Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. AGUST 1992 5 Bindindismótið í Galtalæk: 200 lítrum af áfengi hellt niður TVO hundruð lítrum af áfengi var helit niður á Bindindismótinu í Galtalæk um verslunarmanna- helgfina. Að auki gerði sýslumað- ur töluvert upptækt af bjór og sterku áfengi. Ranglega var hermt í Morgun- blaðinu í gær að tvö þúsund lítrar af áfengi hefðu verið gerðir upptæk- ir á bindindismótinu um helgina. Að sögn Ólafs Jónssonar mótsstjóra var 200 lítrum hellt niður. Þar að auki gerði sýslumaður sjö kassa af bjór og tíu lítra af sterku áfengi upp- tæka. Hlutaðeigandi eru beðnir vel- virðingar á þessum mistökum. ---------» ■♦—«-- Bóvörusamninga- nefnd: Styttist í samkomulag um mjólkur- framleiðsluna FUNDUR um framtíðarskipan mjólkurframleiðslunnar var hald- inn í búvörusamninganefnd í gær, og að sögn Hákons Sigurgríms- sonar, framkvæmdastjóra Stétt- arsambands bænda, eru líkur á því að samkomulag takist á nótum tillagna sjömannanefndar frá því í vor á næstu dögum. Annar fund- ur í samninganefndinni hefur ver- ið boðaður á morgun, föstudag. Samkvæmt tillögum sjömanna- nefndar þarf að færa virkan fullvirð- isrét.t í mjólkurframleiðslu niður um 5% í haust til aðlögunar að inn- anlandsmarkaði, <?ða úr 104,5 millj- ónum lítra í 100 milljón lítra. Er rætt um að bændum verði greiddar 75 kr. fyrir hvern niðurfærðan lítra, og sagði Hákon að engar kröfur hefðu komið fram um aðra upphæð, en þetta væru svipaðar bætur og sauðfjárbændur hefðu fengið fyrir niðurfærslu fullvirðisréttar í sauð- fjárrækt. Hvað varðar hagræðingu á vinnslustigi mjólkur þá sagði hann að einn fundur hefði verið haldinn með formanni Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði, og rætt væri um að málefni varðandi mjólkurbúin yrðu ákvörðuð með sérstöku sam- komulagi, sem yrði fylgiblað með búvörusamningnum. ----» ♦ ♦--- Erik Boye á Neskaupstað FLUTNINGASKIPIÐ Erik Boye kom í slipp á Neskaupstað í gær- kvöldi. Þar á að meta skemmdir skipsins og hefja framkvæmdir vegna viðgerða en stefnt er að þvi að seija skipið úr landi að við- gerðum loknum. Jóhannes Lárusson sem er í stjórn Dráttarskipa hfi á Neskaupstað sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að bolskemmdir á skipinu litu ekki út fyrir að vera verri en búist hefði verið við. En stefnt væri að því að gera við skipið og selja það úr landi. Byija ætti á því að gera úttekt á skemmdum þess og fá fagmenn til þess að útbúa útboðs- gögn. Jóhannes sagði að áður en verkið yrði boðið út myndi fyrirtæk- ið reyna að semja við aðila sem það hefði haft viðskipti við. Að sögn Jóhannesar eru allar raflagnir í skip- inu ónýtar en í dag á að reyna að ræsa vélar skipsins til þess að kanna ástand þeirra. Sjópróf vegna strands Erik Boye hófust í gær á Eskifirði og var eng- inn niðurstaða komin seint í gær- kvöldi. BRIMBORG 1600cc «16 ventla • Bein innspýting • 95 hestöfl / ■■ KOSTflR STADGREIDD, KOMIHI A GOTUNA FRA: FAXAFENI8 • SÍMI91 - 68 58 70

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.