Morgunblaðið - 12.08.1992, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
n
heimsóttum bæði gamlar og nýjar
slóðir námsmanna í Höfn. Steindór
hefur ríka frásagnargáfu og gaf
mér skýra mynd af lífi og kjörum
íslendinga á þeim tíma þegar hann
stundaði nám sitt þar. Eg sagði
honum frá mínu námi, hugðarefn-
um og vinum og fann ekki hið
minnsta fýrir þeirri rúmlega hálfri
öld sem er á milli okkar í árum.
Skilningur, glettni og jákvætt við-
horf Steindórs til lífsins eru áber-
andi í fari hans og hann er einstak-
lega þægilegur í umgengni.
Fyrir stuttu lágu leiðir okkar
Steindórs aftur saman þegar við
tókum bæði þátt í ritstjómarstarfi
náttúrufræðingatals sem stendur til
að gefa út á næstunni. Steindór
hefur verið okkur í ritstjórninni
ótæmandi viskubrunnur um þróun
náttúrufræðinnar á íslandi og um
íslenska frumkvöðla í greininni.
Hann hefur skrifað talsvert fyrir
okkur, m.a. um kennslu og kennslu-
bækur í náttúmfræðum og um
menntun og störf fyrstu íslensku
náttúrufræðinganna. Þá hefur hann
veitt okkur ýmis góð ráð og má
segja að hann hafi á fundum með
ritstjóm verið eins konar alfræðibók
sem flett er upp í. Vonandi fáum
við notið starfskrafta hans enn um
ókomin ár.
Til hamingju með afmælið Stein-
dór!
Fyrir hönd ritstjórnar Nátt-
úrufræðingatals,
Þorbjörg Kr. Kjartansdóttir.
Mildir, fræknir
menn best lifa,
sjaldan sút ala.
(Hávamál.)
Þegar við Þórarinn í Samveri
gerðum sjónvarpsþáttinn um sr.
Matthías, þótti einboðið að ræða
við Steindór Steindórsson frá Hlöð-
um, þótt hann væri orðinn háaldrað-
ur og sjón augna hans mjög tekin
að dvína.
Ytri sjónin þegar þrýtur,
þrífast andans stundum rósir,
kvað gamli Grímur, og var okkur
Þórarni þetta full ljóst um Stein-
dór, og ekki síst að verki loknu.
Skemmst er af því að segja, að
uppi á Sigurhæðum sat Steindór
keikur gagnvart myndavélunum og
mælti fram speki.
Hann talaði að kalla sleitulaust
meira en hálfa klukkustund, hafði
enga minnismiða, en svo skipulega
og miskviðalaust sem lesið væri af
þaulsaminni bók. Honum skeikaði
hvergi orðafæri, uppbygging né
minni, kompósisjónin var óað-
finnanleg, og efi er mér á að mann-
gerð og ljóð Matthíasar hafi í annan
tíma verið betur skilgreint svo ljóst
og umsvifalaust. Sem betur fer er
öll þessi upptaka til, því að hún var
sannast sagna klippt með grátandi
tári, þegar þátturinn var saman
settur.
Steindór Jónas Steindórsson frá
Hlöðum í Hörgárdal er nú orðinn
níræður. Hann ber hinn háa aldur
með fádæmum vel. Hann gengur
vaskur um götur hvem dag, og
má illa viðra svo út af bregði, og
myndi þá margur yngri maður og
fullsjáandi kveinka sér, ef hik yrði
á Steindóri Steindórssyni til dag-
legra gönguferða.
Gott er að hitta hann í Bótinni.
Hann hefur alltaf eitthvað að gefa.
Minni hans er fágætt, svo að erfítt
er að finna hliðstæður. Og það er
þá ekki heldur bundið sérgrein
hans, náttúrurfræðinni. Hann er
eins langt frá því að vera fagidjót
eða greinargapi og hugsast getur.
Hann er geysilega fróður um sögu
íslands og bókmenntir. Fljótlegra
er til dæmis fyrir mig að hringja í
hann en að leita í bókum um kveð-
skap 19. aldar, svo að dæmi sé tek-
ið. Þar kann hann furðulega mikið,
mér liggur við að segja upp á blað-
síðu. Hann er örlátur, eða mildur
eins og gamlir menn sögðu, á auð
anda síns.
Steindór Steindórsson er maður
frækinn. Ekki dylur hann hug sinn
né fer í launkofa með skoðanir sín-
ar né hikar við að beijast fyrir þeim
ef með þarf. Og einskis sporgöngu-
maður er hann. Hitt er honum eðli-
legt að fara í fyrirrúmi. Um hug-
rekki hans gæti ég sett á blað
margar dæmisögur, en þær verða
flestar geymdar um sinn í þessari
litlu afmæliskveðju. Aldrei vissi ég
hug hans þó jafnhraustan og í
snerru uppi í skóla, þegar uppreisn-
argjarnir nemendur ætluðu að
hrifsa völdin í stjórnleysisbylgjunni
miklu kringum 1970. Var Steindór
þó mjög skilningsríkur á nauðsyn
breytinga og hafði afar róttækar
skoðanir á sumum þáttum skóla-
mála, og svo mikill lýðræðissinni
var hann á borði, að hann lét for-
ystumönnum í félagslífi nemenda í
té sérstaka stofu í skólanum, þar
sem þeir gáfu út blöð með skömm-
um um skólameistara o.s.frv., þegar
öllu skyldi bylt og ekkert mátti við
svo búið standa.
En þegar sæmd skólans og raun-
gæðum skólameistara var misboðið
til muna, sýndi hann þá ró og karl-
mennsku sem dugði til þess að
sanna mönnum, svo að ekki var um
villst, hver stjómaði skólanum.
Byltingin rann út í sandinn og var
ekki reynd öðru sinni.
Steindór var 66 ára gamall þegar
hann tók við stjórn skólans á þess-
um sviptingatímum.
Steindór Steindórsson elur sjald-
an sút. Hann er manna glaðastur,
eins og Snorri Sturluson sagði um
frægan höfðingja. Lífið hefur verið
honum gjöfult, en því sem á móti
hefur blásið, hefur hann tekið með
æðruleysi - og vinnu. Afköst og
afrek Steindórs eru mjög óvenjuleg,
og fyrir þau hefur hann hlotið mak-
legt lof, m.a. heiðursdoktorsgráðu
frá Háskóla íslands.
Þetta er lítil afmæliskveðja með
þökkum fyrir viðkynninguna. Þegar
ég kom fákænn sveitastrákur að
taka utanskólapróf upp i MA, tók
hann mér - á fyrsta prófinu sem
ég gekkst undir - með þeirri góð-
vild sem ég gleymi ekki, enda
kannski ráðið úrslitum um fram-
haldið. Síðan var hann áralangt
samstarfsmaður minn og húsbóndi
- og nú hjálparhella, viskubrunnur
og gleðigjafi, því að Steindór kann
margt skemmtilegt.
Megi hann allar stundir vel haf-
ast og góðs njóta.
Gísli Jónsson.
Borgarleikhúsið opnaði dyr sínar,
prúðbúið fólk streymdi þar inn, það
var hátíðarblær yfir öllu og spenna
í lofti. Senn fylltist leikhússalurinn
og athöfnin hófst. Hér skyldi minn-
ast þess áfanga að þennan dag kom
út fyrsta íslenska alfræðiorðabókin
eftir margra ára þrotlausan undir-
búning. Þetta var falleg og virðuleg
athöfn, margir tóku til máls, hér-
lendir og erlendir, og mæltist öllum
vel. Því lengra sem á athöfnina leið
varð hinum stóra hópi sem að AI-
fræðiorðabókinni hafði unnið, æ
ljósara að þau höfðu tekið þátt í
stórkostlegu ævintýri sem myndi á
ókomnum árum vera metið sem
mikilvægt lóð á vogarskálar ís-
lenskrar menningar. Stemmningin
í salnum fór vaxandi eins og á góðri
leiksýningu, þótt það sem raunveru-
lega fór fram væri engin tilbúning-
ur eða hugarsmíð, heldur raunveru-
leikinn sjálfur. Þegar leið að lokum
athafnarinnar kvaddi Steindór
Steindórsson, fyrrverandi skóla-
meistari, sér hljóðs og var leiddur
til ræðustóls. Þar sem hann stóð á
sviðinu hefur hann tæpast séð móta
fyrir fólkinu frammi í salnum sök-
um sjóndepru. Það leiðir af sjálfu
sér að engin var hann með blöðin
til þess að lesa af. Hann varð að
treysta á minnið og andagiftina og
lyfti samkomunni í hæðir. Án hiks
eða endurtekninga flutti hann mál
sitt af slíkri snilld að enginn fær
gleymt sem þar var viðstaddur. Hjá
honum fóru saman ótrúleg þekking,
yfirburða minni, einstakt vald á ís-
lensku máli og óvenju rík tilfinning
fyrir myndrænni uppbyggingu. Til-
vitnanir í bundið mál og óbundið
og leiftrandi samlíkingar streymdu
af vörum hans og féllu að lokum
saman í einn farveg eins og tærar
og glitrandi bergvatnsár sem á leið
sinni til sjávar mynda að lokum
stórfljót með beljandi orku, boða-
föllum, djúpum hyljum og tignar-
legum fossum sem enginn gleymir
sem einu sinni sér. '
Þótt tæpir þrír áratugir skilji
okkur Steindór að í aldri og við
búum á hvoru landshorninu er hann
þó sá vinur og félagi sem er ná-
komnastur okkur hjónunum. Kynni
okkar hófust 1967 þegar Þorsteinn
Jópesson lagði til við mig að ég
reyndi að fá Steindór til þess að
taka saman síðara bindi ritverksins
Landið þitt þar sem dagar sínir
væru senn taldir. Það er skemmst
frá því að segja að Steindór tók
verkið að sér og þar með hófst hið
nána samstarf okkar sem engan
skugga hefur borið á allan þennan
tíma.
Það er ekki ætlan mín að rekja
hér afreksskrá vinar míns, heldur
vil ég nota tækifærið til þess að
senda honum kveðjur og árnaðar-
óskir okkar hjóna. Steindór er svo
einstæður og sterkur persónuleiki
að þeir sem notið hafa samfylgdar
hans hafa hlotið mikil forréttindi.
Fyrir það þökkum við á þessum
merku tímamótum.
Orlygur Hálfdanarson.
Engum er skyldara en íslenskum
skógræktarmanni að færa Steindóri
Steindórssyni frá Hlöðum kveðju
við jafn virðulegt tækifæri og ní-
ræðisafmæli er.
Hann er öldungur íslenskrar
grasafræði og hefir jafnframt í sex
áratugi verið einn öflugasti og
ótrauðasti málsvari skógræktar á
íslandi. Fyrir það skal honum inni-
lega þakkað á þessum degi.
En við þurfum að þakka honum
fleira:
Með kenningu sinni um gróður á
íslandi á ísöld og landnám plantna
hér eftir ísöld lagði hann heimspeki-
legan grundvöll að einum veiga-
mesta þætti skógræktar hér: Inn-
flutning tijátegunda til landsins.
Með því að færa líkur fyrir því, að
meira en helmingur íslensku flór-
unnar við landnám hefði lifað síð-
ustu ísöld af, sýndi hann fram á,
að núverandi flóra íslands gæfi
ekki rétta mynd af gróðurskilyrðum
á landinu á okkar dögum, hér gætu
miklu fleiri plöntur lifað og dafnað.
Og í riti sínu „Gróður á íslandi",
sýndi hann fram á, að neðan 400
m hæðarlínu tilheyrði ísland í raun
barrskógabeltinu. Nú hefur náttúr-
an sjálf staðfest þetta með því, að
14 erlendar tijátegundir hafa num-
ið hér land á síðustu áratugum.
Steindór gerði, í félagi við einn
af sérfræðingum okkar í skógrækt,
fyrstu gróskuflokkaskiptingu ís-
lenska birkiskógarins, sem nýtist
líka í starfí okkar að nýskógrækt.
Slík gróskuflokkaskipting er í öllum
þróuðum skógræktarlöndum
grundvöllur að skipulögðum vinnu-
brögðum í ræktun. Hún leiðbeinir
okkur við að setja rétt tré á réttan
stað. Það er ekki smávægilegt at-
riði. Það er grundvallaratriði til
þess að vita, hvað menn eru að gera.
Steindór mótaði íslenska plöntu-
samfélagsfræði með riti sínu „Gróð-
ur á íslandi". Á henni hefir gróður-
nýtingardeild Rannsóknarstöðvar
landbúnaðarins byggt gróðurkorta-
gerð sína. Á henni byggir áætlana-
deild Skógræktar ríkisins sína
vinnu, sem líkja má við vinnu arki-
tektsins í mannvirkjagerð. Hér höf-
um við skýrt dæmi þess, þegar
undirstöðurannsóknir verða grund-
völlur hagnýtrar vinnu. Brautryðj-
endastarf Steindórs í plöntusamfé-
lagsfræði var einmitt af þessum
toga.
Eg þakka Steindóri áratuga leið-
sögn, ekki bara í skóla, þar sem
ég var nemandi hans í fimm vetur,
heldur enn frekar síðar á lífsleið-
inni, þar sem hann hélt á þeim átta-
vita, sem vísaði mér veg í starfi.
Lifðu enn lengi keikur.
Sigurður Blöndal.
Nestor íslenskra grasafræðinga,
og fyrirmynd allra hinna sem yngri
eru, hinn aldni heiðursmaður Stein-
dór Steindórsson frá Hlöðum,
grasafræðingur, menntaskólakenn-
ari og skólameistari, er níræður í
dag, 12. ágúst. Á þeim merkisdegi
langar mig að senda þessum læri-
meistara mínum í marga áratugi
hjartanlegar hamingjuóskir með
innilegu þakklæti fyrir allt, fyrr og
síðar.
Þegar ég kom til náms í Mennta-
skólanum á Akureyri snemma árs
1945 var Steindór eini náttúru-
fræðikennari skólans og hann
kenndi mér alla mína vetur þar.
Hann var oftast hressilegur og létt-
ur í bragði sem kennari, en jafn-
framt hlýr og mannlegur og kunm
vel að taka græskulausu gamni
nemenda þegar því var að skipta,
og mat ég hann mikils strax þá.
Þó hann fylgdi oftast nokkuð náið
lexíu dagsins í kennslu brá hann
stundum út af því, fór út fyrir efn-
ið og jók við það frá eigin brjósti.
Þá kom það vel í ljós hvílíkum feikna
fróðleik hann bjó yfír, ekki bara
um náttúrufræði almennt og þó
náttúru landsins sérstaklega, held-
ur einnig um sögu þess og mannlíf.
Strax á þeim árum var mér það
vel kunnugt að Steindór fékkst við
rannsóknir á flóru og gróðurfari
landsins og dáðist að því að auk
þess að vera kennari var hann
þekktur vísindamaður. Það var þó
fyrst þegar ég hóf sjálfur nám í
náttúrufræði með grasafræði sem
aðalfag, að ég gerði mér smám
saman grein fyrir því hve miklu
Steindór hafði áorkað í fræðigrein
sinni þá þegar, og miklu hefur hann
bætt við síðan. Afköst hans eru
hreint út sagt ótrúleg. Hann hefur
skrifað mikinn fjölda greina um
rannsóknir sínar í íslensk og erlend
tímarit, sumar 2-300 bls. langar,
auk nokkurra bóka, skrifað sjálfs-
ævisögu í tveimur bindum, þýtt ein-
ar 15 bækur á íslensku, flestar
þeirra ferðabækur, þ.á.m. Ferðabók
Eggerts Ólafssonar og Bjama Páls-
sonar, ritstýrt tímaritinu Heima er
best í 33 ár og skrifað mikið í það
sjálfur um þjóðlegan fróðleik. Áuk
þess hefur hann verið grasafræði-
legur ráðunautur við gróðurkort
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
SJÁ BLS. 29
Bókhalds-og
rekstramám
72 klst
Byrjar 14. september
Námið er hnitmiðað og sérhannað með þarfir atvinnulífs-
ins í huga. Markmið námsins er að útskrifa nemendur með
víðtæka þekkingu á bókhaldi og færslu tölvubókhalds.
Aðalnámsgreinar:
• Hlutverk bókhalds, bókhaldslög
• Bókhaldsæfingar og reikningsskil
• Viðskiptamannabókhald
• Launabókhald
• Virðisaukaskattur
• Raunhæft verkefni - afstemmingar og uppgjör
• Tölvubókhald - Opus Allt
Ef þú vilt auka þekkingu þína á bókhaldi, styrkja stöðu þína á
vinnumarkaðinum, starfa sjálfstætt og/eða geta notað bók-
hald sem stýritæki í eigin fyrirtæki, þá er þetta nám fyrir þig.
Viðskiptaskólinn býður uppá litla hópa, einungis reynda leið-
beinendur, bæði dag- og kvöldskóla, sveigjanleg greiðslukjfyt
Sérstakt grunnnámskeið haldið 7.-10. september.
Takmarkaður fjöldi á hvert námskeið.
Innritun þegar hafin.
Viðskiptaskólinn
Skólavörðustíg 28, Reykjavík
Sími 62 41 62