Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 17 „Dáinn, horfinn — harmafregn." Þessi fleygu orð komu mér ósjálf- rátt í hug við lát tengdaföður míns, Páls Líndals. Páll var fæddur síðla árs 1924 og var því aðeins 67 ára að aldri þegar hann varð bráðkvaddur og þannig hrifinn allt of skjótt burt úr þessum heimi. Eflaust munu aðrir gera grein fyrir ætt hans og starfsferli, en mig langar til þess að fara nokkrum orðum um kynni mín af honum og hvern mann hann hafði að geyma. Fundum okkar Páls bar fyrst saman á því herrans ári 1968 og hefur hann eflaust, þótt frjálslyndur væri, litið homauga þennan síð- hærða piltung sem farinn var að gera hosur sínar grænar fyrir dóttur hans, en mjög kært var jafnan með þeim feðginum. Kynni okkar áttu eftir að þróast og breytast í einlæga vináttu og fannst mér að vináttu- böndin styrktust með ári hverju. Páll er án nokkurs efa fjölfróð- asti maður sem ég hef kynnst. Það var nánast sama hvar borið var niður, hvergi kom maður að tómum kofanum: Saga, listir, stjómmál í víðustu merkingu þess orðs, nátt- úruvísindi og þannig mætti áfram telja. Ef til vill var þó mannlífið sjálft, sem ekki verður dregið í dilk neinnar fræðigreinar, tengdaföður mínum hvað hugleiknast og ógleymanlegar eru frásagnir hans af mönnum af öllum stéttum og gerðum, ekki síst þeim sem settu svip á bæinn á fyrri tíð, en þar naut sín best óvenju rík frásagnar- gáfa hans og annáluð kímnigáfa. Að sjálfsögðu barst tal okkar ein- att að lögfræðinni, einkum þeirri grein hennar sem fjallar um stjórn- völd og skipti þeirra við borgarana. Hér sem oft endranær var tengda- faðir minn snillingur í því að snúa hlutverkum við, gera mig að læri- föður meðan hann, að hætti Sókrat- esar, brá sér í hlutverk hins náms- fúsa nemanda meðan hann í raun miðlaði mér af sinni miklu þekkingu og reynslu á þessu sviði. Áhugi Páls á listum og menningu leyndi sér ekki. Hann unni tónlist og lék sjálfur á píanó. Myndlistar- smekk hans var við brugðið enda hef ég það fyrir satt að hann hafi á sínum tíma annast kaup á lista- verkum fyrir Reykjavíkurborg, þar á meðal fest kaup á mörgum þeim höggmyndum sem nú prýða borg- ina. Ég hygg þó að bókmenntirnar hafi skipað öndvegi í huga hans enda voru bækumar aldrei langt undan þegar maður sótti hann heim og oft voru þær fleiri en ein bæk- urnar, sem lágu opnar við hlið hans, stundum hver úr sinni áttinni. Ritstörf voru Páli hugleikin. Þeg- ar litið er á þau rit og þær grein- ar, sem eftir hann liggja, eru afköst- in ótrúleg þegar það er haft í huga að lengstum gegndi hann vanda- sömum ábyrgðarstörfum, fyrst hjá Reykjavíkurborg og síðar í Stjóm- arráðinu. Það em einkum bækur hans um Reykjavík sem munu halda nafni hans á lofti um ókomin ár. Séu þessar bækur lesnar kemur í ljós hvílík vinna býr þar að baki þótt tengdaföður mínum hafi lík- lega veist sú vinna auðveldari en öðmm, ekki síst vegna þess hve ótrúlega minnugur hann var á menn og málefni. Ég gæti lengi haldið áfram að lýsa mannkostum Páls, en líklega væri farin að síga á honum brúnin eftir það sem á undan er komið. Ef ég ætti að lýsa lífsviðhorfum hans í sem stystu máli þá var eins og það byggju í honum tveir menn sem eflaust áttu í nokkurri baráttu, hvor við annan: Öðmm þræði var hann varkár og vandaður embættismaður, en jafnframt einlægur umbótasinni sem hikaði ekki við að feta ótroðnar slóðir þegar svo bar undir. Fráfall hans nú kom okkur öllum í opna skjöldu. Aðeins hálfum mán- uði áður höfðum við í nánustu fjöl- skyldunni bmgðið okkur út í Viðey og snætt þar kvöldverð í tilefni af fertugsafmæli Jóns Úlfars, mágs míns. Er mér það í fersku minni hve tengdafaðir minn var innilega glaður í þetta skipti og stendur hann mér ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum er við sigldum til lands og horfðum á kvöldsólina baða sig í sjónum meðan við hlýddum á hann rifja upp hvetja söguna af annarri úr Viðey. Upphafsorðin hér að framan era tekin úr eftirmælum Jónasar Hall- grímssonar um langalangafa tengdaföður míns, séra Tómas Sæ- mundsson. Upphaf þessa erfiljóðs á ekki síður við nú, einni og hálfri öld síðar: Dáinn, horfinn - harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En ég veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. Eiríkur Tómasson. Þegar ég settist í fyrsta bekk gamla Menntaskólans í Reykavík haustið 1937, urðum við Páll Líndal sessunautar og síðar nánir félagar alla okkar skólatíð. Það má reyndar segja, að kynni okkar hafi þá þegar staðið djúpum rótum, því bæði mæður okkar og ömmur voru alda- vinkonur, svo að leiðir okkar höfðu legið saman strax í bernsku. Þótt hann væri ekki hár í loftinu, hvorki þá né síðar, varð Páll fljót- lega fyrirferðarmikill meðal þeirra bekkjarfélaga og vina, sem haldið hafa hópinn nokkuð óslitið allar götur síðan. Létt lund, gamansemi og fjölbreytt áhugamál Páls krydd- uðu samvemstundirnar og öfluðu honum vinsælda, hvar sem hann fór. En þótt Páll léti sér fátt óvið- komandi á þessum ámm, nema ef vera skyldi stærðfræði og raunvís- indi, var þó snemma ljóst, að sagn- fræði og hvers konar lifandi fróðleik- ur um sögu þjóðar og einstaklinga stóð honum hjarta næst. Hann hafí frábært minni og kunni áreiðanlega meira bæði í almennri sögu og Is- landssögu í fyrsta bekk, en margir stúdentamir gera nú á dögum. Þegar kom að því að velja sér námsgrein, varð þó lögfræðin sagn- fræðinni yfirsterkari, enda fetaði hann þar í fótspor föður síns og beggja afa. Ekki skal hér rakinn starfsferill Páls í einstökum atrið- um, en honum vom um ævina falin fleiri trúnaðarstörf en upp verða talin í stuttu máli. Lengst af starf- aði hann þó hjá Reykjavíkurborg sem skrifstofustjóri borgarstjóra og síðan borgarlögmaður, en síðast gegndi hann embætti ráðuneytis- stjóra í hinu nýja umhverfisráðu- neyti. Hann var lengi formaður Sambands íslenzkra sveitarfélaga og sinnti mjög skipulags- og nátt- úrverndarmálum. Ér varla of mælt, að Páll hafi verið öllum samtíma- mönnum sínum fróðari um um- hverfis- og sveitastjórnarmál, enda ritaði hann margt um þau mál. Þrátt fyrir erlisöm embættisstörf, hafði Páll ætíð tíma tl þess að viða að sér sögulegum fróðleik og rita um þau efni. Honum var saga Reykjavíkur sérstaklega hugleikin og var hann á því sviði nokkurs konar arftaki Jóns biskups Helga- sonar, ömmubróður síns, sem einna mest hafði áður ritað um sögu Reykjavíkur. Á þessu sviðr vann Páll stórvirki, sem lengi munu halda nafni hans á lofti. Er það vissulega mikill skaði, að hann skyldi ekki Sjá síðu 32 SÍÐUSTU SÆTIN til Spánar í ágúst & með Turavia t Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin til Benidorm í ágústmánuði með Turavia, einni stærstu ferðaskrifstofu Spánar á hreint frábæru verði. — beint leiguflug Verð frá kr. 32.900, ■ í ágúst Verð per mann m.v. hjón með 2 börn 2-15 ára, í eina viku, Gemelos 2. 1 vika 2 vikur 3 vikur J 1 2 í íbúð 38.900,- 49.900,- 57.900,- Æ ■ 3 í íbúð 36.900,- 45.900,- 49.900,-■ W 4 í íbúð 35.900,- 39.700,- 46.400,- W w Barnaafsláttur: 2-15 ára kr. 6.000,- 1 Brottför: 7. ágúst uppselt 14. ágúst 4 sæti laus 21. ágúst uppselt 28. ágúst viðbótarsæti 4. sept. viðbótarsæti TURAVIA HEIMSFERÐIR hf. Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600 D filef-úvi af OlympíuleikuKvum býdu^ Rökvuí vavrdvei+id mirvrvirvgamar v' Verö kr. stgr. VMC-1 Hitachi veltivél 59.900,- VME10 Hitachi 8mm HiFi 69.800,- =^>- VME25 Hitachi 8mm HiFi 64xZoom! 89.900,- VMS83 Hitachi S-VHS HiFi med öllu 109.900,- Isi fil act pjó+a VTM728 Hitachi fjarst./sjálfhreins. ITT 3722 Mokia ASOplus háskerpa ITT 3742 Mokia AS0plus/3 hausa VTM860 Hitachi Micam HiFi 4 hausa Veró kr. stgr. 34.900, - 38.900, - 47.900, - 69.900, - sem Kljc omar vel Hitachi TR640 kassettutæki > Hitachi 3D88 ferdatæki 80W MD-200 hljómtækjasamst. MD-300 med 5 diska geislaspilara Verö kr. stgr. 5.900,- 15.900, - 49.900, - 69.900, - RÖNNING SUNDABORG 15 sími 685868 fymm l< Ka a 14“ ITT Nokia TV3711 20" ITT Nokia TV5123 25" ITT Nokia TV6363 Nicam HiFi/Texi/BlackPlanigon =*> 25“ Hitachi C25P445 Nicam HiFi/Texi/SQF Verð kr. stgr. ,27.900,- 38.900, - 89.900, - 92.900, - j HITACHI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.