Morgunblaðið - 12.08.1992, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
5
Norðfjörður:
Svínin látin ganga
úti allt sumarið
Ncskaupstad.
Á BÆNUM Seldal í Norðfjarðar-
sveit, þar sem stunduð er svína-
rækt, bleikjueldi og kornrækt,
er viðhöfð dálítið óvenjuleg að-
ferð við svínaræktina. Þar eru
svínin sett úr snemma sumars
og ekki tekin í hús fyrr en um
miðjan september. Þetta er ann-
að sumarið sem þessi háttur er
hafður á.
Að sögn ábúendanna í Seldal,
þeirra Stefaníu Gísladóttur og Gav-
ins Dears þarf minna fóður handa
þeim svona en ef þau væru í húsi.
Kjötið er fituminna og dálítið
dekkra, það mælist vel fyrir og er
eftirsótt. í sumar ganga 33 dýr úti
hjá þeim.
í vor hófu þau að rækta bygg
og hyggjast nota það í fóður handa
svínunum. Gavin er frá Ástralíu og
kom hingað upphaflega til að vinna
í fiski en ílengdist hér eins og fleiri
Eyjaálfubúar víðs vegar um landið.
- Ágúst
Gavin Dear lítur eftir svínun-
um úti á túni í Seldal.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Utanríkisráðuneytið:
Sjómannaaf-
sláttur óvið-
komandi EES
BJARNI Vestmann, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
kveðst ekki sjá að veiting sjó-
mannaafsláttar stangist á við
ákvæði samningsins um Evr-
ópskt efnahagssvæði. Frétt þess
efnis var höfð eftir viðtali
norska dagblaðsins Aftenposten
við formann dönsku sjómanna-
samtakanna í Morgunblaðinu í
gær. Bjarni kvaðst telja frétt
Aftenposten á misskilningi
byggða, þar sem ruglað væri
saman aðild að Evrópubanda-
laginu og aðild að samningnum
um EES.
„Fyrir það fyrsta felst ekki sam-
eiginleg framkvæmd á skatta-
stefnu í samningnum um EES,“
sagði Bjami. „Samningar okkar
um sjávarútvegsmál fela heldur
ekki í sér fríverslun. Einungis var
samið um niðurfellingu tolla á út-
flutningi okkar til bandalagsins,
og síðan gengið frá samningi um
gagnkvæmar veiðiheimildir. Þetta
þýðir að EB fellir ekki niður ríkis-
styrki í sjávarútvegi. Það heldur
sinni sjávarútvegsstefnu og við
okkar.“
—...--------
Flugvél í Elliðaárdal:
Fallist á
skýríngar
eigandans
LOFTFERÐAEFTIRLIT Flug-
málasljórnar hefur faliist á
skýringar eiganda flugvélar
sem talið var að hefði verið lent
ofarlega í í Elliðaárdal, móts
við svokallaða Borgarstjóraholu
í Elliðaám, á föstudagskvöld og
telur ekki ástæðu til aðgerða í
málinu.
Að sögn Grétars Óskarssonar
framkvæmdastjóra loftferðaeftir-
litsins kom eigandinn á fund hans
í gær og skýrði frá því að hann
hefði flutt vélina, sem er lítil eins-
hreyfilsvél, niður í dalinn frá heim-
ili sínu í Breiðholti til þess eins
að ræsa og prufukeyra hreyfil
hennar. Hins vegar hafi henni
aldrei verið flogið.
Að sögn Grétars hafði eitt vitni
tjáð lögreglu að það hefði séð flug-
vélina á göngustígnum með
hreyfilinn í gangi en annað vitni
hafði séð flugvél á lágflugi yfir
dalnum, en óljóst væri hvort um
sömu flugvél væri að ræða. Grétar
sagði að ekki væri því talin ástæða
til að draga skýringar eiganda
flugvélarinnar í efa og samkvæmt
því hefði hann ekki gerst brotlegur
við lög.
Ljósmynd Mats
Ertu óánægð/ur með árangur þinn í námi?
Viltu breyta til og fara í nýjan skóla?
Þá gæti Hlíðardalsskóli verið fyrir þig.
Hlíðardalsskóli er einka-heimavistarskóli fyrir
8., 9., og 10., bekk grunnsklóla, sem hefurverið
rekinn í 42 ár á kristilegum grunni.
Hlíðardalsskóli er staðsettur 45 km austur af
Reykjavík á friðsælum stað, þar sem gott er
að læra og ná árangri.
Á staðnum er:
□ Glæsilegt íþróttahús
□ Sundlaug
□ Aðstoð við heimavinnu
□ Gott félagslíf
Lögð er áhersla á:
□ Árangur i námi
□ Félagslegan þroska
□ Heilbrigðan lífsstíl
□ Uppbyggingu sjálfsaga
□ Algjört bann við notkun tóbaks,
áfengis og annarra vímuefna
GÓÐUR GRUNNSKÓLI LEGGUR GRUNNINN AÐ FRAMTÍÐINNI
Hringdu og við sendum þér frekari upplýsingar.
Símar 91-679260, 98-33607 og 98-33606.
Hlíðardalsskóli er starfræktur af S.D. aðventistum.
BQÐEIND SF:
AUSTURSTRONO 12
170 SELTJARNARNES
StMI 612061
FAX 612081
Skiltatiúsið
Skólavegur 7, 230 Keflavík
sfmi 92-11533
TffnJk átthaqa-
brautir í
gluggatföld hf
Faxafeni 14, símar 812340
og 813070
Melka ® HÓTEL
Quaiity Men'sWear KEFLAVÍK
NETAGERÐ
JÓNS HOLBERGSSONAR
Hjillahraunl 11, Halnartlrðl, aimi S4B4S
ÓSEYS«ö«AUr 6 • 815 lOHÍÁXSHÖf N
SÍWl C833475 S 9U032Í
OFNASMIDIA
SUÐURNESIAHF
M 9208