Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1985, Síða 30
30
NORÐURLAND VESTRA
DV. FIMMTUDAGUR15. AGDST1985.
- i
'**
*■
99
Hef veríð í efstu sæt-
unum arum saman
99
— segir skattakóngur Norðurlands vestra,
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri
„Ég hreinlega man ekki hvort ég hef
veriö hæsti skattgreiöandinn hér í um-
dæminu áöur. Hins vegar hef ég í mörg
ár verið í fimm efstu sætunum,” sagöi
skattakóngur Noröurlands vestra,
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri,
í samtali við DV.
Sveinn er framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins Skagstrendingur hf. og hefur
verið þaö í 16 ár, eöa frá stofnun þess,
en fyrirtækiö rekur tvo togara.
„Eg hef nú lítið hugsað út í þaö hvort
þaö hafi komiö mér á óvart aö ég
skyldi veröa efstur. Hins vegar er ég
maöur með háar tekjur sem vinnur hjá
fyrirtæki með veltu upp á 180 milljón-
ir,” sagöi Sveinn Ingólfsson.
-KÞ
Heildarálagningin
tæpar 390 milljónir
Heildarálagning álagöra gjalda í
Noröurlandi vestra er 389.133.000.
Þaö skiptist svo að á einstaklinga eru
lagöar 311.624.000 krónur, en á lögaöila
77.509.000 krónur.
I fyrra borguöu einstaklingar
238.972.000 og er því hækkunin milli ára
30,4 prósent. Lögaöilar borguöu hins
vegar í fyrra 57.009.000. Nemur hækk-
unin milli ára því 35,96 prósentum. -KÞ
Kaupfélögin raða
sér f efstu sætin
Eftirtaldir tögaðilar greiða hæstu skatta & Norðurlandi
vastra:
1. Kaupfólag Skagfirðinga, Sauð&rkróki
2. Sildarverksmiðjur ríkisins, Siglufirði
3. Kaupfólag A-Húnvetninga, Blönduósl
4. Þormóður rammi hfSiglufirði
5. Sparisjóður Siglufjarðar
6. Kaupfólag V-Húnvetninga, Hvammstanga
7. Skagstrendingur hf., Skagaströnd
8. Sigló hf., Siglufirði
9. Útgerðarfólag Skagfirðinga, Sauðórkróki
10. Hólanes hf., Skagaströnd
Kr. 9.316.725
3.827.732
3.405.485
2.724.781
2.651.641
2.376.915
1.810.102
1.787.071
1.668.925
1.589.275
Framkvæmdastjóri
í ef sta sætinu
Eftirtaldir einstaklingar greiða hæstu skatta 6 Norðurlandi
vestra:
1. Sveinn Ingólfss. frkvstj., Skagastr. Kr. 803.721
2. Jón Dýrfjörö vólvirkjameistari, Siglufiröi 801.988
3. Guðjón Slgtryggsson skfpstjóri, Skagaströnd 750.145
4. Erlendur Hansen iðnrekandi, Sauðórkróki 694.976
5. Kristinn Gunnarsson lyfsali, Siglufirði 608.404
6. Einar Þorlóksson kaupmaður, Blönduósi 592.271
7. Ólafur Svelnsson læknir, Sauöórkróki 565.035
8. Lórus Æ. Guðmundss., frkvstj., Skagastr. 545.626
9. Geir Þ. Zoéga verksmiðjustjóri, Siglufirði 521.655
10. Asa G. Guðjónsdóttir læknlr, Slglufirði_ 495.395
Meðal efnis:
* , ,Þú ert ekki vitlaus
* Barnavændi
* Hvers vegna sveltur Eþíópía?
* Sér grefur gröf þótt grafi
* Læknir smávaxna fólksins
* Hvað ræður velgengni Sony?
* Til hamingju með afmælið, Bach
* Lifið betur — lifið leneur
þú ert veikur
■
* •• /
Póll Ólafsson og Agnar Ol-
sen, verkfræðingar hjó Lands-
virkjun i um 20 6r, og hjólin
hafa sannarlega snúist i hönd-
um þeirra. Hór eru þeir við drif-
hjól í einni af sex vólasamstæð-
um Búrfellsvirkjunar.
DV-mynd Bjarnleifur
Menn mikilla
mannvirkja
— Páll Ólafsson og
Agnar Olsen
hjá Landsvirkjun
Páll Olafsson og Agnar Olsen, verk-
fræöingar hjá Landsvirkjun í um 20 ár,
hafa Iátið hjólin snúast svo um munar.
Þeir hafa tekið þátt í aö byggja Búr-
fellsvirkjun, Hrauneyjafossvirkjun
og Sigölduvirkjun. Síöast var þaö Sult-
artangastiflan, nú er þaö Kvíslaveitan.
Páll hefur veriö maöur fjallanna á
þessum árum veriö staöarverkfræö-
ingur Landsvirkjunar, en Agnar hefur
meira helgaö sig virkjununum viö
teikniborð fyrirtækisins í bænum.
Menn mikilla mannvirkja. Og hafa
þeir ekki samviskubit, því skuldimar
eru miklar vegna þess arna? Nei, al-
deilis ekki, svöruöu þeir brosandi.
-JGH
Nýirorganistar
flaugarneskirkju
Um þessar mundir verða organista-
skipti í Laugarneskirkju í Reykjavík.
Gústaf Jóhannesson, sem yfir 22 ár
hefur starfaö sem organisti kirkjunn-
ar, lætur nú af störfum. Gústaf læröi
orgelleik hjá Páli Isólfssyni á sínum
tíma. Hann hefur haldið marga sjáif-
stæða tónlieka og er tvímælalaust einn
af færustu orgelleikurum þessa lands.
Nýir organistar taka nú viö störfum
en þaö eru hjóninn Ann Toril Lindstad
og Þröstur Eiríksson. Þau hafa stund-
aö nám viö Tónlistarháskólann í Osló í
6 ár og luku bæði magistersprófi í
kirkjutónlist fyrir tveimur árum og
hafa nú nýverið lokiö tveggja ára
framhaldsnámi við sömu stofnun. I
framhaldsnámi lagöi Ann Toril stund á
einleik á orgel en Þröstur nam liturg-
iska söngfræöi og skrifaöi lokaritgerð
sína um islensku sálmabækumar frá
upphafi.
Þessi hjón hafa bæði starfaö sem
organistar í Osló meö námi og hafa því
þegar aflaö sér mikillar reynslu.
(Fréttatilk. frá Laugarneskirkju.)
Leitið upplýsinga:
'B BREIÐFJÖRÐ
BUKKSMMXJA-STCYPÚMÓT-VOfKffKLLAR
SICTUNI 7 - 121 REYKJAVIK- SIMI 29022