Morgunblaðið - 12.08.1992, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 1992
félk f
fréttum
Nokkur brúðhjónanna, sem hafa gróðursett trén sín í Brúðhjónalundinum við Hótel Sögu.
*mm;m
TRE OG HJONABAND
Þéttskipað í
Brúðhj ónalundinum
Hótel Saga hefur undanfarin
tvö ár gefið brúðhjónum,
sem halda veislu sína á hótelinu,
tré í brúðkaupsgjöf.
Trén eru merkt eigendum sín-
um ásamt brúðkaupsdegi og
hafa brúðhjónin gróðursett trén
á Jónsmessu eftir brúðkaup í
sérstökum reit, sem kallaður er
Brúðhjónalundurinn og er stað-
settur austan megin við hótelið.
Að meðaltali eru haldnar 23
brúðkaupsveislur á ári á Hótel
Sögu og hafa liðlega 30 manns
komið saman á Jónsmessu und-
anfarin ár í Brúðhjónalundinum
og gróðursett á sjöunda tug tijá-
plantna.
Nú er reiturinn fullsetinn og
verða ekki fleiri tré gróðursett
að sinni.í framtíðinni getur unga
fólkið heimsótt lundinn og séð
hvemig trénu þeirra vegnar.
Sum brúðhjón hafa komið reglu-
lega til að skoða tréð sitt.
ELDRAUN
Gekk á logandi
glerbrotum
Njáll Torfason eða „Vestfjarða-
skelfirinn“ svokallaði heilsaði
upp á Bflddælinga á Héraðsmóti
Hrafna-Flóka fyrir skömmu og
sýndi þar ýmis hrikaleg og ótrúleg
atriði sem fóru fyrir bijóstið á sum-
um áhorfandanum. Njáll er þekktur
fyrir að ganga berfættur yfír gler-
brotabakka án þess að skaða sig.
Njáll hitaði upp í nokkrar mínút-
ur fyrir sýninguna með því að rífa
sjö símaskrár. Þá reif hann einnig
fjárlögin og var mun fljótari að
afgreiða þau en þeir í þinginu. Síð-
an hófst sýningin. Njáll var á stutt-
buxum enda sól og blíða úti. Hann
gekk yfír glerbrotabakkann fram
og aftur og síðan yfír flöskustúta
sömu leið. Þar næst tók hann unga
stúlku í fang sér og dansaði með
hana yfír glerbrotin. Heyra mátti á
áhorfendum og sjá líka að þeim
stóð ekki á sama'þegar þessi maður
gekk yfír brotna flöskustúta svo
það brakaði í glerbrotunum. í lokin
lagðist Njáll á bakið á glerbrota-
bakkann og lét kraftatröllið Baldvin
Skúlason raða þremur gangstéttar-
hellum á bringuna á sér en hver
hella vegur 18 kg. Baldvin sveiflaði
sleggjunni hátt og hamraði síðan
hellumar allar í mél þar sem þær
lágu hver ofan á annarri. Njáll reis
upp eins og múmía og dustaði gler-
brotin sem héngu á bakinu af. Ekki
sást ein rispa né blóðdropi á karli.
Það var ekki laust við að sumum
áhorfendum flökraði við þessari
sýningu, sem er áreiðanlega einstök
í heiminum.
Á Eldborg ’92 á Snæfellsnesi um
verslunarmannahelgina betrum-
bætti hann sýningaratriðin. Þar
reif hann í sundur með höndunum
bflbretti og gekk á logandi glerbrot-
um þegar Ný dönsk lék lagið Alelda.
R. Schmidt
Njáll Torfason
gengur á gler-
brotum með
unga stúlku í
fanginu.
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
SVISS
Styr um hjónaband
súkkulaðihöfðingjans
-, HANDBOLTA
W SKÓLI VALS
Handknattleiksdeild Vals mun standa fyrir hinum árlega og
vinsæla handboltaskóla nú í ágúst.
Námskeiðið stendur yfir frá 17. til 21. ágúst
kl. 09.00-12.00 fyrir krakka fædd 1978-1984.
íþróttakennarar og vanir leiðbeinendur hafa umsjón með
kennslu. Landsliðsmennirnir Valdimar Grímsson, Jakob Sig-
urðsson, Geir Sveinsson og Guðmundur Hrafnkelsson
koma í heimsókn.
Skráning er í símum 623730 og 623731 frá kl. 09.00-12.00
og frá kl. 17.00-19.00 á skrifstofu Vals, Hlíðarenda.
Bón- og
bíloþvottastöðin,
Bíldshöfða 8,
símar 681944 - 681975.
Verð á hlutabréfum Lindt &
Spriingli-súkkulaðiverksmiðj-
unnar féll í svissnesku kauphöllinni
í síðustu viku þegar það fréttist að
Rudolph Spriingli, aðaleigandi fyrir-
tækisins, hefði kvænst Alexöndru
Gantenbein í kyrrþey í byrjun mán-
aðarins. Spriingli ætlaði að ganga
að eiga hana í vor en þá fengu helstu
ráðgjafar hans hann ofan af því.
Nú lét hann ekki stöðva sig og fram-
kvæmdastjóri Lindt, eins þekktasta
súkkulaðifyrirtækis heims, sagði af
sér í framhaldi af því.
Það varð uppi fótur og fít í vor
þegar Sprungli og Gantenbein sendu
út tilkynningu um fyrirhugað hjóna-
band. Sprungli er 72ja ára og hún
44. Hún var áður gift öldruðum eig-
anda málmverksmiðju. Honum entist
aldur til að selja verksmiðjuna og
arfleiða hana að öllum sínum eignum
áður en hann lést rúmu ári eftir að
þau giftust. Hún keypti sér stórt og
fínt einbýlishús fyrir arfinn og nú
er Spriingli fluttur þangað til henn-
ar. Hann skildi við eiginkonu sína
eftir 45 ára hjónaband í vor. Ganten-
bein var þá starfsmannaráðgjafi hjá
fyrirtækinu og talið er víst að hún
eigi þátt í að sonur hans hætti hjá
því í vetur.
Gantenbein er trúuð og var með-
limur í bandaríska sértrúarflokknum
I Am, en meðlimir hans trúa að
þeir geti virkjað orku í kringum þá.
Hún heldur fjölda trúarfyrirlestra
og miðlar fólki mætti. Spriingli er
trúaður og kirkjurækinn. Helsti ráð-
gjafí hans benti honum á að Ganten-
bein væri í I Am þegár þau komu
úr ferð til Bandaríkjanna í vor og
sagði honum ýmislegt fleira um for-
tíð hennar. Sprungli aflýsti þá strax
giftingunni og sagði fjölmiðlum að
hann hefði heyrt hluti sem hann vissi
ekki áður. Hann lét athuga hvort
einhverjir úr trúarflokknum hefðu
fengið vinnu hjá Lindt & Spriingli
og lét kanna fortíð Gantenbein. Hún
hafði ekki misnotað aðstöðu sína til
að útvega trúbræðrum atvinnu og
Sprungli sætti sig við litríka fortíð
hennar. Hún hét bara Heiða þegar
hún var þjónustustúlka á tvítugs-
aldri en kallaði sig Alexöndru þegar
hún fór að fara út með kaupsýslu-
mönnum og skemmta körlum gegn
greiðslu. Hún er vel lesin, kann að
meta menningarlíf og hefur gaman
af að sitja fyrir á myndum. En það
hefur enginn náð mynd af þeim hjón-
unum saman síðan þau giftu sig.
Hún er heima við og hann sendi frá
sér formlega yfírlýsingu í gær að
hún muni ekki taka sæti í stjórn
fyrirtækisins. Það gæti haft jákvæð
áhrif á hlutabréfamarkaðinn og
Lindt & Sprungli hætt að falla í
verði.' HIÍAÍ'f ,-fJ