Alþýðublaðið - 16.12.1966, Side 2
Grein um ísland í New York Times:
Keflavík og Vietnam
eru í sama flokki
ENDA ÞÓTT góð sambúð milli is-
lendinga og varnarliðsins liafi
ieitt til þess að smám saman hafi
| verið dregið úr (höftum á hinu
2.600 manná varnarliði, er samt
nóg af vandamáium til þess, að
] Keflavík er talin „erfiður dvalar-
| -síaður“ í sama flokki og Vietnam.
Þinghaldinu
frestað til
1. febrúar
Reykjavík, — EG.
Fram er komin á Alþingri tillaga
um þingfrcstun fyrir jólin. Gerir
(Hlagan ráð fyrir, að fundum Ai-
þingis verði frestað frá 17. des-
ember 1966, eða síðar, ef henta
þykir, enda verði Alþingi kvatt
saman að nýju eigi síðar en 1.
febrúar 1967.
Þetta segir New York Times um
síðustu helgi í igrein, sem rituð
er af Werner Wiskari, fréttaritara
blaðsins.
Wiskari segir, að andstyggileg-
ustu takmarkanirnar séu þær, sem
eru um dvöl varnarliðsmanna í
Reykjavík og þau tímamörk, sem
þeim eru þar sett. Vegna þessara
tírslatekmarka (heim kl. 10 að
kvöldi nema miðvikudaga) séu
ferðaleyfi til Reykjavíkur lítið not
uð.
Um Reykjavík segir Wiskari, að
þrátt fyrir 80.000 íbúa hafi hún
anda og útlit smábæjar.
Annars skrifar Wiskari, sem oft
hefur komið hingað til lands áður,
aðallega í grein sinni um Surtsey
og sjónvarpið. Er fyrirsögn grein-
arinnar „Steinaldarmenn og
^rafud". Hann hefur það eftir
menntamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasyni, að áætlunin sé að sjón-
varpa sex daga vinkunnar. Wisk-
Framhald á 13. síðu
Ólafsvíking-
ar mótmæla
f
FUNDUR í Verkalýðsfélaginu
Jökli haldinn í Ólafsvík 14.-
des. 1966 mótmælir harðlega
framkomnum tillagum togara-
nefndar um auknar veiðiheim-
ildir hinna stóru togskipa inn-
an landhelginnar og þó sér-
staklega hinni grófu tillögu um
veiðisvæði sem spannar á nær
þvert yfir mynni Breiðafjarð-
ar og við Snæfellsnes. Mun
þannig eiga sér stað samfelld
rányrkja á þessu veiðisvæðíi
allt árið, því sama veiðisvæði
er þéttsetið þorskanetjatross-
um frá því í janúar og fram
undir vor. Samkvæmt reynslu
undangenginna ára þá mundi
slíkt skapa alvarlega ógnun við
atvinnu og afkomumöguleika í-
búanna á þessu landssvæði,
isem byggist nær einhæft á
skynsamlegri nytjun hinna
breiðfirzku fiskimiða. Það yrði
að teljast dýr stundarlausn á
vandamálum nokkurra togara,
að stofna í hættu atvinnu- og
afkomugi’undvelli heiila lands-
hluta. Þá vill fundurinn vara
eindregið við ofnotkun þorska-
netja á vetrarvertíð. Rreynsla
er fengin fyrir þeirri hættu-
legu veiðitækni sé henni beitt
iskefjalaust hvenær og hvar
sem er. Er því fúll og tíma-
bær nauðsyn að takmarka veiði
tímabil fyrir þorskanet og einn
ig að undanskilja þekktar
hrygningarstöðvar frá þeim.
Nýtt gróðurhús v/ð Sigfún
GRÓÐURHÚSH3 við Sigtún
var opnað í gær og eru þar nú
til sölu auk blóma jólatré og
ýmsar jólaskreytingar. Gróð-
urhúsið er rétt vestan við hús
Ásmundar Sveinssonar mynd-
liöggvara. Verða þama í fram-
tíðinni sýningar á blómum og
öðrum jurtum jafnhliða sölu á
þessum varningi og grænmeti.
Eigendur þessa nýja fyrir-
tækis eru garðyrkjubændurnir
Stefán Árnason á Syðri-Reykj-
um í Biskupstungum og Arn-
aldur (Þór, Blómvangi Mosfells
sveit. Byggingarframkvæmdir
við gróðurhúsið hófust sl. sum
ar og er það tæpast fullgert
enn, einkum frágangur á um-
hverfi og geymsluhúsnæði.
Gróðurhúslð við Sigtún mun
í fyrstu annast sölu á potta-
plöntum, afskornum blómum
og ýmsum skreytingum. Nú er
til þar gott úrval af jólatrjám
frá Jótlandi í ýmsum stærð-
um, rauðgreni og eðalgreni.
Jólatrén eru flutt inn á veg-
um fyrirtækisins. Auk gróð-
urvarnings verður þarna á boð-
stólum úrval af leirvarningi,
bæði blómaker og skrautmun-
ir.
í gróðurhúsinu verður í
framtíðinni ýmis konar ræktun
á jurtum og verður meginá-
herzla lögð á framleiðslu og
sölu garðplantna, pottaplantna
og afskorinna blóma. Þá verður
selt þar grænmeti eftir því sem
fáanlegt verður á hverjum
tíma. Nú fyrstu dagana verður
einkum lögð áherfzla á þjón-
ustu í sambandi við jólin.
Enn er ekki komin hitaveita
í gróðurhúsið og verður það
fyrst í stað kynt með olíu-
kyndingu, en bráðlega verður
lögð hitaveita í húsið frá bor-
liolu þar í grenndinni.
Þegar vorar verður plantað
sumarblómum og runnum í all-
stórt svæði bak við sjálft gróð-
urhúsið. í öðrum enda þess
verður plantað suðrænum jurt
um, vei'ða þæi' þar meira til
sýnis en sölu. í hinum endan-
um verða ræktaðar pottaplönt-
ur og aðrar jurtir til sölu.
Bílastæði, sem tekur allt að
40 bíla í einu, er fyrir framan
gróðurhúsið. Sjálft gróður-
húsið er um 4 þús. ferm. að
stærð.
Harka færist í loft-
stríðið í Vietn
SAIGON og HANOI, 15. des.
(NB-Reuter/AFP.
Bandarískar flugvclar urðu fyr
Fjörygt nafnakall nm
fé til Rauöasandskirkju
Reykjavík, EG
Það var óveivju fjörugt á fundi
sameinaðs þings í gær við at-
(kvaeðagreiðslu við 3. umræðu
f járlaga, er nafnakall fór fram um
tillögu frá Sigurvin Ein/J þyni
tnn 350 þúsund króna framlag til
endurbyggingar Saurbæjarkirkju
á Rauðasandí.
Kirkjan að Saurbæ á Rauðá-
sandi fauk eins og menn muna í
ofviðri í fyrra, og hefur síðan
verið þar kirkjulaust. Þetta er
bændakirkja, en eigandi umræddi'-
ar jarðar og þar með kirkjunnar
er einmitt Sigurvin Einarsson.
Þegar kom að því að greiða at-
kvæði um þessa tillögu var nafna
kalls óskað, og var það ekki til-
lögumaður, sem bað um það. Er
röðin kom að Sigurvin Einarssyni
úi'skurðaði forseti sameinaðs þings
ir snörpum árásum sovézkra MIG
þota af nýrri gerð og harðari
skothríð úr loftvarnarbyssum í ár
ásiun sínum á skotmörk í nánd
við Hanoi í gær, að því er skýrt
var frá í Saigon í dag. Þrjár
bandarískar fiugvélar voru
skotnar niður, ein þeirra af MIG
21 þotu og MIG-17 þotur lögðu
til atlögu við bandarísku flugvél
arnar.
Framh. á 13. síðu.
Birgir Finnsson, að Sigurvin gæti
ekki greitt atkvæði, þar som sam-
kvæmt 44. igrein þingskapa rnætti
enginn þingmaður greiða atkvæði
um fjárveitingu handa sjálfum
sér.
Við nafnakallið gerðu marglr
grein fyrir atkvæðum sinum.
Skúli Guðmundsson kvaðst vilja
minna á, að ráðheiTar hefðu
Framhald á 15. síðu.
Fjárlögin samþykkt
Reykjavík, — EG.
Fjárlög fyrir árið 1967 voru samþykkt í Sameinuðu þingi
í gærdag, en þá fór fram atkvæðagreiðsla urn breytingartil-
lögur. TiIIögur stjórnarandstöðunnar voru allar felldar og var
að ósk þeirra viðhaft nafnakall um næstum hverja einustu
tillögu.
Rekstrarafgangur á rekstraryfirliti fjárlaga er 242 milljónir
en greiðsluafgangur á sjóðsyfirliti er 2,2 milljónir króna. Nið
urstöðutölur á rekstraryfirliti eru 4075,2 milljónir, en á sjóðs
yfirliti 4711,3 milljónir króna.
2 16. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ