Morgunblaðið - 12.08.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
15
Nokkrar athugasemdir við
nýleg stíórnarfrumvörp
Fyrri hluti
eftirDr. Magna
Guðmundsson
Frumvörp til laga, sem hér er vís-
að til, varða samkeppni, fjármagns-
tekjur, miðbanka og einkavæðingu.
Ekki er ætlunin að ræða þau lið
fyrir lið, heldur fáein vafaatriði, sem
ættu að hvetja stjórnvöld til að skoða
hug sinn um lagasmíðina.
Frumvarp til samkeppnislaga
Gildandi lög nr. 56/1978 eru um
„verðlag, samkeppnishömlur og
óréttmæta viðskiptahætti". Þau voru
að verulegu leyti samin eftir danskri
löggjöf, með nokkrum slæmum frá-
vikum þó, sem ég gerði grein fyrir
í bók minni „Hagfræði og stjórn-
mál“ (1984), bls. 32-40.
Nýju lögin eru kennd við sam-
keppni eingöngu. Það er tímanna
tákn, því að samkeppni er nú efst á
baugi, nánast kennidómur heilla
samfélagshópa og stétta. Hrun kom-
múnismans, sem var þó í raun ósig-
ur einræðis og kúgunar, hefir gefið
markaðhyggjunni byr undir vængi.
Það er eftir sem áður óbreytt, að
samkeppni á víða erfitt uppdráttar.
Skilyrðin fyrir henni eru sjaldan fyr-
ir hendi og sízt í smáríkjum, þar sem
rúm er aðeins fyrir eitt eða örsmá
fyrirtæki í atvinnugrein, ef þau ætla
að nýta kosti fjöldaframleiðslu. Þess
utan eru neytendur harla ófróðir eða
sinnulausir um lægsta markaðsverð,
og í skjóli þess geta verzlanir selt
sömu vöru með miklum verðmun.
Slíkt gerist reyndar líka úti í hinum
stóra heimi, eins og í lyfjaiðnaði, þar
sem verðmunur er stundum marg-
faldur, en gæðamunur enginn. Þar
ræður máttur auglýsinganna.
Danir, sem eru aðilar að EB,
sömdu ný samkeppnislög 1989. Þeir
halda þó fast við sína fyrri mats-
reglu, sem gerir samruna fyrirtækja
eða samkomulag þeirra á milli til-
kynningaskyld, en ekki óheimil. Það
er svo undir samkeppnisráði komið,
hvort frekari upplýsinga verður
krafízt af þeim, hvort samið verður
við þau um breytingar eða öðrum
gagnráðstöfunum beitt. Í íslenzka
frumvarpinu, sem fyrir liggur, er
tekin upp bannregla (10 gr.). Það
kemur spánskt fyrir sjónir í landi,
sem stöðugt er að steypa fyrirtækj-
um saman í hagræðingarskyni, af
því að þau standa sig ekki vagna
smæðar. Að vísu eru veittar undan-
þágur frá bannreglunni, en þær vilja
flækja mál og torvelda framkvæmd
laga.
Jón Baldvinsson við eitt verka sinna.
Jón Baldvinsson
sýnir í Perlunni
JÓN Baldvinsson opnar myndverkasýningu í Perlunni á morg-
un, fimmtudaginn 13. ágúst, sem hann nefnir „Meðan ungur
ég er“. Á sýningunni eru olíu- og akrýlmálverk máluð á striga
í figúratívum stíl.
í fréttatilkynningu segir að
Jón hafi haldið margar sýningar
bæði hér heima og erlendis og
eigi að baki langan námsferil í
málaralist. Hann hafi meðal ann-
ars stundað nám í Danmörku og
við San Francisco Institute of
Fine Arts.
Sýningin í Perlunni er opin
alla daga fram til 2. september.
Eins og títt er um löggjöf, sem
beitir bannreglu í stað matsreglu,
eru ákvæði um refsingu þung. Sam-
kvæmt frumvarpinu varða brot fé-
sektum, varðhaldi eða fangelsi allt
að fjórum árum (48. gr.). Slíkum
viðurlögum í okkar réttarríki er að-
eins beitt gegn meiri háttar afbrot-
um, þegar fyrir hendi er fordæming
misferlisins af hálfu almennings.
Skv. frumvarpinu kemur sam-
keppnisráð í stað verðlagsráðs og
samkeppnisstofnun í stað verðlags-
stofnunar (skrifstofu). Ekki fer vel
á því, að VSÍ og ASÍ eiga að til-
nefna tvo af fimm meðlimum sam-
keppnisráðs. Reyndar eru þessi sam-
tök vinnuveitenda og launþega með
núverandi stjórnendum orðin eins
konar systurfélög. En það er viðtek-
in regla í sambærilegri löggjöf er-
lendis, að meðlimir samkeppnisráðs
séu óháðir sérhagsmunum, að þeir
kunni skil á málefnum atvinnuvega
og neytenda og hafí, sameiginlega,
laga-, viðskipta- og tækniþekkingu.
Þá á svonefnd auglýsinganefnd
þriggja manna að vera samkeppnis-
ráði til aðstoðar. Hún er óþörf, ef
rétt er staðið að mannaráðningum.
Hvert svo sem nafn laganna er,
hlýtur markmið þeirra að vera að
stuðla að hóflegu verðlagi líkt og
ríkja myndi í fq'álsri samkeppni. I
lögin verða að koma skýr ákvæði
um upplýsingaskyldu fyrirtækja og
um heimild samkeppnisráðs til íhlut-
unar, ef út af ber.
Frumvarp til laga um
skattlagningu eigna og
eignatekna
Með frumvarpinu er fylgt þeirri
grundvallarkenningu, að tekjuskatt-
ur skuli fara eftir fjárhæð tekna, en
Dr. Magni Guðmundsson.
ekki tegund þeirra. í meginatriðum
er stefnt að því að skattleggja vaxta-
tekjur, sem voru gerðar skattfijálsar
fyrir nálega 15 árum. Þetta frum-
kvæði verður að teljast lofsvert, svo
langt sem það nær. Og það er tíma-
bært, því fjármagnsmarkaðurinn
skilar gróða, meðan atvinnulífið
berst í bökkum.
Ýmsar reglur, sem skattanefndin
setti sér að fara eftir, eru af hinu
góða, þeirra á meðal einföldun kerf-
isins, hlutleysi, frítekjumark o.fl. Því
skýtur hins vegar skökku við, að hún
vill skattleggja raunvirði eignatekna
aðeins. Það er í einu orði sagt ófram-
kvæmanlegt Jafnvel þótt koma
mætti slíku í kring, yrði kostnaður
fyrir peningastofnanir og skatt-
heimtuna sjálfa meiri en ávinningur-
inn. Þvílík skriffinnska fylgir. Sann-
leikurinn er sá, að ekki er lengur
grundvöllur fyrir verðtryggingu fjár-
skuldbindinga. Hún er ekki tíðkuð í
viðskiptalöndum okkar. Frá þjóðar-
sátt til þessa dags hefir verðbólga í
landinu verið viðunandi, jafnvel
minni en ytra. Má vænta þess, að
svo verði áfram, ef framfylgt er yfir-
lýstri stefnu stjómvalda. Það er því
bæði eðlilegt og sjálfsagt að hverfa
frá lánskjaravísitölu. Það er siðferði-
leg skylda í ljósi þess, að ekki eru
lengur nein „rauð strik“ í kjarasamn-
ingum. í stað vísitölunnar kemur þá
kerfi breytilegra vaxta á langtíma-
lán.
Frítekjumark, sem skattanefndin
leggur til, þ.e. skattfrelsi fjármagns-
tekna allt að kr. 150 þús. á einstakl-
ing, ætti að tryggja, að ekki dragi
úr spariinnlánum. Hafa ber í huga,
að sparifé í bönkum er að mjög
miklu leyti bundið í bókum smárra
upphæða. Bönkunum er að sjá til
þess, að innstæður til árs eða lengur
rýrni aldrei, og fara í því efni sömu
leiðir og erlendir bankar.
Einnig er æskilegt, gagnstætt til-
lögu nefndar, að heimila áfram
skattfrádrátt á innlán í húsnæðis-
reikninga. Það er þjóðhagsleg nauð-
syn og hefir gefizt vel erlendis. Sams
konar skattfrádrátt mætti líka veita
á spariinnlán ungmenna, sem hyggja
á framhaldsnám.
Allt þetta mun örva sparnaðarvilj-
ann. Aðrir þættir minnka hins vegar
sparnaðarþörfina. Svo er um fijáls-
leg útlán bankakerfisins og lána-
gleði hins opinbera, sem t.d. byggir
yfir ríka sem fátæka. Ekki má
gleyma kreditkortunum, sem hjálpa
fólki til að eyða fyrst og borga svo.
Meðan ríkissjóður er rekinn með
milljarða króna halla, er brýnna að
jafna þann halla en lækka aðrar
skatttekjur, eins og lagt er til.
Nefndin vill skattleggja eignatekjur
fremur en eignir. Mælir vissulega
margt með því.
HSfundur er doktor í hagfræði.
BOSCH
BOSCH
BOSCH
Stórkosflegt verðtilboð
á BOSCH heimilistækjum
Dæmi: Verð áður Tilboðsv. stgr. Afsláttur
Eldavél með keramikhellum 87.924,- 69.570,- 21%
Veggofn 61.748,- 43.691,- 29%
Undirborðsofn án klukku 51.939,- 40.500,- 22%
Þvottavél 73.912,- 58.500,- 21%
Þurrkari 51.340,- 39.990,- 22%
Uppþvottavél 61.513,- 50.500,- 18%
Tilboðið giidir meðan birgðir endast.
Utsölustaðir:
Jóhann Ólafsson & Co JRflMETRÓ
SUNDABORG 13 • SlMl 688 588
I MJÓDD
Neisti, Vestmannaeyjum.
Leifur Haraldssson, Seyöisfiröi.
Hákon Gunnarsson, Höfn, Hornafiröi.
SÚN, Neskaupstaö.
Straumur, ísafiröi.
UTSALA
20-50% afsláttur