Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 AKUREYRI KEA leggur fram hluta- fé í Slippstöðina hf. Atvinnuleysi á Akureyri var svipað í júlí ogjúní ENN ER atvinnuleysi talsvert á Akureyri og virðist stöðugt ef marka má samanburð mánaðanna júní og júlí. Atvinnuleysið er talsvert meira en á sama tíma í fyrra þótt þá hafi verið einkar hart í ári vegna gjaldþrots Álafoss og atvinnuleysis af þess sökum. Á skrá yfir atvinnulausa í lok júlímánaðar nú voru 250 manns í stað 247 í júnflok. Atvinnuleysisdagar í júlímánuði voru alls 5.765, heldur fleiri en í júní, en þá voru þeir 5.730. Til sam- anburðar má nefna atvinnuleysis- daga í júlí á síðasta ári. Þeir voru 4.855, en þá var atvinnuleysis- skráning afar mikil í kjölfar gjald- þrots Alafoss. Atvinnuleysisdagar karla voru í júlí 2.683, ögn færri en í júní, en kvenna 3.082, heldur fleiri en í júní. Athygli vekur í sam- anburði við júlí 1991 að atvinnu- leysisdagar kvenna eru álíka marg- ir nú og þá, 3.082 nú og 3.033 í fyrra. Hins vegar hefur atvinnu- leysisdögum karla fjölgað stórlega, voru 1.822 í fyrra en eru 2.683 nú. Kann gjaldþrot Álafoss einnig að vera skýring á því. Á atvinnuleysisskrá í júlí voru nú alls 380, 180 karlar og 200 konur. Við lok júlímánaðar voru skráðir atvinnulausir alls 250, 114 karlar og 136 konur. Atvinnulaus- um körlum í júlílok hefur fjölgað mjög ef miðað er við tölur síðasta árs, voru þá 76 og eru nú 114. Hins vegar eru atvinnlausar konur í lok júlí nú ögn færri en á sama tíma í fyrra, voru þá 145 en eru nú 136. Ef litið er á skiptingu atvinnu- leysis milli starfsstétta eru á at- vinnuleysisskrá verkamenn 39 tals- ins og verkakonur 63. Iðnverka- menn eru 23 og iðnverkakonur 43. Verslunar- og skrifstofumenn eru 13 á skrá og konur 26. Auk þess eru á skrá nokkrir sjómenn og iðn- aðarmenn. Á Vinnumiðlunarskrifátofunni kom fram að í tölum júlímánaðar væri ekki fólk sem missti vinnu vegna uppsagna afleysingafólks hjá verksmiðju K. Jónssonar. Það fólk hefði haft vikuuppsagnarfrest og uppsagnir tekið gildi um mánaða- mót. Snáði á þríhjóli Hann var vígreifur þessi ungi maður sem tók á móti blaðamanni og ljósmyndara við þjónustu- miðstöð tjald- stæðanna í Húsabrekku, gegnt Akur- eyri. Morgunblaðið/Kiríkur SAMKOMULAG hefur orðið milli stjórnar Slippstöðvarinnar á Akur- eyri og Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri að KEA leggi Slippstöðinni til hlutafé, sem tryggja ætti framlag ríkis og bæjar svo náð verði þeirri 100 milljóna króna hlutafjáraukningu í Slippstöðinni sem stefnt hefur verið að. Vélsmiðjan Oddi, sem er að mestu í eigu Kaupfélagsins, verð- ur sameinuð Slippstöðinni sem ígildi hlutafjár. Sigurður Ringsted, forstjóri Slipp- stöðvarinnar sagði að á hluthafa- fundi í sumar hefði verið ákveðið að auka hlutafé fyrirtækisins um 100 milljónir. Stóru hluthafamir, ríki og bær, hefðu lýst sig tilbúna að leggja fram hluta af þessum 100 milljónum, ríkið 30-35 milljónir að því skilyrði uppfylltu að Akureyrarbær og heimaaðilar legðu fram það sem á vantaði. Akureyrarbær hefði lýst sig tilbúinn að leggja fram sömu fjárhæð og ríkið og því hefði staðið yfir Ieit að heimaaðila sem gæti verið þriðji aðilinn. Nú gengi Oddi, sem væri að mestu í eigu Kaupfélagsins, inn í Slippstöðina í skiptum fyrir hlutafé í Slippstöðinni. Samningurinn hljóð- aði upp á að Kaupfélagið seldi Slipp- stöðinni Odda og fengi greitt með bréfum í Slippstöðinni. Sigurður Ringsted sagði að ef þetta dæmi gengi upp ættu að vera uppfyllt þau skilyrði sem sett hefðu verið af stóru hluthöfunum til að ná tilsettri hlutafjáraukningu. Þannig stæði fyrirtækið mun betur að vígi en fyrr, meðal annars til að brúa erfið tímabil í rekstrinum. Auk þess væri Oddi fyrirtæki í fullum gangi og skilaði veltu og þessi sameining ætti að tryggja báðum aðilum betri rekstrargrundvöll og meira rekstrar- öryggi. Torfi Þ. Guðmundsson, forstjóri Odda, sagði að við þennan samruna væri fyrirhugað að halda áfram sér- hæfðri starfsemi Odda af auknum krafti, en þar væri um að ræða fram- leiðslu meðal annars á bobbingum og kælitækjum. Ef vel tækist að nýta þá góðu kosti sem fyrir hendi væru í báðum fyrirtækjunum kæmi þetta til með að verða til hagsbóta fyrir alla aðila, ekki síður starfs- menn. Ef hér tækist að koma á fyrir- tæki sem næði til sín meiri verkefn-' um en þau hafi hvort um sig haft Sveinbjörn Sveinbjörns- son settur skattsljóri Fjármálaráðherra hefur sett Sveinbjörn Sveinbjörnsson skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra. Alls sóttu fjórir um stöðuna en tveir þeirra drógu umsóknir sínar til baka. Sveinbjörn tekur við embætt- inu 17. ágúst. Staða skattstjóra Norðurlands- umdæmis eystra var auglýst laus til umsóknar 15. júlí. Umsækjendur voru §órir, Aðalsteinn Einar Sig- urðsson viðskiptafræðingur, Svein- bjöm Sveinbjömsson viðskipta- fræðingur og tveir til viðbótar, sem drógu umsóknir sínar til baka. Sveinbjöm hefur nú verið settur skattstjóri. Sveinbjöm Sveinbjömsson er fæddur 1964 að Hrísum í Eyjafjarð- arsveit. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1985 og embættisprófí í viðskipta- fræði frá Háskóla íslands vorið 1990. Auk þess hefur hann lokið tveimur af fjórum áföngum í námi til löggilts endurskoðanda. Á skóla- árunum vann Sveinbjöm hjá Endur- skoðun hf. í Reykjavík og Endur- skoðun Akureyrar hf. og hefur starfað hjá síðamefnda fyrirtækinu frá haustinu 1990. Sveinbjörn sagðist í samtali við Morgunblaðið ánægður með að hafa verið veitt þetta embætti, honum litist vel á starfíð og hefði af þeim sökum sóst eftir því. Menntun sín og starfsreynsla kæmi að góðum notum við þetta nýja viðfangsefni. Samkvæmt fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu í gær tekur Sveinbjöm Sveinbjömsson við starfí skattstjóra Norðurlandsumdæmis eystra 17. ágúst næstkomandi. Fram að þeim tíma hefur Kristín Norðfjörð, lögfræðingur hjá emb- ætti ríkisskattstjóra, verið sett til að gegna embætti skattstjóra. Ný gnllsmíðastofa við göngmgötuna í DAG verður opnað í miðbæ Akureyrar nýtt gullsmíðaverkstæði og verslun. Þar verður alhliða þjónusta og viðgerðir á skartgripum og sérstök áhersla lögð á sölu fluttra. Hið nýja gullsmíðaverkstæði og verslun er í Hafnarstræti 98, á milli veitingahússins Dropans og brauðbúðar Kr. Jónssonar. Fyrir- tækið heitir KPG módelsmíði og eigandinn er Kristín Petra Guð- mundsdóttir gullsmiður. Kristín Petra lærði gullsmíði á ísafirði hjá Dýrfinnu Torfadóttur og hjá Pétri Breiðfjörð á Akureyri og auk þess í eitt ár í Lahti í Finn- landi. Hún útskrifaðist sem meist- ari í gullsmíði á síðasta ári og hefur um hálfs árs skeið haft vinnustofu í húsi Brauðgerðar Kr. Jónssonar, en flytur nú starfsem- ina í miðbæinn. Kristín Petra sagðist smíða skartgripi af ýmsu tagi, hringa, nælur, armbönd, hálsmen og eyrnalokka, og auk þess að nota gull, silfur og kopar auk íslenskra steina heillaði sig mest að nota með málmunum palisander og íbenvið. Við það beitti hún nýjum sérsmíðaðra skartgripa auk inn- aðferðum og langaði til að halda áfram að þróa þá list. Auk gripa sem Kristín Petra hannar og smíðar sjálf mun hún selja innflutta vöru, bæði ódýra og dýra. Meðal annars stefnir hún að því að flytja inn skartgripi frá danska hönnuðinum Ole Lindga- ard, en það eru mjög vandaðar og dýrar vörur, þannig gerðar að við- skiptavinurinn sjálfur raðar saman eftir sínum einkastíl. Auk þess verða á boðstólum gjafavörur af öðru tagi. Magnús Már Þorvaldsson hann- ar innréttingar í KPG módelsmíði, en úr versluninni sést inn á verk- stæðið. Kristín Petra sagði að þetta væri orðið algengt í útlönd- um, verkstæðið væri ekki lengur sá helgidómur sem það hefði lengst af verið og sig langaði til að leyfa fólki að sjá hvemig unnið væri. burði til leiddi það til meiri vinnu fyrir málmiðnaðarmenn í bænum og yki almennt atvinnuöryggi. Morgunblaðið/Eiríkur Kristín Petra í verslun KPG módelsmíði, sem verður opnuð í dag. Tjaldstæði á Akur- eyri og í Eyjafirði: Tjaldbúar færri en í fyrra TALSVERT færri gestir voru á tjaldstæðum á Akureyri { nýliðnum júlímánuði en á sama tíma í fyrra. Orsök þess er tal- in annars vegar minni straum- ur erlendra ferðamanna til landsins og hins vegar lélegra sumarveður en á síðasta ári. Pétur Halldórsson, yfírtjald- vörður á tjaldstæðum Akureyrar, sagði að aðsókn hefði verið allgóð og mjög góð stöku helgar, en ef saman væri borinn gestafjöldi í júlí nú og í fyrra kæmi í ljós að um það bil 20% færri hefðu gist tjaldsvæðin á þessu ári. Ef rýnt væri í tölur kæmi í ljós að gestir væru nokkuð til jafns íslendingar og útlendingar. Hlutföllin væru nánast þau sömu í júlí nú og í fyrra og það stafaði af þeirri fækkun erlendra ferðamanna sem víðast hvar í ferðamannage- iranum væri rætt um og hinu að veður hefði ekki verið nógu gott á Akureyri - eða nógu vont ann- ars staðar - til að hingað kæmu jafnmargir íslenskir tjaldgestir og í fyrra. Á tjaldstæðinu að Húsabrekku, handan Akureyrar, fengust þær upplýsingar að aðsókn hefði verið allgóð í sumar, einkum um helg- ar, en nú væri sýnilegt að gestum væri tekið að fækka. Þetta tjald- svæði er nýtt og samanburður við fyrri ár ekki fyrir hendi. Að Hrafnagili er tjaldstæði og þar hefur samkvæmt upplýsing- um sundlaugarvarðar verið nokk- ur aðsókn í sumar. Mest væri umferðin um helgar og eitthvað um að fólk kæmi ef þrengja tæki að á tjaldstæðum Akureyrar. Hins vegar væri stefna sveitar- stjómar að gera átak í að koma tjaldstæði við Hrafnagil í mjög gott horf með þeirri þjónustu sem þykir nauðsynleg á nútímatjald- stæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.