Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.08.1992, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 1992 27 ♦ Saga/Kontiki, stærsti seljandi íslandsferða í Sviss: Fyrirhugað að fljúga beint frá Sviss til Egilsstaða NÝLEGA urðu þær breytingar í svissneskum ferðaskrifstofu- heimi að Dr. Walter Hugentobler, eigandi ferðaskrifstofunnar Kontiki Reisen, keypti öll hlutabréf í ferðaskrifstofunni Saga Reisen, sem áður var í einkaeign Beat Iseli. Þessar breytingar snerta ísland að því leyti að Saga Reisen hefur um nokkurra ára skeið flutt fjölda ferðamanna frá Sviss til íslands, síðustu árin í beinu flugi bæði til Akureyrar og Keflavíkur, en farþegar í þessum Ieiguferðum urðu á síðasta ári á fjórða þúsund talsins. Kontiki Reisen hefur einnig haft íslandsferðir á sínum snærum, en í allmiklu minna mæli. Meginhluti ferða fyrirtækisins hefur verið til Skandinavíu. Beat Iseli verður áfram fram- kvæmdastjóri Saga Reisen, sem rekin verður sem sjálfstæð eining. Hann telur mikilvægt að leggja áherslu á ferðamennsku á norð- lægum slóðum, en helstu vanda- málin séu hátt verðlag og takmark- aður skilningur og samstarfsvilji ýmissa hagsmunaaðila. Beat Iseli segist stefna að því að hefja bein- ar flugferðir frá Sviss til Egils- staða næsta vor. Samkvæmt sameiginlegri fréttatilkynningu sem gefin var út við sameininguna segir að Beat Iseli, til þess tíma eigandi Saga Reisen í Miinsingen, hafi selt Kont- iki Reisen í Wettingen öll hlutabréf í fyrirtæki sínu og þannig sé Kont- iki/Saga samsteypan orðin stærsti seljandi Norðurlandaferða í Sviss. Fram kemur að Beat Iseli verði áfram framkvæmdastjóri Saga Reisen og eigi sæti í stjóm fyrir- tækisins en Dr. Walter Hugentobl- er verði stjómarformaður beggja fyrirtækjanna, sem framvegis verði rekin sem sjálfstæðar eining- ar, en í náinni samvinnu. í Svissneskum blöðum er fjallað um þessa frétt sem enn einn sam- runann á svissneskum ferðaskrif- stofumarkaði, en félögum í Sam- tökum svissneskra ferðaskrifstofa hefur fækkað talsvert á síðasta ári. Fram kemur að allt starfsfólk beggja fyrirtækjanna haldi störf- um sínum, en hjá Saga unnu 13 manns og hjá Kontiki 15, en heild- arársvelta Kontiki/Saga sé um 25 milljónir svissneskra franka. Við þennan samruna sé orðinn til einn stærsti aðili í Sviss, sem selji ferð- ir til íslands og Norðurlandanna. Helstu keppinautar séu ferðaskrif- stofurnar Kuoni, Jelmoli og Hotel- plan, en sú síðastnefnda hefði áður sóst eftir að kaupa Saga Reisen. I viðtali Morgunblaðsins við Beat Iseli, þar sem hann var stadd- ur á Akureyri kom fram að hann væri afar ánægður með þessa breytingu sem orðin væri. Saga Reisen og Kontiki Reisen væru álíka gömul fyrirtæki, Saga 15 ára og Kontiki 14. Ársvelta fyrirtækj- anna hefði verið svipuð og þau hefðu bæði Norðurlandamarkaði, Saga Reisen að vísu með meginá- herslu á íslands- og Grænlands- ferðir en Kontiki Reisen hefði flutt fólk að mestu til Skandinavíu. Fyrirtækin tvö hefðu verið heldur litlar rekstrareiningar, með tilliti til framtíðar, en með samrunanum teldi hann að um væri orðið að ræða hæfiiega stærð sem yki á öryggi í rekstri. Auk þess kveðst Iseli bera fullt traust til Walters Hugentobler, enda sé hann afar góður stjórnandi og skipuleggj- andi, en Hugentobler og Iseli eru jafnaldrar. Iseli sagði að undanfarin tvö ár hefði annað veifið flögrað að sér að selja Saga Reisen. Það hefði komið sér á óvart þegar Hug- entobler hefði falast eftir kaupun- um. Hann hefði álitið að þetta væri stærra dæmi en svo að hann gæti ráðið við það, en það hefði þó gengið á tiltölulega stuttum tíma. „Það hafði áður komið til tals að fyrirtæki okkar ynnu sam- an. Ég tel að við höfum báðir ver- ið afar áberandi á markaðinum, verið með mestar nýjungar og ein- faldlega verið bestir á okkar sviði. En við vorum keppinautar og því hefði mátt búast við að samvinna leiddi til togstreitu. Þess vegna er þessi kostur miklu betri, að sam- eina fyrirtækin undir einni yfír- stjórn en halda rekstrinum áfram þannig að sérþekking hvors um sig rgóti sín. Ég hef verið spurður af hverju ég hafi selt, hvort það hafi verið mér nauðsynlegt, en það var ekki svo. Hins vegar var af mörgum sökum heppilegt fýrir mig að selja og ég tel mig hafa komist að afar góðum samningum. Hugentobler er eigandi og stjórnarformaður fyrirtækisins en ég held áfram að vera framkvæmdastjóri Saga Reis- en og get því haldið áfram starfi mínu við að byggja upp og þróa íslandsferðimar. Það er mér af- skaplega mikilvægt því mér þykir afar vænt um ísland og hingað er gaman að koma með góða ferða- Beat Iseli framkvæmdastjóri Saga Reisen. menn. Eftir samrunann erum við miklu sterkari en áður og með þessu sparast auk þess mikið fé með því að sameina rekstur, ferða- kynningar, gerð auglýsingakvik- mynda og fleira. En við stefnum að því að gefa út aðskildar ferðaá- ætlanir, enda er viðskiptamanna- hópur Saga og Kontiki talsvert ólíkur." Iseli sagði að viðskiptavinir Saga Reisen væru að miklum hluta fullorðið fólk og ráðsett en mikill hluti viðskiptavina Kontiki Reisen væri ungt fólk. Það ætti sér meðal annars skýringar í því að það fyrir- tæki hefði orðið til á sérkennilegan hátt. Rætur þess lægju í.skáta- flokki sem tók til við að ferðast og bytjaði smátt, en ennþá væri mikið um að ungt fólk ferðaðist með Kontiki Reisen með rútum sem fyrirtækið ætti. Bæði hafa fyrirtækin einbeitt sér að norðurferðum og munu gera það áfram, enda sagðist Iseli telja að sá ferðakostur væri afskaplega mikilvægur. Suðurferðir væru orðnar of venjulegar og sífellt minna spennandi. Auk þess að leggja megináherslu á íslandsferð- ir með Grænlandsferðum til viðbót- ar sagði Beat Iseli að Saga Reisen hefði á sinni könnu ferðir frá Sviss til írlands og Skotlands. Kontiki Reisen legði megináherslu á ferðir til Noregs, Svíþjóðar, Finnlands og Danmerkur og auk þess hefði fyrirtækið ferðir til Eystrasalts- ríkjanna. Því væri ekki að leyna að á þessu ári hefði orðið nokkur samdráttur í ferðum Svisslendinga norður á bóginn, en það væri tíma- bundið ástand. í Sviss væri um þessar mundir talsverður efna- hagslegur samdráttur sem tæki tíma að komast yfir. Margir sem hygðu á ferðir til íslands og Norð- urlanda þyrftu af þessum sökum og vegna hárra skatta að halda að sér höndum, fresta ferðum og bíða um stund. Við þetta bættist að verðlag á Norðurlöndunum öll- um væri afar hátt. Á íslandi væru matvæli sérstaklega dýr og verðlag hjá bílaieigum ótrúlega hátt, svo dæmi væri tekið. Hann sagðist þó trúa því að með samningum mætti komast að betri kjörum og þannig væri meðal annars unnt að auka straum fólks til landsins. Og Iseli var ekki í vafa um að með sameig- inlegum kröftum Saga Reisen og Kontiki Reisen mætti með tíman- um Qölga að mun þeim ferðalöng- um sem til íslands kæmu. Að sögn Iseli er ýmsum erfíð- leikum bundið að halda gangandi ferðaskrifstofum sem einbeita sér að ferðum á norðurslóðir vegna þess hve hefðbundinn ferðamanna- tími er stuttur, og margir eigi erf- itt með að skilja hvernig unnt sé að haida fyrirtækjum eins. og Saga/Kontiki gangandi. Þó sagði hann að þetta hefði gengið hingað til og ýmislegt væri mögulegt að gera til að lengja tímabilið. Hjá Kontiki Reisen hefðu til dæmis síð- astliðinn vetur verið gerðartilraun- ir með vetrarferðir, hundasleða- ferðir til Lapplands, og fáum hefði litist á blikuna. Reyndin hefði þó verið sú að 200 manns hefðu farið í þessar ferðir og þær gefíst vel og íhugandi að reyna slfkt víðar. Beat Iseli sagði að jafnan væri þægilegt og gott að skipta við ís- lendinga. Þó væri ekki allt á eina bókina lært. „Ég hef í mörg ár haft áhuga á samstarfí við Flug- leiðir, en af einhveijum sökum hafa Flugleiðamenn aldrei sýnt neinn áhuga á samstarfi við mig. Þeir hafa alltaf litið á mig sem keppinaut, en það er ekki rétt hjá þeim, ég hefði getað orðið góður viðskiptavinur. Þegar ég fór að fljúga beint frá Sviss til Akureyrar var það einfaldiega vegna þess að Flugleiðir vilja ekki fljúga beint til Akureyrar, og það skil ég ekki. Það hlýtur að vera mikilvægt að geta flogið beint frá útlöndum til fleiri en eins staðar hér á landi. Ég get nefnt þér dæmi um mann sem þurfti að komast frá Hamborg til Akureyrar. Hann kom til mfn til Ziirich og flaug þaðan beint til Akureyrar. Ef hann hefði farið með Flugleiðum hefði hann þurft að fljúga til Frankfurt og þaðan til Keflavíkur, gista eina nótt í Reykjavík og fljúga daginn eftir til Akureyrar. Þetta á ekki að þurfa að vera svona flókið. Ég get líka nefnt sem dæmi um samskipti mín við Flugleiðir að um mánaðamótin mars-apríl ákvað ég að athuga hvort Flugleiðir vildu kaupa Saga Reisen. Við höfðum samband við Flugleiðamenn og fórum til' Reykjavíkur í apríl, en þeir virtust ekki hafa minnsta áhuga á að íhuga málið, hvað þá annað. Ég undraðist það því þama hefðu Flugleiðir með einföldu móti getað náð viðskiptum sem svara 5 millj- ónum svissneskra franka, um það bil 200 milljónir íslenskra króna á ári. Það var ekki að sjá að mennim- ir hugsuðu í svona smáum upp- hæðum." Nú er framtíðin ráðin og Beat Iseli heldur áfram að skipuleggja íslandsferðir Saga Reisen sem er þá hluti eða deild í Saga/Kontiki. Hann sagðist stefna að breytingum strax á næsta ári. í stað þess að fljúga eins og nú, eina ferð í viku til Akureyrar og tvær til Keflavfk- ur yrði til að byija með farin ein ferð í viku til þriggja staða, Akur- eyrar, Keflavíkur og Egilsstaða. Með því að bæta Egilsstöðum í hópinn sköpuðust fleiri og skemmtilegir möguleikar á skipu- legum skoðunarferðum um allt land, en þó yrðu Vestfírðir því miður útundan enn um sinn. Beint flug frá Sviss til Egilsstaða mundi auka ferðamannastraum á Aust- fjörðum og á norðausturhominu og vera hrein viðbót við feijufar- þegana með Norrönu. Spurður um framtíð ferðamála á íslandi og ferðamannastraum til landsins sagði Beat Iseli að á ís- landi væru möguleikar nær óþijót- andi, fegurð landsins og hrikaleiki náttúmnnar auk viðmóts fólksins, ailt þetta væri jákvætt og eftir- sóknarvert og fólk vildi koma aftur og aftur. „Hins vegar get ég ekki leynt því að það er ýmislegt annað sem veldur mér áhyggjum. Veröld- in er undir svo sterkum áhrifum frá fjölmiðlum og ýmsir hags- munahópar geta með tilstyrk þeirra valdið óbætanlegum skaða. Fólk er orðið svo viðkvæmt fyrir þessu. Þannig tel ég til dæmis tölu- verða hættu á því að það gæti skaðað ímynd Islands og meað annars komið niður á ferða- mennsku hér ef farið yrði að veiða hvali á ný. Það þarf ekki annað en að líta í kringum sig og sjá hvað er að gerast þessar vikumar, það eru skrifaðar langar og miklar greinar og búið til alls kyns efni sem er notað til að níðast á Norð- mönnum vegna ákvörðunar þeirra. Og það getur orðið erfitt að ráða við tilfinningalega afstöðu fólks ef á annað borð er stigið eitthvert óheillaskref. En hvort sem það tengist hvalveiðum eða ekki, ef íslendingum tekst að halda ímynd landsins heilli og hreinni þá er ástæðulaust að óttast um framtið- ina í ferðum fólks hingað." Sverrir Páll Steinakrýl Fyrir þá sem vilja mála sjaldan en gera það vel Þú vandar til verksins, þegar þú málar húsið með Steinakrýli frá Málningu hf. Stein- akrýl veitir steininum ágæta vatns- vöm og möguleika á að að „anda“ betur en hefðbundin plastmálning. Viðloðun Stelnakrýls er gulltrygg og því getur þú einnig notað það sem grunn undir Kópal-Steintex. Þú getur málað mcð þessari úrvalsmálningu við lágt hitastig, jafnvel i frosti. Hún þolir vætu eftir um eina klst., hylur fullkomlega í tveimur umferðum, veðr- unarþol er frábært og litaval gott. 4 *■ J m S N»st þegar þó sérð ftllpga mnlað hós = kynnm þér þá hvaðan málningin ar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.