Morgunblaðið - 01.08.1995, Síða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Frænka mín,
SESSELJA BJARNARDÓTTIR
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Kristnesspítala.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna
Bára Ingjaldsdóttir.
t
Ástkær eiginkona mín,
ÁRNÝ GUÐRÚN RÓSMUNDSDÓTTIR
Efstasundi 4,
Reykjavík,
lést 29. júlí sl. á Dvalarheimilinu Hrafn-
istu Reykjavík.
Fyrir hönd aðstandenda.
Magnús Jörundsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GEIRNÝTÓMASDÓTTIR
áður til heimilis að Efstasundi 29,
lést í Hrafnistu Reykjavík laugardaginn 29. júlí.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA METÚSALEMSDÓTTIR KJERÚLF
frá Hrafnkelsstöðum,
Hléskógúm 10,
Egilstöðum,
andaðist í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 29. júlí.
Jóhanna Einarsdóttir, Viðar Arthúrsson,
Guðrún Einarsdóttir, Jón E. Kjerúlf,
Jón M. Einarsson, Sigurlaug Jónasdóttir,
Þorvarður B. Einarsson, Elín Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL GÍSLASON,
vörubifreiðastjóri,
Skipasundi 25,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu sunnudaginn 30. júlí.
Sigriður Pálsdóttir, Jóhann V. Guðmundsson,
Kári Pálsson, Ólöf Ingimundardóttir,
Stefán Pálsson, Málfríður Á. Þorvaldsdóttir,
Páll R. Pálsson, Sigurbjörg Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRA ÓLAFSDÓTTIR
frá Hvitárvöllum,
Lönguhli'ð 3,
Reykjavík,
lést 29. júlí í Landspítalanum.
María Sigmundsdóttir, Ásgeir J. Guðmundsson,
Sæmundur Sigmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KATRIN M. JÓHANNESSON LANGE,
Bogahlíð 14,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum laugardaginn 29.
júlí.
Guðjón Jóhannesson,
börn, tengdabörn og barnabörn.
SIGURÐUR
BALD VINSSON
+ SigUrður Bald-
vinsson var
fæddur á Hálsi í
Oxnadal 26. sept.
1915. Hann lést á
Fjór ðungssj úkrahús-
inu á Akureyri 23.
júlí síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Guðbjörg
Helga Sveinsdóttir,
f. 9.9. 1884 á Neðri-
Rauðalæk, d. 21. okt.
1924, og Baldvin Sig-
urðsson, f. 5. ágúst
1872 á Myrká, d. í
ágúst 1940. Þau
bjuggu á ýmsum bæjum í Oxnad-
al, en lengst á Hálsi. Síðast
bjuggu þau á Höfða við Akur-
eyri. Þau eignuðust tíu börn. Þau
voru: 1) Guðbjörg Soffía, f. 3.5.
1909, d. 4.8. sama ár. 2) Þórey,
f. 2.12. 1910, d. 31.7. 1924. 3)
Ingólfur bóndi og verkamaður á
Naustum, f. 1912. 4) Sigurður,
f. 30.3. 1913, d. 1.12. 1915. 5)
Björn Sveinn, f. 26.9.1914, bóndi
á Naustum. 6) Sigurður f. 26.9.
1915, d. 23.7. 1995. 7) Sveinbjörg
Guðný Sigurbjörg, f. 6.12. 1916,
húsfreyja á Akureyri. 8) Þórdís
Jónína, f. 7.8. 1918, húsfreyja á
Akranesi. 9) Þórhallur, f. 20.3.
1920, d. sama ár. 10) Þórlaug
Guðbjörg, f. 3.11. 1922, hús-
freyja á Akureyri.
Sigurður kvænt-
ist eftirlifandi konu
sinni, Ragnheiði
Pálsdóttur, 1952.
Foreldrar hennar
voru María Stef-
ánsdóttir frá
Möðrudal og Páll
Vigfússon frá Jök-
uldal, er bjuggu í
Víðidal, Grund á
Jökuldal og á Aðal-
bóli. Börn Sigurðar
og Ragnheiðar eru
1) Baldvin Halldór,
f. 26.5. 1953, mat-
reiðslumaður á Ak-
ureyri, kvæntur Þórhildi Ingu
Ingimundardóttur og eiga þau
eitt barn. 2) Hrafn, f. 8.12. 1958,
afgreiðslumaður í Reykjavík,
fráskilinn og á tvö börn. 3) Helga
María, f. 8.12. 1961, húsfreyja á
Akureyri, fráskilin og á þijú
börn. Sambýlismaður _ hennar
Árni Páll Halldórsson. Áður átti
Ragnheiður einn son, Pál bif-
vélavirkja og bifreiðasljóra á
Akureyri. Hann er kvæntur Þór-
unni Pálsdóttur og eiga þau tvö
börn.
Sigurður stundaði ýmis störf
á Akureyri, en lengst verslunar-
og skrifstofustörf.
Útför Sigurðar er gerð frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
ÆSKUMINNINGAR eru flestum
dýrmætar og helgar. Og þegar ein-
hver æskufélaga hverfur úr hópnum,
koma minningarnar skýrar fram í
hugann. Svo er nú, þegar frændi
minn Sigurður Baldvinsson er ailur.
Við vorum systkinasynir. Hann
fluttist í Naust ungur að aldri er
móðir hans lést. Hann ólst upp hjá
föðursystkinum mínum. Við lékum
okkur saman og urðum að mörgu
leyti samrýndir. Eitt áttum við sér-
staklega sameiginlegt. Það var
ánægjan að umgangast sauðféð. Það
var unun okkar og ævintýri. Þá koma
mér í huga vísur úr kvæðinu Fjárhús-
ilmur eftir Guðmund Inga Kristjáns-
son, sem mér finnst eiga vel við hér.
Fjárhús held ég hæfði mér.
Hér eru bestu sporin.
Undarlega um mig fer
angan þeirra á vorin.
Fylltur em eg fjárhúsþrám,
fótum held ei kyrrum.
Heitan liggur ilm af ám
opnum fram úr dyrum.
Endalaust gátum við rætt um
kindurnar. Við þekktum allar æmar
með nöfnum á heimilunum á Naust-
um.
Á sumrin þegar unglingar fóru
eitthvert tii að skemmta sér um helg-
ar var skemmtun okkar nafnanna
að ganga upp í fjall, stundum upp á
Súlumýrar og vita hvað við sæjum
af kindum sem við þekktum. Margt
bar fyrir auga enda fegurðin mikil,
en að skoða kindurnar var mesta
ánægjan. Þetta var gert oft á sumri
ár eftir ár.
Svo kom að hausti, göngur og
réttir hófust — það var skemmtilegur
tími og unaðslegar eru minningarnar
er við riðum milli réttanna í nágrenn-
inu 0g rákum safnið heim. Oft fórum
við fleiri en tveir, en Sigurður Bald-
vinsson var ætíð sjálfsagður foringi
í þessum ferðum. Hann fór sjálfur í
göngur á Bleiksmýrardal. Það fór
ég síðar, þó aldrei eins langar göngur
og hann. En að fara á Reykjarétt í
Fnjóskadal var ævintýri er ekki
gleymist. Ekki má gleyma er rekið
var á vorin austur á Bieiksmýrardal.
Það var fagurt að líta yfir Eyjafjörð
þegar komið var upp á Bíldsárskarð
og ekki síður þegar hinn skógi vaxni
Fnjóskadalur blasti við. Við vorum
oft margir í för, en alltaf fannst mér
Sigurður frændi minn bera þar af
þótt aðrir væru duglegir og ágætir.
Sigurður var afburða markglöggur
og má segja að hann hafi kunnað
markaskrár nærliggjandi sveita utan-
að. Þar sem hann var mættur þurfti
lítt að huga í markaskrár, nóg var
að leita til hans. Ég var mjög stoltur
af frænda mínum þá sem oftar.
Æskan leið, margt breyttist en ástin
á kindunum dofnaði lítt hjá okkur
frændum.
Síðar taka skólaárin við, Sigurður
var við nám í Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar einn vetur, en haustið 1933
settist hann í 2. bekk Menntaskólans
á Akureyri og lauk þaðan gagnfræða-
prófi 1935. Hann varí 4. bekk stærð-
fræðideildar næsta vetur, en hætti
síðan námi. Búskapur beið hans á
Naustum, en síðan komu önnur störf,
svo sem hjá Sauðfjárveikivömum. Þar
vann hann lengi, bæði hér í Eyja-
firði, Húnavatnssýslum, Borgarfirði
og víðar. Síðast starfaði hann við
verslunar- og skrifstofustörf hér á
Akureyri, eða allttil hann hætti vegna
aldurs. Allt gerði hann af alúð og
samviskusemi. Þetta var fyrir tíma
tölvunnar, þá var meira handskrifað
en Sigurður hafði fasta og skýra rit-
hönd og kom það sér vel á þeim tíma.
Þannig leið ævin, hann sem hefði
átt að vera bóndi á góðri sauðjörð
varð góður skrifstofumaður. Þannig
t
Ástkær eiginmaður minn, sonur, faðir,
fósturfaðir, bróðir, tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR E. SIGURÐSSON,
rafeindavirki,
Álftahólum 6,
Reykjavfk,
lést í Landspítalanum 30. júlí.
Finnbjörg Konný Hákonardóttir,
Lára Ólafsson,
Sigurlaugur Birgir Ólafsson, Þuríður Pétursdóttir,
Sigurður Ólafsson, Bára Sif Pálsdóttir,
Hákon Ólafsson,
Lárus Ólafsson,
Helga Georgsdóttir, Jón Þórðarson,
systir og barnabörn.
gerist oft í lífi manna. Hann stóð sig
vel í því sem hann gerði að h'fsstarfi.
Ég hefði betur hugsað mér hann sem
bónda með stórt fjárbú á góðri jörð,
sjá hann annast féð sitt, smala því,
hýsa það og fóðra.
í æsku sátum við oft á garðaband-
inu og horfðum á ærnar éta töðuna.
Það voru unaðsstundir. Við ræddum
um framtíðina sem hlaut að vera
þessu lík, bentum svo á þessa eða
hina ána, töluðum um persónuleika
þeirra því ólíkar voru þær, þetta voru
sjálfstæðir einstaklingar. Spjölluðum
um búskapinn eins og við vildum
hafa hann.
En við vissum lítt hvað framundan
var, árin liðu og samfundir okkar
urðu strjálii. Ég fluttist burt úr bæn-
um, hann bjó hér og stofnaði heimili.
Hann kvæntist Ragnheiði Pálsdóttur
úr Jökuldal, hún bjó honum ágætt
heimili, þau eignuðust þijú börn.
Baldvin Halldór, matreiðslumann á
Akureyri, Hrafn, afgreiðslumann í
Reykjavík og Helgu Maríu, húsfreyju
á Ákureyri. Ragnheiður átti son áður
en hún giftist, Pál bifvélavirkja á
Akureyri og gekk Sigurður honum í
föðurstað og var alltaf mjög kært
með þeim.
Heimilið var hamingjureitur
frænda míns, þar undi hann glaður
við sitt og var mjög heimakær. Þó
fannst mér á stundum að hann teldi
sig hafa farið á mis við eitthvað. Var
það ekki umsýslan með kindur? Þar
var hugur hans og langan.
Eftir erfíð veikindi hefur hann
kvatt okkur og öðlast hvíld. í trú á
annað líf og æðra eignast hann það
sem best hæfir. Kannske „hann kem-
ur árdegis út á hlað, í eyrum jarmur
lætur“.
Ég þakka frænda mínum öll kynn-
in allt frá bernsku okkar, bið Guð
að blessa sál hans.
Við Aðalbjörg sendum Ragnheiði,
börnum þeirra og ástvinum innilegar
samúðarkveðjur.
Sigurður Guðmundsson
frá Grenjaðarstað.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
ÍIÉTIL LÖFTLEIBIR
108 Reykjavík. Sími 31099
til kl.22,-einnigum!
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.