Skírnir - 01.01.1901, Blaðsíða 5
l?ingmál, löggjöf og stjórnatfar.
5
steinsson, Hermann Jönasarson, Jósafat J ónatansson, Lárns H. Bjarnason,
Pétur Jónsson, Stefán Stefánsson, Eif. og Triggvi Gunnarsson. Á móti
voru: Björn Kristjánsson, Guðlaugur Guðmundsson, Jóh. Jóhannesson,
Magnús Torfason, Ólafnr Briem, Sigurður Sigurðsson, Skúli Thoroddsen,
Stefán Stefánsson, Skgf., Yaltír Guðmundsson, Þórður Guðmundsson og
Þórður J. Thoroddsen. Frumvarpið var samþikt i neðri deild 26. júlí
með 12 atkvæðum gegn tíu. Nafnakall var haft; samþiktu þeir frum-
varpið, er voru móti breitingartillögunni og taldir eru hér að ofan og
auk þeirra Einar Jónsson; en á móti voru þeir, sem með breitingartillögunni
voru, að undanskildum Einari. Þessu næst fór málið til efri deildar.
Deildu menn þar um sömu atriðin og urðu okki á eitt sáttir. En í birj-
un ágústmánaðar barst hingað fregnin um ráðaneitaskifti i Danmörku og
að vinstrimenn væri nú komnir til valda þar. Þótti þá mörgum ílt, ef
firsta krafitn frá þingi lalendinga til þessarar niu stjórnar um réttarbæt-
ur væri svo lágt sett sem í frumvarpi þessn. Það er mál manna að
tvær grimur hafi runnið á meiri hlutann, er freguin kom nm vinstri-
mannastjórn í Danmörku, en sú varð þó raunin á að frumvarpið var að
lokum samþikt í efri deildinni. Þeir sem atkvæði greiddu með þvi voru
þessir: Agsel Tulinius, Hallgrimur Sveineson, Kriítján Jónsson, Magnús
Andrésson, Ólafur Ólafsson og Sigurður Jensson. Á móti voru þeir: Ei-
ríkur Briem, Guðjón Guðlaugsson, Guttormur Vigfússon, Jónas Jónassen
og Julius Havsten. Var síðan horin upp í neðri deild tillaga til þingsá-
liktunar um stjórnarskrármálið, þar sem skorað er á stjórnina að leggja
firir næsta þing frv. til laga um breitingar á stjórnarskránni, er geri
stjórnina innlondari, en ákveðið er í frumvatpinu. En ekki vildi meiri
hlutinn það og feldi tillöguna. Hins verður að geta, að í ávarpi til kon-
ungs gotur efri deild þess, að íslendingar sé ekki ánægðir með hið ni-
samþikta frumvarp. Heimastjórnaifiokkurinn sondi í þinglok mann á
fund ráðgjafans til að skíra honum frá málavögstum og bera fram frek-
ari sjálfastjórnarkröfur, en fram gengu á þingi.
Annað stórmál var og vakið upp á þessu þingi. Það er bankamálið.
Var mál þetta rætt af kappi Bem á undanfarandi þingum. Frumvarp það,
som nú var fram borið, fór fram á að láta stofnendur hlutafélagsbank-
ans fá einkaleifi til seðlaútgáfu hér á landi i 30 ár og leggja niður lands-
bankann. Breitingartillaga var borin fram í neðri deild, er fór fram á
að laDdsbankinn fengi að standa við hliðina á hinum, en hún var feld
með 11 atkvæðum gogn 11. Landshöfðingi kom svo með þessa sömu til-