Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Side 11
DV. FIMMTUDAGUR15. AGUST1985.
11
Fyrsta íbúðablokkin
byggð á Hvammstanga
— flestireiga
einbýlishús
„tbúðirnar hér eru hugsaðar fyrir
fólk sem er búið að bregða búi,”
sagði Einar Jónsson trésmíðameist-
ari og einn af aðstandendum bygg-
ingarfélagsins Starra á Hvamms-
tanga, en fyrirtækið reisir nú fyrstu
ibúðablokkina á staðnum. Yfirgnæf-
andi meirihluti íbúa á Hvamms-
tanga býr í einbýlishúsum eða rað-
húsum.
„Það var auðsætt að verkefnis-
skortur yrði hjá húsasmiðum í sum-
ar hér og við fórum út í þetta upp á
von og óvon,” sagði Einar. Starri var
stofnaður sérstaklega fyrir þetta
verk og hjá fyrirtækinu starfa 6 til 10
manns við bygginguna. Ætlunin er
að gera hana fokhelda fyrir haustið.
Hvað verður þetta stórt hús?
„Það verður þrjár hæöir með 8
tveggja til þriggja herbergja íbúð-
um. Við notumst við teikningar frá
Húsnæðisstofnun.”
Nú virðast flestir á Hvammstanga
eiga einbýlishús. Kannt þú skýringu
áþví?
„Málið er þaö að kaupfélagið var
það vel stætt að það gat leyft flestum
húsbyggjendum að opna hjá sér
byggingarreikning þegar þeir fóru
að byggja. Fólk tók út efni í húsbygg-
inguna og húsnæðislániö jafnaði
þann reikning út þegar það kom.
Þetta hefur hins vegar breyst á und-
anförnum árum. Fjárhagsstaða
Einar Jónsson, trésmiðameistari á Hvammstanga.
kaupfélagsins er ekki eins góð og áð-
ur.”
Eru þetta dýrar íbúðlr sem þið
byggið?
„Verðið á íbúöunum miðast við
byggingarkostnaö og er reiknað út af
Húsnæðisstofnun. Ef fólk miðar við
söluverð á eldra húsnæði hér er mjög
líklegt að því þyki þær dýrar, því að
hér seljast einbýlishús á allt niður í
tvær milljónir.”
JKH
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöflur vifl framhalds-
skóla:
Við Menntaskólann að Laugarvatni eru lausar til um-
sóknar kennarastöður í ensku og stærðfræði. Hús-
næði á staðnum. Upplýsingar veitir Kristinn Krist-
mundsson skólameistari í síma 99-6121.
Umsóknir sendist menntamálaráðuneytinu, Hverf-
isgötu 6,101 Reykjavík fyrir 26. ágúst.
Menntamálaráðuneytið.
SMÁAUGLÝSINGAR DV
MARKAÐSTORG
TÆKIFÆRANNA
Þú átt kost á aö kaupa og selja
allt sem gengur kaupum og sölum.
Bara aö nefna paö í smáauglýsingum DV,
hinu ótrúlega markaöstorgi tækifæranna.
Markaöstorgiö teygir sig víöa, Þaö er sunnanlands
sem noröan, vestan sem austan, í bátum sem flug-
vélum, snjóbílum sem fólksbílum, hvarvetna er DV lesið.
Einkamál. Já, þaö er margt í gangi á markaöstorginu,
en um hvaö er samiö er auövitaö einkamál hvers og eins.
Sumir borga meö fínpressuöum seölum.
Menn nýkomnir úr banka? Þarf alls ekki aö vera.
Gætu hafa keypt straubretti á markaöstorginu daginn áöur.
Smáauglýsingar DV eru markaöur meö mikinn mátt.
Þar er allt sneisafullt af tækifærum.
Þaö er bara aö grípa þau.
Sumarhús
í Skorradal
Til sölu er sumarhús í Vatnsenda-
landi í Skorradal. Frábært skógi
vaxið land. Húsið afhendist fullfrá-
gengið, með rennandi vatni og raf
magni. Nánari upplýsingar gefur
Sumarhús við Álftavatn
Til sölu er nýtt fullfrágengið sumar-
hús, 42 ferm að stærð. Húsið stend-
ur á einum hektara eignarlands sem
liggur að vatninu. Leyfi til að byggja
annað hús á landinu.
Nánari upplýsingar gefur
KR SLMARIHJS
Kristinn Ragnarsson húsasmíöameistari
Kársnesbraut 128, sími 41077, heima-
sími 44777, Kópavogi.
Þú hringir... t D i .
Vid birtum...
Það ber árangur!
Smáauglýsingadeildin er í Þverholti 11.
Opið: Mánudaga-föstudaga, 9.00—22.00
laugardaga, 9.00— 14.00
sunnudaga, 18.00—22.00
Frjalst,óháÖ dagblaÖ
ER SMÁAUGLÝSINGABLADID