Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leigubílstjórafélagið Frami
Kynnisferðir kærðar
fyrir leiguakstur
FRAMI, stéttarfélag leigubílstjóra,
hefur kært starfsemi Kynnisferða
hf., sem sér um flutninga fyrir Flug-
leiðir, til samgönguráðuneytisins.
Frami hefur óskað eftir því að leyfi
Kynnisferða verði breytt og segir
Sigfús Bjarnason, formaður Frama,
að málið sé í höndum samgöngu-
ráðuneytisins.
Kynnisferðir hf. hafa svokallað
sætaferðaleyfí. Sigfús segir að
þetta sé bráðabirgðaleyfi sem gildi
til áramóta. Veitt eru þrenns konar
leyfi til fólksflutninga í bílum fyrir
,• fleiri en átta farþega, þ.e.a.s. hóp-
ferðaleyfi til óreglubundinna hóp-
, ferða, sætaferðaleyfi milli tveggja
ákveðinna staða og áætlunarleyfi
) til reglulegra flutninga.
f Sigfús segir að Frami geri at-
hugasemdir við leyfi Kynnisferða
. hf. á þeirri forsendu að það sé veitt
' til flutninga almennt frá Reykjavík
til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar en
ekki tveggja afmarkaðra staða.
Akstur til og frá hóteli
„Við teljum mjög eðlilegt að
Flugleiðir flytji sína farþega milli
höfuðborgarinnar og flugstöðvar-
innar en við teljum að leyfið eigi
að vera á milli tveggja staða. Við
teljum að Kynnisferðir hf. fari langt
út fyrir þessa skilgreiningu því
umfangsmikill leiguakstur er stund-
aður í skjóii þessa leyfís milli Hót-
els Loftleiða og annarra staða víðs
vegar um borgina. Kynnisferðir hf.
túlka leyfið þannig að þeir geti
smalað farþegum hvar sem er í
borginni. Með þessu hafa þeir óeðli-
legan markaðsaðgang," sagði Sig-
fús.
550 leyfi til leigubílaaksturs eru
í gildi í landinu og þar af eru 540
leigubílstjórar félagar í Frama, að
sögn Sigfúsar. Nokkrir félagar í
Andvara, nýju félagi leigubílstjóra,
hafa einnig gert athugasemdir við
starfsemi Kynnisferða hf.
Söluljald fór á flug
f. HÁVAÐAROK skók land og lýð á
j suðvestanverðu landinu um helgina.
»Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
| olli rokið ekki verulegum óhöppum,
• en sjö metra hátt sölutjald fór þó
á flug við bensínstöð OLÍS í Álf-
jheimum á sunnudagsmorgun.
i Öryggisverðir Securitas urðu
• varir við að hælar tjaldsins höfðu
losnað snemma á sunnudagsmorg-
; un. Um 20 manns voru kallaðir út
|til að reyna að ná tjaldinu niður,
I en það tókst ekki. Tjaldið rifnaði
að ofanverðu og var þá ákveðið að
fella það.
Að sögn Sigurðar Pálssonar hjá
OLÍS náðist að bjarga megninu af
þeim vörum sem geymdar voru í
tjaldinu. Tjaldið sjálft er talið ónýtt
og nemur tjónið tæpum tveimur
milljónum króna.
Samkvæmt heimildum frá Veð-
urstofunni fór rokið mest upp í tíu
vindstig í Reykjavík, en lægðin sem
olli því er nú komin vestur fyrir
landið.
I
i
■f
i
Fasteignir
á Borgarfirði eystra
Borg hf., Borgarfirði eystra, auglýsir til
sölu eftirtaldar eignir:
Frystihús/sláturhús 1014 m2 Aðstofni til byggt’46. Viðbygg. síðar.
Sildarverksm./mjölskemma 936 m2 Byggð á árunum 1963-1966.
Fiskmóttaka 175 m2 Byggð 1953. Endurbaett síðar.
Söltunarstöðin Kögur 504 m2 Byggð að mestu á árunum '60-’75
Söltunarstöðin Borg 365 m2 Byggð 1962. Endurbætt síðar.
Eignirnar seljast hver fyrir sig eða í ei’nu lagi. Kaupverð eignanna greið-
ist með skuldabréfum til allt að 13 ára eða staðgreiðist með afslætti.
Nánari upplýsingar um eignirnar svo og verð og greiðsluskilmála veitir
stjórnarformaður Borgar hf., Magnús Þorsteinsson, Hreppsstofu Borg-
arífirði, sími 472 9855.
Þeir, sem áhuga hafa á kaupum, leggi inn kauptilboð innan ramma
söluskilmála (eða hærra) á Hreppsstofu í lokuðu umslagi fyrir kl. 13.30
mánudaginn 21. ágúst nk. en þá verða tilboðin opnuð að viðstöddum
kaupendum.
Borgarfirði, 24. júlí 1995,
stjórn Borgar hf.
striqa
1.495
Ath.
MikiS úrval
af öklakvenskóm
Stærðir: 36-41 , ^
Litur: Beige " * m ± ^
Toppskóri
1 XVELTUSUNDI • SÍMI 5
VIÐ INGÓLFST0RG
Póstsendum samdægurs
nn
552 1212
Kaffiverð lækkar ekki
þrátt fyrir lækkun á
heimsmarkaðsverði
Heildsöluverð á kaffi
hækkaði um 45% í
fyrra að sögn framleið-
enda, sem vilja meina
að meiri hækkunar
hefði verið þörf til að
mæta hærra kaffiverði
á heimsmarkaði.
LÆGRA heimsmarkaðsverð á kaffi
virðist ekki hafa leitt til lækkunar
á smásöluverði hérlendis. Að sögn
Úlfars Haukssonar, framkvæmda-
stjóra Kaffibrennslu Akureyrar,
hækkaði heildsöluverð á kaffi um
45% í fyrra vegna uppskerubrests
í Suður-Ameríku og spákaup-
mennsku í kaffiviðskiptum. Frið-
þjófur Ó. Johnson, forstjóri Ó.
Johnson & Kaaber, segir hækkun
á hráefninu hafa numið 140% og
að hún hafi aldrei skilað sér að
fullu í heildsöluverði.
Daníel Ólafsson & Co flytur inn
Merrild kaffi frá Danmörku og seg-
ir Guðmundur Marelsson, sölustjóri
hjá fyrirtækinu, að birgjar þeirra
gæti þess að eiga hráefni til þriggja
mánaða til að tryggja jafnt fram-
boð og getu til að bregðast við
verðsveiflum. Segir hann koma fyr-
ir að hluti hráefnisins sé lækkaður
í verði ef verðlækkun sé fyrirsjáan-
leg á heimsmarkaði til þess að
stemma stigu við henni.
HeildsÖluverð á Merrild kaffi í
500 gramma umbúðum hefur hins
vegar lækkað örlítið, að sögn Guð-
mundar, og segir hann hugsanlegt
að önnur lækkun sé á næsta leiti.
„Lækkunin skilaði sér hins vegar
ekki alveg því gengi dönsku krón-
unnar hefur farið stígandi. Ef mið-
að er við 500g poka af möiuðu
kaffi hefur hann lækkað um 20
krónur en það er von á frekari
lækkun, sem gæti orðið svipuð,“
segir hann.
„Núna eru menn að bíða eftir
því hvað gerist í september, hvort
það verða frost niðri í Brasilíu og
Kólumbíu, ef það gerist rýkur verð-
ið upp. En ef uppskeran er góð
lækkar verðið meira." Guðmundur
segir ennfremur að samdráttur
hafi verið í kaffidrykkju og hafi
innflutningur dregist saman um
10% á síðasta ári en þá voru flutt
inn um 2.000 tonn og að hið sama
hafi gerst í Danmörku.
Miklar sviptingar
Rydenskaffi hf. flytur inn Geval-
ia kaffi frá Skandinavíu og segir
Jón Axel Pétursson sölustjóri að
menn hafi átt von á verðlækkun.
„En síðan kom bakslag með þátt-
töku Mexíkó í samráði kaffíiand-
anna um að draga úr útflutningi.
Við höfum að vísu lækkað 500 g
pakkningu hjá okkur um 55 krón-
ur, en það gerum við tímabundið
sjálfir en ekki vegna lægra verðs
frá birgjum."
Þórir Baldursson, framkvæmda-
stjóri Rydenskaffis, segir sveiflur á
heimsmarkaðsverði ekki hafa skil-
að sér í framieiðslu þar sem tegund-
um sé blandað saman. „Hins vegar
eru kaffiræktendur með ákveðin
samtök þar sem þeir eru að reyna
að koma sér saman um ákveðinn
kvóta út úr hveiju landi. Allar
svona hugleiðingar af þeirra hálfu
hafa áhrif á þennan markað. Síðan
má nefna það, sem er kannski að
stríða okkur mest þessa dagana,
eða géngisþróun bandaríkjadals.
Það er með kaffið eins og aðrar
hrávörur að þetta er keypt inn í
dölum og vægi hans 10% til eða
frá hefur gríðarlega mikið að
segja.“
Þórir segir jafnframt að birgjar
fyrirtækisins hafi alltaf þriggja
mánaða birgðir fyrirliggjandi. „Þó
svo að kaffi hrapaði í verði í dag
eða hafi gert það fyrir mánuði er
óraunhæft að það skili sér inn á
þessa markaði fyrr en eftir þrjá til
fjóra mánuði.
Verðlækkun vegna
samkeppni
á innanlandsmarkaði
„Ég tei verðlækkun hér tilkomna
vegna samkeppni á markaðinum.
Ef menn líta svo á að þeir séu að
missa sölu og vilja auka hana, eða
orðinn er óeðlilegur verðmunur
milli tegunda grípa menn til þess
ráðs að gera eitthvað og það er
fyrst og fremst það sem er að ger-
ast hér frekar en að
verð á hrákaffí utan úr
heimi spili einhveija
rullu hér. Þá er ég að
tala um okkar fyrir-
tæki,“ segir Þórir.
Úlfar Hauksson,
framkvæmdastjóri
Kaffibrennslu Akur-
eyrar, sem kaupir hrábaunir að
mestu leyti beint frá framleiðend-
um, segir kaffiverð vera á uppleið
og að margt bendi til áframhald-
andi hækkana. „Þetta er mismun-
andi eftir því hvernig innkaupin
fara fram. Það var mjög erfítt að
kaupa kaffi meðan þessi skamm-
tímasveifla varð niður á við. Ástæð-
an er sú að á meðan voru helstu
viðskiptalönd okkar, Brasilía og
Kólumbía, með lágmarksverð á
kaffi og lækkun á markaði hafði
því sáralítil áhrif. Þetta er því sýnd
veiði en ekki gefin.
Ilalda að sér höndum
Svo er þetta líka þannig að þeg-
ar verð er á niðurleið halda menn
að sér höndum með að kaupa í
þeirri von að það fari enn lengra.
En það sem af er árinu, að undan-
skilinni þeirri niðursveiflu sem varð
um daginn og hafði í raun sáralítil
áhrif á raunverulegt verð á þeim
baunum sem hægt var að ná í,
hefur kaffiverð lengst af verið á
því róli sem menn voru að spá í
um áramótin þegar síðustu verð-
hækkanir urðu á neytendamarkaði.
Ég veit af smávægilegum lækk-
unum á neytendaverði í Þýska-
landi. En þar hefðu menn þurft að
hækka frekar en lækka því þegar
hráefnisverðið meira en tvöfaldað-
ist á skömmum tíma var ekki hægt
að elta það, þannig að menn tóku
á sig hluta af þeirri hækkun,“ seg-
ir hann.
Úifar segir ennfremur að afkom-
an nú sé talsvert verri en var.
„Neysla á kaffi hefur dregist sam-
an, að minnsta kosti um 3-4% og
talað um hið sama í Evrópu, allt
upp í 6%,“ segir hann.
„Annars er þessi markaður búinn
að vera svolítið óreglulegur. í árs-
byijun í fyrra þóttust spákaupmenn
sjá að kaffi myndi hækka, enda
var það ekki langt frá framleiðslu-
kostnaðarverði á heimsmarkaði.
Framleiðsluríkin voru farin á stúf-
ana með að gera bragarbætur á
þessu til að fá hærra verð. Þá fóru
fjárfestingaraðilar, fjársterkir sjóð-
ir og stofnanir, jafnvel bankar, á
stúfana og keyptu heilmikið af
kaffi. Það varð til þess að verð
hækkaði þónokkuð mikið á fyrri
hluta ársins í fyrra fram undir
mitt ár. Þetta hefur stundum ekk-
ert með kaffineyslu eða -fram-
leiðslu að gera.
Staðan núna er þannig að kaffi-
brennslur eiga mjög litlar birgðir.
Það endar væntanlega með því að
menn þurfa að kaupa kaffið þegar
þeir þurfa á því að halda, sem vænt-
anlega breytir mynstrinu. Menn
hafa getað haldið niðri
í sér andanum og geng-
ið á birgðir en það er
ekki hægt endalaust,
Síðasta ráðstöfun kaffí-
framleiðsluríkj anna
kemur síðan til með að
hafa áhrif til hækkunar
á verði tímabundið það
er ekki nokkur vafi á því. En það
eru líkur á því að smásöluverð muni
ekki hækka rnikið," segir hann.
Skiluðu sér ekki til fulls
Friðþjófur Ó. Johnson, forstjóri
Ó. Johnson & Kaaber, segir ekki
að sjá að hækkanir á heimsmark-
aðsverði á kaffi hafi verið teknar
að fullu inn í smásöluverð hér, en
heildsöluverð hjá fyrirtækinu
hækkaði um 25% í kjölfarið að
hans sögn. „Þótt það hafi hækkað
ailt að 45% hér er það ekki nándar
nærri nóg því hækkunin nam allt
að 140% á sínum tíma,“ segir hann.
„Ég á von á frekari sveiflum og
býst ekki við því að markaðurinn
hreyfist meira en um þessi 25% til
eða frá, sem hann hefur gert und-
anfarið. Hækkanirnar hafa aldrei
náð í gegn því að framleiðendurnir
hafa að mestu haldið að sér hönd-
um í innkaupum og aðeins keypt í
neyð. Við höfum tekið þær á okkur
í þeirri von að markaðurinn lækk-
aði aftur. Það hefur ekki gerst og
mun ekki gerast því ný samtök
kaffiræktenda hafa reynst öflugri
en nokkur átti von á.“
Friðþjófur segir að neysla á kaffl
hafi dregist minna saman hér en
annars staðar og hafi hún aukist
sums staðar, til dæmis í Noregi.
„En samdráttur í innflutningi hér
er skiljanlegur til skamms tíma lit-
ið þegar tekið er mið af því að all-
ir kaupendur hafa verslað til
skamms tíma að undanförnu."
Hann vill ekki tjá sig um það hvort
hækkanir séu innan seilingar. „En
þótt verðið hafi hækkað sem þessu
nemur er bolli af kaffí næstódý-
rasti drykkurinn á eftir vatni. Hann
kostar milli 5 og 6 krónur og enn-
þá minna ef blandan er veik.“
Einn bolli af
kaffi kostar
fimm til sex
krónur í
mesta lagi