann skrifaði hand- ritið að hinni ofbeldisfullu Bonny og Clyde, „og mig hefur alltaf langað til að reýna að gera eina sIíka.“Benton heldur áfram: „Hann (Dutch Schultz) er ólíkur öllum öðrum glæpa- mönnum sem við þekkjum ... Hann er verulega rík- ur og marg- flókinn glæp- on sem þú finnur til nok- kurrar sam- úðar með en þó gerir hann þessa hrylli- leguhluti.“Og hveijir eru þeir? „Hann drepur fólk.“ Dutch pLR WkHróa hattar mynd Kevin Costners gerði það gott fyrstu sýningarhelgina í Bandaríkjunum. Hún tók inn um 25 milljónir dollara á fyrstu þremur dögunum og stefnir ótrauð á að verða metsölumynd sumarsins vestra. Beint á ská 2Vi gerði það einnig gott fyrstu sýn- ingarhelgina og tók inn tæpa 21 milljón dollara en næstu myndir á eftir þessum tveim- ur eru „City Slickers" með Billy Crystal, Rakettumað- urinn og nýjasta mynd Juliu Roberts, „Dying Young“. MNýlega voru veittir tveir styrkir til kvikmyndagerðar í Noregi og hlutu þá leikstjór- arnir Eva Isaksen og Martin Asphaug. Eva, sem fékk um 73 milljónir ísl. króna, ætlar að gera sakamálamyndina Fullkomið morð en Martin, sem fékk um 42 milljónir, mun leikstýra mynd sem heitir Eitraðar lygar. MNýjasta mynd Steve Martins heitir „Father of the Bride“ en tökur á henni hófust í vor. Mótleikari hans er Diane Keaton. MHollenski leikstjórinn Paul Verhoeven heldur áfram að gera bíómyndir í Hollwyood enda hefur honum gengið vel þar með myndir eins og Full- kominn hugur og RoboCop. Sú nýjasta heitir „Basic Inst- inct“ og er með Michael Douglas og Sharon Stone í aðalhlutverkum. MEf framleiðslukostnaður dýrustu bíómynda sem gerð- ar hafa verið er framreiknað- ur er Kleópatra (1963) á toppnum en hún kostaði á sínum tíma 40 milljónir doll- ara sem í dag eru 191 milljón eða rúmir 12 milljarðar ísl. S s ■a a >, ~ 'O im aa u s J.S r£ u 2« -S ss tz> P3 með Patrick Bergin í titil- hlutverkinu og Utiýmand- ann með Gregory Hines hafa um 5.000 manns séð. Af eldri myndum má nefna að Sofið hjá óvinin- um er komin í 27.000 manns og Eymd eftir sam- nefndri sögu Stephen Kings er komin { 24.000 manns í aðsókn. Næstu myndir á dagskrá bíóanna tveggja eru Skjaldbökumar 2, fram- haldssagan um stökk- 48.500 á Aleinan heima Alls hafa nú um 48.500 manns séð banda- rísku gamanmyndina Al- einn heima samkvæmt upplýsingum frá Bíóhöll- inni/Bíóborginni, en sýn- ingar á myndinni hófust í byijun janúar. Þá sáu um 8.000 manns grínspennumyndina Ungi njósnarinn fyrstu fímm sýningardagana en myndin er sýnd í báðum bíóunum. Má þetta teljast glettilega góð aðsókn miðað við veð- urblíðuna sem verið hefur á höfuðborgarsvæðinu. Um 6.000 manns hafa séð gangstermyndina Valda- tafl eftir þá Ethan og Joel Coen-bræður, um 7.000 manns hafa séð Hróa hött breyttu ninja tánings skjaldbökumar, en hún byrjar að líkindum í báðum bíóunum, „Edward Scissor- hands“ eða Játvarður klippikrumla verður í Bíó- borginni og í Bíóhöllina kemur „Too Hot to Handle“ með Kim Basinger og Alec Baldwin. Þeir deyja ungir "Dandaríska leikkonan -Djuiia Roberts er vinsæl hér á landi, það sýnir met- aðsóknin á Stórkostlega stúlku og góð aðsókn á þrillerinn Sofíð hjá óvinin- um. Nyjasta myndin henn- ar heitir „Dying Young“ Julia Roberts í myndinni „Dying Young“. og fjallar um ástarsamband hjúkranarkonu og dauð- vona sjúklings með hvít- blæði. Myndinni er spáð góðu gengi í sumar enda virkaði ást og dauði vel í sumars- mellinum Draugar í fyrra KVIKMYNDIR'— Auglýsingar eba ekki auglýsingar? Vömmerki bíómyiula AÐ MORGU þarf að hyggja þegar kvikmyndahandrit eru lesin yfir og eitt af því er hvar hægt er að koma fyrir auglýsingum, strigaskóm, sígarettupakka, gos- drykk, bílum. Svokallaðar dulbúnar auglýsingar í bíó- myndum velta milljörðum íslenskra króna árlega í bandaríska kvikmyndaiðnaðinum. Það hófst að ráði með E.T. Steven Spielbergs sem hampaði jnjög ákveð- inni sælgætistegund svo sal- an á henni jókst um 70 pró- sent. Þegar framleiðendur í mmmmmmmmm Hollywood gera samn- inga um bíómyndir era inni- faldar í þeim hinar dulbúnu auglýs- ingar, sem eru reyndar oft ekkert sérlega dulbúnar. Þannig er því haldið fram í nýlegu bandarísku vikuriti að Disney-fyrirtækiö, sem hefur reyndar neitað að sýna myndir sínar í kvikmynda- húsum þar sem auglýsingar eftir Arnald Indriðosorr eru á undan sýningum, hafi boðið auglýsendum að velja birtingarform vörumerkja sinna á mismunandi verði. Þannig mun einföld birting á vörumerki kosta 1,2 millj- ónir króna, 2,4 ef það er nefnt á nafn og 3,6 ef stjarna myndarinnar heldur því á lofti. í gi'ein í nýlegu hefti Neytendablaðsins er fjallað um hinar dulbúnu auglýs- ingar og vitnað í umfjöllun sænsku neytendastofnunar- innar um tóbaksauglýsingar í bíómyndum en sem kunn- ugt er, era tóbaksauglýsing- ar bannaðar hér á landi. Tekið er sem dæmi James Bond myndin Leyfið aftur- kallað eða „Licenee to Kill“ og því haldið fram að tób- aksframleiðandinn Philip Morris hafi greitt á þriðja tug milljópa króna fyrir að koma sígarettutegundinni „Lark“ á framfæri í mynd- inni. Sagt er að þetta hafi valdið talsverðu uppnámi í Bandaríkjunum þar sem bannað er að auglýsa tóbak í ljósvakamiðlum. Hafí þing- maður í ráði sem fjallar um merkingar og auglýsingar á sígarettum komist að þeirri niðurstöðu að þegar greitt er fyrir að vörur séu sýndar í kvikmyndum verði að setja það undir sama hatt og auglýsingar og þar með ætti að vera bannað að sýna Leyfið afturkallað í sjónvarpi. Komist íslensk stjórnvöld að sömu niður- stöðu, segir í Neytendablað- inu, er Leyfið afturkallað ekki sýningarhæf á íslandi. Á það ber hins vegar að líta að ef ætti að banna all- ar myndir þar sem er reykt og drakkið og grunur leikur á að borgað sé fyrir það, væri sennilega fátt geðslegt eftir í bíóhúsunum. Síga- rettuframleiðandinn segist fá 150 kvikmyndahandrit á ári frá kvikmyndaframleið- endum sem vænta stuðnings en fjöldi dulbúinna auglýs- inga í hverri bíómynd er mjög mismunandi. í gaman- myndinni Aleinn heima sjást yfir 30 ólík vörumerki alls 42 sinnum samkvæmt könn- un hóps er berst gegn gróða- sjónarmiðum á kostnað t.d. listrænna gilda. í spennu- gamanmyndinni Draugar birtust 16 vörumerki alls 23 sinnum. En nú era margar þessar vörar hluti af daglegu lífi fólks og fyrst þær á annað borð birtast hvort sem er í bíómyndum ætti þá kvik- myndaframleiðandinn ekki að geta sagt við auglýsand- ann: Þetta kemur til með að auglýsa þína vöru og við viljum eitthvað í staðinn? Jú, segja andstæðingarnir en það ætti þá að koma fram á undan eða eftir sýningu hvaða fyrirtæki auglýsa hvaða vöru í myndinni. og Roberts hefur enn ekki brugðist. Leikstjóri er Joel Schumacher en mótleikari Roberts er Campbell Scott, sonur George C. Scotts og eftirminnilegur úr mynd- inni Lífsföranautur í Regn- boganum í vetur. „Þetta er ekki harmleik- ur,“ segir leikstjórinn Sc- humacher þegar hann lýsir sögunni og Campbell nefnir að endirinn sé tvíræður. „Það era ekki gefín svör við öllum spurningunum. Lausu endamir era ekki allir hnýttir saman í lokin.“ Hann segir um persónu sína að hún hafí einangrast vegna sjúkdómsins og sé sérlega neikvæð og kald- hæðnisleg en það breytist þegar Florence Nightingale rekur á ijörarnar í líki Ro- berts. Ríkissjónvarpið hefur að undanfömu sýnt snilldarverk meistara Chaplins eins og Gullæð- ið, Borgarljós og Nútím- ann á laugardagskvöld- um. Chaplin-myndimar verða æ sjaldséðari með áranum (Regnboginn hélt lengi í þá hefð að sýna Chaplin um jólin) og því veitir sjónvarpið eldri kynslóðum kærkom- ið tækifæri til að rifja upp kynnin af hinum dáða flækingi og mörgum af yngri kynslóðinni að upp- lifa hann og meta í fyrsta sinn. Mörg atriðin í þessum myndum era óborganleg, klassísk og löngu greypt orðin í bíósálina og þær virðast alltaf höfða jafn sterkt til fólks. Myndirn- ar sýna líka enn og aftur hvílíkur snillingur Chapl- in var og þær rifja upp að þær era meira en bara gamanmyndir því alltaf var stutt í ljúfsárann harminn í lífí flækingsins en samspil þetta var fangamark Chaplins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.