Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 43
BREF TIL BLAÐSIMS
Auðlindin
Frá Sigurjóni Jónssyni:
UNDANFARIÐ hefur borið æ
meira á þeim hugmyndum vinstri-
manna að skattleggja beri veiði-
heimildir sjávarútvegsfyrirtækja.
Og nú hefur jafnvel heyrst sú
skoðun frá forsvarsmanni stærsta
sjávarútvegsfyrirtækis á íslandi
að einsköttun sé lausnin. Við
fyrstu sýn mætti ætla að þessar
hugmyndir væru mismunandi út-
færslur á sömu hugmynd. En því
fer víðsfjarri, veiðileyfagjald er
skattur á aflaheimildir en einskött-
un er aðferð fjársterkra aðila til
að sölsa undir sig aflahlutdeildir
til frambúðar.
Skoða þarf íslenskt
þjóðfélag í heild
Áður en menn hætta sér út í
frekari umræður ættu þeir að
skoða íslenskt þjóðfélag í heild og
reyna að átta sig á því hver er
hin raunverulega auðlind. Við bú-
um við kvótakerfi á mörgum svið-
um íslensks þóðfélags, t.d. í land-
l búnaði, áfengisverslun, póst- og
símaþjónustu, mjólkuriðnaði, lög-
I gildingu, þinglýsingum og á mörg-
[ um öðrum sviðum. Hvers vegna á
að skattleggja handhafa réttar í
einu kvótakerfi en ekki öðrum?
Engum dettur í hug að skatt-
leggja kvóta bænda, vegna þess
að landbúnaður þykir ekki nógu
arðbær til að réttlæta sérstaka
sköttun á kvótanum sem menn
hafa eignast ýmist með hefð eða
I með því að kaupa hann af öðrum
I bændum, á nákvæmlega sama
hátt og í sjávarútvegi. Sjávarút-
' vegurinn er aftur á móti stundum
rekinn með hagnaði og því finnst
sumum sjálfsagt að skattleggja
hann sérstaklega. Sjávarútvegur
er rekinn með miklum halla víðast
hvar í heiminum og nýtur styrkja
eftir því. En hvers vegna er sjávar-
útvegur rekinn með hagnaði á ís-
landi? Er það vegna þess að við
höfum kvóta? Nei, margar aðrar
þjóðir hafa kvóta án þess að hafa
hagnað. Svo kvótinn er í sjálfu sér
ekki ávísun á hagnað. Sjávarút-
vegur á Islandi er rekinn með
hagnaði vegna þess að hann er
okkar langstærsti útflutningsiðn-
aður og við vitum að ef hann er
ekki rekinn með hagnaði þá verður
landið einfaldlega gjaldþrota. Það
er því ekki kvótinn sem skapar
verðmætin í sjávarútvegi heldur
þekking og áræði þeirra sem
starfa við hann. Hið sama má
segja um allar atvinnugreinar.
Fólkið í landinu er auðlindin
Fyrir allmörgum árum var gert
átak í iðnaði á íslandi, iðnfyrir-
tæki byggðu verksmiðjuhúsnæði
og keyptu spónapressur og tæki
sem hefðu nægt til að framleiða
húsgögn fyrir öll Norðurlöndin.
Ef þetta átak hefði borið ávöxt í
framleiðslu og útflutningi með til-
heyrandi hagnaði, hefðu eflaust
komið einhveijir öfundarmenn
með háværar kröfur um sérstakan
spónapressuskatt eða eitthvað
álíka gáfulegt. En þekking og
dugur til að nýta þessi tæki var
ekki fyrir hendi og nú er þessi
iðnaður varla til lengur nema á
einstaka ráðstefnum þar sem for-
svarsmenn hans krefjast skatts á
dugnað og áræði þeirra sem starfa
við sjávarútveg.
Af ofanrituðu má sjá að auðlind-
in er fólkið, sem kann að notfæra
sér þau tækifæri sem bjóðast en
fiskur, gras, spónapressur og ann-
að eru aðeins tæki sem auðlindin
notar til að skapa verðmæti.
SIGURJÓN JÓNSSON,
Stykkishólmi.
Starfshættir
ÁTVR
gagnrýndir
Frá Árna Brynjólfssyni:
MIG LANGAR að taka undir
gagnrýni Víkveija á starfsháttum
ATVR, sem eru með ólíkindum og
myndu óvíða líðast nema hér í
landi sauðkindarinnar. Það sem
þó einkum vakti athygli mína var,
að engin athugasemd var gerð við
þessa skýringu forstjórans:
„... en þegar. bjórsala hófst var
ákveðið, að sænskri fyrirmynd, að
ekki mætti selja bjór sem væri
yfir 5,6% að styrkleika."
Það er orðinn svo almennur
kækur á íslandi að nota Norður-
löndin sem röksemd fyrir alls kyns
fáránleika, vitnað í það landið sem
hentar best hveiju sinni varðandi
öfgar í Iagasetningum og útkjálka-
skap, að varla er eftir tekið. —
Af þessari ástæðu og vegna gjaf-
milds „sósíals", sem margir hafa
notið, hefur Svíþjóð oftast orðið
fyrir valinu enda margt búralegt
þar í landi.
í umræddu tilfelli hentaði Sví-
þjóð betur en Danmörk, þar sem
áfengismál eru nánast eins og hjá
normal fólki og því ekki viðmiðun-
arhæft fyrir íslenskt ofstæki. Ein-
mitt þetta skýrir hvernig viðmið-
anir við Norðurlöndin hafa verið
misnotaðar.
Þá má og benda á, ÁTVR-for-
stjóranum til málsbóta, þegar
hann auglýsir ekki opnunartíma
eða niðurfellingu hafta á bjór-
styrkleika, að í Svíaríki, eins og
raunar á öllum Norðurlöndunum
nema hér og í Finnlandi, hafa
auglýsingar verið litnar hornauga
og til skamms tíma bannaðar í ljós-
vakamiðlum.
ÁRNI BRYNJÓLFSSON,
Rauðalæk 16, Reykjavík.
verslunarmafina
núrakkar:
3.490 kr.
- v i
2.990 kr.
.
" ' ■:
f *
• •
vorum
.
I
I
I
l
& HYUnDni B LADA
&
(, reiftslukjör 111 nilt ciii i 6 múttuðn <ín úiborgntiar
RENAULT
GOÐIR NOTAÐIR BILAR
Citroen Ax, árg. '91, '
5 g., 3 d., hvítur, ek. 42 þús.
Verð kr. 490 þús.
Subaru Justy, árg. '91,
5 g., 5 d., rauður, ek. 47 þús.
Verð kr. 690 þús.
Saab, 9000 Turbo, árg. '87,
sjálfsk., 4 d, blár, ek. 120 þús.
Verð kr. 900 þús.
Renault Clio RT, 1400, árg. '91,
5 g., 5 d., grár, ek. 64 þús.
Verð kr. 690 þús.
Hyundai Pony, 1500, árg. '94,
5 g., 3 d., svartur, ek. 22 þús.
Verð kr. 900 þús.
Lada station, 1500, árg. '94,
5 g., 5 d. hvítur, ek. 17 þús.
Verð kr. 550 þús.
MMC Colt GLxi, 1500, árg. '91,
sjálfsk., 3 d., grænn, ek. 77 þús.
Verð kr. 880 þús.
Toyota Corolla, 1300, árg. '87,
3 d, hvítur, ek. 123 þús.
Verð kr. 320 þús.
Daihatsu Applause, 1600, árg. '90,
sjálsk. 4 d., grár, ek. 60 þús.
Verð kr. 750 þús.
Peugeot 306 n, 1400, árg. '94,
5 g., 5 d., rauður, ek. 50 þús. km.
Verö kr. 960 þús.
Renault 19 TXE, 1700, árg. '91,
sjálfsk., 4 d. svartur, ek. 49 þús.
Verðkr. 870 þús.
Suzuki Swift, árg. 90, 5 g.,
5 d., blár, ek. 100 þús.
Verö kr. 470 þús.
Chevrolet Monte Carlo,
árg. '78, sjálfsk., rauður,
Verö kr. 390 þús.
Lada Samara, 1500, árg. '94,
5 g., 4 d., grár. ek. 11 þús.
Verð kr. 650 þús.
Itytlf* yfa ftnt f't ú #</ $
ú I-/ /O /
NOTAÐIR BÍLAR
SUÐURLANDSBRAUT 12. SÍMI: 568 1200. BEINN SÍMI: 581 4060