Alþýðublaðið - 28.05.1964, Síða 2
JSitstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri:
Arni Gunnarsson. — Ritstjórnarfulltrúi: Eiður GuSnason. — Símar:
14900-14903. — Auglýsingasími: 14906. — ASsetur: Alþýðuhúsið við
Mverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðubiaðsins. — Áskriftargjald
kr. 80.00. — X lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurinn.
Krafa um bætta bjónústu
ÍBÚAR Reykjavíkurborgar búa nú ivið verri
verzlunarþjónustu en verið hefur um árabil. Er
svo komið, að ómögulegt er að fá keyptar algengar
mat- eða hreinlætisvörur að tovöldi til, en hins veg-
ar auðyelt að nálgast tóbak, gosdrykkií og sælgæti.
Til þess að gegna verzlunarerindum eftir venju-
legan lotounartíma verður fól'k að norpa fyrir utan
söluop í misjöfnum veðrum.
Hér hefur orðið á mikil breyting til ihins verra
fyrir neytendur, sem eiga kröfu á fullkomnari þjón
ustu en nu er kostur.
Óskar Haligrímsson, fulltrúi Alþýðuflokksins
:í borgarstjórn, hefur iagt á það áherzlu, að þessi
mál verði á ný tekin til endurskoðunar, og þjón-
ustu við neytendur komið í sama ihorf og áður var.
Meirihluti borgarstjórnar ætti ivissuiega að athuga
sinn gang 'betur í þessu máli, því hið nýja fyrir-
komulag er mjög óvinsælt meðai alls þorra fólks
i borgihni.
Störf AJþingis
TIMINN fullyrðir í forystugrein í gær, að það
Alþingi, sem nýlega iauk störfum, hafi „ekki af-
greitt nein meiriháttar stórmái“. Þó játar blaðið,
að þingið hafi afgreitt „fáein mál, sem horfðu til
nokkurra bóta“, eins og komizt er að orði og til-
nefnir þar aukin framlög til vegamála og aukna
aðstoð við litlu búin.
Nú værí ekkiJ úr ivegi að líta nánar á noikkur
mál, sem Alþingi afgreiddi í vetur, og Framsókn-
armenn flokka líklega sem smámál.
Almannatryggingar hafa verið hækkaðar um
32,25% meö tveim stjórnarfrumvörpum. Fram-
sóknarmenn hafa aldrei iverið sérlega hlynntir al-
mannatryggingum og finnst því vafalaust lítið til
um þótt' hfeyrisgreiðslur tryggingakerfisins hætoki
um nær þriðjung á skemmri tíma en einu ári.
Með tveiim stjórnarfrumvörpum hafa verið
tryggðar 40—50 milljónir króna á ári til íbúðalána.
Gerðar hafa iverið stórfelldar breytiingar á
skatta- og útsvarslögum, sem sérstaklega létta
sköttum af barnmörgu fjölskyldufólki með meðal-
tekjur.
Stuðningur við landbúnaðinn hefur verið auk-
inn verulega. Þá hafa verið gerðar breytingar á
tollalöggjöf til hagsbóta fyrir álmenning, isett hafa
verið skipuiagslög, lög um ferðamál, lög um kísil-
gúrverksmiðju, lög um breytingu lausaskulda iðn-
aðarins í fost lán og loftferðalög. Það er síður svo;
að allt sé hér talið, en allt framangreiínt eru að
dómi r’ramsóknarmanna „etoki nein meiriháttar
stórmál'1, svo viðhöfð séu orðrétt ummaeli Tímans.
MJZH
Ik
HELGIINGVARSSON, yfirlækn
ir á Vífilsstöðum ritaði nýlegra í
MorgTinblaðið grein um alka-
hól og afleiðingar neyzlu þess.
Þetta var einhver hin rökfast-
asta grein um áfengismálin,
sem ég hef lesið. Læknirinn sann-
aði mönnum- það, að áfengisneyzla
er skaðieg fyrir líkamann og sál-
ina, að hún vcrður undirrót tauga
veiklunar, geðveiki og fjölda ann-
arra sjúkdóma.
HANN SANNAÐI það einnig,
að áfengisneyzlan er mjög oft
sprottin of sjálfslýgi. Hún er blekk
ing og skaðvaldur fyrir þann, sem
er háður henni og alla sem um-
gangast þá. Dæmi þarf ekki að
nefna því að þau blasa alls staðar
við í einkalífi manna og opinberu
lífi. Hann talaði að vísu ekki um
+ Yfirlæknir lýsir áhrifum áfengisneyziunnar.
Mesti skaðvaidur ísiendinga.
Kokkteiiarnir og kvennadrykkja.
Um hrífuhausa og lofthreinsanir.
IIIIIII .'IIIIIITail llIllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllAllllllllllllIIIIlllllllSIIIIHll^^B
kokkteilseltranir, en hann heldur
því -fram, að kokkteilveizlurnar
séu undirrót drykjuskapar meðal
kvenna.
ÞAÐ ER GOTT þegar menn
eins og yfirlæknirinn láta til sín
heyra um þetta geigvænlega vanda
mál. Hann hefur nú áratugum sam
an, háð þrotlaust stríð við berkl-
ana — þjóðarpiáguna miklu. Fyrir
hans atbeina og margra ágætra
manna, er nú að vinnast sigur á
henni. Holdsveikin, er úr sögunni.
i Næst er að snúa sér að öðrum
• sjúkdómum — og þar á meðal á-
fengisfýsninni, .sem er tvímæla-
I laust mesti skaðvaldur íslenzkvs.
þjóðarinnar, eyðileggur andlega
• og líkamlega heilsu, leggur ham-
j ingju hennar í rúst og veldur
henni óbætanlegu fjártjóni,
REYKVÍKINGUR SKRIFARl
I „Nú hefur alþingi samþykkt að
taka gjald af hverju sjónvarps-
tæki, sem til landsins verður flutt.
I Framh. á bls. 13.
Ódýr skófatnaður
Seljum næstu viku m.a. eftirtaldar skótegundir:
Karlmannaskó
úr leðri með gúmmí og leðursóla. Vandaðar gerðir
fyrir kr. 232,00 og kr. 296,00.
Karlmannasandala
Verð kr. 118,25 og 209,00.
úr leðri og vinil. Vandaðar gerðir.
Inniskó
(tátiljur) fyrir kvenfólk fyrir kr. 65,00.
Mokkasínur
fyrir kvenfólk fyrir kr. 110,00.
Sléttbotnaðar töfflur
fyrir kvenfólk fyrir kr. 98,00.
Sléttbotnaöa kvenskó
úr leðri fyrir kr. 198,00.
Telpnaskó
úr leðri, stærðir 27 — 34 fyrir kr. 165,00.
Hvítbotnaöa gúmmískó
drengja, allar stærðir fyrir kr. 72,00 — 83,00.
SKÖBÚÐ AUSTURBÆJAR
Laugavegi 100.
2 28. maí 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ