Morgunblaðið - 01.08.1995, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
DAGBOK
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 55
VEÐUR
1. ÁGÚST Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl í suðri
REYKJAVÍK 3.05 0,3 9.11 3,5 15.19 0,4 21.27 3,6 4.32 13.32 22.30 17.16
ÍSAFJÖRÐUR 5.09 0,2 11.04 1,8 17.24 0,4 23.17 2,0 4.16 13.39 22.58 17.22
SIGLUFJÖRÐUR 1.18 1,3 7.29 0J 13.57 1,2 19.40 0,2 3.57 13.20 22.41 17.04
DJÚPIVOGUR 0.13 0,4 6.16 1,9 12.31 0.3 18.35 2,0 23.39 0,3 3.59 13.03 22.04 16.46
Siávarhæð miðast við meðalstórstraumsfiöru (Moraunblaðið/Siómælingar íslands)
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
é * * é Rigning
^l^Slydda
miSnjókorna ý Él
A Skúrir
v.
ikúrir |
Slydduél I
7 éi y
Sunnan, 2 vindstig. 1Qo Hitastig
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjöðrin sss
vindstyrk, heil fjööur 4 4
er 2 vindstig. «
Þoka
Súld
H Hæð L Lægð Kuldaskil
Hitaskil
Samskil
VEÐURHORFURí DAG
Yfirlit: Um 400 km vestur af Reykjanesi er 996
mb lægð, sem þokast suðvestur og grynnist.
Önnur lægð er skammt vestur af Hvarfi og
hreyfist hún lítið.
Spá: Sunnan kaldi en síðar stinningskaldi vest-
anlands og fer að rigna síðdegis. Með suður-
ströndinni verður skýjað og má búast við þoku-
þökkum en þjartviðri framan af degi á Norður-
og Austurlandi. Þar þykknar upp með kvöldinu.
Hiti 9 til 19 stig, hlýjast á Norður- og Austur-
landi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Veðurhorfur næstu daga: Fram eftir vikunni
verður suðvestanátt á landinu, sums staðar all-
hvöss með skúrum sunnan- og vestanlands, en
hægari og úrkomulaust annars staðar. Á laugar-
dag og sunnudag verður komin hæg norðvest-
anátt og má þá gera ráð fyrir skúrum einkum
vestan- og norðanlands. Fyrripart vikunnar verð-
ur fremur hlýtt, en í vikulokin kólnar dálítið.
Veðurfregnir éru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 16.30, 19.30,
22.10. Stutt veðurspá er lesin með fréttum
kl. 2, 5, 6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti. Svar-
sími veðurfregna: 9020600.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Upplýsingar um færð eru veittar hjá þjónustu-
deild Vegagerðarinnar í Reykjavík í símum:
8006315 (grænt númer) og 5631500. Einnig
eru veittar upþiýsingar um færð á vegum í
öllum þjónustustöðvum Vegagerðarinnar ann-
ars staðar á landinu.
Helstu breytingar til dagsins í dag: Minnkandi lægðin
vestur af landinu fer til suðvesturs, en lægðin vesturaf
Hvarfi er á hreyfingu til austurs.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri 17 skýjað Glasgow 24 lóttskýjað
Reykjavík 13 úrk. í grennd Hamborg 29 léttskýjað
Bergen 21 lóttskýjað London 31 léttskýjað
Helsinki 24 skýjað Los Angeles 19 þokumóða
Kaupmannahöfn 28 hálfskýjað Lúxemborg 29 hálfskýjað
Narssarssuaq 17 léttskýjað Madríd 31 léttskýjað
Nuuk 11 léttskýjað Malaga 28 mistur
Ósló 27 léttskýjað Mallorca 31 léttskýjað
Stokkhólmur 26 léttskýjað Montreal 21 heiðskírt
Þórshöfn 13 þoka New York 26 léttskýjað
Algarve 27 heiðskírt Orlando 25 léttskýjað
Amsterdam 31 léttskýjað París 31 léttskýjað
Barcelona Madeira 24 skýjað
Berlín 30 lóttskýjað Róm 29 skýjað
Chicago 25 heiðskírt Vín 29 léttskýjað
Feneyjar 29 skýjað Washington 27 skýjað
Frankfurt 31 léttskýjað Winnipeg 12 skýjað
Yfirlit á hádegi 1
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 glymja, 4 veita ráðn-
ingu, 7 tíu, 8 óbeit, 9
hamingjusöm, 11 keip-
ur, 13 fræuli, 14 tæla,
15 þekking, 17 málmur,
20 bókstafur, 22 talaði
um, 23 íshúð, 24 veslast
upp, 25 sjúga.
LÓÐRÉTT:
1 stúfur, 2 slátrað, 3
forar, 4 mas, 5 dóna, 6
ágóði, 10 óskar eftir,
12 reið, 13 hryggur, 15
dreng, 16 súrefnið, 18
byggt, 19 malda í mó-
inn, 20 gufusjóða, 21
auðugt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt:- 1 fjandmenn, 8 fátíð, 9 liðið, 10 ill, 11 skips,
13 aumur, 15 lafði, 18 alger, 21 lof, 23 skell, 23 tíndi,
24 kinnungur.
Lóðrétt:- 2 jötni, 3 næðis, 4 molla, 5 náðum, 6 ofns,
7 æður, 12 peð, 14 ull, 15 last, 16 freri, 17 illan, 18
aftan, 19 gengu, 20 reit.
í dag er þriðjudagur 1. ágúst,
213. dagur ársins 1995. Banda-
dagnr.Orð dagsins er: Auðmýk-
ið yður því undir Guðs voldugu
hönd, til þess að hann á sínum
tíma upphefji yður. Varpið allri
áhyggju yðar á hann, því að hann
ber umhyggju fyrir yður.
Skipin
Reykjavikurhöfn:
Reykjafoss var vænt-
anlegur í gær af strönd.
Togarinn Jón Baldvins-
son er væntanlegur af
veiðum í dag. Farþega-
skipið Albatros er vænt-
anlegt á morgun. Bakka-
foss og Goðafoss eru
væntanlegir á morgun.
Haf narfjarðarhöf n:
Hrafn Sveinbjarnar-
son kom af veiðum í
gærmorgun. Togarinn
Aurika fór á veiðar í
gær. Hvítanes var
væntanlegt af strönd-
inni í gær. Ms Lette
Lill kemur til Straums-
víkur á morgun.
Fréttir
Viðey. Kvöldganga á
Vestureyna. Farið verð-
ur úk Sundahöfn kl.
20.30. Ekkert gjald
(1. Pét. 5, 6. 7.)
nema feijutollurinn, 400
kr. fyrir fullorðna og
200 kr. fyrir börn.
Göngufólk þarf að vera
vel skóað.
Fyrirlestur um sí-
þreytu. Dr. Damien
Downing frá Englandi
heldur fyrirlestur um sí-
þreytu í þingsal 1-3 á
Hótel Loftleiðum á
morgun 2. ágúst kl.
20.30. Fyrirlesturinn er
öllum opinn.
Flóamarkaðsbúðin
Garðastræti 6, er opin
þriðjudaga, fimmtudaga
og föstudaga frá kl.
13-18.
IVIannamót
Félagsstarf aldraðra,
Gerðubergi. Á vegum
íþrótta- og tómstunda-
ráðs er sund og léttar
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug mánudaga,
miðvikudaga og föstu-
daga kl. 9.30. Kennari:
Edda Baldursdóttir.
Vitatorg. Spiluð félags5*”'
vist í dag kl. 14.
Bólstaðarhlíð 43. Spil-
að á miðvikudögum frá
kl. 13-16.30.
Sumarferðir aldraðra
á vegum Reykjavíkur-
borgar. Ferð verður
farin í Vatnaskóg
fimmtudaginn 3. kl.
13.30 (en ekki föstudag-
inn 4. eins og áður var
tilkynnt) með viðkomu í
Hallgrímskirkju
Saurbæ. Skráning og
uppl. í síma 551-7170.
Kirkjustarf
Dómkirkjan. Mömmu-
morgunn í safnaðar-
heimilinu Lækjargötu
14a kl. 10-12.
Hallgrímskirkja. Fyr-
irbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Aftansöngur kl. 18
- Vesper. Opið hús fyrir
foreldra ungra bama á
morgun kl. 10-12.
Fræðsla.
Selljamameskirlga.
Foreldramorgunn kl.
10-12.
Fella- og Hólakirkja.
Mömmumorgunn mið-
vikudag kl. 10.
Höfði
VEGNA umræðu um Höfða í
fréttum síðustu daga er vert að
rifja upp sögu hússins. Páll
Líndal segir í bók sinni Reykja-
vík — Sögustaður við Sund að
vegna veru franskra sjómanna
hér við íslandsstrendur hafi
franskir aðilar látið reisa hér
ýmsar byggingar, þ. á m.
Höfða. Höfði var reistur sem
sérstakt konsúlshús árið 1909
þegar franski konsúllin Brillouin kom til Reykjavíkur. Húsið var keypt
frá Noregi tilhöggvið og má vel merkja frönsk áhrif á byggingunni,
því t.d. er að finna yfir dyrunum upphafsstafi franska lýðveldisins, RF,
og eins em þar grafnir í rómverskir vendir og frygiska húfan sem ein-
kenndi jakobína í frönsku stjórnarbyltingunni 1789. Höfði var eitt af
stærstu einbýlishúsum Reykjavikur í sinni tíð og hefur ætlð sett mikinn
svip á bæinn. Eftir að sá franski Brillouin fluttist af landi brott í byijun
heimsstyijaldarinnar fyrri kom skáldið Einar Benediktsson í húsið og
bjó þar skamma hríð. Hann nefndi húsið Héðinshöfða eftir æskustöðvum
sínum í Suður-Þingeyjarsýslu. Næsti ábúandi Höfða var Páll Einarsson,
þáverandi bæjarfógeti á Akureyri, og í kjölfar hans fluttist Matthías
Einarsson, yfirlæknir við Landakotsspítala, í Höfða og bjó þar á ámnum
1924-1938. Á þessum árið festist nafnið Höfði við húsið. Matthías leigði
fyrst og seldi síðan breska ríkinu húsið og varð það þá bústaður breska
aðalræðismannsins og síðan sendiherrans allt að árinu 1951. Á þeim
tima heimsóttu frægir menn Höfða og má þar frægastan telja Winston
Churchill, forsætisráðherra Bretlands, sem kom til Reykjavíkur í ágúst
1941 eftir að hafa ásamt Roosevelt, Bandaríkjaforseta, undirritað Atl-
antshafsyfirlýsinguna, sem stofnskrá Sameinuðu þjóðanna gmndvallað-
ist síðar á. Ingólfur Esphólín, framkvæmdastjóri, keypti Höfða af breska
ríkinu árið 1952 og bjó þar til ársins 1962. Eftir þann tíma var húsið
aðallega notað sem bækistöð fyrir aðalskipulag Reykjavíkur og eftir
1967, eftir endurbætur á húsinu, var farið að nota það fyrir gestamóttök-
ur á vegum Reykjavikurborgar. Árið 1986 er líklega merkasta árið í
sögu Höfða en þá var þar haldinn leiðtogafundurinn þar sem þeir hitt-
ust Ronald Reagan og Mikhail Gorbatsjov eins og frægt er orðið.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjðrn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Ásk.'iftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakid):^
Framlag
þitt skilar
árangri
Gíróse&lar
í bönkum
og sparisjóöum.
<StT HJALPARSTOFNUN
\~\rj KIRKJUNNAR
- meö þinni hjálp