Morgunblaðið - 01.08.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 27
AÐSENDAR GREIIMAR
Markmið einkavæðingar
í NÝJU afmælisriti
Félags löggiltra endur-
skoðenda er viðtal við
Sigurð Þórðarson, rík-
isendurskoðanda, og
Rúnar B. Jóhannsson,
löggiltan endurskoð-
anda, um stjójnsýslu-
endurskoðun. í viðtal-
inu er m.a. vikið að
einkavæðingu. Rúnar
gagnrýnir þar að Ríkis-
endurskoðun hefur
reiknað út hvert sölu-
verð á ákveðnum eign-
um, hlutabréfum eða
öðrum „ætti að vera“.
Telur Rúnar að ekki sé
hægt að reikna út rétt söluverð,
sem ekki hefur staðfest markaðs-
virði. Síðan segir hann orðrétt í
viðtalinu:
„í fyrsta lagi er rétt sölu-
verð/kaupverð hins hagræna
manns háð núvirðingu framtíðaraf-
raksturs og engin leið að vita fyrir
víst hver hann verður. Eignamats-
aðferð er ekki hagfræðilega rétt
aðferð nema ef til vill í þeim tilvik-
um sem kaupandi stendur frammi
fyrir þeim valkosti að kaupa fyrir-
tæki eða reisa sams konar fyrir-
tæki sjálfur frá grunni. Síðast en
ekki síst er söluverðið alltaf háð
reiptogi í samningum milli seljanda
og kaupanda.“
„Ég held að slíkir útreikningar
séu hæpnir og menn verða líka að
gá að því að þegar um einkavæð-
ingu er að ræða þá er umhverfið
mjög pólitískt og markmiðið er þá
yfirleitt sett af ríkisstjórn sem
ákveður að einkavæða. Sú ákvörð-
un, sem er pólitísk, hefur gríðarleg
áhrif á það hvað fæst fyrir eignirn-
ar. Það kann líka að vera, að hluti
hins pólitíska markmiðs sé að fá
ekki mikið fyrir eignina en önnur
atriði skipti meira máli s.s. dreifð
eignaraðild o.s.frv."
Þessi ummæli hins löggilta
endurskoðanda lýsa skilningi á
framkvæmd einkavæðingar. Ekki
má gleyma hinum pólitíska þætti
sem er öðru fremur sá, að draga
úr umsvifum ríkisins. Vissulega
hlýtur það að vera markmið, að
eðlilegt verð fáist við sölu eigna
ríkisins, en meginmarkmiðið er
Hreinn Loftsson
ávallt pólitískt. í sum-
um löndum hefur sú
leið jafnvel verið farin
að gefa eignir ríkisins
og á það einkum við
um lönd sem verið
hafa ofurseld miðstýr-
ingu og þjóðnýtingu
áratugum saman og
ekki eru til staðar að-
ilar með fjárhagslegt
bolmagn til að kaupa
fyrirtækin.
Fyrir Sigurði Þórð-
arsyni virðist sölu-
verðið vera höfuð-
markmiðið við einka-
væðingu ríkisfyrir-
tækja, þ.e. eins og það er reiknað
út af embættismönnum hans. Hef-
ur Ríkisendurskoðun einblínt á end-
urmatsaðferðir sínar og lagt minna
upp úr öðrum aðferðum. A undan-
förnum árum hafa komið útreikn-
ingar frá stofnuninni sem eru í
engu samræmi við raunveruleika
markaðarins. Hefur stofnunin ekki
hirt um afleiðingar þess að henda
slíkum útreikningum út í umræð-
una. Hafa menn þurft að leggja
sig í líma við að leiðrétta þá röngu
mynd sem slíkir útreikningar og
skýrslur hafa gefið af framkvæmd
einkavæðingar. Má líkja því við að
seld sé notuð bifreið frá ríkinu á
markaðsverði, en stofnunin komi í
kjölfarið með útreikninga sína um
það, hver hafi verið smíðakostn-
aður bifreiðarinnar eða framreikn-
að kaupverð hennar.
í framangreindu viðtali kemur
síðan ásökun Sigurðar Þórðarsonar
þess efnis að misbrestur hafi verið
á því að markmið með sölu fyrir-
tækja eða eigna hafi verið skil-
greind fyrirfram. í viðtalinu segir
hann orðrétt: „Raunar virðist það
hafa verið nokkuð algengt að eign-
ir séu seldar og svo eru fundin og
skilgreind einhver markmið eftir
á, sem gætu passað niðurstöðunni
úr tiltekinni sölu. Markmiðin geta
verið margvísleg, t.d. að hámarka
söluverð, að uppfylla einhveijar
sérþarfír a tilteknum _stað, dreifa
eignaraðild o.s.frv.“ í framhaldi
þessara ummæla kemur síðan eftir-
farandi:
„Ég er algjörlega ósammála
Það hlýtur að vera
markmið einkavæðing-
ar, segir Hreinn Lofts-
son, að eðlilegt verð
fáist við sölu eigna ríkis-
ins. En meginmarkmið-
ið er ávallt pólitískt.
Rúnari í því, að ekki sé hægt að
reikna með ákveðnum forsendum
út frá viðurkenndum venjum hvert
virði einhvers fyrirtækis eða stofn-
unar ér. Það er hægt að gera þetta
með tvennum hætti; út frá eigna-
virði og út frá tekjuvirði í framtíð-
inni miðað við eþihveijar tilteknar
forsendur. Þannig er hægt að finna
út hvers virði tiltekin eign er í hendi
eigandans. Með það í huga er síðan
hægt að fara með eignina á mark-
að og kanna hvort viðunandi verð
fæst fyrir hana og hvort menn vilja
selja eða ekki.“
Hægt er að taka undir þessi síð-
ari ummæli Sigurðar Þórðarsonar,
enda felst þessi aðferð t.d. í verk-
lagsreglum síðustu ríkisstjórnar
um framkvæmd einkavæðingar.
En það eru handhafar fram-
kvæmdavaldsins í umboði Alþingis
en ekki Ríkisendurskoðun sem
meta og taka ákvörðun um það,
hvað telst viðunandi verð og hvort
eigi að selja eða ekki. Þannig var
t.d. tekin ákvörðun um að bíða með
sölu og hætta við sölu í ákveðnum
tilvikum vegna þess að aðstæður
þóttu ekki vera heppilegar til sölu.
Alhæfingu Sigurðar um skort á
skýrum markmiðum við einkavæð-
ingu er á hinn bóginn nauðsynlegt
að mótmæla. Síðastliðin ár hefur
markvisst verið unnið að undirbún-
ingi einkavæðingar. Markmiðin
hafa verið að skýrast og fram-
kvæmdin að slípast. Markmiðin eru
í aðra röndina pólitísk, eins og fram
kemur hjá Rúnari B. Jóhannssyni
í viðtalinu. Þau er að draga úr af-
skiptum ríkisins á sviðum þar sem
ráðandi pólitísk viðhorf segja fyrir
um að rekstur sé betur kominn hjá
einstaklingum og fyrirtækjum
þeirra. Þannig er stuðlað að dreif-
ingu valds. Um leið eru markmiðin
hagfræðileg og miða að því að efla
fijálsa samkeppni í hagkerfinu.
Þetta er kjarni málsins. I tíð síð-
ustu ríkisstjórnar var þetta mark-
mið afar skýrt, þ.e. að ríkið ætti
eftir því sem mögulegt væri að
draga sig úr samkeppnisrekstri.
T.d. kemur þetta skýrt fram í
starfsáætlun síðustu ríkisstjórnar,
„Velferð á varanlegum grunni", og
einnig í margvíslegu kynningarefni
sem unnið var á vegum Fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu,
bæði var þar um að ræða almennt
efni og svo einnig ítarefni, fyrir
þá sem vildu kynna sér markmiðin
betur. Eftir þessum markmiðum
var unnið og töluverður árangur
náðist þó að hann hefði mátt vera
meiri. Sérstaklega sakna ég þess
að ekki skyldi nást árangur í
banka- og sjóðakerfínu.
Til hliðar við hin pólitísku og
hagfræðilegu meginmarkmið
einkavæðingar eru síðan önnur
markmið eins og þau að sem flest-
ir taki þátt í hlutabréfakaupum,
að almenningur verði virkur þátt-
takandi í atvinnulífinu, og einnig
að auka tekjur ríkissjóðs með sölu
eigna og veija hluta söluandvirðis-
ins til að efla rannsóknarstarfsemi
í landinu. Að sjálfsögðu er það
markmiðið, að fá sem mest fyrir
eignina, en þá verður að miða við
aðstæður á markaði hveiju sinni.
En, eins og áður sagði: Sú ákvörð-
un að selja getur ráðist af pólitísk-
um forsendum og getur þar af leið-
andi haft áhrif á það verð, sem
mögulegt er að fá fyrir fyrirtækið.
Þetta vald er í höndum fram-
kvæmdavaldsins í umboði Alþingis.
Síðasta ríkisstjórn setti sér skýrar
verklagsreglur um framkvæmdina
þar sem m.a. var kveðið á um út-
tekt á fyrirtækjum áður en kæmi
til sölu. Samkvæmt þeim reglum á
að meta markaðsvirði fyrirtækisins
og beita öðrum aðferðum til saman-
burðar áður en ákvörðun er tekin
um sölu, rétt eins og Sigurður
bendir á í viðtalinu. Eftir þessu var
farið í öllum meginatriðum jafn-
framt því sem markmið einkavæð-
ingar voru skilgreind. Því verður
að mótmæla alhæfíngum ríkisend-
urskoðanda um þá framkvæmd
einkavæðingar, að markmið séu
fundin eftir á „sem gætu passað
niðurstöðunni úr tiltekinni sölu“.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
m TO MfWUMR!
i
iiíiiitilíííæiiii L.. ;r.r.,R
a S r?k
ELFA-LVI
Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-OSO
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir
30- 300 lítra, útvegum aðrar stærðir
frá 400-10.000 lítra.
ELFA-V ORTICE
Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut-
reyndur við íslenskar aðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG
GREIÐSLUSKILMÁLAR.
/7'
Einar Farestveit & Co.hf.
Borgartúni 28 - ® 5622901 og 5622900
--------------------l------------
' '
tjöldum
5 manna
i' 401 a\ st
' 1 ' ji Jpr r t > ••• *
þyí besta!
31.245 kr. stgr
Eigum cinnig 4 manna hústjöld á
Tjaldaðu þínu besta - frá Skátabúðinni!
RAÐGREIDSLUR
Raðgreiðslur • Póstsendum samdægurs.
-SWmK fRAMHR
S í m-i 5 6 f 2 045 • Fax 562 4122