Morgunblaðið - 01.08.1995, Page 1
88 SÍÐUR B/C
172. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FRÁ þingfundinum í Versölum í gær
Reuter
Telja að Chirac
fái aukin völd
Versölum. Reuter.
SAMEIGINLEGUR fundur beggja
deilda franska þingsins samþykkti í
gær breytingar á stjórnarskránni og
verður nú heimilt að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu oftar en áður.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, lofaði því fyrir síðustu kosn-
ingar að auka bein áhrif almennings
með þjóðaratkvæðagreiðslum en
talsmenn stjórnarandstöðunnar
halda því fram, að með þessu sé
verið að draga úr valdi þingsins og
auka að sama skapi völd forseta.
Franska blaðið InfoMatin sagði í
gær, að þjóðaratkvæðagreiðsla væri
tvíeggjað vopn en væri því fimlega
beitt gæti Chirac notað það til að
bijóta á bak aftur rótgróna andstöðu
við breytingar í frönsku samfélagi,
til dæmis til að koma á einkavæðingu
ríkissímafyrirtækisins og nauðsyn-
legum umbótum í lífeyriskerfinu.
Ekkert fararsnið
á Serbum i Bihac
Zagreb, Sarajevo. Reuter.
SERBNESKA árásarliðið í Bihac í
norðvesturhluta Bosníu sýndi í gær
engin merki um að staðið yrði við
samkomulag um brottflutning þess
af svæðinu. Embættismenn Samein-
uðu þjóðanna viðurkenndu að sam-
komuiagið kynni aðeins að vera
blekking af hálfu Serba, sem vildu
vinna tíma til að efla varnir Krajina-
héraðs í Króatíu vegna hugsanlegrar
árásar króatíska hersins.
Leiðtogar Serba í Króatíu lofuðu
brottflutningi hermanna sinna frá
Bihac á fundi með Yasushi Akashi,
sendimanni Sameinuðu þjóðanna, á
sunnudag. Þetta var þó aðeins
munnlegt samkomulag og stjórnvöld
í Króatíu höfnuðu því strax sem
blekkingu.
Talsmaður friðargæsluliðs Sam-
einuðu þjóðanna sagði að allt að 500
serbneskir hermenn af nokkrum
þúsundum hefðu farið frá Bihac yfir
landamærin til Króatíu til að veija
Knín, höfuðstað Króatíu-Serba. „Við
höfum ekki orðið varir við verulega
Samkomulagið
talið blekking til
að vinna tíma
liðsflutninga og alls ekki neina flutn-
inga á þungavopnum," sagði tals-
maðurinn.
Serbum settir
úrslitakostir
Samkomulagið virtist við fyrstu
sýn veruleg tilslökun af hálfu Serba.
Daginn áður hafði F’ranjo Tudjman,
forseti Króatíu, sett þeim úrslita-
kosti; annaðhvort færu þeir frá Bi-
hac og hæfu samningaviðræður um
„friðsamlega endursameingu" Kraj-
ina og Króatíu ellegar yrðu þeir fyr-
ir leifturárás úr öllum áttum. »
Embættismenn Sameinuðu þjóð-
anna, sem ekki vildu láta nafns síns
getið, sögðu líklegra að samkomu-
lagið væri aðeins fyrirsláttur af hálfu
Serba, sem vildu vinna tíma til að
efla varnir sínar við Knín meðan
Sámeinuðu þjóðirnar héldu aftur af
Króötum.
Minni líkur á loftárásum
Bandarískir embættismenn sögðu
í gær að Bandaríkjastjórn væri
ánægð með að Króatíuher skyldi
aðstoða stjórnarher Bosníu í vestur-
hluta landsins og sá stuðningur
drægi úr líkunum á því að Atlants-
hafsbandalagið þyrfti að gera loft-
árásir á Serba. Rússar hafa á hinn
bóginn sagt að þeir hyggist beita
sér fyrir því innan öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna að stöðva sókn
Króata.
Serbar hafa einnig flutt bestu
hermenn sína frá „griðasvæðinu"
Zepa í austurhluta landsins til vest-
urhlutans vegna sóknar Króata.
Embættismenn Sameinuðu þjóðanna
sögðu á laugardag að serbneskir
hermenn hefðu kveikt í húsum í
Zepa og tekið yfirmann varnarsveita
múslima þar af lífi.
Sænska útvarpið
Hlustend-
um ráðlagt
að nota orð-
ið „tölva“
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
í hádegisfréttum sænska út-
varpsins í gær fengu útvarps-
hlustendur þá ábendingu að
tilvalið væri að taka Islend-
inga sér til fyrirmyndar og
nota orðið „tölva“ í stað
sænska orðsins „dator“.
Ábendingin kom frá sænsku
tímariti, sem fjallar um mál
og málrækt.
í seinni hluta sænsku há-
degisfréttanna er venjan að
taka fyrir eitthvert efni og
lesa hvað bæði innlend og
erlend blöð hafa um málið að
segja. í gær lauk blaðapistlin-
um með málfarsábendingu,
tekinni úr tímariti. Þar var
sagt að margir Svíar væru
með réttu óánægðir með
sænska orðið „dator“ fyrir
tölvu. Tilvalið væri hins vegar
að taka upp íslenska orðið
„tölva“, sem væri byggt á
orðinu fyrir tölu og tengdist
því reikningi, auk þess sem
það beygðist eins og orðið
„völva“, sem þýddi spákona.
Fréttin endaði á hrósyrðum í
garð íslendinga fyrir hve annt
þeir létu sér um tungumál sitt.
Það mun hafa verið Sigurð-
ur heitinn Nordal prófessor,
sem á sínum tíma fann upp
þetta ágæta orð „tölva“.
Kannski er komið að því að
íslensk orð og hreintungu-
stefna í heild geti orðið að
útflutningsvöru.
Hyggjast
virkja sjáv-
aröldumar
London. Reuter.
FYRSTA raforkustöð sem fær afl
frá öldum hafsins, OSPREY, verður
tekin í notkun við Skotland á morg-
un. Hún á að framleiða nægilegt
rafmagn, um tvö megavött, handa
2.000 heimilum og verður fest við
akkeri 300 metra undan norður-
ströndinni.
Öldunum er veitt inn í göng og
vatnið safnast fyrir í sérstöku hólfi
þar sem það þrýstir ioftinu upp á
við og er þetta loftsog síðan notað
til að knýja túrbínur. Hægt er að
auka afiið enn með því að bæta
vindmyllu ofan á mannvirkið. Hent-
ugast er að nota þessa tækni við
úthöf sunnarlega og norðarlega á
hnettinum, þar er ölduhæð ávallt
nægileg.
Hræddur við vetrarveðrin
Stöðin var hönnuð í Skotlandi
en smíðuð af breskum og frönskum
fyrirtækjum. Hún er um 20 metra
há, 8.000 tonn að þyngd og kost-
aði framkvæmdin öll 3,5 milljónir
punda eða 350 milljónir króna.
Fyrstu vikurnar verður kannað
hvort allt sé í lagi en síðan verður
stöðin tengd við orkukerfi Skot-
lands og er skemmst til Dounreay-
stöðvarinnar.
„Ég dáist að hugrekki þeirra en
er hræddur um að þetta gangi ekki
vel,“ segir Donald Macdonald, vís-
indamaður við Imperial Coliege I
London. Hann bendir á að á vet-
urna geri öðru hveiju ofsarok á
þessum slóðum og ekkert nema
rammgerðustu mannvirki á landi
standist þau átök.
■ Mengunarlaus orka/20
Qtti við fjármálakreppu í Japan
Lánastofmin bjarsfað
Tókýó. Rcutcr.
YFIRVOLD'í Japan skýrðu frá því
í gær, að hagsmunir sparifjáreig-
enda í stórri lánastofnun í Tókýó
yrðu tryggðir jneð opinberu fram-
lagi. Jafnframt var reynt að sefa
ótta manna erlendis við að japanska
fjármálakerfið, sem glímir við gífur-
leg útlánatöp, væri á leið inn í alvar-
lega kreppu.
Fjármálayfirvöld í Japan hafa
setið á fundum síðustu daga vegna
ástandsins hjá ýmsum lánastofnun-
um en tilkynningin kom eftir að
sparifjáreigendur höfðu tekið út
rúmlega 43 milljarða kr. í Cosmo
Shinyo Kumiai vegna ótta við, að
lánastofnunin væri að komast í
þrot. Cosmo er ein af fjölmörgum
sams konar lánastofnunum í Japan
en með þeim er minna eftirlit en
hinum eiginlegu bönkum.
Talsmaður japanska fjármála-
ráðuneytisins sagði, að þessar ráð-
stafanir væru ekki til marks um,
að ástandið í fjármálalífinu væri að
versna en fjármálasérfræðingar
hafa áður spáð því, að vandræðin
vegna útlánatapa myndu fyrst
koma fram hjá litlum lánastofnun-
um.
Reuter
Landnemar
jQarlægðir
ÍSRAELSKIR landuemar á Vest-
urbakkanum reyna að koma í veg
fyrir að ísraelskir lögreglumenn
geti fellt tjald landnema á hæð
skammt frá arabíska þorpinu al-
Khader. Landnemarnir eru and-
vígir því að Israel semji við Palest-
ínumenn um stækkun sjálfstjórn-
arsvæðisins á Vesturbakkanum. í
gær tóku lögreglumenn niður
tjöld og aðra bráðabirgðabústaði
sem landnemarnir hafa komið upp
á hæðinni, og hófu að flytja fólkið
burt.
■ Horfur á samkomulagi/22