Skírnir - 01.01.1901, Blaðsíða 58
68 Grikkland.—Noregur.—Danmbrk.
nrðu allir að segja aí sér embættum, og ráðaneytið varð að fara frá
völdum.
En svo liggur í þessu máli, að öll griska kyrkjan hagnýtir nýja
testamentið á forngríska frummálinu, þött grísk alþýða skilji það vart
eða alls ekki, og aðrar grífk-katólskar þjóðir þvi siður. En grískir
mentamenn halda því ákaft fram, að forngriska og nýgríska sé þö svo
mjög sama málið, að allir skilji forngríska textann enn. Allar grisk-kat-
ólskar þjóðir lúta andlegum yfirráðum kyrkjustjórnarinnar í Grikklandi,
svo slafneskar þjóðir sem aðrar. En nú er Grikkja drottning rúsnesk
og þvi skoðuðu þjóðræknir grískir stúdentar þessa testamentis-þýðingn
drottningar, sem eigi var löggilt af sýnodunni helgu, sem slafneska tilraun
til að Iosa um yfirráð grísku sýnodunnar. Þar lá fiskur undir steini.
Noregur.
í Apríl í vor beiddist Steen’s-ráðaneytið lausnar. Steen hafði lengi
gegnt starfi sínu með sæmd og trúmensku, en var nú farinn að eldast
svo mjög að þjóðin fann til þess, að hann var ekki lengur fær um fyrir
aldurs sakir að gegna ráðgjafa störfum. Konungur kvaddi þá
Blehr til að mynda nýtt ráðaneyti.
17. Maí í fyrra var afbjúpuð í Björgvin með mikilli viðhöfn Btand-
mynd af tónskáldinu og iiðlumeist.aranum Ole Bull. Hún þykir mesta
snildarverk, enda er hún gerð af Stephan Sinding.
Danmörk.
í April í fyrra fóru fram nýjar kosningar til fólksþingsins. Marga
óför höfðu hægri menn til kjósenda farið á síðasta mannsaldri, en enga
þó jafn-háðulega sem nú, þvíaðaf 114 þingmönnum urðu einir 8 úr þeirra
flokki, en af þeim 8 þó eigi neraa fimm, er fylgja vildu ráðaneytinu að
málum. En svo blint var þetta annars lítilsiglda ráðáneyti, að því varð
ekki að vegi að Ieggja niður völdin sjálfkrafa, heldur sátu blýfastir í
sætinu í óþökk allrar þjóðarinuar, þar til konungur neyddist til sjálfur
að reka þá frá völdum. í landsþinginu höfðu þeir þö hrundið frá sér
8 inum göfugustu og merkustu mönnum úr liði hægri manna þar, og
höfðu þar þvíað eins eins atkvæðismeirihluta. Þá er konungur hafði
gcfið gamla ráðaneytinu óumbeðna lausn (17. Júlí), sendi hann eftir
Deuntzer háskólakennara í lögum ogeinlægum vinstrimanni, og fól honum
á hendur að mynda nýtt ráðaneyti og Bagði við hann um leið, að hann