Alþýðublaðið - 28.05.1964, Qupperneq 5
NEHRUS verður minnzt sem
fyrsta leiðtoga hins sjálfstæða
indverska ríkis og fremsta for-
vígismanns hlutleysisstefnu í Asíu
eftir heimsstyrjöldina. Ásamt Mah
atma Gandhi átti hann
heiðurinn af þvi, að sjálfstæðisbar-
átta Indverja, sem háð var undir
vígorðinu friðsamlegur mótþrói,
var krýnd með sigri. Hann var að-
alsmaðurinn, sem reyndi að gera
Indland að sósíalistísku velferðar-
ríki en harðist af fremsta megni
gegn kommúnisma í landi sinu.
Hann reyndi að gæta hlutleysis
f deilum austurveldanna og vest-
urveldanna. Hann reyndi að koma
á góðum samskiptum við Kín-
verska alþýðulýðveldið, en smám
saman komst hann í eindregna
andstöðu við Pekingstjórnina
vegna landamæradeilunnar í Kas-
mír.
Jawaharlal Nehru fæddist í All-
ahabad 1889 og var af einni
fremstu fjölskyldu Indlands. Faðir
Iians, Motilal Nehru, var frábær
lögfræðingur og vellauðugur. —
Hann dáðist lengi vel að öllu því
eem brezkt var, en gekk í þjóð-
ernishreyfingu Gandhis 1919.
16 ára gamall var Neliru send-
ur til Bretlands og lærði hann við
iskólana í Harrow og Cambridge,
en þar lauk hann prófi í lögfræði.
En einnig hafði hann áhuga á bók
menntum, heimspeki og stjórn-
rnálum og las allt, sem hann háði
í um þessi fræði,- Á þessum árum
komst hann í náin kynni við
brezkar bióðfélaesaðstæður og
hugsanavenjur. Einnig komst hann
í samband við Fabian-sósíalism-
ann svonefnda, sem hann fékk
snikinn áhuga á.
Nehru var siður en svo róttækur
Jþjóðernissinni, þegar hann snéri
aftur til Indlands 1912 eftir sjö
ára dvöl í Bretlandi. Afstaða lians
breyttist hins vegar eftir blóðbað-
íð í Amritsar 1919. Blóðbaðið fékk
snikið á hann. Fjöldi manna beið
foana, þegar brezki hershöfðinginn
Dyers skipaði hermönnum sínum
að skjóta á mikinn mannfjölda.
Upp frá þessu helgaði Nehru bar-
íitfunni fyrir þjóðlegu frelsi alla
kréfta sína.
Kynni Nehrus af fíandhi áttu
snikinn þátt í því ,að hann breytt-
Ist í róttækan byltingarmann. Á
snargan hátt var Gandhi andstæða
hans. Gandhi vgr lieitttrúaður
Hindúi og andvígur nútíma vis-
indum og tækni. Nehru var hins
vegar raunsær maður, sem var
sannfærður um, að Indland fram
tíðarinnar yrði að þróast í ný-
tízku iðnaðarríki.
Hann trúði á þjóðfélagslegar
umbætur og taldi gamlar trúar-
legar hugmyndir þránd í götu
framfara. Greinilegt var, að hann
féllst á friðsamlegan mótþróa
Gandhis sem grundvallaratriði
þjóðfrelsisbaráttunnar fremur af ,
pólitískum en trúarlegum og sið- |
ferðilegum ástæðum.
Þegar Gandlii hóf stjórnmála- '
baráttu sína fyrir alvöru upp úr
1920 gáfu Nehru og faðir hans
Nehru. (Teikn. Rafnar Lár)
Kongressflokknum mikinn hluta
eigna sinna. Árið 1929 varð Nehru
formaður flokksins. Hann átti í
stöðugum -deilum við Breta og
bæði honum og konu hans, Kam-
ala, var oft varpað í fangelsi. Alls
dvaldist Nehru í 13 ár í fangelsi,
og fangelsisvistin var konu hans
svo þungbær, að hún dró hana til
dauða.
Nehru náði sér aldrei eftir missi
konu sinnar, sem hann unni heitt.
Hann átti alltaf erfitt með að um-
gangast fólk. Hann var ekki opin-
skár og bærilegur í umgengni, en
hann hafði til að bera eiginleika,
sem voru traustvekjandi og báru
vott um viljafestu og víðsýni.
Nehru var eindreginn andstæð-
ingur fasisma fyrir heimsstyjöld-
ina síðari og á dögum hennar. —
Þessi afstaða hans varð m.a. til
þess, að hann notfærði sér ekki
erfiða aðstöðu Breta á þessum ár-
um. En liins vegar hafnaði hann
brezku áætluninni um sjálfstæði
Indlands, sem lögð var fram árið
1942.
Hann vildi ekki standa fyrir ó-
hlýðnisaðgerðum, þegar Bretar
áttu um líf eða dauða að tefla.
Hann sagði, að það væri Indverj-
um ekki samboðið.
15. ágúst 1947 hlaut Indland
sjálfstæði, en frelsið varð að
gjalda dýru verði. Indland varð að
láta af hendi stór landssvæði við
hið nýja ríki Múhameðstrúar-
manna, Pakistan. Þetta urðu upp-
tök hræðilegra átaka. Á sex vik-
um biðu yfir milljón manna bana
í átökum í þjóðflutningunum, sem
urðu að eiga sér stað vegna skipt-
ingarinnar.
Nokkrum mánuðum síðar var
Gandhi myrtur af ofstækisfullum
Hindúa, og ofstækisfullir andstæð-
ingar skiptingarinnar hótuðu Neh-
ru sífellt lífláti. Þegar lögum og
reglu hafði verið komið á, tókst
Nehru að skipuleggja hið nýja
Indland. Furstaríkin hurfu í ind-
verska sambandsríkið og komið
var á mörgum umbótum, sem mið-
uðu að því, að afnema öll merki
lénsskipulags og gera landið að
nútíma ríki, þar sem' allar þjóð-
félagsstéttir væru jafnréttháar og
konur nytu sömu réttinda og karl-
ar.
En hann stóð andspænis miklum
erfiðleikum og neyddist til að
hopa eftir að hafa í fyrstu hafizt
handa um að framfylgja allrót-
tækri umbótastefnu í þjóðfélags-
málum. Smám saman varð það
Framhald á 10 síðu.
NEHRU.
Nanda
bráðabir
Shastri líklegur eftirmaður
Nýju Delhi, 27. maí
(NTB - Reuter)
GULSARILAL NANDA fyrrum
innanrikisráðherra tók við emb-
ætti forsætisráðherra Indlands
í dag eftir fráfall Nehrus. Nanda
mun veita stjórninni forslöðu unz
Nehru heilsar Macmillan.
þingflokkur Kongressflokksins
kemur saman til fundar og kýs eft
irmann Nehrus.
Nanda, sem er fæddur 1898 og er
hagfræðingur að menntun, girnist
ekki stöðu eftirmanns Neh-rus. —
Nanda gekk í Kongressflokkinn
1921. Innanríkisráðherra hefur
hann verið síðan í september í
fyrra.
Líklegasti eftirmaður Nehrus er
Bahadur Shastri, sem er ráðherra
án ráðuneytis. Búist er við, að
hann verði kjörinn hinn nýi leið-
togi Kongressflokksins og að þann
taki við forsætisráðherraembætt-
inu af Nanda.
Shastri er 59 ára og varð fyrst
þjóðkunnur á Indlandi 1952 þeg- j
ar hann stjórnaði velhcppnaðri
kosningabaráftu Kongressflokks-
ins. Síðan hefur hann verið sam-
göngumálaráðherra, verzlunar-
málaráðherra og innanríkisráð-
herra. í ágúst í fyrra sagði hann
sig úr stjórninni til að helga sig
störfum í þágu flokksins.
Er Nehru veiktist tók hann aftur
sæti í stjórninni og varð ráðherra
án ráðuneytis. Upp á síðkastið
hefur hann tekið að sér æ fleirií
störf forsætisráðherrans.
Shastri er af miðstéttafólki konn
inn. Hann hefur lítið ferðast er-
lcndis og hefur ekki haft mikil af-
skipti af utanríkismálum. Ilann
hefur tekið virkan þátt í stjórn-
málum siðan hann var 17 ára gam-
Framh. á bls. 13.
Shastri.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 28. maí 1964