Morgunblaðið - 24.01.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.01.1993, Blaðsíða 29
Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú htjóta skalt. (V. Briem.) Elín mín, Pétur Þór, Gunnþórunn og Páll. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur. Ágúst Oddsson og fjölskylda í Ástralíu. Okkur langar að minnast með örfáum orðum vinar okkar Ágústs Pálssonar, eða Gústa eins og við kölluðum hann alltaf. Við kynntumst Gústa á þeim tíma sem við unnum með Elínu, konu hans, í Búnaðarbankanum. Við sam- starfsmenn höfðum það fyrir reglu að hittast reglulega utan vinnutíma og gera eitthvað skemmtilegt sam- an. Gústi kom þá venjulega með og fyrr en varði var hann orðinn hrókur alls fagnaðar. Einnig var gaman að ræða við hann um alvarleg málefni því hann hafði sterkar og ákveðnar skoðanir á hlutunum. Hann var allt- af hress og sérlega ljúfur og skemmtilegur félagi. Gústi var mjög handlaginn og bar íbúðin þeirra á Hallveigarstígnum þess glögglega merki. Vorið 1989 fluttu Elín og Gústi búferlum til Danmerkur. Samband okkar við þau slitnaði þó ekki, held- ur hélt áfram símleiðis og bréfleiðis. Við fórum að heimsækja þau út til Vejle og nutum þar einstakrar gest- risni. Allt var sjálfsagt, þeyst með okkur út um allar trissur og við boðnar velkomnar aftur hvenær sem væri. Ffyrir tæpu ári kom fjölskyldan í heimsókn hingað til íslands. Við stöllur fórum þá að hitta þau og sjá í fyrsta skipti einkasoninn Pétur Þór. Kvöldið leið fljótt og það hvarfl- aði ekki að okkur þegar við kvöddum að þetta væri í síðasta sinn sem við sæjum Gústa. Erfítt er að sætta sig við og skilja hvers vegna svona ungur og hraust- ur maður er kallaður héðan á þenn- an átakanlega hátt frá eiginkonu konu hans Maríu, sem var færeysk. Börn þeirra hjóna, Pétur augnlæknir og Ásta Svava, héldu vinskap við hana allar götur síðan. Hún fékk síðan vinnu við Sumarhótelið á Laugarvatni þar sem þau Þórarinn Pjeturss eftirlifandi eiginmaður hennar kynntust árið 1934. Það var glæsilegt par sem gifti sig 12. des- ember 1936. Þau stofnuðu síðan heimili og bjuggu í húsi tengdaföður hennar, dr. Helga Pjeturss, að Smið- justíg 5. Svava gegndi ýmsum störfum á yngri árum, en lengst af voru barna- uppeldi og heimilisstörf á hennar könnu. Síðustu tuttugu starfsár sín vann hún á Hótel Loftleiðum, lengst af í hópi kvenna sem kallaðar voru „bláu englarnir", en þar fór fríður flokkur herbergisþerna hótelsins. Svövu líkaði starfíð vel á Hótel Loft- leiðum og gegndi þar lengi vel stöðu aðstoðaryfirþemu. Þetta var góður kafli í lífi Svövu. Hún ferðaðist mik- ið og naut lífsins að öðru leyti. Þórarinn og Svava eignuðust þrjá syni. Elstur er Helgi læknir, búsett- ur í Noregi, kvæntur Sigríði Rósu Gunnarsdóttur röntgentækni og eiga þau börnin Helgu Björk og Gunnar Þór. Helgi var áður kvæntur Hrafn- hildi Skarphéðinsdóttur. Þeirra börn eru þau Pétur matvælafræðingur sem kvæntur er Magdalenu Gests- dóttur, og eiga þau fjórar dætur; Helena húsmóðir, er gift Þorláki Ingjaldssyni og eiga þau tvo syni. Annar sonur Þórarins og Svövu er Þórarinn Brandur rafeindavirki sem reynst hefur foreldrum sínum með afbrigðum vel, en með honum og Svövu var alltaf sérstök vinátta. Yngstur er Stefán ráðgjafi, kvæntur Kristrúnu Þórðardóttur sérkennara og eiga þau tvær dætur, Sæunni og Svövu Lóu. Svava og Þórarinn höfðu fyrir skömmu fest kaup á og flutt í yndis- legt húsnæði fyrir eldri borgara í Garðabæ, sem þau voru himinlifandi með, en þar höfðu þau hugsað sér að eyða ellinni saman. En enginn má sköpum renna og komið er nú að kveðjustund. Guð blessi minningu Svövu og styrki Þórarin í sorg hans. Kristrún Þórðardóttir. MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1998 29 og ungum syni. Gústa hlýtur að vera ætlað annað og meira hlutverk á æðri stöðum. Elsku Elín og Pétur Þór. Missir ykkar er mikill. Yið vottum ykkur og öðrum aðstandendum, okkar dýpstu samúð. Megi almáttugur Guð styrkja ykkur í sorginni. Elín Gróa Karlsdóttir, Magnea Gunnarsdóttir, Sigrún Jóhannsdóttir. Skömmu fyrir jól hitti ég Ágúst Pálsson á vinnustað, eins og ég hef gert nánast daglega í nokkur ár. Ég spurði hann hvort fjölskyldan færi heim til íslands í jólafrí. „Nei, við ætlum að bíða vors,“ sagði hann. Nú kemur Ágúst og litla fjölskyld- an hans heim til ættlandsins á annan hátt en vonir stóðu til. Við stöndum skilningsvana frammi fýrir þessu hræðilega slysi og söknuðurinn er okkur efstur í huga, söknuður eftir góðan og ráð- vandan vinnufélaga, sem við bárum virðingu fyrir. Mig langar til að þakka verkleikni Ágústs og einstaka trúmennsku gagnvart fyrirtækinu. Hinir miklu mannkostir hans eiga þátt í að ég er stoltur af að vera fulltrúi íslands. Við vottum ástvinum Ágústs Páls- sonar dýpstu samúð okkar. Blessuð sé minning hans. Knud Andersen, ræðismaður íslands, Fredericia Skibsværft A/S. Okkur langar að minnast nokkr- um orðum systursonar míns og vinar okkar. Hamingjusömum ungum manni er kippt burt frá jarðnesku lífi í blóma lífsins. Ágúst var sérstak- ur piltur, hann var svo glaður og skemmtilegur, kærleiksríkur og bón- góður. Ágúst fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann var fjórði í röð sjö systkina, svo oft var líf og fjör á heimili systur minnar Gunnþórunnar og Palla mágs. Ágúst lærði stálskipasmíði og vann við það sína stuttu ævi, lengst af í Bátalóni í Hafnarfirði. Mjög ungur kynntist Ágúst indælli stúlku, Elínu Mörtu, dóttur Stellu Sigur- laugsdóttur og Péturs Guðfinnsonar. Ágúst og Elín, stofnuðu heimili og bjuggu fyrst í Hamraborg í Kópa- vogi og síðan á Hallveigarstíg í Reykjavík. Þau giftu sig hinn 5. desember árið 1987 og fóru síðan í brúðkaups- ferð til Ástralíu í heimsókn til nafna Ágústs og frænda og hans fjöl- skyldu. Síðan fluttust þau 1989 til Vejle í Danmörku, en þar vann Ág- úst við skipasmíðar í Fredericia og lést í hörmulegu vinnuslysi þ. 17. janúar sl. Mikil var gleðin og hamingjan þegar barn var á leiðinni og enn ein stóra stundin í lífi þeirra rann upp þann 15. nóvember 1991 þegarþeim fæddist sonur. Þau komu heim um jólin sama ár og hlaut þá sveinninn nafnið Pétur Þór. Það voru stoltir foreldrar sem komu þá í heimsókn til okkar. Þetta átti að vera síðasta heimsóknin frá útlandinu því Elín og Ágúst ætluðu að flytjast heim alkomin á þessu ári. Við kveðjum elsku frænda og vin, sem var svo bjartur og hlýr, með þökk fýrir allt og allt. Elsku Elín okkar, Pétur Þór, Lilla, Palli og systkini hins látna. Megi góður guð styrkja ykkur og varð- veita og sefa ykkar miklu sorg með minningunni um dásamlegan dreng. Olga, Maggi, Óskar og Þröstur. Með sorg í hjarta sjáum við á bak góðum vini og vinnufélaga sem hafði aflað sér virðingar og aðdáunar með viðmóti sínu og verkkunnáttu. Við vottum Elínu, Pétri Þór og öðrum aðstandendum innilega sam- úð okkar. Blessuð sé minning Ágústs Pálssonar. Vinnufélagar í Skipasmíða- stöð Fredericiu. Bróðirinn sem við elskum er lát- inn. Skyndilega og án viðvörunar var klippt á þráð lífs þíns. Söknuður okkar er sár, en sárari er þó söknuð- ur yndislegrar eiginkonu þinnar, Elínar Pétursdóttur og sonar þíns litla, Péturs Þórs. Við vottum þeim innilega samúð okkar. Margar góðar stundir áttum við saman með þér. Það var gott að eiga þig fyrir bróður og minningarn- ar um þig verða ætíð með okkur. Þú varst alltaf jákvæður og traustur og reiðubúinn til að hjálpa þegar eitthvað bjátaði á. Þess vegna áttir þú svo auðvelt með að umgang- ast fólk og laða það að þér. Það var gott að vera í návist þinni. Og þú varst kappsamur og þegar við lékum okkur sem börn kastaðist stundum í kekki, en þú gast aldrei verið reiður lengi. Eftir skamma stund varstu búinn að fyrirgefa og allt féll aftur í ljúfa löð. Og þú varst foringi krakkanna í hverfinu. Þau voru alltaf að koma og spyija eftir þér. Það var eins og ekkert væri hægt að gera nema þú værir með. Leikvöllurinn var túnið, klappirnar og fjaran, bæði niðrá Oddeyri og útí Glerárþorpi á Akur- eyri. Og fyrir áramót var mikið um að vera að safna í brennu. Við erum þakklát fyrir hvetja þá stund sem við áttum saman, fyrir það góða sem þú hefur gefið okkur. Hvert og eitt berum við mynd þína innra með okkur. Þegar þú fórst að búa og stofnað- ir þitt eigið heimili varstu okkur samt aldrei fjarri. Við vissum alltaf hvað þú hafðir fyrir stafni. Það rofn- uðu engin tengsl. Og ekki heldur þó að þú flyttist til Danmerkur. Sambandið milli okkar hélst áfram jafn sterkt. Þú lést okkur vita hvað þú varst að gera og hugsa. Og nú ertu ekki lengur til staðar. Það er komið tóm í tilveru okkar, í líf okkar. En samt vitum við af þér, og þú ert ekki fjarri, heldur aðeins rétt ... fýrir handan. Því eins og lífið hefur haft sinn gang og samband okkar við þig hefur breyst frá því við vorum böm, þá hefur það núna breyst. Þau tengsl sem binda okkur við þig hafa ekki rofnað, þeim er aðeins á annan veg farið. Mynd þín er óbreytt. Við berum hana með okkur hveija stund og við getum samt sagt: Við áttum bróður sem var góður maður. Fyrir það þökkum við Guði. Við þökkum hon- um fyrir að hafa eignast þig fyrir bróður. Við kveðjum þig því elsku dreng- urinn okkar, sátt við að þú farir þá leið sem Guð hefur ætlað þér og fullviss þess, að síðar, þegar sá dag- ur kemur, munum við, hvert og eitt okkar, hitta þig aftur. Jón, Héðinn, Loftur, Rannveig Björg, Olga Guðlaug, Páll Þór. Fleiri greinar um Ágvst Páis- son bíða birtingar og verða birtar í blaðinu næstu daga. Verslun/lager/ skrifstofuhúsnæði Rótgróið fyrirtæki í Reykjavík auglýsir eftir ca 100-150 fm verslunarhúsnaeði ásamt tengdu lagerhúsnæði með innkeyrsludyrum. Á sömu eða næstu hæð(um) ca 400 fm skrifstofuhúsnæði. Óskast til leigu, kaup kæmu þó til greina og færi eftir kjörum. Þeir, sem hafa húsnæði í boði og ræða vildu málið, vin- samlega sendi nánari upplýsingar í umslagi til auglýsinga- deildar Mbl. hið fyrsta, merktu: „Góð aðstaða-14073“. 240 fbúðir og hús á söluskrá okkar Kaupendur athugið! Aðeins hluti eigna, sem eru á söluskrá okkar, eru auglýstar. Vinsamlegast hafið sam- band og fáið nánari upplýsingar eða fáið heimsenda söluskrá. í textavarpinu (sjónvarpinu) er yfirlit yfir flest- ar eignir á söluskrá okkar. Nýskráðar eignir Árbær 2ja herb. íbúð á jarðhæð í blokk. Ný máluð. Laus. Hent- ar vel ungu fólki með barn eða t.d. fötluðum. V. 5,3 m. Mjög góð áhv. lán kr. 3,3 m. Útb. 2 millj. Stóragerði 4ra herb. endaíb. á 1. hæð í blokk. Falleg íbúð. Suður- svalir. Laus. Bílskúr. V. 8,9 m. Ekkert áhv. Norðurbær - Hf. 5-6 herb. 135 fm íbúð í blokk. Aðeins ein íbúð á stiga- palli. 4 svefnherb. Þvherb. og búr inn af eldhúsi. Suður- svalir. V. 9,5 m. Skipti á minni koma til greina. Garðabær 3ja herb. ný og fullgerð íbúð með bílgeymslu. Sérinn- gangur. Falleg skemmtileg eign með frábærri sólað- stöðu. Hagstæð greiðslukjör. Garðabær 4ra herb. ný íbúð tilb. undir tréverk. Öll sameign full- gerð. Fullgerð bílgeymsla fylgir ásamt mjög góðri geymslu. Fullgerð lóð í góðum tengslum við íbúðina. Skipti koma til greina á minni íbúð. Ath.: Hugsanlega hægt að fá þessa íbúð afhenta fullgerða. Leitið nánari upplýsinga og pantið skoðunartíma. Garðabær 5-6 herb. íbúð á tveimur hæðum í nýju húsi. íbúðin er nú tilb. undir tréverk en hægt að fá hana afhenta full- gerða. Mjög góð geymsia fylgir ásamt stæði í full- gerðri bílgeymslu. Þessi íbúð getur hentað hvort sem er eldra fólki, sem vill losna úr einbýlishúsi og hafa fá svefnherb. og stórar stofur, eða yngra fólki, sem vant- ar mörg svefnherb. íbúðin ertil afh. nú þegar. Sveigjan- leg greiðslukjör. Pantið skoðunartíma. Eldri borgarar - aðeins tvær íbúðir eftir Nú eru aðeins tvær 3ja herb. ca 100 fm íbúðir eftir í háhýsi á Snorrabraut 56 (við hlið Domus Medica). íbúð- irnar eru fullgerðar ásamt allri sameign. Til sýnis nú þegar. Pantið skoðunartíma. Mosfellsbær 3ja herb., ný fullgerð íbúð í blokk. V. 7,4 m. Laus. Þingholtin Sérlega falleg og vönduð 4ra herb. (2 svefnherb.) íbúð með miklu útsýni. Líklega glæsilegasta íbúð Þingholt- anna. V. 11,5 m. Skipti á dýrari eign allt að 20 m. eða ódýrari koma til greina. Laugarnes 4ra + 2 = 6 herb. íbúð. íbúðin er 4ra herb. með 2 for- stofuherb. sem hafa sérsnyrtingu. Stórar suðursvalir. Parket á stofum. Útsýni. Falleg eign. V. 9,8 m. Skipti á minni koma til greina. Einbýli/tvíbýli Á glæsilegum útsýnisstað, þar sem sést frá Snæfells- jökli til Bláfjalla, er til sölu verulega vandað ca 300 fm hús á tveimur hæðum. Hægt að hafa sjálfstæða 3ja herb. íbúð á neðri hæð. Mjög stutt í eitt vinsælasta útivistarsvæði borgarinnar. Teikn., Ijósmyndir og nán- ari uppl. á skrifst. Til greina koma skipti á minni eign. V. 25 m. Álftanes Mjög gott einbhús 136 fm aukk 45 fm bílskúrs með gryfju. Heitur pottur í garðinum. Falleg lóð. V. 14,5 m. Seljendur Hólum - Seljahverfi Vantar 2ja-4ra herb. íbúðir á söluskrá okkar. Grafarvogi Vantar blokkaríbúðir og parhús í smíðum eða fullgerðar. Högum - Melum - Vesturbæ Vantar millistóra sérhæð eða stóra blokkaríbúð. Iðnaðarhúsnæði 200 fm iðnaðarhúsnæði með mikilli lofthæð og stórri lóð. Hægt að innrétta 100 fm milliloft í húsnæðið. Húsnæðið sem er í byggingu er hægt að fá keypt fok- helt eða skemmra komið. Teikn. á skrifst. Hagstæð greiðslukjör. FastelBnaþiímtan, Þorsteinn Steingrímsson löggiltur fasteignasali. 30, 3. Sími 20000, lax 20213.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.