Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 13 Eyðingarmáttur áfengis eftir Helga Seljan „Það er engin þörf að kvarta þegar blessuð sólin skín.“ Þannig kvað skáldið og víst munu kvartanir og kveinstafir vera fjær mannshuganum í sumarins sól- guilnu dýrð, þegar allt Ijómar af lífi. En margt ber til að húmskugg- ar hugans víkja ekki fyrir vermandi skini sólar. Sá sem situr á starfs- vettvangi á sólríkum sumardegi getur bezt um það borið. Þar er margt sem manninn hijáir og marg- ar áhyggjur sem að sækja. Sumir er hingað leita, öryrkjar til margra ára, án annars tekjugrunns en tryggingabóta, hafa aldrei megnað að byggja upp eigin eignastöðu, sumir þeirra hafa jafnvel áhyggjur af því á hveiju skuli lifa síðustu viku mánaðarins. Hins vegar fer flest af þessu fólki fjarska vel með litla fjármuni, en ekkert óvænt út- gjaldaatriði má upp koma, svo allt fari ekki úr skorðum. Þó fer ekki milli mála hvað mest raskar afkom- unni hjá sumu af þessu fólki, en það er þegar áfengið kemur við sögu. Nú skal það fyrst af öllu fram tekið að meðal öryrkja almennt er áfengisneyzla áreiðanlega minni en margra annarra þjóðfélagshópa. Hitt er svo engu að síður alvarlegt að í alltof mörgum tilfellum er áfengið örlagavaldur að meira eða minna leyti. Um það liggja hins „Og í einni andrá verð- ur manni morgunljóst að án áfengis hefði ævibraut viðkomandi allt önnur orðið, örork- an tæplega til staðar.“ vegar litlar sem engar upplýsingar, þó aðrir örlagavaldar séu vandlega skráðir. Ýmsir þeirra sem hingað koma og rekja sínar raunir, oft ólitl- ar, nefna til ýmis atriði til útskýr- ingar á afleitri stöðu, heilsufars- legri sem fjárhagslegri, en í lokin er svo lætt að því, sem skýrir margt, þ.e. að áfengið hafi verið fastur fylginautur um fyölda ára, sumir hafa látið leiðir skilja en aðrir ekki. Og í einni andrá verður manni morgunljóst að án áfengis hefði ævibraut viðkomandi allt önnur orð- ið, örorkan tæplega til staðar. Af þessum sögum mætti rekja mörg dæmi, en aðeins á einstaka tæpt. Kona greinir frá sambúðarað- ilum sem töldu áfengi allra meina bót, hún ánetjast hugsunarhætti þeirra smám saman, öll þijú eru þau í dag öryrkjar, uppgefin ástæða örorku er til staðar, en hefði hvergi verið hreinn örlagavaldur, ef ekki hefði komið til þáttur áfengisins, allsráðandi um árafjöld. Ungur maður berst við alvarleg- an sjúkdóm, sem hefur orðið honum Salome sagði að ofangreint sam- komulag þingflokkanna byggðist fyrst og fremst á því að flýta þing- inu fram til 17. ágúst í staðinn fyr- ir 1. október. Samkomulag væri um að stefnuræða forsætisráðherra og framlagning fjárlagafrumvarpsins yrði á hefðbundnum tíma í október. Jafnframt er stefnt að því að þing- hlé verði síðari hluta septembermán- aðar. Þingið sem kemur saman þann 17. ágúst er reglulegt þing, að sögn Salome, og hefst með hefðbundnum hætti, eins og í októbermánuði væri. Þannig mun þinghald heíjast á kjöri í fastanefndir, lqöri forseta Alþing- is, forsætisnefndar o.s.frv. „Það er ekki talað neitt um það í þessu samkomulagi að ekki megi leggja fram önnur frumvörp, enda Helgi Seljan örorkuvaldur sannanlega. Hans vandamál í dag er hins vegar ekki síður áfengisneyzla, sem hann ekki ræður við. Ástæðan í upphafi: að fylgjast með, fá félagsskap, bægja kvíða fötlunar frá. Nú hefur allt þetta snúizt upp í andhverfu sína og ungi maðurinn biður mig lengstra orða að koma áeggjan sinni á framfæri: Aldrei að trúa því að áfengið bæti eða kæti. Það verður aðeins alvarleg ábót og þrúgandi, gerir ástandið enn óbærilegra, eyk- ur á örorkuna og áhrif hennar, gerir menn að þrælum. Sterk boð en af einlægni alvörunnar flutt. Þessi boð unga mannsins rifja upp annars konar dæmi af ungum manni, sem ætlaði að losna undan ofurvaldi feimninnar með áfenginu, en réði ekki neitt við neitt og er orðinn flak í dag. Hann kvaðst á dögunum vera að fara inn á Vog, þetta gengi ekki, ef hann ætti að lifa eitthvað lengur, en þó var hans beiðni aðeins ein: Fá lán fyrir flösku, svo hann færi a.m.k. ekki ófullur inn á Vog, enda kvað hann það allt í lagi frá þeirra hálfu, er þar réðu. Hvað sem þeim órum líð- ur, þá var ánauðin slík, að eftir að ákvörðun hafði verið tekin um með- ferð til að fá lífi haldið, þá komst ekki annað að en nýta síðustu augnablikin í ógleymi ofurölvunar — eitt skref áfram til þeirrar glötun- ar sem hann var sjálfur að lýsa. Því miður einstakt dæmi af alltof mörgum. Stuttur pistill leyfír ekki langa upptalningu, en að lokum skal tek- ið dæmi af konunni sem kom hing- að og hafði allt á homum sér, trygg- ingakerfið var alónýtt, lífeyrissjóð- imir ræningjabæli, samfélagið rotið og spillt, mannfólkið samansafn úrþvætta. Saga hennar var svo sem ekki sú fegursta, en um orsakir og ástæður spurt var ósköp fátt um önnur svör en „bara öðram að kenna". En öll þessi raunasaga átti sér svo skýringu, þegar allt kom til alls. „Svo hef ég náttúralega drakkuð eins og óviti í fiölda ára“. Og þegar farið var aftur til þess tíma, þegar sú óvitadrykkja hafði hafíst, þá kom í ljós fullhraust, sterkbyggð og vel menntuð ung kona. Þá varð mér að orði: „Mikill er eyðingarmáttur áfengisins", og við það breyttist allt og loks var hægt að skella skuldinni á aðal- sökunautinn. Það má hins vegar til ærinnar umhugsunar verða að sam- félagið viðurkennir svo sárasjaldan áfengið sem sökunaut mannlegra meina, hvað þá sem eyðingarafl. Máske er ástæðu afneitunar að leita í því falska mati, þeirri ofdýrkun sem þar er að finna. Hver einstakur tekur þar af mik- ið mið og nær því ekki áttum. Höfundur er félagsmálafulltrúi ÖBÍ. EES-samningarnir hafa forgang á þingi SALOME Þorkelsdóttir forseti Alþingis segir að samkvæmt skriflegu samkomulagi allra þingflokka frá því i vor, sé alveg skýrt að þegar þing kemur saman þann 17. ágúst næstkomandi verði fyrst og fremst fjallað um samninginn um evrópskt efnahagssvæði. „Það er auðvitað ekki hægt að banna mönnum að leggja fram frumvörp, og svo þarf nú að fjalla um bráðabirgðalögin, eins og kunnugt er,“ sagði Salome í samtali við Morgunblaðið, „en það er alveg Ijóst að þetta þing er fyrst og fremst haldið vegna EES-samninganna.“ held ég að það gengi varla. Ef önn- ur framvörp koma fram verður tíminn bara að leiða í ljós hvað hægt verður að taka til umræðu á þessu þingi,“ sagði Salome. Salome var spurð hvort það væri þá ólíklegt að þingið kæmi til með að fjalla um framvarp um breyting- ar á lögum um Hagræðingarsjóð, ef slíkt framvarp kæmi fram á þing- inu: „Ég get ekki svarað því á þess- ari stundu. Við hljótum að skoða það, ef slíkt mál kemur upp. Það eina sem ég get sagt er að þingið er kallað saman þann 17. ágúst til þess að fjalla um EES-samningana og þeir hljóta þá að hafa algjöran forgang í störfum þingsins,“ sagði Salome Þorkelsdóttir forseti Alþing- HEIMILISVORU ,TILBOÐ MA N AÐARIN S Djúpsteikingarpottur Áöur 9.270 • Nú 7.750 Ljósaperur 10 stk. Áöur 778 • Nú 621 Olíulampi á vegg Áður 1.680 • Nú 1.342 Veióistöng og hjól Áöur 2.860 • Nú 2.288 Gólfhreinsir Áöur 311 • Nú 249 Gólfmoppa 40 cm Áöur 1.493 • Nú 1.170 B 'IB S'íðBÖ í KRINGLUNNI I fy.V >: I -J ' lambakjöt á funheitu grilltilboði • lambahjöt á funheitu grill'tilboði • lambakjöt á funheitu grilltilboði • lambakjöt á funheitu grilltilboði N A T R K U R Kryddlegnar fram- hryggjarsneiðar, rauð- vínslegið lambalæri, kryddlegnar grillsneið- ar. Notið tækifærið, ger- ið kjarakaup og setjið lambakjöt á funheitu grilltiiboði - beint á MEÐ MINNST 15% AFSLÆTTI gmuö. bukjfll Ú ftíhktHtí gHlltilltöél * lambakjðl a filHhtilU gHlUitboði • laHibákjöt á funheitu gtilltilboSi • lambakjöt á funheitu gHlltilboði r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.