Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 14.07.1991, Blaðsíða 30
30 C moróúnblXðíð' SAMSAFNIÐ;áúMuDAGUR 14. JÚLÍ 1991 ÆSKUMYNDIN... ERAF THOR FILHLJÁLMSSYNIRITHÖFUNDI Háttprúöur lestrarhestur HANN þótti fyrirmynd drengja í háttprýði, fæddur og uppalinn á höfðingjasetri, fyrst í Edinborg, síðar á Sólvallagötu og Bergstaða- stræti. Var enda mæltur á enska tungu og þótti mikið undur meðal félaganna á Bergstaðastræt- inu, í þann tíma er útlönd voru í Kaupmanna- höfn og helst að menn slettu dönsku. Thor Vilhjálmsson er fæddur þann 12. ágúst 1925 kl. 11 árdegis í Edinborg, sonur hjónanna Guðmundar Vilhjálmssonar, forstöðumanns skrif- stofu SÍS þar og síðar framkvæmdastjóra Eimskipa- félags íslands og Kristínar Thors. Thor er elstur fimm systkina, yngri eru Helga, Guðmundur og Margrét en yngsti bróðirinn Hallgrímur lést þrettán ára að aldri. Vegna veru sinnar í Skotlandi notaði fjölskyldan eftirnafn föðurins og hélst það eftir að heim var komið. Thor segir eina af sínum fyrstu æskuminningum tengjast verunni í Skotlandi, það var þegar móðir hans fór með hann í barnaafmæli þar sem sýnd var afar frumstæð teiknimynd um Mikka mús. Var Mikki lítið annað e'n strikaðar myndir á hreyfingu. Fjölskyldan flutti heim þegar Thor var fimm ára og bjó fyrst við Sólvallagötu. Helga systir Thors er ári yngri og töluðu þau saman á ensku fyrstu mánuð- ina eftir heimkomu og slettu málinu fyrst eftir það. Á neðri hæð hússins við Sólvallagötu var þýski kons- úllinn til húsa. Talaði hann þýsku við börnin og ráðskona hans pólsk, móðurmál sitt. Hafði hún nokk- uð samneyti við Thor og Helgu, fór meðal annars með þau upp á Landakotstún sem þá var mun stærra en nú er, og kenndi þeim að tína sveppi. Segir Helga þau hafa náð furðanlega mikilli kunn- áttu í þessum tveimur málum. Um tveimur árum síðar flutti fjölskyldan á Berg- staðastræti og þótti börnunum við götuna hin tvítyngdu systkin ákaflega merkileg. „Thor var mik- ið fyrirmyndarbarn, kurteis, bráðvel gefinn og hafði mikinn áhuga á sögu, rétt eins og ég,“ segir Páll Líndal, sem bjó i húsinu gegnt Thor á Bergstaða- strætinu. Thor og Helga systir hans voru í tímakennslu hjá fröken Ragnheiði Jönsdóttur í Tjarnargötu þegar þau voru fimm og sex ára. „Við vorum svo prúð og miklir fyrirmyndarnemendur. Það voru yngri systkini okkar, Guðmundur og Margrét sem héldu uppi fjörinu,“ segir Thor. í tímunum hjá fröken Ragnheiði átti að lesa síðu úr „Karlinum í tunglinu" fyrir hvern tíma en þegar Thor las alla bókina í einum sprett, varð frökenin svo hissa að hún náði í Heimskringlu upp á háaloft og lét hann lesa. Minn- ast systkini Thors hans enda vart öðru vísi en les- andi, hann las íslendingasögurnar snemma og var farinn að lesa Tolstoj og Dostojevskíj íjórtán ára. Mannblendinn þótti Thor ekki, en hafði ríka rétt- lætiskennd. Þegar hann eltist varð hann mikill háð- fugl og hermdi gjarnan eftir fólki. Hann stundaði íþróttir töluvert og þótti efnilegur í hlaupum og þrístökki. Segir Guðmundur bróðir hans hann hafa verið kappsaman íþróttamann, svo og duglegan við alla erfiðisvinnu. ÚR MYNDASAFNINV ÓLAFUR K. MAGNÚSSON ÞegarLaxfoss lagðistað... Að kvöldi 18. janúar 1952 gerði aftakaveður á suðvestanverðu landinu svo að tæplega var stætt úti. í því veðri strandaði farþegaskipið Laxfoss, skammt súnnan Braut- arholtsborgar, vestan við Nesvík á Kjalarnesi, en skipið var í flutning- um milli Borgarness, Akraness og Reykjavík- ur. Björgunarleiðangur var gerður út um nóttina en varð að snúa frá vegna veðurs, en í birt- ingu um morguninn, 19. janúar, björguðu bændur og búalið á Kjal- arnesi þeim 14 farþegum og 9 skip- veijum sem um borð voru. Var fólk- ið flutt heim að Brautarholti, og þar beið þess góð hressing og að- hlynning heimilisfólksins. Síðar náðist Laxfoss út en ekki þótti svara kostnaði að gera við hann og annað- ist vélskipið Eldborg frá Borgamesi þær ferðir sem Laxfoss hafði haldið uppi fyrst um sinn, en síðar tók gamla Akraborgin við árið 1956, og annaðist þessa flutninga um margra ára skeið, þar til ný tók við af henni. Þótti sjónarsviptir að Laxfossi, enda var hann mörgum hugleikinn samanber slagarinn góðkunni: Þegar Laxfoss lagðist að/ lítil huggun varð mér það/ því að kærustuna hvergi þar ég sá ..., og svo framvegis. Tvær myndanna voru teknár á strandstað, þriðja er af bænum Brautarholti, þar sem hlúð var að skipbrotsmönnum, og sú fjórða var tekin nokkrum árum síðar, þegar Akraborg hafði hafið flutninga á þeirri leið sem Laxfoss þjónaði áður. SVEITIN MlN ER . . . HRÓARSTUNGA Tyjóðsagan segir frá konu sem bjó á bænum og hét Gunnhild- ur. Synir hennar Nefbjörn, Geir og Galti bjuggu á næstu bæjum. Einu sinni sló í brýni milli þeirra bræðra og féllu allir. Er Gunnhildur kom að dó hún úr harmi og enn má sjá haugana fjóra þar sem þau voru heygð. Gunnhildargerði er talsverð hlunnindajörð, þar má meðal annars veiða silung og gæs. Óvænt hlunn- indi fengust eitt sinn vegna skip- skaða sem Ólafi er afar minnisstæð- ur: „Þegar ég yar á Tíunda ári strandaði timburskip við Héraðsflóa og það varð uppi fótur og fit í sveit- inni og fóru allir sem vettlingi gátu valdið að bjarga úr skipinu. Bænd- urnir fengu svo timbur í björgunar- laun og faðir minn byggði þá hlöðu, fjárhús og hesthús." Ólafur fór í bændaskóla „en for- lögin urðu til þess að ég varð ekki bóndi," segir hann og bætir því við að hann beri alltaf sterkar taugar til átthaganna og Beingeitafjöll og Dyrfjöll, sem blasa við þegar keyrt er út Jökuldalinn, séu honum ætíð hugstæð. ÞANNIG SMÍÐAR Andrés H. Volberg sér valnastakk Hellismannasaga segir frá 18 skólapiltum er lögð- ust út og bjuggu um sig í Surtshelli. Einn þeirra hafði búið sér stakk úr sauðavölum „sem engin járn bíta.“ Var hann talinn langhraustastur allra Hellismanna. I heiftarlegum lokabardaga við byggðamenn, sviftur vopnum með svikum, stóð hann uppi þegar félagi hans kallar: „Varaðu þig Valnastakkur, fallinn er hann Fjögramaki.“ Síðan liðu aldir þangað til Andrés H. Valberg forstjóri, tók sig til fyrir rúmum þrjátíu árum og smíðaði sér valnastakk. Síðan ég heyrði Hellismannasögu 7 ára gamall, hef- ur söfnunin gengið út á að smíða stakk. Ég hef safnað völum í ein 50 ár, tók upphaflega við safni móður minnar sem safnaði í 25 ár. Ég sleppti aldrei tækifæri til að hirða völu, skar þær úr hagahræum, fann þær sem skinin bein og í ösku landnámsbæja. Ég boraði þær með handbor, trillubor o.fl. en aldrei fann ég aðferðina. Eitt sumar fékk ég vinnu í síld og sá þá hvernig tunnunum var stúað; ofan á fyrstu röð kom önnur er sneri öndvert við hina. Ég fékk mér rafmagnsbor og boraði völurnar þversum, aftan og framan og þræddi saman hálft í hálft, framenda og afturenda. En þá sögðu þyngslin til sín og hvorki þrísnúinn trolltvinni né margþættur rafmagnsvír héldu völunum saman. Loks fann ég silfurbensla stálvír sem dugar enn.“ Stakkurinn vegur um 20 kíló og er mislitur af elli. Andrés kveðst ekki vita um aðra stakka hérlendis og þeirra er lítt getið í þjóðsögum. Hann hefur þó ekki smíðað annan. „Ég var búinn að safna um 400 völum í viðbót en gaf þær frá mér og hef ekki sinnt þessu sem skyldi, nýr stakkur væri líka verksmiðjufram- leiðsla, ég þyrfti að fá beinin í sláturhúsi. Af mínum , Morgunblaðið/G.Löve Andrés virðist geta varist flestum atlögum í valnastakkn- um. völum var hins vegar étið.“ En hefur stakkurinn ekki vakið óskipta athygli? „Svo sannarlega, og þá einkum útlendinga. Ég hef jafnvel sýnt hann á skemmtistöð- um, kom þá fram í skinnskóm með tófuskinnshúfu á höfðinu og broddstaf í hendi. Oftast kvað ég rímur með. Brynjan er þó býsna óþjál, bæði erfitt að komast í hana og hreyfa sig.“ Auk þessa sérstaka áhugamáls hefur Andrés „safn- að öllu sem til er á íslandi." Hann gaf Sauðárkróksbæ 600 forngripi er liggja enn í kössum þar, honum til nokkurrar skapraunar. En hefur hann hug á að bæta við stakkinn? „Ég þyrfti að safna í kragann, sem á að vera talsvert hár, svo ég fái síður högg á hálsinn þegar ég hey dauðastríðið. Ég held varla að ég lendi í öðrum stríðum héðan af.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.