Alþýðublaðið - 28.05.1964, Side 1
Reykjavík, 27. maí, ÁG
LÖGREGLAN í Reykjavík tók í
gær og fyrrinótt nokkrar unglings
stulkur og pilta til yfirheyrslu
vegna gruns um a3 vændi ætti
sér stað í ákveðnu húsi hér í borg.
Ilafði lögreglan þá fylgst með
þessu húsi áður í nokkurn tima.
Einn piltur var færður í varðhald
1 en sieppt skömmu síðar.
Við yfirheyrslu hefur ekkert
það komið í ljós, sem bent gæti til
þess, að þarna ætti sér stað skipu
lagt vændi. í húsi þessu búa tveir
ungir menn, og hefur mikiil
straumúr af stúlkum á aldrinum
15—17 ára verið þa'rna inni og
úti á þverri nóttu. Ekki er blaðinu
kunnugt um hvort rannsókn í máli
þessu sé lokið.
töðugir fundir
Reykjavík, 27. maí.
FULLTRÚAR VERKALÝÐS-
FÉLAGANNA fyrir norðan og
austan og fulltrúar atvinnurek-
enda voru á fundi með sáttasemj-
ara tii klukkan hálf þrjú aðfara-
nótt þriðjudags. Annar fundur
hófst klukkan 20,30 í kvöld og var
honum ólokið er blaðið fór í
pressuna.
Þá hefur verið haldið áfram við
ræðum ríkisstjórnarinnar og full-
trúa ASÍ. Fulltrúar þessara aðila
ræddust við í dag og verða fram
hald þeirra viðræðna á morgun.
Undirræfndirnar þrjár, sem skip
aðar voru og fjalla um húsnæðis-
mál, vinnutíma og verðtryggingu
launa hafa nú því nær lokið störf
um.
Blaðið ræddi í gær við einn með
lim samninganefndar verkalýðs-
félaganna fyrir norðan og austan
og sagði hann, að undanfarið
hefði mest verið rætt um ýmis a6
riði í samningum félaganna, önnur
en bein kaupgjalds og flokkaskipt
ingarákvæði, og hefðu ýmis at-
riði verið samdæmd. Hins vegar
væri enn ekkert farið að ræða
um kaupgjald eða flokkaskiptingu
og væri beðið átekta með það.
Sagði hann, að það sem miðað
hcfði í þessum samningaumleitun.
um væri í rétta átt, þótt hæg6
færi.
Fundur sáttasemjara með nefnd
um norðan og austanmanna stóð
enn, sem fyrr segir, er blaðið fór
í prentun. i
kki skipulagt vændi
Krústjov sagður
mesti svikarinn
VIN, 27. maí (NTB-Rauter) —
— Enver Iloxlia hershöfðingi, al-
banski kommiinistaleiðtoginn, lief
ur í ræðu kallað Krústjov forsæt-
isráðherra mesta og skitnasta svik
arann í sögu kommúnismans.
Hoxlia sagöi í ræðu á sunnudag
inn í tilefni afmælis fyrsta and-
fasíska albanska þjóðarþingsins,
að tilraun Nikita Krústjov til að
sverta Stalín væri algerlega unn
in fyrir gýg. Krústúov er sem
fluga samanborðið við hinn mikla
Jósef Stalín“, sagði hann.
„Nikita og glæpaklíka hans eru
raunverulegir glæpamenn og rætn
ustu menn, sem til eru. Þeir hafa
verið svo óvífnir, eins og Mikoj
an gerði, að segja upp í opið geðið
á okkur, að beir hafi haft í hyggju
að myrða Stalín. Krústjov og
glæpaklíka hans hafa ákveðið að
breyta Sovétríkjunum í borgara-
legt auðvaldsþjóðfélag. Það felst
í fyrirætlunum þeirra, að gera al-
þýðulýðræðisríkin í Evrópu að
hreinum þrælarikjum.
í dag ríkir hrein ógnarstjórn í
Sovétríkjunum með morðum, fang
elsunum, þrælabúðum og nauðung
arflutningum. Krústjov-klíkan
skipuleggur nú í Sovétrikjunum
hina svörtu ógnarstjórn sósíalíst-
ískra byltingarmunna, trotzkýista
og mensévista og ógnarstjórninni
er beint gegn marxistum, lenínist
um og sovézku þjóðinni", sagði
Hoxlia í ræðunni, sem albanska
fréttastofan skýrði frá.
Nýju Delhi, 27. maí
(NTB - Reuter)
INDVERSKA þjóðin var slegin
harmi í dag vegna andláts
Nehrus forsætisráðherra. Fán-
ar voru í hálfa stöng og fólk
grét á götum úti í Nýju Delhi.
Stjórnin hefur lýst yfir tólf
daga þjóðarsorg. Þúsundir
manna hafa safnazt saman fyr-
ir utan heimili forsætisráðherr,
ans.
Lík Nehrus verður brennt við
Kuma-ána, skamt frá þeim
stað þar sem lík Gandhis var
brennt fyrir 16 árum.
í kvöld lá lík Nehrus á við-
hafnarbörum á þrepunum fyrir
framan aðalinnganginn að for-
sætisráðherrabústaðnum. 250
þúsund Indverjar, karlar, kon-
ur og börn, gengu fram hjá lík-
börunum til þess að votta hin-
um látna forsætisráðherra
hinztu virðingu sína.
Fréttin um lát Nehrus var
fyrst kunngerð í þjóðþinginu.
Forseti þingsins bað um hljóð
og sagði.’' „Ég hef alvarlegar
fréttir að færa þingi og þjóð.
Forsætisráðberrann er ekki
lengur á meðal okkar.
Ljósið hefur slökknað”.
Því næst var fundum þings-
ins slitið.
Nehru lézt kl. 14.00 að stað-
artíma. Hann virtist vel fyrir-
kailaður og í góðu skapi þegar
hann gekk til rekkju um kl. 23
í gærkvöldi. Undir morgun
kvartaði liann yfir verk
í hryggnum. Tveir læknar voru
þegár til kvaddir, og var ann-
37 krafthlakkir
Bátarnir eru nú sem óðast að. búa sig undir suinarsíld-
sveiðarnar og einn liður í þeim er að láta yfirfara kraftblakk
irnar. Það segir frá hetmsókn í vélsmiðjuna Þrym á þiðju
síðunni í dag, en í smiðjunni voru 37 blakkir til viðgeröar
og athugunar í gær (Mynd: KG).
í opnunni í dag er spjallað
við Gunnar Gunnarsson list
málara, en svo skemmtilega
vill til að hann á einmitt
fimmtugsafmæli í dag.
ar þeirra sérfræðingur í hjarta
sjúkdómum.
Blóðþrýstingurinn tók að
lækka og Nehru missti meðvit-
und meðan læknarnir voru hjá
honum. Sex aðrir læknar voru
kvaddir á vettvang, m. a. sér-
fræðingur í heilasjúkdómum.
En allt kom fyrir ekki. Hjartað
lét undan kl. 14.00 eftir staðar-
tíma.
Nehru var við góða heilsu
svo að segja alveg þangað til
hann veiktist í nýra vegna vír-
ussmitunar 1962. í janúar sl.
veiktist hinn 74 ára gamli for-
sætisráðherra á nýjan lqik.
Hann þjáðist af of liáum blóð-
þrýstingi, og var þreklítill
vinstramegin í líkamanum.
Nehru sneri nýlega aftur til
Nýju Delhi úr orlofi í Dehra
Dun. Ætlunin var að hann
dveldist sér til heilsubótar í
Kalimpong í byrjun næsta
mánaðar. Hann sagði blaða-
mönnum nýlega, að hann hefði
dálitið hugsað um að láta af
störfum forsætisráðherra og
starfa í stað þess sem ráðunaut
ur. Hann bætti því við, að hann
teldi ekki að líf hans tæki enda
í næstu framtíð.
Framh. á bls. 13.