Morgunblaðið - 12.08.1992, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
Mikil aðsókn að versl-
•m
nnum á sunnudögum
NEYTENDUR virðast taka vel þeirri nýbreytni húsgagna- og mat-
vöruverslana á höfuðborgarsvæðinu að hafa opið á sunnudögum,
t.d. komu yfir sex þúsund manns á 4 tímum í verslun IKEA síð-
asta sunnudag. Formaður Neytendasamtakanna tekur vel í þessa
auknu þjónustu við neytendur.
Gestur Hjaltason, verslunar-
stjóri IKEA, sagði að síðasta
sunnudag, hefðu 6.300 manns
komið í verslun IKEA á fjórum
tímum. Þetta væri meiri aðsókn á
hvem klukkutíma en áður hefði
þekkst hjá versluninni. Gestur
sagði að mest hefði komið í IKEA
á einum degi um 17.000 manns
en þá hefði opnunartími yfir daginn
verið lengri. Að sögn Gests var
mikil sala. Hann sagði að það tíðk-
aðist víða í Evrópu að hafa verslan-
ir opnar á sunnudögum og væru
það miklir verslunardagar. Þessi
opnunartími gæfi allri fjölskyld-
unni tækifæri til þess að koma
saman og hún hefði rýmri tíma til
að versla. Að sögn Gests verður
opið á sunnudögum út ágúst en
síðan á að meta stöðuna. Ef niður-
staðan verður góð verður opið á
sunnudögum fram að áramótum
en lokað frá janúar til júlí. Gestur
sagði að ástæðan fyrir því að ekki
yrði opið á sunnudögum fyrri hluta
árs væri sú að fyrstu mánuðir árs-
ins væru daufir og síðan væri fólk
í sumarfríi. Hann sagði að þessi
lenging opnunartíma svaraði
kostnaði. Að sögn Gests hefur
starfsfólk- tekið vel í þessa ný-
breytni. Hann sagði að það yrði
að passa að ofgera ekki starfsfólki
en enginn væri skyldugur til þess
að starfa á sunnudögum.
Aðspurður um lengingu opn-
unartíma verslana sagði Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, að hann fagnaði auk-
inni þjónustu við neytendur og að
svo virtist sem neytendur kynnu
vel að meta þessa þjónustu. Hann
sagði að hann treysti á að sam-
keppni tryggði að verðlag héldist
í lágmarki. Neytendur kæmu ekki
til með að kaupa meira þó að búð-
ir væru opnar lengur en verslanir
hefðu af þessu tilkostnað. Jóhann-
es telur að markaðurinn muni leita
að jafnvægi þannig að þeir sem
bjóði lágmarksverð bjóði minni
þjónustu. Hann sagði að Neytenda-
samtökin hefðu ekki fengið neinar
athugasemdir eða ábendingar um
að lenging opnunartíma hefði haft
áhrif á verðlag. Jóhannes sagði að
lokum að hann hefði lengi verið á
þeirri skoðun að óeðlilegt væri að
stjómvöld ákvæðu opnunartíma
verslana, það ætti að vera val versl-
unarmanna og neytenda.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 12. AGUST
YFIRLIT: Fyrir norfian og austan land er dólítill hæðarhryggur en 995
mb lægð um 70 km suður af Hornafirði, þokast austur.
SPÁ: Hæg breytileg átt. Léttskýjað með köflum víða um land, þó hætt
við skúrum í uppsveitum sunnanlands, og þokubökkum við norður- og
austurströndina. Hiti 8-18 stig, hlýjást suðvestan- og vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Hæg suövestlæg átt. Víða bjart veður um
norðan- og austanvert landið, en skýjað með köflum suðvestanlands.
Hiti á bilinu 9 til 16 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG. Suðaustan og sunnanátt um iand allt. Rigning
eða skúrir um mest allt land. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðanlands.
Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
/ / /
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
r * r
Slydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
<jfc
Skýjað
Alskýjað
V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v súld
= Þoka
stig..
FÆRÐ A VEGUM: <ki. 17.301 gær)
Allir helstu vegír um landið eru nú greiðfærir. Hlöðuvallavegur hefur
verið opnaður, þannig að fjallabílum er nú fært um ailt hálendið. Uxa-
hryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Vegna vegagerðar verður
þjóðvegur 1, Vesturlandsvegur milli Úlfarsfellsvegar og Skálatauns, lok-
aður frá kl. 19.00 í kvöld til kl. 7.00 í fyrramálið. Vegtfarendum er bent
á þjóðveg 430, Úlfarsfellsveg. Ferðalangar eru hvattir til þess að leita
sér nánari upplýsinga um færð áður en lagt er af stað í langferö til þess
að forðast tafir vegna framkvæmda. Upplýsingar um færð eru veittar
hjá Vegaeftirliti í sfma 91-631500 og í grænni Ifnu 99-6315.
Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
UMHEIM
að ísl. tíma
hitl veður
Akureyri 10 alskýjað
Reykjavík 13 léttskýjað
Bergen 13 skýjað
Helsinki 30 mistur
Kaupmarmahöfn 11 skýjað
Narssarssuaq 9 alskýjað
Nuuk 6 rigning
Ósló 19 skúr
Stokkhólmur 19 skúr
Þórshöfn 12 þoka
Algarve 30 léttskýjað
Amsterdam 10 ekkert
Barcelona 27 skýjað
Berlín 23 hálfskýjað
Chicago vantar
Feneyjar 28 léttskýjað
Frankfurt 24 skýjað
Glasgow 17 skýjað
Hamborg 21 skýjað
London 20 úrkoma
Los Angeles 21 mistur
Lúxemborg 20 skýjað
Madríd 28 léttskýjað
Malaga 26 heiðskírt
Mailorca 30 iéttskýjað
Montreal vantar
NewYork 26 mistur
Orlando 24 léttskýjað
París 22 skýjað
Madelra vantar
Róm 32 léttskýjað
Vín 25 skýjað
Washington 24 þokumóða
Wlnnipeg 12 skýjað
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Veðufstofa islands
(Byggt á vaðurspá kl. 16.1S (gær)
Gamla prestssetrið á Sauðanesi.
Morgunblaðið/SPB
Prestssetrið á Sauða-
nesi í endurbyggingu
ÞJÓÐMINJASAFN vinnur nú að viðgerðum á gamla prestbústaðnum
á Sauðanesi á Langanesi. Húsið var byggt af Vigfúsi Sigurðssyni
prófasti árið 1879 og yfirsmiður var Sveinn Brynjólfsson. Verkið
er unnið i samvinnu við heimamenn, sem hyggjast nota húsið sem
ferðamannamiðstöð og sýningarmiðstöð.
Júlíana Gottskálksdóttir, starfs-
maður Þjóðminjasafns, sagði húsið
einkum merkilegt sökum aldurs og
staðsetningar. „Á 18. öld var nokk-
uð byggt af steinhúsum hér á landi,
en svo varð um það bil aldarhlé.
Prestbústaðurinn á Sauðanesi var
byggður um það leyti sem aftur var
farið að byggja hús úr tilhöggnu
grjóti, á undan Alþingishúsinu."
Að sögn Júlíönu komst húsið í
vörslu Þjóðminjasafns árið 1989 frá
kirkjumálaráðuneyti, en í fyrra var
hafist handa um skoðun á því og
mat á ástandi. „Það er athyglisvert
við þessa framkvæmd að verkið er
að miklu leyti unnið í samvinnu við
heimamenn. Kostnaður mun nema
nokkrum milljónum, og er hann að
mestu borinn af Húsfriðunarsjóði.
Upplagseftirlit:
Uppeldi gefið út í
flestum eintökum
Upplagseftirlit Verslunar-
ráðs Islands hefur sent frá sér
staðfestar upplagstölur fimm
tímarita og fimm kynningarrita
frá mars tíl júní á þessu ári.
Þeir kynningarbæklingar og
þau tímarit sem hér eru talin
upp eru þau einu sem nýta sér
þjónustu upplagseftirlits Versl-
unarráðsins, og hafa þannig
fengið opinbera staðfestingu
löggilts endurskoðanda á upp-
lagi sínu.
Eitt tölublað af tímaritinu Upp-
eldi kom út á þessu tímabili í
10.000 eintökum, fjögur tölublöð
komu út af Heimsmynd og var
meðaltalsupplag þeirra 8.564 ein-
tök, fjögur tölublöð komu út af
Æskunni og var meðaltalsupplag
þeirra 7.114 og tvö tölublöð komu
út af 3T og var meðaltalsupplag
þeirra 6.500 eintök. Heilbrigðis-
mál komu ekki út á þessu tíma-
bili en á tímabilinu nóvember 1991
til júní 1992 komu út tvö tölublöð
og var meðalupplag þeirra 7.265
eintök.
Nesútgáfan sf. gaf út fímm
kynningarbæklinga á þessu tíma-
bili og þeir eru: Around Iceland í
29.600 eintökum, Around Reykja-
vík Summer ’92 í 25.000 eintök-
um, Á ferð um ísland í 25.270
Maðuriim
sem lést
við köfun
MAÐURINN sem lést við
köfun undan Vatnsleysu-
strönd á sunnudag hét Sigur-
grímur Vernharðsson.
Hann var 34 ára gamall,
fæddur 7. janúar 1958, var til
heimilis að Holti 2, Stokkseyr-
arhreppi, og lætur eftir sig eig-
inkonu og tvö böm.
eintökum, Complete Iceland Map
1992 í 40.000 eintökum og Comp-
lete Reykjavík Map ’92-’93 í
40.000 eintökum.
-----» ♦ ♦----
*
Akeyrsla tafði
110 farþega
TÆPLEGA 10 tlma seinkun varð
á brottför SAS-farþegaflugvélar
með 110 farþega innanborðs á
leið til Kaupmannahafnar á Kefla-
víkurflugvelli síðastliðinn mánu-
dag, eftir að lyftara hafði verið
ekið á væng hennar.
Að sögn Hafsteins Árnasonar,
stöðvarstjóra SAS í Leifsstöð, varð
óhappið er verið var að hlaða vélina
skömmu fyrir áætlaða brottför kl.
8.35 í gærmorgun. Skipta þurfti
um stykki í vængnum og kom það
með Flugleiðavél frá Ósló um kl.
16 sama dag.
-----» ♦ ♦----
Framtíð
smyrilsung-
anna óráðin
ÓVÍST er hvað gert verður við
smyrilsungana tvo sem fundust
í vesturbænum um helgina. Nátt-
úrufræðistofnun íslands á að
ákveða framtíð unganna en
vegna sumarfría starfsmanna
þar verður ákvörðun liklega ekki
tekin í inálinu fyrr en í lok ágúst.
Rannsóknarlögreglan fann ung-
ana laugardaginn 8. ágúst í íbúð í
vesturbænum og kom þeim í fóstur
í Húsdýragarðinum. Þegar blaða-
maður Morgunblaðsins grennslaðist
fyrir um framtíð unganna var á
báðum þessum stöðum vísað á Nátt-
úrufræðistofnun. Þar var einnig
fátt um svör þar sem fuglafræðing-
ar stofnunarinnar eru ekki væntan-
legir úr sumarfríi fyrr en í lok ágúst
og enginn við til þess að sinna
málinu.