Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 30

Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Tjarn- arkvart- ettinn í VIKUNNI heldur Tjarnar- kvartettinn úr _ Svarfaðardal skólatónleika í Árnessýslu og syngur fyrir grunn- og fram- haldsskólanemendur á 16 tón- leikum og heldur að auki fema opinbera tónleika, á Flúðum, í Hveragerðiskirkju í kvöld kl. 20, í Þorlákskirkju miðvikudag 1. nóvember kl. 20 og í Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Sel- fossi föstudag 3. nóvember kl. 20. Fyrstu tónleikarnir voru á Flúðum í gær. Tónleikaferðin ec á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla. Dagskráin í skólunum _er nokkurs konar söngsaga Is- lands. Rakin verður saga söng- listar og gefin dæmi allt frá rím- um og fimmundarsöng til dæg- urlaga nútímans. Almennu tón- leikamir verða með öðru sniði og fjölbreytilegri efnisskrá, ís- lenskum og erlendum þjóðlög- um, klassískum sönglögum í nýjum útsetningum, negrasálm- um, djassi og dægurlögum. Tjamarkvartettinn er bland- aður kvartett skipaður þeim Rósu Kristínu Baldursdóttur, sem jafnframt er stjórnandi, Kristjönu Arngrímsdóttur, Hjörleifi Hjartarsyni og Kristj- áni Hjartarsyni. -----» ♦ ♦---- Þá mun eng- inn skuggi vera til SÝNINGUM á leikþættinum Þá mun enginn skuggi vera til verður fram haldið í vetur, eins og fram hefur komið í Morgun- blaðinu. Fyrirhugað er að sýna verkið einkum hjá fyrirtækjum og félagasamtökum en nánari upplýsingar em veittar hjá Stígamótum. ♦ ♦ ♦---- VATNSLITAMYND eftir Henri Matisse, sem hékk í áttatíu ár fyrir ofan svefnherbergisdyr í ónefndu húsi í París, verður sýnd almenningi í nokkrar vikur áður en hún verður boðin upp. Myndin er 31 sentimetrar á hæð og er af fimm nöktum mannver- um sem haldast í hendur og dansa í hring. Er myndin ein af hinum þekktu málverkum sem nefnast „La Danse“ (Dans- inn). Búist er við að hún seljist á yfir 70 milljónir ísl. kr. BÓKMENNTIR S«agnfrædi SAGA REYKJAVÍKUR. Bærinn vaknar 1870-1940. Síðari hluti eftir Guðjón Friðriksson. Iðunn 1994.453 bls. Myndir, uppdrættir, skrár. ÉG HELD, að engin þjóð hafi jafnmikinn áhuga á ættfræði og héraðssögu sem Islendingar, og ber margt til, en einkum þó fámennið. Hér þekkja allir alla og fram á þessa öld voru landsmenn slíkir heimaln- ingar, að þeir litu á sig sem Skag- firðinga, Austfirðinga, Keflvík- inga... fremur en íslendinga. Allt til þessa hefur meirihluti Reykvík- inga líklega kennt sig við eitthvert hérað eða kaupstað úti á landi frem- ur en höfuðborgina. í átthagana andinn leitar, sagði skáldið, og vitna fjölmörg héraðsrit um þann rót- gróna áhuga sem fólk sýnir sveit sinni. Hafa þau ótrúlega marga kaupendur miðað við .alþjóðlegu’ tímaritin sem hér eru gefin út. Angi af þessum áhuga er útgáfa rita um einstök byggðarlög, og er jafnan mikið í þau lagt; nægir að benda á Sögu Dalvíkur eftir Krist- mund Bjarnason, Sögu ísafjarðar eftir Jón Þ. Þór, en auðvelt er að fara hringinn og byija á Akranesi og enda í Hafnarfirði. Byggðasögur skipta tugum.. Saga Reykjavíkur verður vísast mest þessara rita, sem vonlegt er; saga höfuðborgarinnar fer í meira mæli • saman við landssöguna en saga annarra sveitarfélaga. Það er sama hvernig á þessa bók Guðjóns Friðrikssonar er litið; hún er stór, allt í allt 453 bls. í stóru broti og eftir því þung, tvö og hálft kíló! í þessu bindi er í meginatriðum fjallað um margvíslega málaflokka frá því um eða eftir fyrra stríð, þótt farið sé aftur til 1870 þegar fjallað er um heilbrigðismál og löggæzlu og 1890 þegar lýst er skipulagi uppeldis- og ellimála. Af öðrum málaflokkum, sem Iýst er í þessari bók, skulu nefndir kaflar um stríðsþrengingar, sjávarútveg, verkalýðs- og atvinnumál, stjórn bæjarins, skemmtanir og menning- arlíf, samgöngur, pólitík, átök milli þéttbýlis og dreifbýlis, orkumál, kaupmanninn á horninu og fleira mætti telja. Sögunni lýkur 9. maí 1940 en lokaorðin teygja sig yfir á föstudagsmorguninn 10. maí: „Veðrið var kyrrt en dumbungslegt og fólk smátíndist í háttinn fram yfir miðnætti. Einstaka nátthrafnar héldu þó lengur út og þeir sem ekki voru sofnaðir um klukkan þijú heyrðu drynjandi flugvélahljóð. Þ_að boðaði nýja tíma í höfuðborg ís- lands.“ Þetta eru rökrétt skil. Að morgni voru brezkir hermenn á götum, og í hönd fóru nýir tímar sem ekki sér fyrir endann á. Bærinn vaknar Alls eru bókarkafl- arnir 19 og víkur hver og einn að ákveðnu efni, sem er afmarkað í fyrirsögn. Heimilda- skrá er til vitnis um gríðarlega mikla efni- söflun höfundar; hún er prentuð í fjórum dálkum með smáu letri á rúmlega átta síður. í meginmáli er vísað til heimilda, og eru til- vísanir prentaðar í sér- stakri skrá í bókarlok. Það er sjálfsagt í riti sem þessu, sem eink- um er ætlað almenn- um lesendum. Meginmál er prentað með stóru letri í einn dálk sem virðist furðu mjór miðað við bókarbrot, jafnaður til vinstri en flæðir á hægri spáss- íu. Breiðar eru því spássíumar og ýmist notaðar fyrir myndir og myndatexta eða atriðisorð, sem vísa veginn að efni á viðkomandi síðum. Atriðisorðin eru prentuð með sama letri og meginmál, og finnst mér það villandi. Skáletur er notað í meginmáli til þess að auðkenna staðarheiti, stofnanir, fyrirtæki o.fl., en mér finnst þessi háttur vekja falska athygli, ef svo má segja. Margir prentfletir eru skyggðir, einkum það sem tekið er upp úr blöðum og bókum og í lokin er höfundar eða blaðs getið með nánari tilvísun. Ég hef ekki kastað tölu á myndir í bókinni, en þær eru mjög margar; myndaskrá er prentuð í fjórdálki á átta síðum og letrið smátt. Mynd er í hverri opnu, að jafnaði tvær og oftast fleiri. Ljósmyndir eru mjög margar, bæði úr öðrum bókum og áður óbirtar, og er víða leitað fanga; ekki sízt munar um framlag Skafta Guðjónssonar. í öðru lagi eru birtar myndir af fjölmörgum teikningum, auglýsingum og margvíslegu öðru efni, sem birtist í blöðum á sögutím- anum. í þriðja lagi eru myndir af ýmsum opinberum gögnum, einkum skipulagsuppdráttum. í fjórða lagi er alls konar tölfræði sýnd með nútímalegum myndum í súlum, skífu- og línuritum o.s.frv. Loks vil ég nefna myndir af málverkum, sem piýða ritið og endurspegla ríkjandi viðhorf í listum eða þær stefnur sem umdeildar voru. Myndefnið lýsir öllum sviðum mannlífs, einkalífi fólks af öllum stéttum, framkvæmdum þess, atvinnulífí og atvinnu- tækjum, leikjum, skemmtunum, félags- skap af öllu tagi og yfírleitt öllu því sem mönnum dettur í hug. Ég fæ ekki betur séð en myndefni sé í góðu samræmi við megin- mál. Það styður text- ann með sínum hætti og bætir við hann. Myndir segja einkum og sér í lagi meira ,en mörg orð þegar á að lýsa tíðaranda, tízku, tækni, viðhorfum, lífskjörum og margvíslegum aðbúnaði, að ekki sé nú minnzt á staðhætti. Sjá til dæm- is mynd af fiskflutningum (s. 50), Kveldúlfsstöðinni við Skúlagötu (s. 51), ístöku á Tjörninni (s. 60), aug- lýsingu frá Sveini Oddssyni (s. 166) og loks mynd af ungum manni (s. 200). Ég fæ ekki betur séð en myndefni bókarinnar sé í sjálfu sér merkileg saga. Sagnfræðingar eru stundum sakaðir um að skrifa þurran og leiðinlegan stíl, og í varnarskyni hafa þeir stundum skýlt sér bak við þá kröfu, að skrif þeirra eigi að vera hlutlæg, segja söguna eins og hún raunverulega gerðist, svo að vitnað sé í eldgömul ummæli. Það er ekki hægt. Hver kynslóð skrifar sína sögu í samræmi við þau áhugamál sem hún hefur. Hver og einn nálgast heimildir með sínu lagi, og tveir sagnfræðingar geta skrifað ólíkar bækur upp úr sömu heimildum. Þær geta verið jafnréttar í sögulegum skilningi, mismunurinn felst í mismunandi áhugasviði og þar með þeirri áherzlu sem menn velja. Guðjón sagðist ætla að reyna að segja söguna út frá sjónarhóli bæjarbúa sjálfra fremur en stofnana bæjar- ins; í þeim skilningi nálgast bókin svokallaða hversdagssögu, fólkið í bænum er aldrei fjarri og mjög oft fremst á sviðinu. Auðvitað er líka sagt frá stofnun- um bæjarins, hjá því verður ekki komizt. Þær eru hluti af sögu bæj- arins. Guðjón er auk þess fjarska vel að sér í byggingalist og kemur þeim fróðleik vel frá sér bæði í meginmáli og myndatextum; það Guðjón Friðriksson er ekki allra að skrifa skiljanlega um list. Ég man ekki betur en Guðjón hafi fengið verðlaun fyrir vandað málfar í skrifum sínum þegar hann stundaði blaðamennsku. Honum er einkar lagið að skrifa skýrt og læsi- lega, og stíllinn er lifandi þótt fræði- lega sé tekið á málum. Hitt er svo annað mál, að áhugi lesenda hlýtur að vera misjafnlega mikill á efni einstakra kafla; mér leiðast til dæmis umræður um orku og iðnað- armál, heilbrigðismál og dómsmál, svo eitthvað sé nefnt. Mér finnst hins vegar gaman að lesa um bílabæinn Reykjavík, kreppuna í höfuðstaðnum, menningar- og skemmtanalíf, svo nokkuð sé nefnt; þar ópinberaðist mér hvílíkir braut- ryðjendur dr. Franz Mixa og Ragn- ar í Smára hafa verið í tónlistarlífi borgarbúa. Hlutur útvarpsins var líka stór, og í rauninni er ótrúlegt hvað tónlistarmenn komust yfir að halda marga tónleika! Ég las þessa bók mér til ánægju að mestu leyti. Hér er dreginn sam- an gríðarlega mikill fróðleikur um margbreytileg svið bæjarlífsins fram að stríðinu við Hitler og hans nóta og borinn fram með þeim hætti, að er við hæfí allra lesenda. Oft er farið hratt yfir sögu, sbr. kafla um íþróttir, og hlýtur svo að verða í yfirlitsriti. Hinir stóru drætt- ir eru þó alls staðar skýrir og höf- undur leitast við að draga fram það sem nútímamönnum þykir forvitni- legt, sbr. umræður um kvikmynda- hús og (afar óæskilega) Ijölgun þeirra, um þann vanda sem fylgdi bílum, pólitízkum deilum er lýst og ágreiningsefnum flokka og síðast en ekki sízt er víða skyggnzt um sviðið í daglegri önn karla og kvenna. Ég veit ekki hvort öðrum lesend- um bókarinnar fer eins og mér. Eftir sem næst hvern kafla varð mér ljósara eri áður, hvílíkum stakkaskiptum samfélagið hefur tekið síðastliðin 50 ár. Það leiðir hugann að þeirri kynslóð sem fædd- ist og ólst upp í skugganum af fyrra stríði og komst á manndómsár í síðari heimsstyijöld. Bókin leiðir glöggt í ljós hvaða grettistökum hún hefur lyft. Aldamótakynslóðin keypti vélar í báta, sá fyrstu bílana og byijaði að sækja fisk á togurum. . Barnabörn hennar hafa tölvuuvætt samfélagið og enginn veit hvaða tækni bíður bak við aldamótin. Ég fletti hvergi upp á heimildum eftirtilvísanaskrá, en rakst á nokkr- ar prentvillur, og var alls staðar hægt að lesa í málið. Skrár um atriðisorð, félög, fyrirtæki, örnefni og stofnanir eru til hægðarauka þeim sem leita að tilteknum efnisat- riðum. Ég óska Guðjóni og Reykvíking- um til hamingju með Sögu Reykja- víkur. Sölvi Sveinsson. ÚR Þreki og tárum, Þjóðleikhúsið Uppselt á 20 sýningar á Stóra sviðinu ÞESS A dagana er mikið álag á miða- sölu Þjóðleikhússins því að segja má að slegist sé um miða á leikrit Olafs Hauks Símonarsonar Þrek og tár og barna- og fjölskylduleikritið Kar- demommubæinn. Uppselt er á næstu 10 sýningar á Kardemommubænum og sömu sögu er að segja um leikrit Ólafs Hauks, þar er svo til uppselt á næstu 10 sýningar, út allan nóvember, nema örfá sæti á síðustu sýningarnar í mán- uðinum. Fólki er þó bent á, að stundum er unnt að fá ósóttar pantanir, þegar nær dregur sýningum. Þá er einnig mikil aðsókn að leikriti Jim Cartwrights Taktu lagið Lóa! á Smíðaverkstæðinu en sýningar nálgast nú 80 og fer þeim senn að fækka þar eð rýmra verður fyrir næsta verkefni, sem er breska leikritið Leigjandinn eftir Simon Burke. Leikrit Guðmundar Steinssonar Stakkaskipti verður sýnt á Stóra svið- inu fram í miðjan næsta mánuð en verð- ur þá að víkja fyrir næstu frumsýn- ingu, sem er nýjasta léikrit Arthurs Millers Glerbrot. Leikstjóri Glerbrota er Þórhildur Þorleifsdóttir en með stærstu hlutverk fara Guðrún S. Gísladóttir, Sigurður Sigurjónsson og Arnar Jónsson. Á Litla sviðinu standa yfir sýningar á þýska leikritinu Sönnum karlmanni eftir Tankred Dorst og verður það sýnt ailan nóvembermánuð en æfingar eru hafnar á næsta verkefni, sem er banda- ríski gamanlcikurinn Kirkjugarðs- klúbburinn eftir Ivan Manccll. Verður það leikrit frumsýnt um áramót. Þá er barnaleikritið Lofthræddi örn- inn hann Örvar sýnt um þessar mundir á barnaheimilum og í grunnskólum en unnt er að panta þá sýningu á skrifstofu Þjóðleikhússins. „Hefur hún notið mik- illa vinsælda hjá yngstu áhorfendunum," segir í kynningu frá Þjóðleikhúsinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.