Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 32 Minning: Páll Líndal ráðuneytisstióri hafa haft tækifæri til þess að njóta enn betur hæfíleika sinna sem sagn- fræðings, þar sem saman fór bæði yfirgripsmikil þekking og skýr og skemmtileg frásagnargáfa. Nokkur hópur bekkjarbræðra Páls hefur um áratuga skeið haldið hópinn og komið saman reglulega til að lesa ýmiss konar bókmenntir. í þeim hópi nutum við víðtæks fróð- leiks Páls og næmleika hans fyrir því sérkennilega og oft skoplega, sem lesa má úr gömlum textum. Á mannamótum var Páll venju- lega hrókur alls fagnaðar og átti létt með að vekja mönnum hlátur með fyndnum og hnyttilegum frá- sögnum. í rauninni var hann þó manna dulastur á eigin tilfinningar og mjög viðkvæmur í lund. í hregg- viðrum lífsins særðist hann því oft dýpri sárum en flesta samferða- menn hans grunaði. Vinum sínum var hann allra manna tryggastur, þótt hann fiikaði ekki innstu tilfinn- ingum sínum við þá frekar en aðra. Nú þegar Páll er svo sviplega á burtu kallaður hlýtur hugurinn að hverfa aftur til hinna mörgu gleði- stunda, sem hann veitti vinum sín- um og æ munu merla í minning- unni. Jafnframt votta ég samúð okkar Dóru ástvinum hans öllum, sem nú sjá á bak svo góðum dreng. Jóhannes Nordal. Sagt hefur verið, að minningar- greinar beri stundum merki þess, að höfundur sé ekki síður að skrifa um sjálfan sig en hinn látna. Þessi hætta er ekki sízt fyrir hendi í orð- um sem þessum, þar sem merk og fjölbreytileg verk hins látna á langri starfsævi eru ekki rakin, heldur vikið að áratugalöngum, persónu- legum kynnum. Ég vona þó að les- andi þessara kveðjuorða finni að þeim er ætlað að sýna, hvað Páll Líndal var í hópi þeirra, sem sett- ust í fyrsta beíck Menntaskólans í Reykjavík haustið 1937 og braut- skráðust þaðan vorið 1943 ásamt álíka mörgum, ágætum bekkjarfé- lögum, sem bætzt höfðu við í lær- dómsdeild eftir gagnfræðapróf 1939. Frá öndverðu þótti félagsandi góður í þessum árgangi, og i hópi þeirra, sem við bættust, voru marg- ir, sem víkkuðu sjónarsviðið og styrktu samheldnina. Á þessum árum voru nokkrir i hópnum, sem höfðu aðstöðu til að bjóða til sín bekkjarsystkinum endr- um og eins að kvöldlagi i vikulok, þar sem unað var við söng og leiki langt fram eftir. Eitt þessara gest- risnu heimila var hjá foreldrum Páls á Bergstaðastræti 76. Þá sem endranær var Páll hinn ljúfi, sívök- uli vinur, brunnur alls konar fróð- leiks og hrókur alls fagnaðar. Var hann ætíð reiðubúinn að grípa til píanósins til að hressa upp á anda- giftina. Á slíkum stundum komu fram ýmsir þeir hæfileikar og eigin- leikar Páls, sem hann hélt áfram að þroska til hinztu stundar. Hann hafði yndi af sagnfræði með öllum sínum fléttum og til- brigðum, sem áhrif hafa á fram- vinduna. Við þessa iðju setti hann á sig ýmis orðatiltæki og setningar, sem stjórnvitringar í heimssögunni og jöfrar í bókmenntum höfðu látið falla. Margar af tilvitnunum frá eldri tíma mælti Páll á latinu. Var hann meðal hinna sennilega fáu bekkjarsystkina minna, sem að loknu námi ræktu áfram og juku kynni sírt af þeirri tungu. Við þetta bættist að sjálfsögðu hlutuf lög- spekinnar i notkun hins forna máls. Pál! vaf Sftjall sögumaður; og ríkur tiáttuf í Msep hans af ýnisum iflðftftiiiti, aetíi Vörié hðfðu Hieð ein- ufti aða eðfutti hatti ábef afldi í bjöð- iifíflu á ijíðarí ttftiufti, var iapi Hatis VÍð að draga frattí sþaugiieg atvik, aefti jieif héfðu vettð viðriðtíir, iýsa viðbrögðum þeirra og orðréttum tilsvörum. Þótt hemám Menntaskólahússins við Lækjargötu kæmi róti á alla fé- lagsstarfsemi innan skólans um tveggja ára skeið, var undravert hve vel tókst að lífga við þá starfsemi veturinn 1942-43, er skólahaldið hafði aftur flutzt í gamla húsið. Það kom að sjálfsögðu í hlut efsta bekkj- ar skólans að endumýja hefðir, og tók Páll þátt í því sem aðrir undir forustu umsjónarmanns skólans úr okkar hópi. Hinn gamli, góði félags- andi styrktist innan bekkjarins og hefur haldizt alla tíð síðan, þótt hópurinn tvístraðist og persónulegar aðstæður breyttust að sjálfsögðu. Samt sem áður hefur verið komið saman flest ár, síðast í endurreistum Skíðaskálanum nú í vor. Dæmi um þátt Páls í því að halda við kynnum og félagslífi meðal fyrri skólafélaga var það framtak hans ásamt öðmm félaga að taka saman fréttir af hópnum, fjölrita þær og senda þeim okkar, sem voru við nám síðustu stríðsárin í Bretlandi og Bandaríkjunum. Var fréttabréfið nefnt Jörmungandur. Síðar beitti hann sér fyrir því að hleypa lífi í þrengri hóp, sem var við að tvístr- ast vegna anna og tímabundinna fjarvista. Eins konar tilviljun varð til þess, að nokkrir bekkjarfélaganna úr stúdentshópnum 1943 tóku að hitt- ast eitt kvöld í viku hverri vetrar- mánuðina til að lesa upphátt valdar bækur eða bókmenntaverk, þar á meðal fomsögumar, og skiptust menn á við uppiesturinn. Sú er ástæðan fyrir því, að frá þessu er sagt hér, að nokkrum sinnum hin síðari ár hefur verið getið þessa leshóps í tímaritum. Þau voru tildrög að stofiiun les- hópsins, að eftir útför okkar virta frönskukennara, Páls Sveinssonar, sem fram fór 12. janúar 1951, urðum við nokkrir bekkjarfélagar samferða frá kirlqunni og var Páll lindal í hópnum. Bauð .hann okkur heim til sín á Bergstaðastræti, og var leshóp- urinn stofiiaður þar sama dag. Nú eru tveir horfnir úr hópnum, Hjálmar Ólafsson og Páll. Fyrir nokkrum árum hafði Páll tekið saman skrá um verk þau, sem við höfðum þá lesið saman. í fórum hans kann enn- fremur að hafa leynzt ýmislegt af því, sem sett var saman á skólaárun- um og jafnvel síðar. Við Páll vorum sessunautar meiri hluta þess tíma, sem við vorum í Menntaskóla. Eins og sjá má af hinum viða- miklu ritverkum Páls Líndals, var hann með fjölfróðustu mönnum samtíðar sinnar. Kom það einnig fram, er hann hvað eftir annað tók þátt í spumingakeppni. Hann var fjölgáfaður og lét til sín taka á mörgum sviðum. Áður hefur verið vikið að gestrisni á heimili foreldra hans. Síðar átti hann eftir að stofiia eigin heimili, þar sem gestrisni húsráðenda og vin- arþel sat í fyrirrúmi fyrr og síðar. Það var einhveija helgina í vet- ur, að við hjónin hittum Pál í mann- hafinu í hinu svonefnda Koiaporti. Hann hafði verið við vinnu á skrif- stofu sinni fyrr um daginn en lagt lykkju á leið sína á göngunni heim til að sjá iðandi bæjarlffið, sem nú hafði færzt þangað úr gamla Mið- bænum. Kvaðst hann stundum gera þetta, því að í mannfjöldanum sæi hann ýmislegt, sem minnti á gömlu Reykjavík. Það var létt yfir honum eins og þar fyndi hann aftur hjarta- slög borgarinnar, sem hann þekkti svo vel og þótti svo vænt um. Þessi stund, setfl var hití síðaatai setti Mtíflka hatís hitti haflfl, varð sfyttri etí til stóð, jivi að eiiihver aiitíar vildi taka hanfl tali: Haflfl vat höi£ íhh. lyrr bh varði, % veit, að ftiér ieyfist að segja, að við bekkjarsyatkití Þals ög tíiak^ ar okkar söknum öll vinar við frá- fall hans, en jafnframt þökkum við þær mörgu, góðu stundir, sem við áttum með honum. Við Þórunn sendum ástvinum hans öllum samúðarkveðjur. Ólafur E. Stefánsson. Nú er elsku afi minn og nafni Páll Líndal látinn. Mig langar til að minnast hans í nokkrum orðum um leið og ég þakka honum fyrir allar ánægjustundimar sem hann veitti mér í lifanda lífi. Það fyrsta sem mér dettur í hug að nefna um hann afa er það hvað hann var mikill bókaunnandi. Ég er næstum viss um að hann var með víðlesnustu mönnum á íslandi og þó víðar væri leitað! Mér fannst sem hann hafði lesið allt milli him- ins og jarðar, það var sama um hvað var rætt alltaf gat hann vitn- að í einhveija bók máli sínu til stuðnings og stundum þulið upp heilu blaðsíðumar. Þar að auki hafði hann skemmtilega frásagnargáfu eins og reyndar þær ófáu bækur og greinar, sem hann skrifaði, bera vitni um. í hvert skipti sem hann sagði mér sögu var hún yfirleitt blönduð leiftrandi kímni sem var afa svo eiginleg. Auk hans mikla áhuga á bókum var hann mikill „göngugarpur" og fór allar sínar ferðir fótgangandi ef hann mögulega gat enda þekkti hann borgina sína, Reykjavík, hús- in, götumar, söguna alla, eins vel og lófann á sér. Það væri svo ótal- margt annað sem ég gæti sagt um hann afa minn en læt hér staðar numið. Ég sakna þess að fá ekki að njóta hans lengur og það er stórt skarð höggvið í fjölskylduna við fráfall hans. Þess verður langt að bíða að við getum sætt okkur við það að hann skuli vera farinn frá okkur og það svona fljótt. Hvfli hann í friði um eilífð alla. Palli. Tengdafaðir minn Páll Líndal lést að heimili sínu að Bergstaðastræti 81 hér í borg laugardaginn 25. júlí sl. Ég kynntist Páli fyrst fyrir um það bil tólf áram þegar Bjöm eigin- maður minn kynnti mig fyrir honum. Ég fann strax við okkar fyrstu kynni að þar fór maður sem átti ekki sinn líka. Hann var geysilega vel að sér og eftir hann liggur mikið og merki- legt ævistarf. Eg mun ekki rekja það hér en get þó ekki látið hjá líða að minnast þess að eftir hann liggur fjöldi rita, mörg þeirra vora um sögu Reykjavíkur enda var hann afburða- fróiður á því sviði. Páll var sagnabrannur og hafði stálminni. Hann var skarpgreindur og málhress með afbrigðum og þar sem þessir hæfileikar hans komu saman auk listrænnar innsýnar hans þá varð útkoman sú að í hans húsi leiftraði umhverfið af áhrifum hans. Hann kunni óteljandi sögur af mönnum og málefnum og var mikill húmoristi. Það var ekki það málefni tekið á dagskrá hjá fjöl- skyldunni að hann kynni ekki sögur því máli tengdu. Oft vora það gam- ansögur sem þó vora með graf- alvarlegu ívafi. Tengdafaðir minn sagði reyndar oft að það væri mis- skilningur að telja að gamansögur um menn og málefiii væra bara inn- antómt grín. Hann vitnaði í því sam- bandi stundum til orða danska skáldsins Piet Hein sem orðaði það svo: Den som kun tar spög for spög og alvor kun alvorligt, han og hun har faktisk fattet begge dele darligt. í rauninni er erfitt að lýsa því andrúmslofti sem ríkti í fjölskyldu- boðum þar sem Páll var viðstaddur. Hann á ættir að rekja til manna og kvenna sem verður ekki orða vant. í þeim boðum varð aldrei þögn. Þar voru ætíð líflegar umræð- ur þar sem fróðleikur Páls um alla skapaða hluti ttaut sín tíl hins ítr- asta. Hið eina sem stöðvað gat umræðuna vora tfmamörkin sem boðunum voru sett. Oft var þó talað ttiikið og letígi úti á tröpnum meðan verið m að kveéya; ig heid að letígstu kveðjustutídit sem ég hef átthafí verið á tFöþþUHUHi að öetg- ötaðaötfsgti 81: ttjá Páli vat ekkert itíflatítéfflt tal til, aiit eetfl hafltí iét M §éf fata teflfdiet á eiflhvetfl hátt reynslu og fróðleik. Páll var ekki mikið fyrir íþróttir eða útivist í þeim skilningi sem nú til dags er lagt í þau hugtök. Hans iþrótt fólst í því að spássera um göt- ur borgarinnar einkum gamla mið- bæjarins en af því hafði hann mikla unun og tók reyndar að sér slíka spássértúra með hópa fólks þar sem hann sagði sögur af húsum og fólki sem í þeim hafði búið enda kunni hann sögu hvers húss er þar stóð. Heimili tengdaföður míns bar merki um áhugamál hans, bóklest- urinn og því að hafa í kringum sig gamla muni einkum þá sem tengd- ust fjölskyldu hans sem honum var afar hugleikin. Hann átti mikið bókasafn og var sárt um bækumar sínar eins og góðra bókasafnara er háttur. Heimilið bar yfirbragð festu og virðuleika sem vora eiginleikar sem Páll hafði í ríkum mæli. Hann var maður af gamla skólanum sem leið best heima hjá sér. Heima sinnti hann líka ritstörfum sínum og öðr- um fræðistörfum. Þar naut hann sín vel. Ég minnist hans í stofunni heima hjá sér á Bergstaðastræti. Hann sat venjulega í húsbónda- stólnum sínum með bömin sín og bamabömin í kringum sig á tylli- dögum. Hann miðlaði þá af fróðleik sínum og gamansemi. Athyglina átti hann óskipta. Hann hafði glöggt auga fyrir persónueinkenn- um bamabamanna og hafði stund- um dálítið gaman að velta því fyrir sér hvort og hvemig þau væra lík sér. Hann var lítt hrifinn af miklum ærslum enda fannst mér alltaf að bömin yrðu stilltari og prúðari en ella í návist hans. Honum var oft mjög skemmt ef honum var sagt frá hnyttnum tilsvöram þeirra eða atburði sem túlka mætti á þann hátt að athyglisgáfa bamsins væri í betra meðallagi. Hann gerði þær kröfur til þeirra að þau þekktu umhverfi sitt og gladdist ef hann varð var við að þau þekktu hinar merkari byggingar eða kennileiti borgarinnar. Eg vil að lokum minnast elskulegs tengdafóður míns af hiýju og þakk- læti. Hans skarð verður ekki fyllt. Sólveig Guðmundsdóttir. „Sorgin gleymir engum“ era orð að sönnu. Það var árið 1972, sem leiðir okkar Páls lágu fyrst saman. Frá þeim tíma gegndi hann ákveðnu hlutverki í lífi mínu og systra minna. Þótt ekki hafi ræst úr öllum draumum og óskum okkar Páls á samveraskeiði okkar áttum við eitt mikilvægt sameiginlegt, minn besta vin, bróður minn Bobba. Hann kveður nú föður sinn hinstu kveðju. Honum vil ég segja, að hann stend- ur ekki einn í sorg sinni. Hann á mína dýpstu samúð svo og systkini hans Þórhildur, Jón og Bjöm. Megi þau bera sorg sína sem best. Hvert andartak verður að ári. Hver einasta hugsun að sári. Hver tilfinning að tári. (D.S.) Stefán J.K. Jeppesen. Fáein kveðjuorð frá Sam- bandi íslenzkra sveitarfé- laga Páll Líndal var kosinn í stjórn Sambands íslenzkra sveitarfélaga árið 1963 og var varaformaður þess til 1967. Á því kjörtímabili gegndi hann starfi formanns öðra hverju í veikindaforföllum þáverandi for- manns og varð síðan formaður þess frá 6. febrúar 1967 til ársins 1978. Hann átti öðrum fremur þátt í að móta stefnu og starfshætti sam- bandsins þennan hálfa annan ára- tug, en á þvi tímabili voru nær all- ir þeir málaflokkar, sem mestu varða um málefni sveitarfélaganna, teknir til uppstokkunar og endur- mats. Áð peitti verkefnum vann Páll ósleitilega, og í flestum tilvikum í náttU samstarfi fUlltrúa sveitarfé- laganna og ríkisvaldsins, og naut sín þar vel mikil þekking Páls, hæfhi og íægttí VÍð að koma málum fram. Mittfyföta veFlteftiaflHa, aeffl tak- a§t Iflirfti i við, ef Páll hafði verið koöititt vataforitíaðuf gatflbaHdaiHö, m etidufskoðutí ökiflulapiagafltía M áfiflu 1981: Páli fiafði vewð faU in þessi endurskoðun í samstarfi við skipulagsstjóra ríkisins, og lagði í það verk mikla alúð, enda varð fremur um að ræða endursamningu en endurskoðun. Er skipulagslögin höfðu öðlazt gildi, var að tillögu hans komið á samstarfí milli sam- bandsins og skipulagsstjómar ríkis- ins um kynningu á hinum nýju lög- um. í því skyni var efnt til fjögurra daga ráðstefnu, þar sem leiðbeint var um meðferð skipulagsmála og í leiðinni fjallað um byggingarmál og aðra skylda málaflokka, s.s. branavamir og húsnæðismál. Til þess að koma betur á framfæri þeim fróðleik, sem þama féll til, vora framsöguerindin gefin út í rit- röð sambandsins, Handbók sveitar- stjóma. Ráðstefna þessi markaði þáttaskil í starfi sambandsins að því leyti, að hún var upphaf að reglubundnu ráðstefnuhaldi þess um hina einstöku málaflokka, og hið sama á við um útgáfu handbóka og fræðslurita, en hvorir tveggja þessir þættir urðu veigamiklir í starfi sambandsins um langt árabil. Þá skrifaði Páll oft um skipulags- og byggingarmál í tímarit sam- bandsins, Sveitarstjómarmál, sem stórefldist á þessu tímabili að vöxt- um og útbreiðslu, og minnti þar oftlega á mikilvægi góðs skipulags. Mun óhætt að fullyrða, að stakka- skipti hafi orðið í þessum málum um land allt um þessar mundir, og má víða sjá þess merki á landinu. Páll átti sæti í skipulagsstjóm rík- isins, meðan hann var formaður sambandsins. Hann átti á sínum tíma aðild að samningu greinargerð- ar með Aðalskipulagi Reykjavíkur 1962-83, sem lagði granninn að frekari skipulagsvinnu sveitarfélag- anna í landinu. Síðar skrifaði hann bókina Bæimir byggjast, yfirlit um þróun skipulagsmála til ársins 1938, sem skipulagsstjóri ríkisins og Sögu- félagið gáfu út í tilefni af sextíu ára afmæli fyrstu skipulagslaganna. í framhaldi af einni ráðstefnu sambandsins, sem fjallaði um um- hverfisvemd, átti sambandið aðild að stofnun félagssamtakanna Landvemdar, og það leiddi af sjálfu sér, að Páll valdist til setu í náttúra- vemdarráði, þar sem hann starfaði lengi m.a. að friðlýsingarmálum. Á sviði fræðslu- og menningar- mála markaði Páll sín spor, enda mikill áhugamaður um sögu og menningarmál. Hann átti af hálfu sambandsins sæti í nefnd, er samdi grannskólalögin frá 1974, sem fólu í sér aukið sjálfræði sveitarfélaga í skólamálum, og hann var til kvaddur, er lög um almennings- bókasöfn frá árinu 1975 vora undir- búin og samin reglugerð um þau. Þá lét hann sig sérstaklega varða húsafriðun og skrifaði ítrekað um friðun gamalla húsa og annarra menningarverðmæta. Það var engin tilviljun, að í formannstíð Páls hélt sambandið ráðstefnur um sveitar- stjómir og menningarmál, um húsa- friðun og almenningsbókasöfn og allar þijár á tveimur áram. Á vettvangi sambandsins endur- speglaðist áhugi Páls á sögu og menningarmálum meðal annars í því, að sögunefnd sambandsins, sem hann átti sæti í, fékk Lýð Bjöms- son, sagnfræðing, til að skrifa Sögu sveitarstjómar á íslandi, sem Al- menna bókafélagið gaf út í tveimur stóram bindum á áranum 1972 og 1979. Þá skrifaði hann grein í Sveit- arstjómarmál um skjaldarmerki, sem jafnframt var sérprentuð sem smárit, og hann tók saman fræðslu- rit, sem þýtt var á ensku um sveitar- stjómarmál á íslandi. Fleira mætti nefna af slíkum skrifum. Sem starfsmaður Reykjavíkurborg- ar mun hann án efa hafa átt þátt í samstarfi borgarinnar og Sögufé- lagsins um útgáfu bókanna Kaup- staður i hálfa öld 1968, Bæjarstjóm í mótun 1971, Reykjavík I 1100 ár 1974 og Reykjavik, miðstöð þjóðlifs 1977. Tvö síðarnefndu ritin voru erindi á ráðstefnum um sögu Reykjavikur, og öll eru þau i ritröð- inni Safn til sögu Reykjavíkur. Sjáifur samdi Páll aðgengilega bók um Reykjavík, ttin fortíti tún, ReykjáVik i ellefu aldir, sem kom ót á þjéðfiáttðaiáHHU lttf4: í saffla atída et hiHH viðamikli kafli um tteykjavík í .hafldið bitt íaiafld, ritt ÁHiai1 eg öttyp: Á 8ÖÖ m aft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.