Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Page 1
Sjálfstæðismenn
með nefnd um fisk-
veiðistefnuna:
Á að opna
sjomn?
A fundi þingflokks og miöstjórnar
SjáUstseöisflokksms um helgina var
kosin nefnd til þess aö fara ofan i
saumana á fiskveiöistefnunni. For-
maöur er ráðherrann Matthias
Bjarnason. Á greiningur er innan
flokksins um þetta mál og á nú aö
reyna aö ná takti.
Samkvæmt heimildum DV eru þeir
þingmenn flokksins sem hafa bein-
linis þekkingu á sjáyarútvegsmálum
hallir undir núverandi fiskveiði-
stefnu og stjórnun. Aftur á móti eru
til þeir þingmenn sem eru í óbeinum
tengsium viö sjávarútveginn, gegn-
um hagsmuni sjávarplássanna, og
vilja opna sjóinn á ný.
HERB
Eins og sjá má á myndinni er báturinn mikið
skemmdur. Ekki er fullmetsð hve mikið tjó i-
DV-mynd PK.
Framkvæmda-
Gatið 5ÖÖ miíljónir
Viö undirbúning fjárlaga ríkisins
fyrir næsta ár hafa stjórnar-
flokkamir ekki gert upp hug sinn um
niðurskurð upp á 2,5 milljaröa króna,
hve mikið verður klipið af útgjöldum
hér og þar. Þar að auki er alveg
ófyllt í 400—500 milljóna gat.
Um þessi mál var rætt á fundum
þingflokka beggja stjórnarflokkanna
um helgina. Sá 2,5 milljarða niður-
skurður sem taka veröur afstööu til
er af sama toga og í ár. Ákveöa þarf
hvemig lækka á þau útgjöld, sem
einstök ráðuneyti hafa lagt til. Ekki
er um aö ræða niöurfellingu á meiri
háttar útgjaldaliðum.
Gatið sjálft er annars eölis og
samkvæmt heimildum DV greinir
stjómarflokkana nokkuö á um
hvernig þaö verði fyllt. Ný tekjuöflun
mun þó koma til álita. Sjálfstæðis-
menn munu alls ófúsir til þess að
hætta við eöa draga úr áframhald-
andi lækkun tekjuskatts, sem á aö
nema nærri 800 milljónum á næsta
ári.
-HERB.
Fádæma veðurblíða hafur
verið sunnanlands undan-
farna daga og menn notið
hennar óspart, eins og þessir
vinir ó Lækjartorgi í gær, sem
tylltu sér niður í hitanum til að
fá sér bita.
DV-mynd Bj.Bj.
Víkingabáturinn fauk við Korpúlfsstaði í rokinu á þriðjudag:
Þjóðhá tíðargjö fin
brotin og skemmd
Víkingabátur sem Norðmenn gáfu
Islendingum áriö 1974 liggur nú stór-
skemmdur við Korpúlfsstaöi, eftir aö
hann fauk í rokinu aðfaranótt þriðju-
dags. Báturinn var í umsjón Æskulýðs-
ráös og hafði staðið viö Korpúlfsstaði í
eitt ár, á sérbyggöum grunni.
Gísli Ámi Eggertsson, fulltrúi hjá
Æskulýösráði, sagöi í samtali við DV
aö báturinn hefði verið hjá Æskulýös-
ráði í geymslu og var vandlega gengið
frá honum á sinum tíma. Byggt var
undir hann, segl strekkt yfir og það
súrrað niður. Auk þess stóð báturinn á
ömggum stað, að því er menn töldu, og
í góðu skjóli. I hvassviðrinu slitnaði
hann upp af grunni sínum og fauk um
25 metra. Þykir með ólíkindum að
þetta skyldi gerast, en báturinn lyftist
um þrjá metra og valt yfir vegg.
Gísli Ámi sagöi að báturinn væri
mikið skemmdur en kvaðst eiga von á
því að hann yrði byggður upp aftur.
Fimm borð brotnuðu, skutur og stefni,
svo og bönd og þverbitar. Báturinn er
hefðbundinn norskur fiskibátur, eins
og þeir tíðkuðust þar í landi á víkinga-
öld. Þegar honum var komið fyrir á
Korpúlfsstöðum í fyrra var hætt að
nota hann og þarfnaðist hann orðið
mikils viðhalds.
-pá
stjórinn laus
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
Blindrafélagsins losnaði úr gæslu-
varðhaldi í gær. Maðurinn er grunað-
ur um að hafa dregið sér fé úr sjóö-
um félagsins. Var hann úrskuröaður
í gæsluvarðhald til 14. ágúst.
Rannsókninni er haldiðáfram.
-EH.
Sala Flugleiöa-
bréfanna:
Ekkertvid-
skiptasiðferði
— sjá kjallara
Kjartans
Jóhannssonar
á bls. 12
Fjármála-
hneyksli
— sjá kjallara
Magnúsar
Bjarnfreðssonar
á bls. 13
íslenskkona
íeldlínunni
hjáEssó
íDanmörku
— sjá viðskipti og
efnahagsmál
ábls.35
Skólafólk
bjargar
fiskvinnslunni
— sjá viðskipti
og efnahagsmál
ábls.34
Geithafurínner
ekkióeðlilegur
— sjá lesendur
ábls. 17
m m
Drottninginer
efstílaxinum
— sjá Veiðivon
ábls.5