Morgunblaðið - 12.08.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
7
Norrænir verk-
menntakennar-
ar á Laugarvatni
Laugarvatni.
NORRÆNIR verkmenntakennarar luku um helgina 30 eininga fram-
haldsnámi í kennslufræðum sem staðið hefur í tvö ár á vegum nor-
rænu ráðherranefndarinnar. Lokanámskeiðið stóð frá 4. til 8. ágúst
í Menntaskólanum á Laugarvatni.
Starfshópur á vegum norrænu
ráðherranefndarinnar hefur frá
miðjum síðasta áratug starfað að
skipulagninu sameiginlegs náms fyr-
ir framhaldsskólakennara í verk-
menntagreinum. Helsta markmið
starfshópsins er að auka virðingu
verknáms í framhaldsskólum og hlúa
að stétt kennara sem sjá um þessa
kennslu með því að bjóða þeim sér-
hæft framhaldsnám í kennslufræð-
um verkmenntagreina. Þátttakendur
eiga að vera færir um að fram-
kvæma rannsóknir og meta þróunina
í heimalandi sínu og skapa tengsl
milli starfsmenntunar í skólunum og
atvinnulífsins umhverfís skólana.
Hið samnorræna nám hófst síðan
með þriggja vikna námskeiði í
Kongselv í Svíþjóð, síðan var tveggja
vikna námskeið í Bærum í Noregi
og það síðasta var síðan nú í eina
viku á Laugarvatni. Auk þess að
sitja fyrirlestra vinna þátttakendur
rannsóknarverkefni hver á sínu sviði
og lesa töluvert námsefni. Jafngildir
þetta nám þrjátíu námseiningum á,
háskólastigi, eða u.þ.b. einu náms-
ári. Yfírumsjón með náminu er í
höndum dr. Lennart Nilson við há-
skólann í Gautaborg.
Tuttugu og einn þátttakandi lýkur
nú þessu námi, fímm frá íslandi,
fímm frá Danmörku, fjórir frá Nor-
egi, íjórir frá Svíþjóð og þrír frá
Finnlandi. Meðan á náminu hefur
staðið hafa allir þátttakendur haft
leiðsögukennara í sínu heimalandi.
Á íslandi hefur Gunnar Finnboga-
son, lektor við KHÍ, leiðbeint ís-
lensku þátttakendunum sem koma
úr ýmsum áttum. Einn kennir á
matvælasviði í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti, einn á sviði bókiðna í
Iðnskólanum í Reykjavík, einn kenn-
ir bifvélavirkjun við Iðnskólann í
Reykjavík og einn er kennari í raf-
eindavirkjun við Iðnskólann í Hafn-
arfírði.
Kristrún Isaksdóttir, deildarsér-
fræðingur í framhaldsskóladeild
Orgelleikur í
Dómkirkjunni
HILMAR Örn Agnarsson leikur í
dag, miðvikudaginn 12. ágúst, á
orgel Dómkirkjunnar og hefjast
tónleikarnir kl. 17.
Hilmar Örn lærði orgelleik í
Þýskalandi og starfar nú sem orgel-
leikari við Skálholtskirkju.
Aðgangur er ókeypis.
menntamálaráðuneytisins, hefur
verið fulltrúi íslands í starfshópi
norrænu ráðherranefndarinnar um
þetta nám. Kristrún sagði starfshóp-
inn vera mjög ánægðan með árang-
urinn af náminu. Greinilegt væri að
kennararnir hefðu byijað að tileinka
sér vísindalegar rannsóknaraðferðir
við að meta stöðu mála hver hjá sér
og víkkað sjóndeildarhring sinn.
Skapast hefðu tengsl sem ættu eftir
að halda áfram að þróast. Nú væri
verið að fara yfír stöðuna og ákveða
framhaldið, hvernig best verði að
haga málum til að ná til enn fleiri
verkmenntakennara svo þróunin
megi halda áfram. , Kári
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fjármálaráðherrar í útreiðatúr
ÁRLEGUR fundur íjármálaráðherra Norðurlanda var
haldinn á mánudag að Leirubakka í Landsveit. Að
loknum fundi brugðu ráðherramir og fylgdarlið þeirra
sér á hestbak. Fyrir hópnum fóru Friðrik Sophusson
og frú Sigríður Dúna Kristmundsdóttir. Einar Bolla-
son hjá Ishestum var fólkinu til halds og trausts.
Minnast endurreisnar Njarðvíkurhrepps:
lagi að kröfu Njarðvíkinga, sem
töldu sig bera skarðan hlut frá
borði í samskiptum sínum við Kefl-
víkinga. Þessi skipan helst enn og
héfur íbúum Njarðvíkur fjölgað úr
282 árið 1942 í 2.502 hinn 1. des-
ember 1991.“
„Á afmælinu munu Njarðvíking-
ar rifja upp sögu sína og menn-
ingu, kljást í kappleikjum, fara
með fjölskylduna í leiki og
skemmta sér saman. Þá munu full-
trúar vinabæja okkar í Noregi og
Danmörku verða viðstaddir og við
það tækifæri verður undirrituð
staðfesting á vinabæjartengslum
við Tandrup í Danmörku og verða
blaðamenn frá blöðum í þessum
bæjum með í ferð. Til að auka á
afmælisstemmninguna hafa versl-
unareigendur látið framleiða ýms-
an vaming með afmælismerkjum
og má þar nefna boli, húfur, um-
hverfísvæna innkaupapoka og
flugdiska með merkjum úr hug-
myndasamkeppni grunnskóla-
nema.“ Afmælishátíðarhöldin í
Njarðvík munu standa í viku og
sagðist Kristján vonast til að allir
fyndu eitthvað við sitt hæfi í hinni
fjölbreyttu afmælisdagskrá sem er
í boði. BB
Njarðvik.
„NJARÐVÍKINGAR hafa sett sér það markmið að gera bæinn
aðlaðandi og að einum fallegasta bæ á landinu. í sumar hefur
verið gert stórátak í þessa átt og er allt miðað við að bærinn verði
kominn i afmælisbúning á laugardaginn þegar forseti Islands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, sækir okkur heim í tilefni þess að í ár eru
liðin 50 ár frá endurreisn Njarðvíkurhrepps," sagði Kristján Páls-
son bæjarstjóri í Njarðvík, í samtali við Morgunblaðið. Tilefnið _er
viku afmælishátíð sem hefst með opinberri heimsókn forseta ís-
lands sem m.a. mun afhjúpa minnisvarða um endurreisn Njarðvíkur-
hrepps og fyrstu hreppsnefnd hans við ráðhús Njarðvíkurbæjar.
Kristján sagði að ákveðið hefði
verið einróma í bæjarstjórn á síð-
asta hausti að halda upp á þessi
tímamót og í framhaldi af því hefði
verið skipuð afmælisnefnd til að
skipuleggja og stjórna afmælis-
haldinu með bæjarstjórninni.
„Hinn raunverulegi afmælisdagur
var 22. mars og þá vorum við einn-
ig með hátíðardagskrá sem hófst
með hátíðarfundi bæjarstjórnar í
Bjargi til að minnast fyrsta hrepps-
nefndarfundarins sem þar fór fram
í húsi oddvitans, Karvels Ög-
mundssonar. Á þeim fundi var
ákveðið að reisa minnisvarða um
endurreisn hreppsins og einnig var
ákveðið að láta rita sögu Njarðvík-
ur frá landnámi til ársins 1992.
Þá var haldin hátíðarsamkoma í
Stapa þar sem 1.200 Njarðvíkingar
og gestir þeirra voru viðstaddir og
við vorum með sögusýningu í
grunnskólanum, sem um 1.100
manns sóttu.“
Kristján sagði að Njarðvík hefði
lengstum tilheyrt Rosmhvalanesi
eða í rúm 700 ár, frá landnámi
og til ársins 1596. Það ár var
hreppnum skipt og tilheyrðu
Njarðvíkumar Vatnsleysustrand-
arhreppi næstu 292 árin. Seinni
hluta 19. aldar hefði komið upp
óánægja á meðal bænda í hreppn-
um vegna fátækramála í þéttbýlinu
í Njarðvík. Upp úr því var hreppn-
um skipt og árið 1889 staðfest
nýtt sveitarfélag um Njarðvíkum-
ar, Njarðvíkurhreppur. Við skipt-
ingu Rosmhvaianeshrepps í Gerða-
hrepp og Keflavíkurhrepp hefði
verið ákveðið að sameina Keflavík-
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Kristján Pálsson, bæjarstjóri í
Njarðvík.
urhrepp og Njarðvíkurhrepp og
kalla nýja sveitarfélagið Keflavík-
urhrepp. Þessi skipan hefði haldist
óbreytt til ársins 1942 að Njarðvík
varð aftur að sjálfstæðu sveitarfé-
Yiku hátíðarhöld hefjast með opin-
berri heimsókn forseta Islands